Alþýðublaðið - 12.01.1980, Page 1

Alþýðublaðið - 12.01.1980, Page 1
Nýtt Hræðslu- bandalag? kv. yfirlýsingum Geirs Hallgrimssonar, formanns Sjalfstæðis- flokksins, snúast stjórnarmyndunarviðræður af hans hálfu um tvennt: Aögerðir gegn verðbólgu og breytingar á kjördæmaskipan og kosn- ingalögum. Þvi er yfirlýst, að þjóðstjórn, ef hún kemst á laggir- nar, sé ekki ætlað að sitja út heilt kjörtimabil. Er gert ráð fyrir nýjum kosningum vor eða haust 1981. Undanfari þeirra væri samkomulag um breytingar á kjördæmaskipan og kosninga- lögum. lestum virðist ganga erfiðlega að skilja samhengið i þessum framgangsmáta forystumanna Sjálfstæðisflokks- ins. Viðræðuaðilar, Sjálfstæðis- manna bera raunar brigður á, að nokkur alvara búi að baki. Það sem fyrir Sjálfstæðismönnum vaki, sé að .„vera inni i mynd- inni” og nota timann nú til þess að byggja brú yfir til Alþýðubanda- lagsins. Sjálfstæðisflokkurinn hældi sér af þvi fyrir kosningar, að flokknum hefði tekizt með ræki- legum málatilbúnaði i efnahags- málum að láta kosningarnar snúast um stefnu Sjálfstæðis- flokksins. Hún var kennd við leiftursókn. Arangurinn af þessari rækilegu umfjöllun um efnahagsstefnu Sjálfstæðisflokks- ins fyrir kosningar, reyndist minni en vonir höfundanna stóðu til. Eftir kosningar hefur flokkurinn svo algerlega söðlað um. Enginn heyrir minnzt á leiftursóknina lengur. Lengst af þess tima, sem Geir Hallgrims- son hefur haft umboð til stjórnar- myndunar, lagði hann engin gögn fram til að skýra afstöðu flokks- ins. A allra seinustu dögum hafa gögn verið lögð fram, en um leið er rækilega áréttað, að á þau beri ekki að lita sem stefnu Sjálfstæðisflokksins. Enginn eigi höfundarrétt að þessum hugmyndum. Ekkert liggur fyrir um það, að þessar hugmyndir hafi verið samþykktar i valda- stofnunum flokksins. Úr þing- flokki Sjálfstæðismanna berast þær fregnir, að áhrifamiklir aðilar innan þingflokksins séu þessum hugmyndum andsnúnir. Vinnubrögð af þessu tagi eru að visu nýstárleg, en vandséð er aö þau séu til bóta. jóðstjórnarhugmyndin finnur fyrst og fremst nokkurn hljómgrunn vegna þess, að fólk er orðið þreytt á sundurlyndi stjórn- málaforingjanna og árangurs- leysi þeirra. Ymsum finnst að ástandið i þjóðfélaginu kalli á það, að minniháttar ágreinings- efnum sé vikið til hiiðar og að allir st jórnmálaflokkarnir sameinist i eins konar vopnahléi um sterka stjórn. En styrkur rikisstjórnar ræðst ekki af fjölda þingmanna aö baki henni, né heldur i þvi að hún verði látin i friði af stjórnarandstöðu. Heynslan bendir þvert á móti til þess að naumur þingmeirihluti sé liklegastur til að efla samstöðu stjórnarsinna. Alla vega gefur hún sterkri flokksforystu kost á þvi, að halda sundurvirkni og sér- hagsmunapoti einstakra þing- anna i skefjum. Styrkur rikis- stjórnar ræðst einmitt fyrst og fremst af þvi, að samstarfs- aðilarnir séu samhentir um fram- gang fyrirfram markaðrar stefnu. Engin rikisstjórn mun ná umtalsverðum árangri i efna- hagsmálum við rikjandi aðstæður hér á landi, nema hún ætli sér frá upphafi að fylgja aðgerðum sinum eftir út allt kjörtimabilið. 1-^' þessu er veikleiki þjóð- stjórnarhugmyndar- ^innar ekki hvað sizt fólginn. Nú er komið á 5. vikú frá þvi að stjórnarmynd- unat;viðræður undir forystu Framsóknarflokksins hófust. A þessum'^ima hafa aðeins tveir stjórnmálaflokkanna, þ.e. Alþýðuflokkur og Framsóknar- flokkur, lagt spilin á borðið, að þvi er varðar stefnu flokkanna i efnahagsmálum. 