Alþýðublaðið - 19.02.1981, Síða 4
I STYTTINGI
Fjárhagsáætlun fyrir
Njarðvík
Bæjarstjórn Njarövikur
afgreiddi á fundi sinum, þriðju-
daginn 10. febrúar, fjárhagsáætl-
un bæjarins fyrir árið 1981.
Áætlunin var lögð fram til fyrri
umræðu 22. des. s.i. og almennur
borgarafundur um áætlunina var
haldinn laugardaginn 7. febrúar.
Niðurstöðutölur áætlunarinnar
eru kr. 12.607.000,- og er hækkunin
frá fyrra ári tæp 50%. Helstu
tekjuliðir eru þessir:
Útsvar kr. 6.615.000,-
Aðstöðugjald 2.240.000,-
Fasteignagjöld 1.902.000,-
Fjöfnunarsjóður ” 1.250.000,-
Þéttbýlisfé 190.000,-
Vextiro.fi. 270.000,-
Helstu gjaldaliðir eru:
Stjórn bæjarins 924.100,-
Almannatryggingar
og félagshjálp ” 1.180.300,-
Heilbrigðismál 568.000,-
Fræðslumál 1.668.110,-
Æskulýðs- og
iþróttamál 945.000.-
Hreinlætismál 773.000,-
Gatnagerð
og gangstéttir 3.218.000,-
Eignabreytingar ” 1.136.000,-
Á siðasta ári var lagt slitlag á
1165 metra af götum og hefur þá
verið lagt slitlag á 68,8% gatna-
kerfisins. Á siðasta ári voru i
byggingu 94 ibúðir, 67 bilgeymsl-
ur og 12 byggingar til iðnaðar og
fyrir opinbera aðila. Meðalstærð
fullgerðra ibúða á árinu var 106
ferm. Ibúar i Njarðvik um siðustu
áramót voru tæplega 2.000 manns
og hafi f jölgað um 90 manns, eðá
4,6% frá fyrra ári.
Stjórn BÍ mótmælir
kjaraskerðingu
Eftirfarandi samþykkt var
gerð á fundi stjórnar Blaða-
mannafélags Islands 10. febrúar
1981.
Stjórn B1 mótmælir harðlega
þeirri kjaraskerðingu, sem felst i
ákvæðum bráðabirgðalaga rikis-
stjórnarinnar frá 31. desember
' 1980. bessi ákvæöi eru gróf
ihlutun i frjálsan samningsrétt
stéttarfélaga. Stjórn B1 skorar á
alþingismenn að fella kjara-
skerðingarákvæði laganna.
Á RATSJÁNNI
SIGURÐUR ÞÓR GUÐJÓNSSON SKRIFAR UM TÓNLIST
ALLT Á SÍNUM STAÐ
Stjórnandi: Jean-Pierre Jac-
quillat .
Einleikari: Maurice Bourgue
Verkefni: Handel — Flugelda-
svftan. Haydn — Konsert fyrir
óbó R. Strauss — Konsert fyrir
óbó R. Strauss — Rosen-
kavalier, svita
Allt á sinum stað
Næstu áskriftartónleikar Sin-
fóniunnar á eftir þessum
leyndardómsfullu nútimatón-
leikum voru i gamla stilnum.
Efnisskráin gömul og grá var á
sinum stað. Einleikarinn númer
tvö á prógraminu var á sinum
stað. Hljómsveitarstjórinn fast-
ráðinn vará sinum stað. Blómin
á sviðinu biðandi eftir að stytta
helstrið veikra og volaðra voru
á sinum stað. Það voru aðeins
áheyrendur sem ekki voru á
sinum stað. Húsið var hálf tómt
og verður það æ algengari sjón á
sinfóniutónleikum. Það hlýtur
að vera eitthvað athugavert við
skipulag tónleikahalds hjá þess-
ari stofnun, en það hefur nú
verið óbreytt i tuttugu ár þrátt
fyrir að menningar- og
skemmtanalif borgarbúa hafi
tekið róttækum breytingum.
