Alþýðublaðið - 01.10.1980, Síða 4

Alþýðublaðið - 01.10.1980, Síða 4
4 Miðvikudagur 1. október 1980. Jón Baldvin Hannibalsson: Þetta er mannúðarmál Ég er ekki kominn upp í þennan ræðustól, til þess að bera því f rómt vitni að ég sé friðarsinni, eins og Patrick Gervasoni. Það væri hræsni. Það er ég ekki. Þótt ég hafi litlar mætur á Lenin, hugmyndasmiö þess valdbeitingarkerfis, sem alþýöa Póllands biöur nú til guös aö megi frá henni vikja, þá er ég sammála Lenin um eitt: Stund- um er þaö ekki aöeins réttur manna, heldur skylda, aö bera vopn. Væri ég ungur Afgani, i dag, vona ég I lengstu lög, aö ég væri ekki slikt gauö, aö neita aö bera vopn, gegn þeim vélvæddu of- beldisseggjum, sem nú fara eldi og eimyröu um land mitt, jafna byggöir og bæi viö jöröu, og búa skólabörnum fjöldagrafir. Ég er þess vegna enginn friöarsinni, eins og Patrick Gervasoni. Þeir koma timar, þegar menn eiga lif sitt og sinna, og æru aö verja, gegn of- beldisöflum, sem ekkert skilja og ekkert viröa annaö en nakiö vopnavald. Ég er t.d. ekki betri maður en svo, að þegar ég spurði þau tiö- indi viö morgunveröarboröiö, aö skæruliöum heföi tekizt aö kála þjóöniöingnum Somoza frá Nigaragua, þá signdi ég mig og sagöi: Guði sé lof — og þótt fyrr heföi veriö. Eins er það bjargföst sann- færing min, aö þau ofbeldisöfl, sem nú standa fyrir fjöldamorð- um á saklausu fólki, i Afganist- an, i htutlausu rikiskilji ekkert nema valdiö, aö þau ofbeldis- öfl, sem hafa gert pólsku þjóö- inni aö fara huldu höföi i landi sinu i heila þrjá áratugi, beri ekki virðingu fyrir neinu ööru en valdi. Þess vegna er ég þeirrar skoöunar, að lýöræöisriki heimsins eigi ekki annarra kosta vöi, en aö bindast samtök- um um hervarnir, vilji þau sjálf ekki sætta sig baráttulaust viö örlög Pólverja og Afgana. Mér skiist, aö i þessu efni sé ég aftur ósammála Patrick Gervasoni — og sennilega mörgum ykkar, sem hér eruð stödd. Hvað er ég þá aö gera i þess- um ræðustól? Þvi er fljótsvarað: Ég er hér til ab bera vitni þeirri lifsskoð- un, aö þótt okkur greini á um margt, i stjórnmálum, utanrik- ismálum, o.s.frv. þá eigum við skilyröislaust, aö viröa rétt hvers annars, til þess aö halda skoöunum okkar fram, og rétt hvers annars til aö lifa i sam- ræmi við lifsskoöanir okkar. Enginn maöur hefur áréttað þessa skoöun betur en landi Gervasonis, frakkinn Voltaire. Þetta er min trúarjátning. An hennar gætum viö ekki búiö i friöi i opnu og lýðræöislegu samfélagi. Um þessa „frönsku” lífsskoö- un getum viö vonandi oröið sammála. Heföi það oröið mitt hlutskipti aö vera bandariskur þegn, á herskyldualdri, meöan Vietnam styrjöldin geisaöi, trúi ég ekki öðru á sjálfan mig, en að ég hefði neitað að bera vopn á fátækt fólk og varnarlaust i Vietnam, — i nafni hugsjóna, sem ég trúi á, en voru i þessu striöi fótum troönar. Fremur hefði ég leitað hælis norðan landamæranna, i Kanada, eins og þúsundir Bandarikjamanna geröu á þeim tima. Um þessa grundvallarskoöun er ég sammála Patrick Gerva- soni. Ég neita þvi, aö nokkurt rikisvald, hafi siöferöilegan rétt, til aö neyöa mig tii aö bera vopn i þágu málsstaðar sem ég trúi ekki á, heldur fyririit. Rikiö — þaö er ég, sagði sól- konungurinn. Rikið — það erum við — segja þeir harðstjórar