Alþýðublaðið - 12.04.1980, Síða 1

Alþýðublaðið - 12.04.1980, Síða 1
Laugardagur 12. apríl 1980 — 54. tbl. 61. árg. UM DANDALA OG AFTANÍOSSA 0^averöbólgan á íslandi á sér þrjár meginuppsprettur: Hallarekstur i rikisfjármálum, aukningu peningamagns i umferö, langt umfram aukningu þjóöarframleiöslu, sem aftur stafar af hallarekstri rikisins og hóflausum erlendum lántökum, og i þriöja lagi neikvæöa vexti, sem leiöa til óarö- bærrar fjárfestingar og minnkandi sparifjármyndunar. Aöventukosningarnar i desember s.l. uröu vegna þess, aö Alþýöuflokkurinn neitaði aö bera ábyrgö á áframhaldandi veröbólgustefnu. Kjósendur treystust ekki til aö taka af skariö um, hvers konar stefnu skyldi fylgt. Af þvi hlauzt lang- varandi stjórnarkreppa. Henni lauk meö klofningi Sjálf- stæöisflokksins og myndun núverandi rikisstjórnar. 1 staö stefnuyfirlýsingar birti rikisstjórnin i upphafi óskalista, þar sem eitthvaö mátti finna handa öllum. Fyrirheit um andóf gegn verðbólgu rákust gersamlega á fyrirferöarmikil loforö um tug milljarða aukin rikisútgjöld i allt sem nöfnum tjáöi aö nefna. Fyrst i staö renndu menn þvi beint i sjóinn meö, hvaöa stefnu rikisstjórnin myndi fylgja. N ú hafa hins vegar oröið þáttaskil. Ljóst er, aö stefna þess- arar rikisstjórnar er beint framhald af reki rikisstjórnar Ólafs Jóhannessonar. Alþýöubandalagiö og Framsókn hafa algerlega tögl og hagldir i stjórnarsamstarfinu. Forsætisráö- herrann virðist vera þar til skrauts, en samflokksmenn hans á ráöherrastólum sitja þar i glslingu. Þeir eru utanveltu og áhrifaiausir i stjórnarsamstarfinu, — jafnvel svo aö þaö gleymist aö spyrja þá, hvaöa afstööu þeir hafi til mála. Myndun þessarar rikisstjórnar táknaöi ósigur þeirra afla, sem vildu snúa viö af braut óðaveröbólgunnar og hefjast handa um gagngera kerfisbreytingu I islenzku efnahagslifi. Þau öfl, sem vilja óbreytt ástand, sem vilja halda áfram á sömu braut, þau öfl hafa enn náð undirtökunum. Þaö er sá beizkleikur, sem allur almenningur f landinu má nú bergja af. Leitun mun á rikisstjórn, sem hefur brugöizt jafn mörgum fyrirheitum á jafn skömmum tima og rikisstjórn Gunnars Thoroddsens. Hér skulu aðeins nefnd nokkur dæmi: Gunnar Thoroddsen og bandamenn hans lofuöu kjós- endum sinum, aö kæmust þeir til valda myndu þeir afnema alla þá 19. nýja skatta og skattauka, sem fyrrverandi rikis- stjórn kom á. Þeir voru lika sammála Alþýöuflokknum um nauösyn þess aö afnema launamannaskattinn, tekjuskattinn á lægstu laun. Efndirnar eru þessar. Ollum sköttum fyrrverandi rikis- stjórnar er haldiö til streitu. Þessi hækkun beinna skatta og óbeinna mun skila rikissjóði um 36 milljöröum króna á árinu 1980. Rikisstjórnin hefur hækkaö söluskatt um 1,5% sem mun skila henni um 7 milljörðum i viöbótartekjur, þremur millj- öröum umfram fyrirhuguö útgjöld til jöfnunar kyndingar- kostnaöar. Rikisstjórnin hefur hækkað tekjuskatt um rúma 8 millj- aröa frá þvi sem ráögert var i fjárlagafrumvarpi Alþýöu- flokksins, eða um 40%. Viö þetta bætist, aö skv. bráöabirgöa- úrtaki skattframtala mun tekjuskatturinn skila rikissjóöi um 3 milljöröum kr. meiri tekjum en fjárlagafrumvarpiö geröi ráö fyrir. Rikisstjórnin hefur hækkaö útsvör um 10%. Ef sú heimild er almennt nýtt, mun þaö leggja um 