Alþýðublaðið - 10.02.1981, Síða 1

Alþýðublaðið - 10.02.1981, Síða 1
alþýðu-1 blaöið li Dýrir duttlungar sjá leiðara bls. 3 Frumvarp Benedikts Gröndals um breytingar á lögum um þingsköp sjá bls. 4 Þridjudagur 10. febrúar 1981- 22. tbl. 62. árg. SSSHHBSBi Frumvarp Alþýðuflokksins: Greiðslubyrði vegna íbúðakaupa og bygginga minnkuð og jöfnuð A fundi i efri deild Alþingis i gær, mælti Kjartan Jóhannsson fyrir frumvarpi um bætt kjör sparifjáreigenda, ibúðarbyggj- enda og ibúðarkaupenda, en flutningsmenn frumvarpsins ásamt Kjartani, eru Eiður Guðnason og Karl Steinar Guðnason. I greinargerð með frumvarp- inu er gerð grein fyrir þvi af hverju þetta frumvarp er lagt fram og i hvaða tilgangi. Þar segir m.a. að raunvaxtastefna Alþýðuflokksins sé forsenda þess að takast megi að skapa eðlilegt og heilbrigt fjármálalif á Islandi. Þvi fylgir að fjárfest- ingarlán verða að vera til langs tima. Þess vegna hefur Alþýðu- flokkurinn ævinlega boðað að aðlögun verðtryggingar og vaxta yrði að fylgja lenging lána og dreifing greiðslubyrðar. Sérstaklega á þetta við um hús- byggjendur og ibúðakaupendur og má minna á frumvarpsflutn- ing og stefnumörkun Magnúsar H. Magnússonar i þessu sam- bandi um stighækkun húsnæðis- lána. Þeirri stefnumörkun hefur núverandi rikisstjórn hins vegar gersamlega brugðist. Enn fremur hefur rikisstjórnin gjörsamlega vanrækt að lengja almennan lánstima. Rikis- stjórnin er þvi ekki að fram- kvæma raunvaxtastefnu og lætur sér hag húsbyggjcnda og ibúðakaupenda i léltu rúmi 1‘ggja- 1 greinagerð með frumvarp- inu segir svo um forsendur raunvaxtastefnunnar: „Veigamikil forsenda raun- vaxtastefnunnar er sú — og á þaðhefur Alþýðuflokkurinn ætið lagt mikla áherslu — að jafn- framt hækkun nafnvaxta yði lánstiminn lengdur. Minnihluta- stjórn Alþýðuflokksins lagði á sinum tima mikla áherslu á að þetta atriði kæmi til fram- kvæmda svo og á aukna kynn- ingu lánskjara og almennra reglna um lánaviðskipti. Raunin hefur hins vegar orðið sú, að litt hefur miðað og láns- timinn er sem fyrr allt of stuttur. Ein afleiðing þessa er sú, að greiðslubyrði lána verður mjög þungbær. Það er fyrst og fremst þetta atriði sem veldur lánþegum þungum búsifjum, enda er nú svo komiö að það er hverri meðalfjölskyldu nánast um megn að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir þvi að þetta er bein afleiðing af mis- tökum i framkvæmd peninga- málastcfnunnar. Þótt fram- kvæmdin hafi hins vegar farið I handaskolum er stefnan skýr eins og hún var upphafiega mót- uð af Alþýðuflokknum. 1 þvi efnahagsöngþveiti sem hér hefur rikt á undanförnum misserum hefur hagur tveggja hópa einkum verið fyrir borð borinn, annars vegar hins al- menna sparifjáreiganda, sem ekki hefur notið þeirra ávöxtunarkjara sem honum ber lögum samkvæmt: hins vegar hafa ibúðabyggjendur og ibúða- kaupendur búið viö allt önnur lánaskilyrði en stefnumörkun Alþýðuflokksins gerir og gerði ráð fyrir, þar sem aukinni greiðslubyröi átti að dreifa yfir mun lengri lánstima en raun hefur á orðið”. t umræðum, sem spunnust út af frumvarpinu, hélt m.a. Þor- valdur Garðar Kristjánsson ræðu, og sagði þar, að hann væri i öllum meginatriðum sammála frumvarpinu, en að af fenginni reynslu efaðist hann um að lagasetningin, eins og hún væri, næði tilgangi sinum. Tómas Arnason, viðskiptaráðherra, kom siðan i pontu og lýsti furðu sinni á þvi, að Kjartan Jóhanns- son gagnrýndi rikisstjórnina vegna vaxtamála, það ætti að gagnrýna rikisstjórnina á allt öðrum grundvelli. Hann vildi hinsvegar ekki tjá sig nánar um það mál. Kjördæmisþing Alþýðuflokksins um borgarmál: REYKJAVÍK VER 1 MILUARÐI TIL BYGGINGAFRAMKVÆMDA í ÁR 500 íbúðir skv. félagslegu kerfi afhentar 1981- 82 Deila sjómanna og útvegsmanna: Togararnir stöðvast í vikunni — bátarnir eftir helgi Næstu daga munu margir togarar stöðvast vegna