Alþýðublaðið - 19.03.1980, Side 3
3
alþýðu-
blaðiö
Fra mkvæmdast jóri:
Jóhannes Guðmundsson
Stjórnmálaritstjóri (ábm):
Jón Baldvin Hannibalsson
Blaðamenn: Helgi Már
Arthursson, ólafur Bjarni
Guðnason.
Auglýsinga- og sölustjóri:
Höskuldur Dungal
Dreifingarstjóri: Siguröur
Steinarsson
Gjaidkeri: Halldóra Jóns-
dóttir
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Siöumúla 11, Reykjavik,
simi 81866
ritstjórnargrein Alþýðu-
blaðsins i gær, var það rakið
með nokkrum dæmum, hvernig
stjórnmálamenn á Islandi hafa
talið sig þess umkomna, að láta
alla viti borna hagstjórn sem
vind um eyru þjóta. Þeir hafa
legið flatir fyrir hvers kyns
ágengni þrýstihópa og forrétt-
. indaaðila. Skammtlmasjónar-
miðin, atkvæðavonin, hefur
ævinlega þegar á hefur reynt,
reynzt ábyrgðartilfinningunni
sterkari. Aö verulegu leyti er
skýringarinnar að leita i stjórn-
kerfinu sjálfu. Þingmenn hafa
sjálfir sölzaö undir sig forræði
fyrir bönkum og lánastofnun-
um. Þeir hafa sjálfir tekið að
sér hlutverk skömmtunarstjóra
á hinu takmarkaöa fjármagni,
sem til ráðstöfunar er hverju
sinni. Þannig hafa þeir komið
sér upp kerfi, sem daglega leiðir
þá i freistni. Freistingin er sú,
að nota skattfé almennings tií
aökaupa sér frið og fylgi ágeng-
ustu hagsmunahópanna. Þeir
hafa starfað skv. móttóinu um
að til þess séu freistingar að
falla fyrir þeim.
Upphafsmaður Kröfluævintýrisins og tveir fyrrverandi Kröflunefndarmenn hafa nú veriö verðlaunaðir
fyrir frammistöðuna og lyfttil æðstu valda af meirihluta Alþingis.
„tskugga reynslunnar af Kröflu”
En stjórnmálamenn þiggja
góð ráð af fleirum en efnahags-
séffræðingum. Þegar taka skal
ákvarðanir um meiriháttar
framkvæmdir og þá ekki sizt i
orkumálum, þurfa þeir mjög að
leita i smiðju raunvisinda-
manna. En jafnvel i þeim mál-
um þykjast stjórnmálamenn
einatt vita betur en sérfræð-
ingarnir. Af þvi höfum við held-
ur betur mátt súpa seyöið á
undanförnum árum. Hrikaleg-
asti minnisvarðinn um fyrir-
hyggjuleysi og hroka hins póli-
tiska valds, I orkumálum er
Krafla. Fyrir tveimur árum var
þetta Kröfluævintýri
Thoroddsens, Sólness og Arn-
alds o.fl. taliö hafa kostað þjóð-
ina um 17 milljarða króna á
verölagi ársins 1978. Vegna
fyrirhyggjuleysis, sem stundum
er kennt við framkvæmdagleði
stjórnmálamanna, var tiltölu-
lega litilli tilraunavirkjun sem
Alþingi hafði heimilað breytt I
minnisvarða aldarinnar, um
óvisindaleg vinnubrögö og
ævintýramennsku. Allt á kostn-
að skattgreiðenda.
A aðalfundi Rannsóknar-
ráðs rikisins, flutti Sveinbjörn
Björnsson eðlisfræðingur mjög
athyglisvert erindi, þar sem
hann m.a. gerði að umtalsefni,
hvernig við gætum i framtiðinni
lært af Kröflumistökunum.
Sveinbjörn minnti á, að enn höf-
um við aðeins nýtt brot af orku-
lindum okkar, þannig aö viö
getum yljaö okkur viö dag-
drauma um þaö, sem við eigum
til góða. Hann minnti á, að I
viðurkenningarskyni við fyrri
afrek okkar i hitaveitufram-
kvæmdum, hefur jarðhitaskóla
Sameinuðu þjóöanna veriö val-
inn staöur hér á landi. „Þessi
skóli” sagði hann, „er framlag
okkar til þróunaraðstoðar en
einmitt i jaröhita- og fiskveiöi-
málum teljum viö okkur helzt
aflögufær til annarra þjóða.”