5 miiljaröa kr. aukna skattbyröi á almenning I landinu. Rikisstjórnin hefur ekki lagt fram lánsfjáráætlun. Þaö er samt opinbert leyndarmál, að hún stefnir i algérar ógöngur meö aukningu erlendra lána. Sé aðeins litiö á þann hluta, sem snýr að A og B-hluta fjárlaga verða erlendar lán- tökur 278% meiri i ár en 1979. Greiöslubyröi vaxta og afborg- ana erlendra lána mun fyrirsjáanlega fara langt umfram þaö hámark 15% gjardeyristekna, sem rikisstjórnin setti sér i upphafi. Miöaö viö 8% gengislækkun, óbreytt visitölukerfi og frá- hvarf frá raunvaxtastefnu er þvf spáö, aö rikisstjórnin stefni I 20.milljaröa halla á vipskiptum viö útlönd i árslok. Framsóknarflokkurinn gumaöi af „niöurtalningu” verö- lags, þannig aö veröbólgu yröi meö lögum haldiö innan marka 30% á ári. Gengislækkunin, skattahækkanir og fyrir- sjáanlegar hækkanir á gjaldskrám opinberra fyrirtækja leiða hins vegar til þess, aö visitala framfærslukostnaöar mun hækka milli 13—14% I lok þessa ársfjóröungs. Þaö þýöir verö- bólgustig á þessu ári milli 65—70%. Fyrir kosningar stimplaöi Alþýöubandalagiö alla aöra flokka sem kaupránsflokka. Nú gengur Alþýöubandalagiö fram fyrir skjöldu I því aö „greiöa fyrir lausn kjarasamn inga” meö þvi aö ætla almenningi aö axla þyngri skattbyröi, á sama tima og brýnt er fyrir alþýöu aö „ekki sé svigrúm fyr- ir grunnkaupshækkunum”. Rikisstjórnin lofaöi samráöi viö launþegahreyfinguna um meiriháttar aögeröir I efnahagsmálum. 1 reynd hafa stærstu samtök launþega, ASÍ og BSRB ekki verið virt viðtals fyrirfram, enda bæöi mótmælt skattalögum rikisstjórnar- innar harölega. Aöspuröur um afstööu sina til rikisstjórnarinnar, segir Guömundur J. Guömundsson, formaöur Verkamannasam- bands Islands: „Ætli maöur veröi ekki aö dandalast meö henni eitthvaö fram á veg.” Almenningi i landinu er hins veg- ar oröinspurn: Er þaö hlutverk verkalýöshreyfingarinnar aö dandalast aftan t rikisstjórn, sem kann ekki önnur ráö en aö hækka skatta I sifellu og breytir I veigamestu málum þveröf- ugt viö gefin fyrirheit? — JBH Aríðandi f undur í Alþýðuflokks- félagi Kópavogs! Áríðandi fundur verður haldinn hjá Alþýðuf lokksfélagi Kópavogs, á þriðjudag kl. 20:30, að Hamraborg 1. Fundarefni: Bæjarmálin. — Stjórnin. 1 Tekjuöflunarkerfi ríkissjóds er sprungid: Virdisaukaskattur í stað söluskatts — Hvað er virðisaukaskattur? „Aðaleinkenni virðisaukaskattsins er, að hann vex í raun aðeins einu sinni á sama verðmætið, hversu o,ft sem það gengur milli viðskiptastiga og verður hann því hlut- laus gagnvart söluverði til hins endanlega neytanda." 1 lok viöreisnartimabilsins var söluskattshlutfalliö 7.5%. Rikisstjórn Ólafs Jóhannesson- ar hækkaöi söluskattinn tviveg- is á stuttum ferli sinum. Nú- verandi rikisstjórn hefur þegar i upphafi ferils sins bætt um bet- ur. Nú nemur söluskatturinn fjóröungi af endanlegu veröi vöru og þjónustu. Rikissjóöur lifir á þessum skattstofni. Helmingurinn af tekjum rikis- sjóös er fenginn meö söluskatti. Gallar núverandi söluskatt- kerfis veröa þeim mun hrika- legri sem skatthlutfalliö hækk- ar. Undandráttur frá skatti nemur sennilega tugum miiljaröa. Hann á stóran þátt i aö gera innlendan atvinnurekst- ur ósamkeppnisfæran bæöi út- flutningi og i samkeppni viö toii- frjálsan