Þessir tónleikar byrjuðu ekki
mjög uppörvandi. Leikin var
Flugeldasvita Hándels þungt og
af mikilli þröngsýni. En þó var
Hándel viðsýnastur tónskálda
ásamt Beethoven. Þetta breytt-
ist þó allt er einleikari kvöldsins
lék listir sinar. Það var Maurice
Bourgue frá Frakklandi og blés
á óbó. Þetta reyndist hinn ótrú-
legasti töframeistari. Nú skildi
ég hvernig galdramenn geta
tamið snáka og eitraða slöngur
með hljóðpipuleik. Og gamla
flökkusagan um strákinn sem
ærði og seiddi menn og dýr svo
heilu byggðirnar dönsuðu eftir
hljóðpipu hans lá mér sömu-
leiðis i augum uppi. 1 sögunni er
kannski verið að segja frá ein-
hverjum fyrirennara óbóunnar
en hún barst til Evrópu frá
austurlöndum með krossförum.
Bourguelék konsert eftir Haydn
og konsert eftir Richard
Strauss. Það verk samdi
Strauss á gamalsaldri en
honum var að farg fram til
banadægurs og var.þó snemma
snjall. Tdnlist hans er reyndar
hugsuð með likamanum, bæði
fyrir neðan og ofan mitti, en öll
liffæri virðast hafa verið heil-
brigð og I góðu jafnvægi. Og
eftir tónlist Strauss að dæma
hefur honum yfirleitt liðið vel i
lifinu og hefur þau áhrif á hlust-
endur að þeim liður lika vel
þegar þeir heyra tónlist hans.
Þessum tónleikum lauk með
svi'tu Strauss úr Rósariddar-
anum. Það var mjög afslapp-
andi. Kannski er lika til of
mikils mælst að allir hlutir séu
stuðandi. Var ekki ágætt að fá
einmitt dálitið róandi áður en
geðvonska Beethovens helltist
yfir áheyrendur i Fidelió á
næstu tónleikum Sinfóniunnar?
Sigurður Þór Guðjonsson
Leikstjóri: Lárus Ýmir óskars-
son
Þýðandi? Silja Aðalsteinsdóttir
Leikmynd og búningar: Þórunn
Sigrfður Þorgrimsdóttir
Hljóðmynd: Leifur Þórarinsson
Söngtexti: Þórarinn Eldjárn
Dario Fo grasserar hér i leik-
húsunum um þessar mundir.
Enda er hann svo skemmti-
legur, að það hlýtur að vera
draumur allra leikhúsa að slá
sér upp á honum. Hvernig væri
nú að flytja Dario Fo inn og
borga honum svo sem eins og
eitt Raufarhafnartogaraverð
fyrir að skrifa farsa um islenzkt
óperettuþjóðfélag? Af nægu er
að taka. Kannski sá farsi mundi
koma vitinu fyrir okkur, og þá
yrði togarinn fljótur að borga
sig til baka.
En helzt þyrftum við sjálf að
eignast okkar eigin Dario Fo.
Þvi að til þess að geta skrif-
að jafn átakanlega hlægilegan
gamanleik og Dario Fo, þarf
maður að hafa ást á viðfangs-
efninu, vera hluti af þvi. Dario
Fo elskar landið sitt. Þess
vegna eru leikirnir hans svona
þess, veit hvar sviður mest.
Hann rifur i sig mannlega spill-
ingu, forheimskun, hroka,
kh'kuskap, hnoðar þvi saman I
einn allsherjar farsa, ýktan
farsa, sem jaðrar við að vera
fáránlegur, absurd. En sann-
leikurinn kann að vera
fáránlegur, það sjáum við allt i
kringum okkur. Næg eru yrkis-
efnin. Islenzkt þjóðfélag er einn
alls herjar farsi i anda Dario
Fo. Okkur vantar bara höfund
til að þrengja þvi inn i drama-
tiskt form.
