Alþýðublaðið - 08.01.1981, Síða 3
Fimmtudagur 8. janúar 1981
3
alþýðu"
Útgefandi: Alþýöuflokkurinn
Framkvæmdastjo'ri: Jóhann-
es Guðmundsson.
Stjórnmálaritstjóri (ábm):
Jón Baldvin Hannibalsson.
Blaöamenn: Helgi Már
Arthúrsson, óiafur Bjarnii
Guönason, Þráinn Hall-
gnmsson.
Auglýsinga- og sölustjóri:
Höskuldur Dungal.
Auglýsingar: Þóra Haf-
steinsdóttir.
Gjaldkeri: Halldóra Jónsdótt-
ir.
Dreifingarstjóri: Sigurður
Steinarsson.
Ritstjórnog auglýsingar eru
aö Sfðumúla 11, ReykjavCk,
simi 81866.
Flokksstjórn Alþýðu-
flokksins kom saman til
fundar s.l. mánudag. Til-
efnið voru þær bráða-
birgðaaðgerðir sem ríkis-
stjórn Gunnars Thorodd-
sens hefur gripið til og
ef nahagsáætlun ríkis-
stjórnarinnar. Hér á eftir
fer samþykkt flokks-
stjórnarinnar:
Efnahagsráðstafanir
ríkisstjórnarinnar um
þessi áramót eru mikil
vonbrigði öllum þeim
sem þær hafa skoðað.
Ríkisstjórnin segir að-
gerðirnar víðtækar. Hið
þveröfuga reyndist upp á
teningnum. Ríkisstjórnin
lét í veðri vaka að mörkuð
yrði ný atvinnustefna.
Þess sér ekki stað. Tals-
menn ríkisstjórnarinnar
lýstu því yfir að stefnan
og aðgerðirnar þýddu að
gildi nýju krónunnar
myndi ekki rýrna.
Framtíðin mun sanna að
þetta reynist falsspá.
Ráðstafanir ríkis-
stjórnarinnar birtast í
bráðabirgðalögum. Því
til viðbótar eru svo meira
og minna loðnar yfirlýs-
ingar um ætlunarverk,
sem stefna skuli að, 'at-
huga eða undirbúa.
AAeginþættir bráða-
birgðalaganna eru ein-
ungis tveir: Frestun á
verðtryggingu sparifjár
um eitt ár og í öðru lagi
7% niðurskurður á laun-
um.
Auk þessa eru verð-
stöðvunarákvæði, sem
eru gamalkunn. Þau hafa
verið í gildi í áratug. Þau
breyta engu. Er reyndar
hlægilegt að lögfesta einu
sinni enn með bráða-
birgðalögum ákvæði sem
þegar eru í lögum. Frest-
un á raunvöxtum lá fyrir
i stefnuræðu forsætisráð-
herra í þingbyrjun í
haust. I því felst ekki ný-
mæli, heldur f lótti. Það er
til mark^um stjórnarfar-
ið, að yfirlýst ákvörðun
frá því í október kemst
ekki í framkvæmd fyrr
en með bráðabirgðalög-
um á gamlársdag.
í svonefndri „efna-
hagsáætlun ríkisstjórnar-
innar" er síðan að finna
ýmiskonar yfirlýsingar
um áform, sem stefnt
skuli að eða unnið að.
AAeginþátturinn í þessum
yfirlýsingum er að
gengissigi skuli hætt um
áramótin og gengi haldið
stöðugu næstu mánuði. f
staðinn skal „útvegað
fjármagn til þess að
tryggja afkomu fisk-
vinnslunnar" svo og
„samkeppnisiðnaðar og
útf lutningsiðnaðar".
Ekkert er sagt um hvern-
ig þetta skuli gert eða
hvaðan fjármagnið skuli
koma. í þessari hugmynd
felst að ríkisstyrkja skuli
höfuðatvinnuvegina á
svipaðan hátt og þegar
svonefndur bátagjaldeyr-
ir var við lýði. Það var
eitt meginafrek viðreisn-
arstjórnarinnar að af-
nema þann óskapnað.
