Alþýðublaðið - 28.02.1981, Side 3

Alþýðublaðið - 28.02.1981, Side 3
Laugardagur 28. febrúar 1981 3 alþyðu- (Jtgefandi: Alþýöuflokkurinn Framkvæmdastjdri: Jóhann- es Guðmundsson. Stjórnmálaritstjóri (ábm): Jón Baldvin Hannibalsson. Blaðamenn: Helgi Már Arthúrsson, Ólafur Bjarnii Guðnason, Þráinn Hall- gri'msson. Auglýsinga- og sölustjóri: •Höskuldur Dungal. Auglýsingar: Þóra Haf- steinsdóttir. Gjaldkeri: Halldóra Jónsdótt- ir. Dreifingarstjóri: Sigurður Steinarsson. Hitstjórnog auglýsingar eru að Síðumúla 11, Reykjavik, simi 81866. L andfræðileg lega Islands og Noregs leiðir til þess, að hvorugt landanna verður látið afskiptalaust, ef til meiri háttar átaka kemur milli austurs og vesturs. Eina von okkar er sú, að með öflugu Atlanzhafsbandalagsins Atlanz- hafsbandalagsins takist okkur að koma i veg fyrir ófrið og átök. — Þannig komst Sverre Hamre, hershöfðingi, yfir- maður alls norska heraflans að orði, í erindi um sjónarmið Norðmanna i varnarmálum, sem hann flutti i Reykjavik fyrir skömmu. Hershöfðinginn rifjaði upp, hvernig Norðurlöndin hefðu mótað mismunandi afstöðú i öryggismálum. Þrjú þeirra Island, Noregur og Danmörk væru i Atlantzhafsbandalaginu. Sviþjóð væri hlutlaust riki, en hefði hins vegar tiltölulega öflugan her til að verja hlutleysi sitt. Finnar væru hlutlausir, með sérstakan vináttusamning við Sovétrikin. Ekkert Norðurlandanna gæti breytt um öryggismálastefnu án þess að það hefði varanleg áhrif á stöðu hinna. Mikilvægt, væri, að menn viðurkenndu til- vist þessa norræna jafnvægis og gildi þess. fltyglisvert var að heyra um varnarviðbdnáð Norðmanna, gagnvart gifurlegri hernaðar- uppbyggingu Ráðstjórnarrikj* anna, sem eiga sameiginleg landamæri með Noregi. Sovézki flotinn verður að fara suður með Noregsströnd til þess að komast út á úthöfin. Skammt fyrir austan norsk-sovézku landa- mærin er mesta vighreiður veraldar, sovézki vopna- búnaðurinn á Kola-skaga, um- hverfis Murmansk. Þetta vig- hreiður er aðeins i 10 km fjar- lægð frá norsku yfirráðasvæði. Hernaðaruppbyggingin þar er hrikaleg. Þar eru 70% þeirra sovezku kafbáta, sem búnir eru langdrægum kjarnorkueld- flaugum. Þessir kafbátar yrðu að athafna sig á viðáttumiklu svæði, svo að þeir nytu sin sem bezt. Sumir þeirra geta sent eld- flaugar frá Barentshafi á skot- mörk i Bandarikjunum. Þarna eru einnig árásarkafbátar, en þeim á að beita gegn siglingum yfir Atlanzhafi. Til þess að nýtast að fullu verða þeir þvi að sækja suður Noregshaf. S ovézkar flotaæfingar á norðanverðu Atlanzhafi taka af tvimæli um hernaðarleg markmið þeirra á þessu svæði. Sovétmenn stefna að yfirráðum yfir hafsvæðum fyrir norðan linuna, sem dregin er frá Græn- landi um Island til Skotlands — GIUK-hliðið. Umsvif sovézkra herflugvéla á þessu sama svæði benda til hins sama. Til þess að tryggja samgöngur á lifæð Atlanzhafsbandalagsins, Atlanzhafinu, yrðu bandalags- rikin að geta stöðvað framsókn sovézka flotans á norðnverðu Atlan:zhafi. 