verk- falls sjómanna. t gærkveldi var fundur með deiluaðilum, sjómönnum og útvegs- mönnum. Það eru hásetar og vélstjórar á togaraflotanum sem hófu verkfall á miðnætti I fyrrinótt. Verkfallið nær ekki til sjómanna á Vestfjörðum, sem sömdu s.l. vor, sjómanna á Austfjöröum og Vestmanna- eyjum. Þar sem Vélstjóra- félag tslands er þátttakandi I' aðgerðunum munu nokkrir togaranna stöðvast vegna verkfalls vélstjóra eingöngu. Þvi hefur verið haldið fram opinberlega, að útgerðarmenn væru alls ekki óhressir með að mál skuli nú hafa þróast svo að til verkfalla kemur. Bent hefur verið á, að reynsla út- gerðarmanna af verkföllunum á Vestfjörðum fyrir tæpu ári siðan hafi verið nokkuð góð! Sjómenn fóru nefnilega i verk- fall á þeim tima sem þorsk- veiðibann var gildandi. I janúar og febrúar er gert ráð fyrir þvi að togararnir taki út tuttugu daga þorskveiði- bann og komi til verkfalls fyrir alvöru sparaði það út- gerðarmönnunum að gera skipin út á skrapveiðar, sem ekki borga sig. 1 framhaldi af þvi hafa heyrst raddir um aö útgerðarmenn myndu e.t.v. gripa til þess ráðs að setja verkbann á sjómenn til að stöðva allan flotann. Kristján Ragnarsson for- maður Llú vildi, i samtali við Alþýðublaðiðekki staðfesta aö svo væri. Hann sagði: „Engar slikar ákvarðanir hafa verið teknar, enda hefur slikt ekki verið rætt. Við förum til fundar við sjómenn hjá sátta- semjara i dag kl. 17.00, en ég get ekkert sagt um horfurnar á samkomulagi. Það er langt siðan við ræddum við sjómenn siðast og ég vonast til að ein- hver árangur náist i þessu máli.” Guðmundur Hallvarðsson hjá Sjómannafélagi Reykja- vikur sagðist ekki hafa heyrt neitt um verkbannshug- myndir Utgerðarmanna, sem hann taldi óliklegar. Hins vegar sagðist Guðmundur vonast til að eitthvað færi aö gerast f þessum málum von bráðar Fyrirsjáanlegt væri að nokkrir togaranna myndu stöðvast á næstu dögum. Guðmundur sagði að þaö væru sérstaklega lifeyris- málin sem stæðu i veginum fyrir lausn deilunnar, en ekki væri gott að segja til um það hvernig málin stæðu nú. Langt væri siðan deiluaðilar heföu ræðstvið. Hann vildi ekki upp- lýsa hvað fulltrúar sjómanna myndu leggja höfuðáherzlu á i komandi samningalotu. Með tilkomu þorskveiöi- banna og með þvi aö það er hreinlega óhagkvæmt fyrir út- gerðina að gera togarana út á skrapveiöar veröur verkfalls- vopnið sjómönnum ekki eins $ Um siðustu helgi gekkst fulltrúaráð Alþýðuflokksins I Reykjavik fyrir Kjördæmisþingi um Borgarframkvæmdir 1981. Þingið var haldið á Hótel Lwft- leiðum. Rétt til þingsetu áttu aðalfulltrúar og varafulltrúar I fulltrúaráöinu, sem og allir trúnaðarmenn Alþýöuflokksins I borginni við síöustu kosningar. Það var Sigurður E. Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Húsnæðisstofnunar rikis- ins, fyrsti varaborgarfulltrúi Alþýðuflokksins i Reykjavik, sem setti þingið. Siöan ræddi Sjöfn Sigurbjörnsdóttir um menningar- mál og æskulýösstarf i borginni. Þá ræddi Björgvin Guðmundsson um atvinnumál i Borginni. Björg- vin greindi frá þvi helzta sem gert hefur verið i borginni á sviði at- vinnumála. Hann ræddi ágætan rekstur B æ j arútgerðar Reykjavikur. Þá upplýsti Björg- vin að atvinnumálanefnd borgar- innar hefi tekiö upp þá nýjung, að auglýsa eftir hugmyndum manna um atvinnutækifæri i Reykjavik. Björgvin sagöist vonast til að þessi nýjung skilaði góðum hug- myndum og ekki bæri á ööru en menn heföu tekið þessu vel. Nú þegar hefðu borist margar mjög athyglisverðar tillögur eöa hug- myndir. Sigurður E. Guðmundsson ræddium húsnæðismál i borginni og verður erindi hans gerð nokkur skil hér að neðan. Sigurður gerði sérstaka grein fyrir einstökum þáttum húsnæðisframkvæmda á vegum borgarinnar. 1 fyrsta lagi sagði hann að gert væri ráð fyrir að fimm hundruö ibúðir á félags- legum grunni yrðu afhentar á árunum 1981—1982.