1 megin dráttum er ljóst að þessir tveir flokkar geta náð málefnalegri samstöðu, en hafa hins vegar ekki nægilegan þingstyrk. Stefnu- mörkun fyrir þjóðstjórn byggist á þvi að finna samnefnara fyrir stefnu fjögurra flokka. Fyrir þvi er varla fræðilegur möguleiki. Alþýðubandalagið hefur t.d. algerlega hafnað tillögum Alþýðuflokks og Framsóknar. Takist þessi stjórnarmyndunar- tilraun, byggist það á þvi að menn finni pólitiskan samnefnara, sem um leið útilokar sennilega að árangur geti náðst i stjórn efna- hagsmála. Þetta verður eins konar hræðslubandalag. Kosningum i stærsta lýðræðis- riki heims, Indlandi, lauk 6. jan. s.l. Það tók tvo daga að telja atkvæðin. A þriðja degi fól forseti sigurvegara kosninganna að mynda stjórn. Daginn eftir haföi Indira Gandhi birt ráðherralisti? sinn. Kannski við getum lært fleira en jóga og „innhverfa ihugun” af Indverjum? -JBH Gylfi Þ. Gísla- son: „Ég mun ekki gefa kost á mér til for- setaframboðs á sumri komanda” Þegar fregnir tóku að , . birtast um það fyrr i vetur, aö forseti Islands, dr. . Kristján Eldjárn, hygöist ekki gefa kost á sér til framboös á ný, og þó einkum eftir að hann lýsti þvi yfir i nýársá- varpi sinu til þjóðarinnar, aö svo yrði, hafa margir fariö þess á leit við mig, að ég gæfi kost á mér til næsta forsetakjörs. Þegar ég lét af þingmennsku fyrir hálfu öðru ári, gerði ég opinberlega grein fyrir þvi, hvaða störfum ég hefði hug á aö sinna á næstu árum. Þau áform min eru óbreytt. Ég mun þvi ekki gefa kost á mér til for- setaframboðs á sumri komanda. Reykjavik, 11. janúar 1980. Gylfi Þ. Gislason. Flokkstjórnarfundur verður haldinn í Iðnó (uppi) mánudaginn 14. jan kl. 17:00 Umræöu efni: Stjórnarmyndunartilraunir Framsögumadur: Benedikt Gröndal Benedikt Gröndal, formaður Meginatriöi hins nýja húsnæöislánakerfis eru aö ■ greiöslugetu hins almenna lántakanda sé ekki ofboöiö og ■ ávöxtun sjóðanna og útlánageta verði tryggð Nýtt húsnæðislánakerfi Lagafrumvarp Magnúsar H. Magnússonar, félagsmálaráð- herra, um nýskipan húsnæðis- mála og lánveitingar til ibúða- bygginga er eitt stærsta hags- munamál almennings I landinu. Frumvarpið var lagt fram fyrir jólin og hélt ráðherrann framsöguræðu með frumvarp- inu nú á dögunum. Frumvarpið er i alla staði mjög ítarlega unniö og lögö á það áherzla aðgera samanburð við þau lög og reglur, sem gilt hafa á þessu sviði áöur. Það er einnig nýlunda, að fram skuli lögð drög að reglugerðum fyrir frumvarpið samhliða sjálfu frumvarpinu. Við mótun tillagna frumvarpsins um skipulag lánamála og tilhögun lánveitinga hefur verið gerð itarleg athugun og samanburður á skipan húsnæðismála i nágranna- löndum okkar, einkum annars staðar á Noröurlöndum, en þess gætt, að laga tillögurnar að aðstæðum hér á landi. Þetta mun vera i fyrsta skipti, sem geröar eru itarlegar tillögur um með hvaða hætti ibúðarbygg- ingar verði fjármagnaðar á næstu árum, eða allt fram til ársins 1990. Embættismennimir i Félagsmálaráöneytinu, hjá Þjóðhagsstofnun og Seðlabanka tslands hafa unnið mikið starf og gott. Grundvallarsjónarmið Grundvallarsjónarmið frumvarpsins samkvæmt þessum nýju lögum eru annars vegar, að greiðslugetu hins almenna lántakanda sé ekki ofboðiö og hins vegar, aö ávöxtunsjóðanna og útlánageta verði tryggð. Umfangsmestu breytingarnar eru þær, aö stefnt skal að þvi, aö 30% IbUðabygg- inga skuli nú reistar á félags- legum grundvelli með háum lánum, og að lánshlutfall á að hækka I áföngum fram til ársins 1990, þegar það á að nema 80% byggingarkostnaöar.Tryggja á, meö sérstökum reglum, aö greiðslubyrði lána til