Alþýðublaðið - 19.01.1980, Page 3
Laugardagur 19. janúar 1980.
3
( -- --------------------------------------------------------------------------------------- ■■■ - -)
alþýöu
n FT.rr.a
Alþýöublaöið:
Framkvæmdastjóri:
Jóhannes Guömundsson
Stjórnmálaritstjóri (ábm>:
Jón Baldvin Hannibalsson
Blaöamenn: Garöar Sverris-
son _ Ólafur Bjarni Guöna-
son ’ og Helgi Már Arthurs
son.
Auglýsingar: Elin
Haröardóttir:
Dreifingarstjóri: Siguröur
Steinarsson
Gjaldkeri: Halldóra Jóns-
dóttir
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Siðumúla 11, Reykjavik
simi 81866.
í tilefni af rekstar-
B erfiðleikum Flug-
leiða.sem gerðir hafa
verið að umtalsefni i
fjölmiðlum siðustu vikur, birti
Björn Friðfinnsson, fjármála-
stjóri Reykjavikurborgar, at-
hyglisverða blaðagrein, þar
sem hann fjallar um fram-
tiðarmarkmið og stefnumótun
stjórnvalda og fyrirtækja hér á
landi. Hann segir m.a.
„Framsýni er sjaldgæfur
eiginleiki, sem einungis
miklum leiðtogum er gefinn.
Mikið er nú rætt um innrás
Rússa i Afghanistan og þvi
hefur m.a. verið haldið fram i
erlendum blöðum að hún sé i
samræmi við langtimastefnu
þeirra um að afla sér greiðari
VIÐ EIGUM ENGAN LENÍN
aðgangs að Indlandshafi.
Meira að segja á Lenin að hafa
mótað þessa stefnu og sagt er
að i miðri borgarastyr jöldinni i
Rússlandi hafi hann gefið sér
tima til þess að ihuga vandamál
kóngsins i Afhanistan og senda
honum vopn til að vinna vináttu
hans. Það hafi ekki verið fyrr
en löngu síðar, sem sam-
starfsmenn Lenins sáu, hvað
hann var að fara.
En við eigum engan Lenin og
stefnumótun til margra ára-
tuga er erfiðari i lýðræðisþjóð-
félagi en i einræðisrikjum.
H ver er stefna
tslendinga? bannig
má spvrja á fjöl-
mörgum sviðum án
þess að nokkurt svar fáist.
Þessa dagana er talað um að
móta stefnu okkar i efnahags-
málum til næstu 18 mánaða.
Enginn talar eða hugsar um,
hver stefna skuli rikja næstu 18
árin.
Stjórnmálaflokkarnir eru
tæki þjóðarinnar til stefnu-
mótunar, en stefnuskrár
þeirra eru harla litil vis-
bending um framtlðarstefnu,
þótt viða sé hnykkt á frómum
óskum með oröalagi eins og:
auka ber..., efla ber... og
styrkja ber... Flokkarnir
mynda svo samsteypustjórnir
til skamms tima og þar finnst
mönnum a.m.k. stundum að
hending ráði, hvaða stefna
verður ofan á.
Eitt af grundvallaratriðum
stjórnunarfræða samtimans
er áherzla á stefnumótun til
langs tima, sem siðar er
hrundiö i framkvæmd með
hjálp áætlana, er ná yfir
skemmri timabil.
Forsendur slikrar stefnu-
mótunar eru athuganir á þróun
markaðsmála, tækni, auðlinda-
nýtingar o.fl. en á grundvelli
þeirra athugana er svo reynt
að spá um framtiðina og velja
fyrirtækinu þá stefnu, sem
vænlegust virðist til árangurs
miöaö viö markmið þess.
■ framhaldi af
* spurningum, sem nú
koma upp ihugann,(vegna
rekstrarörðugleika Flugleiða)
er timabært að spyrja um
stefnumótun annarra stórra
fyrirtækja hér á landi. Hvað
liður stefnumótun fisksölu-
fyrirtækja okkar? Hafa þau
mótað stefnu til langs tima um
markaðsmál sin og fram-
leiðslu.?
Talið er, að innan 200 milna
fiskveiðilögsögu N-Ameriku
séu um 20% af fiskmagni
heimshafanna. Fara þarlendir
fiskimenn ekki að veiða sjálfir
slvaxandi hlut af þeim fiski, um
leið og erlendum veiðiflotum er
stuggað frá? Hvar verða beztu
fiskmarkaöir um næstu alda-
mót? Breytist fiskmarkaður
okkar I Sovétríkjunum ef við
hættum að kaupa þaðan ollu?”