lögreglurikj- anna, sem I skjóli hervalds og ógnarstjórnar, hafa lif og æru þegna sinna i hendi sér. En ég segi: Það rikisvald, sem byggir tilveru sina á ofbeldi, og hefur fyrirgert siöferöilegum trúnaöi þegna sinn, þaö er manneskjufjandsamlegt og megi það aldrei þrifast. Þaö rik- isvald, sem neitar aö viröa rétt minn — og þinn — til aö haga lifi okkar i samræmi viö grund- vallarlifsskoöun og trú, er ekki þjóðfélag — heldur bófafélag. Um þaö erum viö vonandi öll sammála. Við skulum ekki gera okkur aö þeim glópum, að leggja aö jöfnu herskyldukvöö i lýöræöis- riki og herleiöingu heilla þjóða i lögreglurikjum. Við skulum viö- urkenna staöreyndir. 011 lýö- ræöisriki, viðurkenna rétt ein- staklingsins til þess aö neita aö gegna herþjónustu, af siöferöi- legum og trúarlegum ástæðum. M.a.s. Frakkland viröir þennan rétt. Þúsundir manna, i lýö- ræöisrikjum Evrópu og Ameriku, hafa notfært sér þenn- an rétt, án þess aö vera sviptir borgaralegum mannréttindum. Þess vegna er óþarfi aö óttast aö þúsundir manna biöi þess með óþreyju að flykkjast til Is- lands i kjöifar Gervasonis. Sá maöur, sem nú leitar á náðir okkar, gat ekki, af sér- stökum ástæöum, sem gerö hef- ur veriö grein fyrir, notfært sér þennan rétt Hann hefur orðiö að taka afleiöingum geröa sinna. Hann er i reynd útlagi, rikisfangslaus, — landflótta, og hefur orðiö aö fara huldu höfði land úrlandi. Þetta er þjáöur og lánlaus einstaklingur, sem biöst griða og vill fá tækifæri til aö lifa eðlilegu lifi. Þess vegna er þetta ekki pólitiskt mál, sem skiptir okkur i flokka, eftir afstööu til þjóö- félagsmála. Þess vegna er þetta mannúðarmál sem á ekki aö skipta okkur i flokka. Þess vegna biðjum viö manninum griða. Til þess var mælzt, af vinum Gervasonis f Kaupm.höfn aö reynt yröi að leysa þetta mál hávaöalaust til þess aö foröast flokkadrætti, úlfúö og tor- tryggni. Þaö hefur þvi miöur ekki tekizt. Máliö er i höndum dómsmálaráöherra — ekki dómstóla. Með þessum fundi viljum við fullvissa hann um, aö okkur er þetta alvörumál. Okkur, er ekki sama, hvaö hann gerir i okkar nafni. Frakkar krefjast ekki framsals. En viö krefjumst mannúðar i þessu máli. Hérna uppi i brekkunni eru gömul hús. Þaö þarf aö dytta aö þeim. Gervasoni er smiður góö- ur. Hvernig væri aö Patrick fengi aö finna sér starf viö hæfi? Hvernig væri aö viö sættumst á þaö, aö láta þennan mann i friði? Þaö ætti aö vera okkur öllum aö meinalausu. (Ræða á útifundi á Lækjar- torgi, sem haldinn var af stuön- ingsnefnd Gervasonis, föstu- daginn 26. sept.) Fjölsóttur fundur í Alþýðuflokksfélagi Reykjavikur: Breytingar á valdajafnvægi einangra Sovétríkin: Hugmyndafræðilegt g Um lciö og verkföllin i Póllandi sýna ljóslega hin alvarlegu innri vandamál, sem sovéska heims- veidiö á viö aö striöa, streyma nú tU Kremlverja slæmar fréttir frá flestum rikjum, sem iiggja aö landamærum Sovétrfkjanna. Breytingar á valdajafnvæginu, sériega i Asiu valda nú aukinni einangrun Sovétrikjanna. Verk- föllin I Póilandi, sem bætast ofaná þaö fen, sem Sovétrikin stigu út I i Afghanistan, viröast nú ætla aö veröa sovéskri utanríkisstefnu þrándur i götu. Þetta er i fyrsta sinn, eftir aö Watergatehneykslið dró mátt úr Bandaríkjamönnum, sem Sovétrikin hafa