Ég held að ég hafi aldrei
hlegið jafnmikið i leikhúsi og á
sýningu Alþýðuleikhússins á
Stjórnleysingjanum. Sökum
anna komst ég ekki fyrr én á
þriðju sýningu, og biðst afsök-
unar á þvi. Húsið var þéttsetið,
fólk á öllum aldri og öllum stig-
um. . Hláturkviðurnar gengu
yfir salinn eins og flóðöldur, og
maður barðist við að ná and-
anum á milli. Engu að siður er
söguþráðurinn varla
hlátursefni. Það er fjallað um
ungan vinstrisinnaðan mann,
sem hafði verið handtekinn
fyrir meint sprengjutilræði i
Búnaðarbankanum i Piazza
Fontana i Milanó 1969. Hann
hafði verið yfirheyrður af
itölsku lögreglunni og pyntaður
með þeim afleiðingum, að hann
varpaði sér út um glugga lög-
reglustöðvarinnar og beið bana.
Sagan er byggð á sönnum at-
burðum og sýnt fram á, að
lögreglan hafi búið til þennan
sökudólg til þess að hylma yfir
aðra, sem meira áttu undir sér.
Hápólitiskt mál, þar sem veitzt
er að embættisvaldinu, stjórn-
málamönnum og mafiuforingj-
um. Engin furða þótt leikrit
þetta hafi verið bannað á sinum
tima.
Nú, en list Dario Fos er
einmitt fólgin i þvi að gera hið
hápólitiska sprenghlægilegt.
Manni skyldi aldrei leiðast i
leikhúsi, segir hann. Og þá eru
það leikendurnir. Hvernig gera
þeir sér mat úr texta Fos? Þrá-
inn Karlsson var eitt aðalhlát-
ursefnið þetta kvöld. Hann er
tiltölulega litt þekktur hér sunn
an lands, lék lengi fyrir norðan
við góðan orðstir. Þráinn sýnir
furðanlegan
sveigjanleika i
lýmr
Það þótti tiðindum sæta, hér
fyrir nokkrum dögum, þegar sú
frétt barst út um heimsbyggðina,
á virum Reuters sjálfs, að ind-
verskir þingmenn hafi lent i
handalögmálum i sölum þingsins,
svo að varð að kalla lögreglu til,
til að stilla til friðar. Var til þess
tekið, að þetta hefði aldrei áður
gerst í sögu indverska þingins,
en þaö má benda á, aö saga þess
er ekki ýkja löng.
Saga Álþingis, er orðin alllöng,
ef frá er tekið smávegis hlé, einu
sinni, og ekki er meö sannindum
hægt að segja, að þar hafi ætið
alvæpni, og hjuggust þar á, þartil
annar hvor var óvigur orðinn.
Þannig tókst ærið oft að komast
hjá þvíað óþarflega margir væru
drepnir út af litlu tilefni.
Nú er öldin önnur. Nú er mönn-
um bannað með lögum að gera
slikt, 1 staðinn verða menn að
fara út i pólitik. Það er nú
reyndar ekki langt siðan að
likamlegt ofbeldi var endanlega
afnumið sem dómstóll á Islandi.
Það er enn styttra siöan að likam-
legar refsingar voru aflagðar.