ibúöar- bygginga á félagslegum grund- velli, verði aldrei meiri en sem svarar hóflegu hlutfalli af ráðstöfunartekjum láglauna- fólks. Þrjár deildir 1 lögunum er gert ráö fyrir að Húsnæöismálastofnun starfi i þremur deildum: Deild fyrir almenn ibúðaveðlán, sem fari með málefni Byggingasjóðs verkamanna, Byggingarsjóðs rikisins og lánveitingar Ur honum, deild fyrir félagslegar ibúðir, sem annist málefni Byggingarsjóðs verkamanna og leiguibúðir sveitafélaganna, og tæknideild, sem hafa á með höndum tæknileg málefni stofnunarinnar. Fyrir hverri deild verða framkvæmda- stjórar og auk þess forstjóri sem ætlað er að sjá um heUdar- stjórn stofnunarinnar. Félags- málaráðherra skipar forstjóra og framkvæmdastjóra hinna einstöku deilda. Byggingar- sjóður rikisins greiðir kostnað við almenna ibúðaveðlánadeild stofnunarinnar, byggingasjóður verkamanna greiðir kostnað við deild félagslegra ibúða, en rekstur tæknideildar skal borinn upp af sölu á þjónustu þeirrar deildar. Nýmæli i skipu- lagi Húsnæöismálastofnunar er þannig komið á með formlegum hætti við þessa deildarskiptingu innan hennar. Bókhald, annað en lánabókhald, flyzt tU rikis- bókhaldsins. Niður fellur tilnefning Veðdeildar Lands- banka Islands á einum manni i stjórn stofnunarinnar, og fækkar þeim þvi um einn. Kjörtimabil stjórnarinnar er breytt þannig, að hana skal kjósa að afstöönum hverjum almennum þingkosningum, en ekki á f jögurra ára fresti eins og nú tiðkast. Verkefnum stjórnar stofnunarinnar er hnikaö litil- legaog hún leyst undan þvi, aö þurfa aö fjalla um, og árita, hverja einstaka lánveitingu. Helztu breytingar Helztu breytingar miöað við gildandi lög eru þær, aö sjóðurinn verður varðveittur i Seðlabanka Islands i staö Veðdeildar Land-sbanka Islands. Þá er gert ráö fyrir aö niöur falli það flókna fyrir- komulag, sem gilt hefur um afgreiðslur lána, þar sem Veðdeildin hefur að forminu til verið lánveitandi gagnvart húsbyggjendum, en Bygginga- sjóður rikisins siðan lánveitandi gagnvart Veödeildinni. Lagt er til að Byggingarsjóður veiti lánin beint til lántakenda, en veðdeildin annist afgreiöslu þeirra og innheimtu f.h. sjóösins. Tekin er upp heimild til að fela almennum innláns- stofnunum afgreiðslu og innheimtu lánanna i þvi skyni að færa þjónustuna viö lántakanda nær honum. Skipan þeirra ákvæða, sem fjalla um útiánaf lokkana er sú, að i lögunum eru festar allar helztu meginreglur um lánshæfni, missi lánsréttar og meðferö lánsumsókna. Loks er þess nýmælis að geta, að sækja skal um lán til nýbygginga áður en framkvæmdir hefjast. Er slikt tilbóta fyrir húsbyggjanda, sem þannig fær tóm til að bæta Ur ágöllum á umsókn eða fyrirhugaðri framkvæmd, sem ella hefðu getað svipt viðkomandi lánsrétti. Eins varðar þaö miklu fyrir hUs- næðismálastjórn, að fá vitneskju sem fyrst um fram- kvæmdir, vegna áætlana um lánsfjárþörf. Hinir 9 flokkar útlána eru: 1. Almenn nýbyggingalán til einstaklinga. 2. Lán til bygginga stofnana eða heimila. 3. Séistök viöbótarlán til ein- staklinga meö sérþarfir. 4. Lán til kaupa á eldra hUsnæði. 5. Lán til meiriháttar viöhalds, endurnýjunar eða stækkunar á eldra húsnæði. 6. Lán til orkusparandi breyt- inga á húsnæði, einkum utan hitaveitusvæða. Framhald á bls. 2 Helgi Már Arthúrsson skrifar Sögulegar sættir eru vfdar á dagskrá en milli fhalds og komma á íslandi. Sjá grein um Jean-Paul Sartre og Reymond — Aron 4 Hvernig á ad spara f rfkisrekstrinum. Sjá erindi Björns Friðfinnssonar

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.