Ekki verður annað séð en
skattleggja eigi þjóðina
til að gefa atvinnu-
rekendum ótiltekna fjár-
hæð. Þetta er uppáhalds-
kerfi Alþýðubandalags-
ins, þar sem stjórnvöld
úthluta gjöfum til at-
vinnurekenda eftir eigin
geðþótta. Ríkið getur þá
ráðið því hvaða fyrirtæki
lifa og hver deyja.
Þá er í yfirlýsingunni
getið um að stefnt skuli
að því að breyta skamm-
tímalánum og lausakuld-
um húsbyggjenda í föst
lán til lengri tíma. AAál-
flutningur okkar Alþýðu-
flokksmanna um úrbætur
til handa húsbyggjendum
hefur þannig haft nokkur
áhrif þótt óljóst sé um
efndir samkvæmt orða-
lagi yf irlýsingarinnar.
Hreinlegast væri þó hjá
ríkisstjórninni að styðja
frumvarp okkar Alþýðu-
flokksmanna, um bætt
kjör húsbygg jenda,
íbúðarkaupenda og spari-
fjáreigenda, sem við
lögðum f ram fyrir jól. Þá
væru engin eftirkaup, en
samkvæmt því munu
heildarlán húsnæðis-
stjórnar og bankakerfis
til langs tíma nema
a.m.k. 52% af kostnaðar-
verði íbúðar og með líf-
eyrissjóðslánum færi
hlutfallið yfir 70%.
Þær aðgerðir sem ríkis-
stjórnin hefur boðað eru
dæmigerð skammtima-
lausn. Þær þýða að verð-
bólgan 1981 verður svipuð
og 1980. Enn einu sinni er
sú aðferð viðhöfð að ráð-
ast á kaupið eitt. Það er
krafizt fórna af launa-
fólki án þess að varanleg-
ur árangur sé tryggður.
Búast má við að nokuð
dragi úr verðbólgu næstu
fjóra mánuði, en síðan
mun sækja í sama farið.
Niðurtalningin er úr sög-
unni og hvergi á hana
minnzt.
í gamlársboðskap
ríkisstjórnarinnar vottar
hvorki fyrir heilstæðri
efnahagsstjórn né nýrri
atvinnustefnu, en það er
það sem til þarf til þess
að komast úr þeim ógöng-
um, sem þjóðin hefur rat-
að í. Alþýðuf lokkurinn
mun beita sér fyrir slíkri
stefnumörkun m.a. með
tillöguf lutningi á Alþingi.
Samþykkt flokksstjórnar alþýðuflokksins
Tillaga um 1
menna viömiöunarhlutfall er
2% af þjóöarframleiöslu. Þetta
hlutfall gæfi heildarútgjöld 36.9
mia.kr. áriö 1981. Heildarút-
gjöld færu siöan hækkandi meö
vaxandi þjóöarframleiöslu, en
vöxtur hennár er hér áætlaöur
2.5% á ári. Þannig yröu heildar-
útgjöld 43.9 mia.kr. 1988 og 53.5
mia.kr. 1996. Þetta viðmiöunar-
hlutfall, 2,0%, verður aö teljast i
algjöru lágmarki, og þvl er þaö
hækkað fyrstu átta árin i 2.1%
til aö heröa á framkvæmdum á
fyrri hluta timabilsins. Sú
hækkun eykur ráðstöfunarfé um
1.9 mia.kr. 1981 og 2.2 mia,kr.
1988. Fyrir aukninguna má
leggja 40-50 km af bundnu slit-
lagi á ári umfram þaö, sem
annars væri, ef aukningin væri
öll notuö i þvi skyni. Heildarút-
gjöld veröa þá 38.8 mia.kr. 1981
og 46.1 mia.kr. 1988. Tölur hér
aö ofan eru á áætluöu verölagi
1981.
Meö hliösjón af reynslu
undangenginna ára þykir ekki
rétt aö gera tillögu um hærra
hlutfall. Er þá einnig haft i
huga, aö hér er um grunnáætlun
aö ræöa, sem auövelt væri aö
auka og bæta viö, ef Alþingi
ákveöur aö gera enn frekara
átak i vegagerö”.
Ljósin í lagi
- lundin góð
Slík áhrif hafa
rétt stillt Ijós
í umferðinni.