lent I alvarlegum erfiöleikum erlendis. Grundvallarbreytingar i valda- jafnvæginu i heiminum, sem orö- iö hafa siöustu tvö ár, ásamt auk- inni hörku i bandariskri utan- rikisstefnu, hafa vakiö upp gamlan draug sem Kremlverjar hafa lengi óttast, sem sagt um- sátursdrauginn. Krúsjof kvað þann draug niöur fyrir tveim ára- tugum siöan, en óttinn við umsátur hinna kapitalisku rikja hefur nú svo sannarlegá verið endurvakinn. Tvennt sem breytir Þaö er aöallega tvennt, sem hefur veikt stööu Sovétrikjanna útá viö. I fyrsta lagi er það bætt samkomulag Japana og Kinverja, I Austurlöndum fjær og I ööru lagi er þaö Camp David samkomulagiö, sem hefur minnkað áhrif Sovétrikjanna i Austurlöndum nær stórlega. Þá má nefna þaö, sem öllum kom á óvart, en þaö er endurvakning herskárrar Múhameöskrar bók- stafstrúar um alla Miö-Asíu. Vegna alls þessa, finnst Kreml- verjum þeir nú vera umkringdir óvinum, bæöi ljóst og leynt. Þeir eru nú vinalausir i Asiu, utan þess, aö Indverjar og Vietnamar teljast vera fylgjendur þeirra. En allir vita, aö Indverjar og Vietnamar, græða meira á þeirri vináttu, en Sovétrikin. Þaö sem Kremlverjar eru hræddastir viö, er það sem þeir sjá nú gerast i Austur-Asiu, þ.e. aö Bandarikin séu þar aö nota Japan og Kina til aö byggja upp öryggisnet á þvi svæði, sem byggist á andstööu og óttaviðSovétrikin. Einangrun Kinverja rofin Fyrir tveim árum undirrituöu Japanir og Kinverjar samninga um friö og samvinnu. Samvinna og viðskipti milli þessara rikja hefur farið sivaxandi siðan þá og veldur þaö Kremlverjum miklum áhyggjum. Rússar heföu getað komið i veg fyrir sættirnar milli Japana og Kinverja, heföu þeir verið tilbúnir aö láta af hendi Kúril eyjarnar, sem þeir tóku hárnámi af Japönum undir lokin á sföustu heimsstyrjöld. Japanir hafa neitaö svo mikið sem ræöa þaö aö taka upp eölileg samskipti við Sovétrikin, án þess aö eyjunum yrði skilaö fyrst. Þetta hafa Kremlverjar þótt vera daögengileg skilyrði. Þó eyjarnar sjálfar séu ómerkilegar og litilsviröi, gæfi þetta alltof hættulegt fordæmi, hvaö varöar landamæradeilur Sovétmanna og Kinverja. Þó Kinverjar hafi oft deilt hart á landamærasamninga, sem her- ir rússnesku keisaranna neyddu hiö veikburða kinverska keisara- dæmi til að gera, eru landakröfur Kinverja á hendur Sovétrikjunum litlar, saman boriö viö kröfurnar sem þeir gera á hendur Mongoliu, en Kremlverjar bjuggu það land til 1924 og þaö er i reynd nýlenda Sovétrikjanna. Kinverjar telja tilvist Mongoliu sér hættulega, vegna þess aö sovéskur land- og flugher hafa þar stórar bæki- stöðvar. Hafi sættir Japana og Kinverja valdiö Kremlverjum áhyggjum uröu þeir hinir reiðustu, viö Camp David samkomulagiö. sem gert var án þess að þeir kæmu þar hiö minnsta nærri. Kremlverjar höföu hugsaö sér að stjórna Austurlöndum nær, meö, og i keppni viö, Bandaríkjamönnum, jafiivel þó Rússar hafi verið rekn- ir frá Egyptalandi. Kremlverjar þóttust þess fullvissir, aö ófriöur- inn milli Araba og tsraelsmanna mikla kosningasigur voriö 1978. Björgvin var gagnrýninn á ýmislegt i stefnu og störfum þingflokksins á þessu timabili. Hann taldi að þingflokkurinn heföi ekki staðið nægilega vel viö þau fyrirheit, sem gefin voru með stefnumótun og nýjum mönnum i