Þá sagði hann að senn liði að þvi aö siðustu ibúðirnar i verkamannabústöðum i Hólahverfi yrðu afhentar. Þá væri og búið aö ráðstafa 60 raðhúsum i sama hverfi og hæfist afhending þeirra þegar næsta vor. Sigurður sagði að hafnar væru undirbúningsframkvæmdir að byggingu 176 fbúða á Eiðsgranda og yrðu þær auglýstar til sölu i sumar eða haust. Hér væri um að ræða tveggja til fimm herbergja ibúðir og væri gert ráð fyrir að þær fyrstu yrðu afhentar eigend- um árið 1982. Þá er fyrirhugaö aö byggja tvö hundruö íbúðir I verkamanna- bústöðum á næstunni.... Bygg- ingasjóður Reykjavikurborgar hefur auk þess sótt um lóöir undir 119 ibúðir i þvl skyni að útrýma heilsuspillandi húsnæði, en þetta taldi Siguröur afar brýnt. Byggingasjóöur hefur einnig sótt um lóöir undir 110 leiguibúðir, sem verða fjármagnaðar skv. lögum um Byggingasjóð verka- manna og sagðistSigurður vonast til þess að afgreiðslu þessarar umsóknar kæmi von bráöar. 1 erindi sinu upplýsti Sigurður EV' Guðmundsson að Bygginga- sjóður léti nú fara fram athugun á þvl hvernig mætti koma til móts við aldraða sem vildu komast úr of stóru húsnæði i minna, en tölu- vert væri um þaö, að eldra fólki langaði til aö skipta um húsnæði, t.d. til að minnka við sig, en fram- boð á slikum ibúðum fyrir eldra fólk væri af skornum skammti. Væri að vænta niðurstaðna frá nefndinni eftir nokkurn tima. Sigurður sagði, að ný löggjöf um verkamannabústaði fæli i sér rétt Byggingasjóðs verkamanna til að kaupa ibúðir i smiðum auk þess sem nú væri heimilt, aft. kaupa notaðar Ibúöir til að breyta þeim i verkamannabústaði. Sagði hann aö Byggingasjóður borgar- innar hefði þessi mál til athug- unar en rétt væri að fara að öllu með gát þvi hinn frjálsi fasteign- amarkaöur væri viðkvæmur og mikil eftirpurn á markaöinum myndi eflaust sprengja verðið upp. Sigurður sagöi, að húsnæðis- Rafiðnadarsambandið: Skorar á mið- stjórn ASÍ að veita stjórn- völdum aðhald A 6. þingi Rafiðnöaðarsam- bands tslands var samþykkt ályktun um kjaramál, þar sem bráðabirgðalög rikisstjórn- arinnar eru harðlega fordæmd og miðstjórn ASt hvött til að veita stjórnvöldum fullt aðhald. þannig að verkalýðshreyfingin geti hrundið þeirri árás á frjáls- an samningsrétt, sem felst i lögunum. Alyktunin er birt hér að neöan: Enn einu sinni hafa stjórnvöld með lagaboði ógilt 'ákvæði nýgerðra kjarasamninga. Með bráðabirgðalögum hefur rikis- stjórnin ákveðið aö skerða kaupgjaldsvisitöluna um 7 prósentustig hinn 1. marz n.k. og svifta þannig launþega rétt- mætum samningsbundnum bótum vegna verðhækkana i nóvember og desember 1980. Nú sem fyrr hlýtur Raf- iönaðarsamband Islands að mótmæla harðlega og fordæma slika ihlutun rikisvaldsins i mikilvæg samningsákvæði gild- andi kjarasamninga. óljós og þokukennd fyrirheit stjórnvalda um aögeröir siðar á árinu i þvi skyni að varöveita þennan kaupmátt, sem orðið hefði við óhefta verðbólgu, breyta engu um eðli þessarar árásar á frjálsan samningsrétt, skorturinn i borginni væri tilfinnanlegur. Sérstakiega væri það fólk sem minna mætti sin sem bæri afleiðingar þessa. Hann tók sérstaklega einstæðar mæður og minnti á, að þeim væri sérstak- lega erfitt að koma sér þaki yfir höfuöið. Sem dæmi um húsnæðis- skortinn nefndi Sigurður E. Guðmundsson að nú lægju fyrir fjögur til fimmhundruð umsóknir um kaup á endursöluibúöum i eldri verkamannabústöðum. Þetta sýndi að húsnæðisskortur- inn væri tilfinnanlegur. Sigurður lauk málisinu á þvi aö gera grein fyrir þýðingu þessa þáttar borgarframkvæmdanna auk þess sem hann nefndi kostnaðartölur vegna ibúðabygg- inga á vegum borgarinnar. Reykjavikurborg ætlar að setja um einn milljarö króna i bygg- ' ingaframkvæmdir á árinu. Um átta hundruö milljónir til verka- mannabústaða og um tvö hundr- uö milljóna til leiguibúða á eigin vegum.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.