Þvi næst sagði Sveinbjörn
Björnsson: ,,En mitt i þessari
sjálfumgieði hefur stolt okkar
beðið verulega hnekki, þeir sem
nú kenna styrkþegum við jarð-
hitaskólann verða dálitið
kindarlegir þegar þeir koma að
virkjun háhitasvæða, i ljósi ný-
fenginnar reynslu eöa öllu
fremur i skugga reynslunnar af
Kröflu. Það er ekki nema von,
að styrkþegarnir spyrji 1 sak-
leysihvernig I ósköpunum gátuð
þið lent i þessu klandri með alla
ykkar þekkingu og reynslu af
jarðhita og eldfjöllum? Okkur
verður tregtum svör. Var þekk-
ing okkar sjálfsblekking, eða
nýttum við ekki þá þekkingu
sem við réðum yfir? Og það er
ekki aöeins sjálfstraust okkar
sem bilar heldur einnig trú okk-
ar á háhitasvæöinu. Eru súlurn-
ar á kortinu kannski glans-
myndir, einskis veröar þegar á
reynir?
Þessi svartsýni er eðlileg,
þegar viö sjáum afleiðingarnar
af Kröfluævintýrinu. 1 fjárlaga-
frumvarpi þessa árs eru af-
borganir og vaxtagreiöslur 3,9
milljarðar, sem eru riflega tvö-
föld fjárveiting til Orkustofn-
unar og álika upphæð og fjár-
veiting til reksturs alls Háskóla
Islands. Þetta er sannarlega
dýrkeyptur skóli.”
E ftir aö hafa gert grein fyrir
æskilegum vinnubrögðum, við
undirbúning framkvæmda af
þessu tagi, þ.e. um áfangaskipt-
ingu undirbúnings virkjana, i
forathugun frumhönnun, verk-
hönnun og gerð útboðsgagna,
sem við venjulegar kringum-
stæður getur tekið allt að 10 ár,
sagði Sveinbjörn Björnsson:
„Ef viö notum nú þennan
ramma áfangaskiptingar til að
glöggva okkur á stöðu undir-
búnings háhitasvæða, verður
okkur i fyrsta lagi ljóst, að þau
eru flest enn á forathugunar-
stigi.”
„Frumhönnun er lokið i
Svartsengi og Bjarnarflagi fyrir
þá vinnslu sem þar hefur veriö,
en i Kröflu má segja að hlaup-
ið hafl verið yfir frumhönnun
i eiginlegum skilningi, þar
sem menn tóku ákvörðun um
virkjun á grundvelli for-
athugunar, og gáfu sér að for-
sendur fyrir verkhönnun, sem
fengust i Bjarnarflagi, giltu
einnig f Kröflu.
Þarna var timaþröng látin
ráða og tekin mikil áhætta, en
forsendurnar reyndust þvi miö-
ur rangar.”
Sveinbjöm vekur athygli á, aö
við eigum mikið verk fyrir
höndum óunnið við rannsókn á
háhitasvæðum. Um það segir
hann m.a.:
„Ef einhver aðili vildi nú
koma upp iönaði á Krýsuvikur-
svæði, sem nýtti varma svæðis-
ins að stórum hluta, yrðum við
að biðja hann aö biða 4-5 ár
meðan viö gengjum úr skugga
um, hvort svæðið stæði undir
þessari vinnslu, og hversu hag-
kvæm húnyröi. Siðan færu 2 ár I
verkhönnun og gerö útboös-
gagna. Væri frumhönnun hins
vegar lokið, mætti á grundvelli
hennar ákveða virkjun og hefja
verkhönnun og 4-5 ár myndu
sparast. Frumhönnun háhita-
vinnslu er dýr og þess vegna
ekki að vænta, að við getum lok-
ið henni á öllum álitlegustu
svæðunum, en þó hlýtur það aö
teljast góö fjárfesting aö eiga
nokkra virkjunarstaöi frum-
hannaða til aö flýta fyrir nýt-
ingu þeirra, þegar kallið kemur.
Inntakiö i erindi Sveinbjamar
Björnssonar var aö draga rétta
lærdóma af fenginni reynslu af
mistökunum viöKröflu. Af máli
hans mátti ráða að við eigum
enn margt ólært. Þess má geta,
að undir fyrirlestri hans sátu I
sérstökum heiðurssess núver-
andi hæstvirtur forsætisráö-
herra, fjármálaráðherra og
menntamálaráðherra þ.e. sjálf-
ur upphafsmaður Kröfluævin-
týrisins, og tveir fyrrverandi
Kröflunefndarmenn. Skyldu
hinir nýju vaidhafar nokkuð
hafa lært af mistökum sinum?
— JBH
I styttingi 4
vlðari grundvelli en verið hefur.
Verði þar try ggt að aðrar og nýrri
hugmyndir i skipulagsmálum
komi fram en hið úrelta sjón-
armið. Leitast verði við að hafa
samkeppni þessa á sem breiðust-
um grundvelli og að islenskir að-
ilar geti tekið þátt I henni.