1 framhaldi af þessum
spurningum Björns er tima-
bært að spyrja: Er ekki brýnt
að tslendingar tryggi sér nú
þegar fótfestu til frambúöar á
fiskmörkuðum Efnahags-
bandalagsrikjanna, með svip-
uðum hætti og gert var i Banda-
rlkjunum á striðsárunum og
siðan? Þessir markaðir hafa
upp á að bjóða mikla kaupgetu
og þróað dreifingarkerfi. Fisk-
framboð á þessum mörkuðum
hlýtur hins vegar að vera mik-
illi óvissu undirorpið á næstu
áratugum. Hvað hafa sölusam-
tök okkar aðhafzt á þessum
mörkuðum hingað til?
ð lokum segir Björn
Friðfinnsson:
„Auðvitað er ekki
siöur nauðsynlegt aö
móta stefnu til langs tima fyrir
þjóöarbúið i heild. Slik stefna
tryggir ekki.að hægt sé að sjá
fyrir alla óorðna hluti, en sjálf
aðferðafræðin við mótun lang-
timastefnu tryggir það, að
menn sjá betur samhengið i
hlutunum og forða má margs
konar mistökum, sem við erum
sífellt að gera.”
—JBH
Er Indland á leið til einræðis?
Meirihlutasigur Indiru Gandhi
og Kongressflokksins I kosning-
unum á Indlandifyrir stuttu hefur
þaö i Fór meö sér, aö staöa hennar
veröur svipuö og á þeim timum er
hiin lýsti neyöarástandi i landinu
og stjórnaöiþvlmeö braöabirgöa-
og herlögum. t krafti hreins
meirihluta getur hún gert
breytingará stjórnarskránni eftir
hentugleikum og óllklegt veröur
aö telja, aö um sterka stjórnar-
andstööu veröiaö ræöa á Indlandi
a.m.k. ekki fyrst um sinn.
Framtlð Indlands er óviss.
Síðustu ár fyrri valdatima Indiru
Gandhi og sú meirihlutaaðstaða
sem hún hefur nú gefa ekki tilefni
til bjartsýni. Tilgangurinn helgar
meðaliö á Indira Gandhi aö hafa
sagt um bráðabirgöaúrræði þau
er hún lét grlpa til, til lausnar
þeim vandamálum, sem steðjuðu
að og gera raunar enn. Það sem á
sinum tima lá að baki því að
Indira tók sér vald sem einræðis-
herra var m.a. þetta Hún leit svo
á að Indland hefði ekki efni á því
að vera að burðast með stjórnar-
andstöðu ef landið ætti aö breyt-
ast úr fátæku frumstæöu bænda-
samfélagi i eitt af tiu mestu
iðnaðarrikja heimsins. Hún hélt
þvl fram að Indland og lýðræðið
ættu ekki samleið i bili.
Spurningin sem menn velta
fyrir sér í dag er sú hvort vegir
lýðræðisins og Indlands liggi
saman I dag eða ekki að mati
Indiru Gandhi og samstarfs-
manna hennar. Fátt bendir til
þess að svo muni verða. Það má
benda á, að stór hluti nýkjörinna
þingmanna Kongressflokksins
eru kaupsýslu- og „fram-
kvæmdamenn”, sem hafa hvorki
pólitiska né lýðræðislega reynslu
eða skólun, eða hefö að styöja sig
við. Hugmyndafræði er þeim
óþekkt fyrirbrigði. Þeirerubygg-
ingarefni þjóðfélags regluveldis.
Þessi staöreynd hefur vakið óhug
og viöbjóð margra þeirra, sem
þátt hafa tekiö I opinberri um-
ræðu á Indlandi þegar ritskoðun
hefur ekki verið beitt.
í þeirri stöðu sem upp er komin
nú, og i ljósi þess, að nágranna-
risaveldi við Indland er farið að
sýna klærnar svo um munar i
þessum heimshluta og I ljósi
þeirrar efnahagskreppu sem
þjáir vestrænu rikin er rétt aö
minnast orða Nehrus föður Indiru
seiri hann lét falla 1936. „Meöal
indverskra manna og kvenna er
greinilega farið að bera á faslsk-
um hneigðum — og þessi viöhorf
hafa fundiö hljómgrunn innan
Kongressflokksins.” Spurningin
um það hvort indversku þjóðinni
verður stjórnað eftir leiðum lýð-
ræðis eða einræðis ákvarðast ekki
bara af ástandinu heima fyrir.
Þar koma alþjóðamál sterklega
inn i myndina. Staðan I alþjóða-
málum er ekki sú I dag, eftir inn-
rás Sovétmannal Afghanistan aö
það megi teljast lýðræðisþróun á
Indlandi i hag. Hætt er við þvl að
Indira veðji á þann hest, sem
sterkasturer i nágrenni Indlands,
en það eru Sovétrikin. Hún hefur
ekki fordæmt innrásina i
r
Afghanistan og hún tók af-
slappaða afstöðu, þegar Rússar
leiddu Varsjárbandalagið til inn-
rásar I Tékkóslóvakiu þ.e. hún
fordæmdi ekki innrásina. Hún
studdi Sovétrikin I raun.