1 bókum Hendriks Ottóssonar
um Gvend Jóns og aðra drengi i
BRYNDÍS SCHRAM SKRIFAR UM LEIKLIST Kf, IHKI RhP :
PÓLITÍSK Ál Alþýðuleikhúsið sýnir Stjórnleysingi ferst f slysförum eftir Dario Fo )REPA áhrifamiklir. Þess vegna svona sannir. Hann gjörþekkir viðfangsefnið, þekkir veikleika
Mikil fundahöld i stjórn Framkvœmdastofminar i gœr
Togarinn kemur
LLeysi niöur um Sverri Hermannsson, segir Stefán Jónsson
Nú virðist loks vera að sjást
Kfyrir endann á hinu umdeilda
Ptogaramáli þeirra Norður-Þing-
Jeyinga. Rfkisstjórnin fjallaði um
n I gsermorgun.
byggðasjóði en hinn hlutinn af
sérstöku framlagi rikissjóðs ab
upphæð 15 miljónir Nkr. til
býggðasjóös á lánsfjáráætlun,
sem ætlaö er til skipakaupa eða
ga. Sá hluti - “ '
og Karl Steinar Guðnason.
Otgerðaraðilar skipsins á
Raufarhöfn og Þórshöfn munu
hafa tilkynnt seljendum að a/
kaupunum yrði, þannig að þeir fá
togarann þrátt fyrir allt.
' ' n mestu mun hafa ráðiö
Sverrir Hermanu.
og framkvæmd:
kvæmdastofnunar
niður um nokkr;
málains. Ekki
anum að ná I S’
stjórnar Framkv
Igær.en Stefán
maður var si
hann væri einn r
leysa þyrfti niðt
,,Ég er einn
að leysa ni
Herrm.nnsson
una I þessu t
Framkvæmt
lausn
reiöa
greiðslur.
I FOTSPOR VALDfl POLITIS
verið friður og góövilji með
mönnum. Gamlar sögur segja, að
oft á tiðum hafi legiö við mann-
vígum á þingi, og borgara-
styrjöld. NU vitum við öll hvers-
konar timabil Sturlungaöld var,
og eflaust hefur ærið oft verið
spennandi á þingi I þann tið.
En forfeður okkar höfðu ætið
bann Utveg, þegar ljóst var að
ekki yrði hjá mannvlgum komiö,
aö takmarka mannvigin viö þá,
sem beinan þátt áttu að deilunni,
sem upp hafði sprottið. Þá var
markaður völiur til mannviga,
deiluaðilar gengu þar fram við
Vesturbænum á fyrstu árum
þessrar aldarkemur I ljós, að það
sem þessar hetjur hinnar ungu
Reykjavikur óttuðust mest, var
það, að Valdi póliti tæki þá, girti
niður um þá, og hýddi, á Austur-
velli, að öllumbæjarbúum
ásjáandi. Ekkert i heiminum gat
jafnast á viö þau ósköp. Og þó nú
sé sá siður löngu aflagöur i
Reykjavik, sem og annarsstaöar
á landinu að pólitiið berji börn á
beran bossann fyrir framan Al-
þingi götunnar er minningin um
þessa dýröartima svo mjög rik i
eldri kynslóöinni, að enn er talað
um það.
Það kann að vera, að það sé
nálægö Alþingis við Austurvöll,
sem ræður þvi að þar er meira
talað um niðurleysingar og rass-
skelli, en annars staðar á landinu.
Allavega vilja sumir þingmenn
gjarna fá aö klappa kollegum sln-
um á beran bossann þessa
dagana. Sverrir Hermannsson
vildi fá að rassskella ótölusettan
og ónafngreindan fjölda manna á
sunnudaginn var. Stefán Jónsson
hefur ný lýst þvi yfir, aö hann eigi
enga ósk heitari en að bera
bossann á Sverri Hermannssyni.
Kynlegar langanir með þingliöi
þetta.
Þaö þykir sumum fint þegar
gamlir siðir haldast löngu eftir að
þeir eru i raun orðnir úreltir og
allir í raun búnir að gleyma
hversvegna þeir voru teknir upp I
byrjun. Td. er málum þannig
háttað í breska þinginu, að á
hverjum tima, veit ekki helm-
ingur þingliðs hvað hann er að
gera, eða hversvegna. Slikt er
kallað „hefðir” og þykir fint. Ef
hinsvegar Alþingismenn ætla að
taka Valda póliti sér til fyrir-
myndar, er ekki um heföir að
ræða, heldur vonda siði, sem
varla er hægt aö kenna öðru en
slæmu uppeldi.