Samkeppni um
veggspjald
Hinn 10. mai n.k. eru fjörtiu ár
siðan breskur her sté hér á land
og varð það upphaf hersetu, sem
Islendingar hafa mátt búa við æ
siðan.
í tilefni þessa efna Samtök her-
stöðvaandstæðinga til samkeppni
um veggspjald (plakat) er túlki
þennan atburð og þann slóða sem
hann dró á eftir sér, á myndræn-
an hátt.
Skilafrestur verður þvi miður
fremur knappur eða til 5. mai þar
eö ætlunin er aö kunngera niður-
stöður dómnefndar, sem er skip-
uð Kjartani Guöjónssyni listmál-
ara, ArnaBergmann ritstjóra og
Hjálmtý Heiðdal teiknara þann
10. mai. Jafnframt er fyrir hugað
að efna þá til sýningar á innsend-
um tillögum.
Veitt veröa þrenn verölaun: 1.
verðlaun nema kr. 300.000.- en 2.
og 3. verðlaun kr. 100.000,-
Samtök herstöðvaandstæðinga
hafa i hyggju að fjölfalda þá
tillögu sem hlýtur fyrstu verðlaun
til dreifingar og sölu.
LITey r iss jóds -
mál hjá BSRB
Kristján Thorlacius formaður
BSRB mun flytja erindi um líf-
eyrissjóðsmál að Grettisgötu 89,
miðvikudaginn 19. mars kl. 20.30.
Kristjáná sæti i stjórn Lifeyris-
sjóðs starfsmanna rlkisins og er
ástæða til þess að hvetja félags-
menn til þess að koma og fræðast
um þessi viðkvæmu og þýðingar-
miklu mál. Astæða er til að minna
á að nýveriö hefur stjórn sjóðsins
tekið ákvörðun um verðtryggingu
lifeyrissjóðslána og sýnist sitt
hverjum um ágæti þeirrar ráð-
stöfunar.
Kristján mun að auki fjalla um
aðildarrétt að sjóðnum, stofnun
biðreiknings, iðgjöld og réttindi
sjóðfélaga og maka. Einnig um
ávöxtun sjóðsins, lánaréttindo og
lánaskilmála.
A uglýsingasím i
Alþýdubladsins
8-18-66
LENNART ELMEVIK prófessor við
Stokkhólmsháskóla flytur fyrirlestur um
islenskukennslu við sænska háskóla og
Islándska sallskapet.
Allir velkomnir
NORRÆNA
HUSIO
Erfiðleikar 4
setningu. En þessi ofsi stafar ekki
af niðurrifsgirnd, heldur stafar
hann af mjög svo áieitinni sið-
fræðilegri spurningu: Hvort er
mikilvægara réttur einstaklings-
ins til frelsis eða hagsmunir rikis-
ins. Hochuth er alfarið þeirrar
skoðunar að réttur einstaklings-
ins skiptimestu máli. Þess vegna
heldur hann með þeim, sem tapa
lifi sinu vegna þess að kerfið er
óréttlátt.
Þetta er hugsunin bak við
spurninguna um það, hvort það
hafi verið rétt að fórna Hans
Martin Schleyer fyrir hryðju-
verkamennina.
Dóttir ráðherrans segir við föð-
ur sinn: ,,Mér finnst einstakling-
urinn skipta meira máli en heild-
arhagsmunir:” Hochuth neitar
þvi ekki að með þessu er hann að
setja fram skoðun sem stangast á
við það sem Helmuth Schmidt og
þýskir dómarar sögðu, þegar þeir
höfnuðu beiðni sonar Schleyer um
að gengið yrði að skilmálum
hryöjuverkamannanna til að
bjarga lifi föður hans.
Það, að leikritið á að gerast
sama dag og hryðjuverkamenn
myrtu Aldo Moro á Italfu, skýrir
boöskap leikritsins enn frekar. í
þvi tilfelli var einstaklingnum
lika fórnað til þess að tryggja
hagsmuni heildarinnar, sem átti
ekki annarra kosta völ, til þess að
fá vilja sinum framgengt.
(Þýtt og endursagt úr Frankfurt-
er Allgemeine, 7.1.1980) Ó.B.G.
alþýðu
blaðið
GRENSÁSVEGl 16,
108 REYKJAVÍK,
ÍSLAND.
SÍMKTEL.): 91-81770
BOX: 5281
AUGL ÝSING
Listasafn ASÍ hyggst efna til sýningar á málverkum Gísla Jóns-
sonar í aprílmánuði og biður þá sem eiga verk eftir hann að hafa
góðfúslegt samband við Listasafnið virka daga kl. 14—16 fyrir 25.
mars nk.
Listasafn
Alþýðusambands íslands