fararbroddi fyrir kosningarnar 1978. I siðari hluta ræðu sinnar fjallaði Björgvin um stefnu og störf Jafnaðarmanna i meiri- hlutasamstarfinu i borgar- stjórn. Hann sagði meirihluta- samstarfið hafa gengið vel og skilaöi góðum árangri. Hann taldi stöðu Alþýöufiokksins sterka i borgarstjórn. Fjörugar umræður Að framsöguræðum loknum tóku eftirtalin til máls: Jón Baldvin Hannibalsson, Bjarni P. Magnússon, Gisli Már Helga- son, Vilmundur Gylfason, Finnur Torfi Stefánsson, Jón Hjálmarsson, Skjöldur Þor- grimsson, Geir Gunnlaugsson, og Steinar Benediktsson. Jón Baldvin geröi einkum að umtalsefni málefnalegan undir- búning fyrir flokksþing, og þá búinn að fylgja eftir stóra sigrinum frá 78. Jón Hjálmarsson taldi að stjórnarslitin haustiö 79, hefðu verið misráöin, og forystu- mönnum flokksins hefði ekki tekizt aö koma stefnu Alþýöu- flokksins til skila til kjósenda á nógu sannfærandi hátt. Finnur Torfi Stefánsson taldi núverandi rikisstjórn til mikilla muna lakari en forvera hennar. Hann lagði áherzlu á að Alþýðu- flokkurinn ætti, sem ábyrgur flokkur, að leggja á það höfuö- kapp að vera við þvi búinn að taka þátt i stjórn landsins. Hann ætti ekki að hugsa sem óábyrgur stjórnarandstöðu- flokkur. Aðrir ræðumenn lögðu áherzlu á, að Alþýöuflokkurinn ætti nú framundan stórkostleg tækifæri til að auka fylgi sitt. Arangursleysi rikisstjórnar- innar færi ekki fram hjá mönn- um, óánægja stuðningsmanna Alþýðubandalagsins væri mikil og vaxandi og Sjálfstæöis- flokkurinn i upplausn. Þetta tækifæri yrði Alþýðuflokkurinn að nýta til fulls með öflugu flokksstarfi, vandaðri stefnu- mótun og skipulögðum aögerð- um til að treysta stöðu sina i Alþýðuflokkurinn á stórkostleg tækifæri framundan — Ef flokksmenn Fyrsti félagsfundur I Alþýðu- flokksfélagi Reykjavikur á þessum vetri var haldinn aö Hótcl Esju miövikudaginn 24. sept. s.l. Fundurinn var vel sóttur og tóku tólf manns þátt i umræöun. sem stóðu til miðnættis. Formaður félagsins, Guð- hafa einbeittan mundur Haraldsson, setti i upp- hafi fund og skipaði Jón Hjálmarsson fundarritara. Framsögumenn voru Benedikt Gröndal, formaður Alþýöu- flokksins, og Björgvin Guö- mundsson, borgarfulltrúi. Ræöa Benedikts fjallaöi um stjórnmálaviðhorfiö á þessum ilja að nýta þau haustdögum, flokksstarfiö á vetri komanda og málefna- undirbúning vegna þingstarfa og flokksþings, sem haldið verður um mánaðarmótin okt/nóv. Björgvin Guðmunds- són gerði einkum að umtalsefni stefnu og störf Alþýöuflokksins, allt frá þvi aö hann vann sinn sérstaklega stefnu Alþýðu- flokksins i atvinnumálum. Hann reifaði einnig áætlanir um breytingar á útgáfustarfsemi Alþýðublaðsins. Bjarni P. Magnússon og Vilmundur Gylfason svöruðu gagnrýni Björgvins Guömundssonar á störf þingflokksins. Vilmundur lagöi einkum áherzlu á, að flokkurinn heföi verið og væri enn, skipulagslega litt undir það verkalýðshreyfingunni og leita nýrra liðsmanna. Það var almannarómur, að umræöur á fundinum heföu verið málefnalegar, fjörlegar og gagnlegar. Alþýðuflokksfélag Reykja- vikur hefur nú i undirbúningi starfsskrá vetrarins. Er mikill hugur i mönnum aö efla flokks- starfið og búa sig sem bezt undir komandi flokksþing. — G

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.