Liklegt verður að telja að
Bandarlkjamenn muni i náinni
framtið veita herforingjastjórn
Zia I Pakistan stóraukna
hernaðar og efnahagsaðstoð.
Þetta gæti hugsanlega leitt til
þess að Indverjum þætti sér
ógnað eða 'reiknað dæmiö þannig
að þeim vopnum san Pakistanar
fengjufrá Bandarikjunum yröi áö
endingu beint gegn þeim. Þetta
gerðist einmitt eftir að þessir
sömu aðilar geröu meö sér eins
konar varnarbandalag gegn Kln-
verjum 1959. Indira er þvl Ukleg
til þess að leiða þjóö sina I ein-
hverskonar ánauð I skugga
sovésku útþenslustefnunnar.
Það er gert ráð fyrir þvi I
lýöræðisrikjum að menn séu
nokkuð jafnir fyrir dómstólunum.
A Indlandi sagði Indira hins veg-
ar aö hún liti á úrslit kosninganna
sem merki um það að hún væri
saklaus af þeim sökum sem á
hana hafa verið bornar. Eitt
þeirra mála sem I gangi er gegn
henni er skuld á flugvélaeldsneyti
til indverska lofthersins. Indira
tóksér nefnilega það bessaleyfi i
<kosningunum i marz 1977, aö not-
lærasérflugflotann tilferðalaga I
kosningabaráttunni, en láðist aö
, greiða reikninginn fyrir elds-
neytið uppá nokkur þúsund pund.
Réttarhöldunum hefur verið
marg frestað. Óliklegt verður að
teljast aö þeim verði haldið
áfram nú, þegar sakborningar
sitja i æðstu valdastólum lands-
ins. Þetta sýnir að Indland er ekki
álinuhinsskilgreinda lýðræðis en
það eru ef til vill fleiri þjóðir.
Það er erfitt að segja til um,
hvort um eiginlega stjórnarand-
stööu verður að ræða á Indlandi I
náinni framtið. Þaö þykir ekki
liklegt. Forystumenn Janata-
bandalagsins sáluga, ellihrumir
og ósammála sýndu aö þeir voru
ekki raunverulegur valkostur.
Liklegt er talið að þeir muni
dragasigihléog hætta afskiptum
aí stjórnmálum. Forystuíaus
stjórnarandstaða gerir það ennþá
liklegra að Indira Gandhi mun:
faratroðnar slóðir einræðisins að
þessu sinni llka.
Indira lofaði því I kosningabar-
áttunni, aö koma á „sterkri
stjórn” og aga, að lækka tiöni
glæpa, að lækka vöruverð og að
gera þjóðina stolta af þvi að vera
Indverjar, eins og hún kallaði
það. Helztu vandamál, sem
þjóðin á við að etja eru hins vegar
sivaxandi verðbólga, halli á
viöskiptum viö útlönd, vandamál
i samgöngumálum, óróleiki á
vinnumarkaöinum, verstu þurrk-
ar i' manna minnum og hækkun
eldsneytisverðs. Við þetta má svo
bæta að héraösbúar i norð-austur
hluta Indlands eru með uppsteit
oghafa settfram kröfur um sjálf-
stæði.
Margir þeirra sem voru i and-
stöðu við Indiru Gandhi og þær
aðgerðir sem hún lét grípa til á
fyrri valdaferli sinum dttast að
þegar kosningatimburmönnunum
ljúki, þá muni neyðarástandi
veröalýstílandinuaftur.Staðan i
alþjóöamálum og erfiöleikarnir
heima fyrir benda þvl miöur til
þess, aðþessarraddirmuni reyn-
ast sannspáar, að Indland sé á
leið til einræðis. HMA
'r ” "" ~j
Laus staða laeknis
við heilsugæslustöð ;
á Hvammstanga
, uaus er til umsóknar önnur staða læknis \
við heilsugæslustöð á Hvammstanga frá i
og með 1. nóvember 1980.
Umsóknir ásamt upplýsingum um læknis-
menntun og störf sendist ráðuneytinu |
fyrir 16. febrúar 1980.
; i
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið j
16. janúar 1980.
Skrifstofu'
Við útgáfu Lögbirtingablaðs og Stjómar-
tiðinda er skrifstofustarf, hálfan daginn,
eftirhádegi, laust til umsóknar. Krafist er
stúdentsprófs, góðrar islenzkukunnáttu og
vélr itunarkunnáttu.
Umsóknir sendist skrifstofu útgáfunnar,
Laugavegi 115, fyrir 22. þ.m.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
15. janúar 1980.
i BLAÐBERAR
j Alþýðublaðið og Helgarpóstinn
| vantar blaðbera í eftirtalin
! hverfi strax:
Grettisgötu
Laugaveg
Skólavörðustíg
Hátún
Einarsnes
Upplýsingar f síma 81866
eftir helgi