innflutning, sem býr viö allt annars konar skattlagn- ingu. Undanþágur frá sölu- skattsskyldu sem fariö hefur sifellt fjölgandi, valda fyrir- tækjum, sem standa eiga skil á skattinum, ótrúlegri fyrirhöfn og kostnaöi. Samræming skattakerfa A undanförnum árum hafa öll riki I Vestur-Evrópu samræmt skattkerfi sin, og þá einkum skattlagningu fyrirtækja. Þetta hafa þau gert einkum meö þvi aö taka upp viröisaukaskatt i staö söluskatts, og samræma framkvæmd hans eftir föngum. Þannig tóku t.d. Danir, Norö- menn og Sviar upp viröisauka- skatt fyrir áriö 1970. Ef viö Islendingar ætlum okkur aö skapa atvinnurekstrinum i landinu skilyröi til samkeppni á jafnréttisgrundvelli viö erlend- an atvinnurekstur, erum viö til- neyddir aö taka upp sambæri- legt skattkerfi. Upptaka viröisaukaskatts i staö söluskatts er búin aö vera á undirbúningsstigi i embættis- mannakerfinu hátt á annan tug. A.m.k. þrjár itarlegar skýrslur embættismanna liggja fyrir. Pólitiskum ákvöröunum hefur hins vegar sifellt veriö slegiö á frest. Nú siðast, i málefnasamn- ingi núv. rikisstjórnar, segir aö- eins, aö upptaka viröisauka- skatts skuli athuguö. Taliö er, aö allt aö tvö ár þurfi aö liöa frá þvi aö ákvöröun er tekin, þar til unnt er aö hrinda kerfisbreyt- ingu I framkvæmd Mikið skortir á, aö atvinnu- rekendur og allur almenningur hafi fengiö i hendur nægar upp- lýsingar um þetta nýja skatta- kerfi. Þess vegna mun ALÞÝÐUBLAÐIÐ birta út- drætti úr nýjustu skýrslu sem til er um virðisaukaskatt. Skýrslan kom út 11. mai 1975, og er eftir þá Ólaf Nilsson, Gamaliel Sveinsson og Þorstein Geirsson. Skýrslan var unnin fyrir fjár- málaráðuneytiö. Hvað er virðis- aukaskattur? Viröisaukaskattur (VAS) er neysluskattur eöa söluskattur sem lagöur er á söluverö vöru og þjónustu á öllum viöskipta- stigum. A ensku hefur skattur- inn hlotiö nafniö tax on value added eöa value taxation( VAT) en á dönsku merverdiafgift eöa meromsetningsafgift (MOMS). Virðisaukaskattur er fjöl- stigaskattur þar sem hinum ýmsu fyrirtækjum á sviöi frum- greina, úrvinnslugreina og þjónustugreina er gert aö inn- heimta skatt af heildarandviröi seldra vara og þjónustu. Skatturinn hefur hins vegar ekki margsköttun I för meö sér eins og fjölstigaskattur sem áöur var lýst þvi aö viö skil á skattinum I rikissjóö mega fyrirtækin I hinum ýmsu grein- um draga frá innheimtun skatti af heildarsölu, hér eftir nefndur úttaksskattur. þann skatt sem þau greiöa viö kaup á vörum og hvers konar aöföngum, hér eftir nefndur inntaksskattur. Þannig skilar hvert fyrirtæki I rfkissjóö aöeins skatti af viröisaukanum sem hjá þvi myndast, þ.e. mis- muninn á úttaksskatti og inn- taksskatti. Viröisaukann þaö er skatt- stofninn i viröisaukaskattkerf- inu, má skilgreina meö tvenn- um hætti. Annars vegar má skilgreina viröisaukann sem söluverömæti vöru og þjónustu ákveöins fyrirtækis eöa at- vinnugreinar aö frádregnum þeim vörum og þjónustu sem fyrirtækiö hefur keypt frá öörum fyrirtækjum og innflutn- ingi. Hins vegar má skilgreina viröisauka hvers fyrirtækis sem summuna af launakostnaöi, vaxtakostnaöi, afskriftum og hreinum hagnaöi. Af þessum skilgreiningum leiöir aö viröis- aukinn (vinnsluviröiö) er sú verömætisaukning sem á sér staö á hverju framleiöslu- eöa