Nefndarálit minnihluta fjárveitingarnefndar:
Viðskiptahalli og vaxandi erlend skuldasöfnun
Fyrsti minnihluti fjárveitingar-
nefndar, þ.e. fulltrúar Sjálf-
stæðismanna i stjórnarandstööu,
skilaöi séráliti þegar fjárlög fyrir
áriö 1981 voru afgreidd. I
greindargerö meö nefndaráliti
sinu er m.a. kafli um viöskipta-
halla og vaxandi erlenda skulda-
söfnun. Hér ier á eftir stuttur
kafli úr áliti Sjálfstæöismanna:
Sú þróun, sem orðið hefur á
jöfnuði viöskipta viö aörar þjóöir,
og vaxandi skuldasöfnun erlendis
er iskyggileg. Viöskiptajöfnuöur
er skv. spá og rauntölum óhag-
stæöur um nærri 100 milljarða
króna árin 1979—81. Þróunin hef-
ur orðið sem hér segir (verðlag
hvers árs. — Heimild: Þjóöhags-
stofnunin):
Viöskiptajöfnuöur m.kr.
1978 + 7870
1979 -=- 7220
1980 4-46000
1981 4- 40000
skv. þjóöhagsspá.
Erlendar skuldir hafa vaxiö um
320 milljónir dollara frá 1977 til
næstu áramóta, 1980/1981, eöa um
190 milljarða króna á áætluöu
áramótagengi.
A yfirstandandi ári fóru erlend
lán til langs tima 20 milljaröar
fram úr áætlun lánsfjárlaga.
Teknir voru aö láni 105 milljarö-
ar i staö 85 milljaröa eins og gild-
andi lánsfjárlög gera ráö fyrir.
Þótti þó flestum sú upphæö nógu
há.
Löng erlend lán námu um hver
áramót sem hér segir:
Gengi
dollars
um hver
. M.kr áramót
1977 .......... 134320 212.8
1978 .......... 236130 317.7
1979 .......... 331348 394.4
1980 .......... 562000 590.0
(áætlun Seölabanka)
Greiðslubyröi erlendra lána
hefur farið ört vaxandi, bæöi á
mælikvaröa hlutfalls á útflutn-
ingstekjum og þjóöarframleiöslu.
Greiöslubyröin hefur vaxiö I
hlutfalli af útflutningstekjum sem
hér segir:
Hlutfall af útfl.tekjum
1977 ................ 13.7%
1978 ................ 13.1%
1979 ................ 12.8%
1980 ................ 15.2%
(áætl. Seðlabanka)
Blaðburðarbörn óskast á
eftirtalda staði STRAX
Eyjabakka.
Skipasund — Efstasund
Barónsstigur—Eiriksgata — Mimisvegur
Leifsgata — Egilsgata — Þorfinnsagata
Hjarðarhagi — Kvisthagi — Fornhagi.
Alþýðublaðið Helgarpósturinn
Sími 81866
Erlend lán til langs tima hafa
aukist verulega I hlutfalli við
þjóöarframleiöslu. Þróunin hefur
oröiö sem hér segir:
Löng erlend lán
% þjóöarframleiðslu
1977 ... 31.6%
1978 ... 33.8%
1979 ... 34.6% (áætlun Seölabanka)
1980 . . . 34.9% (áætlun Seölabanka)
1980 . .. 37.7%
(8% lægra gengi, óstaðfest áætlun)
Flestir eru sammála um aö
eölilegt sé að taka erlend lán til
aröbærra framkvæmda. A hinn
bóginn er ekki taliö æskilegt aö
greiöslubyröi erlendra lána veröi
meiri en svo, aö þau fari fram úr
33—34% af þjóðarframleiðslu.
Núverandi gengisskráning fals-
ar skuldastööuna, og er óhætt aö
fullyrða aö löng erlend lán i hlut-
falli viö þjóöarframleiöslu séu
komin yfir 37%. Þessi þróun er
mikiö áhyggjuefni, vegna þess að
enn horfir i sömu átt eftir þvi sem
best veröur séö af þeim upplýs-
ingum, sem liggja fyrir um
erlenda lántöku á næsta ári.
Verzlunarráö Islands hefur reiknaö út hverjar þjóðartekjur tslendinga
væru ef véröbólgan heföi ekki dregiö úr þjóöarframleiöslunni á undan-
förnum árum. Útkoman er sú aö þær gætu verið 20% hærri eins og sést
á meðfylgjandi linuriti.