— Þagall.
alþýðu
blaðið
Fimmtudagur 19. febrúar
KÚLTÚRKORN
Frumsýning i
Þjóðleikhúsinu
Sölumaður deyr
Laugardaginn 21. febrúar næst-
komandi frumsýnir Þjóðleikhúsið
hið viðfræga leikrit SÖLU-
MAÐUR DEYR, eftir Arthur
Miller. Það er Dr. Jónas
Kristjánsson (Forstöðum. Árna-
stofnunar) sem þýðir leikritið,
Þórhallur Sigurðsson er leik-
stjóri, leikmynd gerir Sigurjón
Jóhannsson, búninga sér Dóra
Einarsdóttir um og Kristinn
Danielsson annast lýsinguna.
Það er Gunnar Eyjólfsson sem
leikur sölumanninn Willy Loman,
Margrét Guðmundsdóttir leikur
Lindu konu hans, Hákon Waage
og Andri örn Clausen leika Biff
og Happy syni þeirra. Andri
leikur nú sitt fyrsta hlutverk á
fjölum Þjóðleikhússins eftir að
hann lauk leiklistarnámi frá
Webber Douglas Academy I
London á siðastliðnu sumri. — Þá
eru stór hlutverk ennfremur i
höndum Randvers Þorlákssonar,
Bryndisar Pétursdóttur, Arna
Tryggvasonar og Róberts Arn-
finnssonar.
Leikritið SÖLUMAÐUR DEYR
var frumsýnt I New York árið
1949 og vakti þá gifurlega og
veröskuldaða hrifningu allra,
jafnt almennings og leikhúsgagn-
rýnenda, en skoðanir þessara
tveggja aðila fara ekki ætið
saman. Hafa fá leikritsnert kviku
samtima sins á jafn áhrifarikan
hátt og SÖLUMAÐUR DEYR. A
þeim rösku 30 árum sem liðin eru
frá frystu frumsýningu verksins,
hefur það verið sviðsett og sýnt
margpft um allan heim og telst
eiga öruggan sess i hópi sigildra
leikrita þessarar aldar.
Leikritið fjallar um Willy
Loman sem hefur verið farand-
sali allt sitt lif, konu hans, Lindu,
og syni þeirra Biff og Happy. —
Willy er tekinn að reskjast og
gerir sér ljóst að nú dregur að þvi
að þjóðfélagið fari að hafna hon-
um og losa sig við hann eins og
hvern annar úrgang. Honum
finnst ennfremur, að hann hafi
brugðist, og þá fyrst og fremst
vonum sfnum og draumum. Leik-
ritið fjallar sem sé um allt lif
þessa manns og gerist atburða-
rásin að talsverðu leyti I hugar-
heimihans. Skilinmilli nútlðar og
fortiðar eru mikið til horfin úr vit-
und Willy Loman og hann upplifir
atvik úr fortlð sinni eins og þau
væru að gerast i nútiðinni, þvi
hann hefur þessa míklu þörf fyrir
að réttlæta lif sitt áður en þvi
lýkur.
Frumsýningin er sem áður
segir laugardaginn 21. febrúar kl.
20.00 og önnur sýning er sunnu-
daginn 22. febrúar kl. 20.00.
BOLABÁS
Eins og Reykvikingar hafa
eflaust allir orðið varir við
komu þrjú sovésk skip i
heimsókn tii bæjarins um
helgina. Götur bæjarins voru
krökkar af sovéskum sjó-
mönnum, sem versluðu og
skoðuðu á við milljón manns,
og tóku menn eftir þvi, að
skipverjarnir voru alltaf þrir
saman. Skýringin á þessu er
sú, að einn mannanna kann
að lesa, annar að skrifa, og
sá þriðji er með til að hafa
gætur á menntamönnunum.