viöskiptastigi. Samanlagöur viröisauki hinna ýmsu fram- leiðslu- og viöskiptastiga, jafn- gildir endanlegu söluveröi vör- unnar. Laus við upp- söfnunaráhrif söluskatts Aöaleinkenni viröisauka- skattsins er, aö hann leggst i raun aðeins einu sinni á sama verðmæti hversu oft sem þaö gengur milli viöskiptastiga og veröur hann þvi hlutlaus gagn- vart söluveröi til hins endanlega neytanda. Þessu marki er náö með frádráttarheimildinni á hverju viðskiptastigi sem áöur var nefnd. Þaö er einkum þessi eiginleiki viröisaukaskatts- kerfisins sem skilur þaö frá öörum söluskatskrefum þar sem uppsöfnunaráhrifa sölu- skatts gætir mismunandi mikiö eftir þvi hve varan eöa verö- Framhald á bls. 2 Jöfnun kyndingarkostnaðar á olfusvæðum: Skattahækkun var óþörf ■ Greinargerð um afstöðu Alþýðuflokksins Það er viðurkennt að vandamál þeirra, sem búa á oiiuhitunar- svæðunum er mikill. Það varð einnig ijóst þegar umræður um orkuskatt stóðu sem hæst, að afstaða flokkanna var mjög ólik hvað varðaði lausn þessa mikla vanda. Nú hefur það gerzt, aö farin var söluskattshækkunarieið til að jafna kyndingarkostnaöinn. Aiþýðuflokkurinn og minni- hlutastjórn hans lagði fram frum- varp til laga um hvernig þessum vanda skyldi mætt. 1 lok 3. umræðu um frumvarp rikis- stjórnarinnar um söluskatts- hækkunina flutti Sighvatur Björgvinsson greinargerö með atkvæði sinu f.h. þingflokks Aiþýðuflokksins til skýringar á afstöðu fiokksins. Þessi greinar- gerð birtist hér að neðan:” Alþýðuflokkurinn er þeirrar skoöunar að meöal mikilvægustu viðfangsefna Alþingis sé aö gera tafarlausar ráðstafanir til þess aö jafna hr.shitunarkostnað lands- manna með fjárveitingu úr rikis- sjóði og breyttum og bættum reglum um framkvæmd jöfnunar á kyndikostnaði. Til þess að svo geti orðið hefur Alþýðuflokkurinn á undanförnum vikum þrivegis flutt tillögur á Alþingi um jöfnun kyndikostn- aðar. Minnihlutastjórn Alþýðu- flokksins lagöi til i fjárlagafrum varpi sinu að 2.3 milljörðum króna yrði variö úr rikissjóði sem framlag hans til lausnar vandans, án þess að fjárins yrði aflaö með hækkuðum sköttum. Aöauki lagði minnihlutastjórn Alþýðuflokksins fram frumvarp til laga um orku- jöfnunargjald til frekari jöfnunar á orkukostnaöi. Bæöi viö 2. og 3. umræöu fjárlaga nú á dögunum lagði þingflokur Alþýöuflokksins til, að 6 milljörðum yröi varið úr rikissjóði til jöfnunar á húshit- unarkostnaði og jafnframt gerði þingflokkurinn tillögu um að önnur tiltekin útgjöld rikissjóös yrðu lækkuð að sama skapi. Af þessu má ljóst vera, að þing- flokkur Alþýöuflokksins hefur gert sér sérstakt far um að berjast fyrir tafarlausum aðgeröum til jöfnunar á kyndi- kostnaöi og er eindregiö þeirrar skoðunar að slik aðgerð krefjist ekki aukinnar skattheimtu. Frumvarpið um 1.5% orkujöfn- unargjald á söluskattsstofn er ekki ráðstöfun til þess að jafna kyndikostnað heldur almennt tekjuöflunarfrumvarp fyrir rikis- sjóð. Það er mikil skattahækkun, þar sem húshitunarvandamálið er aðeins notað sem skálkaskjól fyrir hækkun söluskatts um marga milljarða á ári. Af þeim sökum greiöa þing- menn Alþýöuflokksins atkvæði gegn frumvarpinu, þótt þeir séu eindregnir stuöningsmenn jöfn- unar á kyndikostnaði.”

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.