1 þessu sambandi ættu bandalagsrikin sameigin- legra öryggishagsmuna að gæta. lerindi Hamers kom fram, að Norðmenn litu á aðild sina að Atlanzhafsbandalaginu sem forsendu þess, að landið mætti verja, ef tíl átaka kæmi. Megin- áherzlan væri lögð á varnir N- Noregs. Fylgzt væri náið með öllum hernaðarumsvífum á norðurslóðum og haldiö uppi gæzlu, sem miðar að þvi að við- vörun berist i tæka tið um yfir- vofandi árás. Þá yrði gripið til fastahers Norðmanna, sem hefði það meginhlutverk að halda óvininum i skefjum, þar til liðsauki bærist frá suöur Noregi og bandamönnum Norðmanna i Atlanzhafs- bandalaginu. Fyrir vopnlausa þjóð eins og Islendinga er fróðlegt aö heyra, hvað Norðmenn leggja á sig til að tryggja öryggi sitt, til þess að þeirþurfi ekki að leyfa erlendar herstöðvar i landi sinu á friðar- timum. Allir karlmenn i landinu á aldrinum 19-45 ára veröa að vera tilbúnir að þjóna kalli hersins. Herskylda er 12-15 mánuðir. Fastaherinn norski hefur á að skipa 50 þús. manns. 20-30 þús. menn eru kallaðir til endurþjálfunar á ári hverju. I neimavarnarliöi eru 80 þús. menn. Þannig eru 140-150 þús. Norðmenn i herklæðum i lengri eða skemmri tima á ári hverju. Aherzla væri á það lögð, að liðs- auki væri tiltækur með skömmum fyrirvara og boðunarkerfi við það miðað. Menn hefðu vopn og herklæði á heimilum sinum og væru liklega um 100 þús. vopn á norskum heimilum. A tólf timum mætti kalla út 225 þús. manna herlið. Þátttaka bandalagsþjóðanna i norskum vörnum miðast einkum við varnir norður Noregs. Liösauki frá ýmsum Nató rikjum eri. ævinlega við æfingar i' norður Noregi að vetrarlagi. Þá væri svonefnt hraðlið Nato og fastaflotinn á Atlanzhafi tilbúinn til átaka á svipstundu. Hamre minnti á nýlegt samkomulag Norð- manna og Bandarikjamanna um birgðastöövar fyrir stórfylki Bandariskra landgönuliða i grennd við Þrándheim. Með þvi væri stuðlað að auknu öryggi dregiðúr likum á árás og tryggt að öflugur liðsauki bærist timanlega á hættustundu. Umsvif sovézks flota og flug- hers á norðanverðu Atlanzhafi, tilhögun flotaæfinga þeirra og augljós hernaöarleg markmið, taka af öll tvimæli um hernaðarlegt mikilvægi Islands. Það er staðreynd, sem ekki verður umflúin, hvort heldur mönnum likar betur eða verr. Landafræðin veldur þvi einfald- lega, að hvorki Noregur né ísland verða látin afskiptalaus, ef til meiriháttar átaka kemur. Hernaðarlegt mikilvægi Islands birtist einnig i þvl að varnir V- Evröpu, ef til átaka kemur, byggjast á gifurlegum liðsflutn- ingum frá Bandarikjunum til Evrópu. Þessir liðsflutníngar fara fram á sjó, og þurfa öfluga loftvernd. Vesturveldin gætu undir engum kringumstæðum látið það afskiptalaust, ef óvin- veittur aðili hefði hér bæki- stöðvar, og gæti þar með skorið á sjálfa lifæö vamarsamstarfs Vesturlanda. Með sama hætti væri það Sovétmönnum ómetanlegur ávinningur, að tryggja sér hernaðarlega að- stöðu á tslandi. Þess vegna verður Island ekki látið af- skiptalaust. Grundvallarspurningin varð- andi öryggi Islendinga i hugsanlegum átökum er um það, hvað unnt sé áö gera, hér og nú, tíl þess að drága úr iikum á hernámi landsins. Vopnlaust hlutleysi er ekkert svar. Hvernig á þjóöin að bregðast við, ef þetta vopnlausa hlutleysi verður ekki virt? Viö þessari spurningu hafa hlutleysingjar engin svör haft i fulla þrjá ára- tugi. Það er of seint að iðrast eftir dauðann. Vegna landfræðilegrar legu sinnar eru Norömenn og tslend- ingar i svipaðri aöstöðu hvað öryggismál varðar. Báðar þjóð- imar hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að aðild að sam- eiginlegu varnarbandalagi og öryggiskerfi sé lifsnauðsyn. Munurinn er hins vegar sá, að Norðmenn halda upp eigin her og verja miklum fjármunum til landvarna. Meðan tslendingar gera það ekki, verða þeir, öryggis sins vegna, að sætta sig við að lágmarksvarnarvið- búnaði sé haldið uppi i landinu af öðrum. —JBH Varnarmálin: REYNSLA N0RÐMANNA Nauðsynlegt að viðurkenna norræna jafnvægið: Öflugt samstarf innan Atlants hafsbandalagsins getur komið í veg fyrir átðk í Evrópu - segir norski hershöfðinginn Sverre Hamre Fyrir réttri viku slðan hélt Sverre Hamre, hershöfðingi, yfirmaður alls herafla norska hersins, erindi á fundi Samtaka um vestræna samvinnu og Varðbergs. Erindið bar heitið: Sjdnarmið Norðmanna i varn- armálum. Fundurinn var mjög fjölsdttur og svaraði hann mörgum spurningum fundar- manna eftir að hann hafði lokið erindi sinu. Þorsteinn Eggerts- son, formaður Varðbergs stjdrnaði fundinum, en Hörður Einarsson kynnti fundargest- inn. Hershöfðinginn hóf erindi sitt með því að rifja upp hvernig varnarmálum væri háttað á Norðurlöndunum. Hann sagði, að hinar einstöku þjóðir hefðu tekið mismunandi afstöðu i varnarmálum. Danmörk, Noregur og tsland væru hluti af Atlantshafsbandalaginu, Svi- þjóð væri hlutlaus og réði yfir eigin her, sem væri nokkuð öfl- ugur, og Finnland væri hlutlaust lika, en með sérstakan vináttu- samning við Sovétmenn. 1 þessu sambandi sagði hers- höfðinginn, að þó löndin hefðu mismunandi afstöðu i varnar- málum þá bæri þó að lita á þetta svæði sem eina heild. Ekkert Norðurlandanna gæti breytt um stefnu i varnarmálum, án þess að breytt staöa einstakra þjóða hefði mikil áhrif á varnarstefnu hinna þjóðanna. Hann sagði það mikilvægt, að menn viður- kenndu þessa staöreynd, og mætu gildi þessa norræna jafn- vægis. tsland væri hlekkur i varnarkeðju fyrir Norðmenn og mátti skilja á hershöfðingjan- um, að varnarmáttur þessarra þjóða tveggja væri nátengdur. Það eru landfræðilegar að- stæður og efnahagslegir hags- munir, sem tengja þjóðir Atlantshafsbandalagsins sam- an, sagði hershöfðinginn. Þann- ig væri varnarsamstarfið einnig nátengt. Grunnþátturinn i varn- arstefnu Norðmanna fælist i þvi að önnur NATO-riki kæmu Norðmönnum til hjálpar, ef Sovétmenn réðust inn i landið. Gert væri ráð fyrir þvi, að Danir og Vestur-Þjóðverjar myndu stöðva framsókn innrásarliðs- ins á Eystrasalti og styrkleiki Svia á austurlandamærum sin- um skapaði öryggi við austur- landamæri Noregs. Hershöfðinginn gerði sérstak- lega grein fyrir varnarvig- búnaði Norðmanna. Gert væri ráð fyrir að Sovétmenn myndu e.t.v. beina athygli sinni að nyrstu landsvæðum Noregs og þvi væri megináherzlan lögð á varnir þessara svæða. Fylgst er náið með hernaðarumsvifum Sovétmanna á þessum svæðum, en þetta eftirlitsstarf miðar að þvi að geta komið upplýsingum um breytingar i stööinni við Kolaskagann til höfuð- stöðvanna, til að geta metið það, hvort hætta sé á árás eða ekki. Færi svo að Sovétmenn gerðu innrás i Norður-Noreg væri hlutverk norska hersins að halda óvinahersveitunum i skefjum uns hjálp bærist frá hinum NATO-rikjunum. Norski herinn er þannig upp- byggður, að allir karlmenn, á aldrinum 19—45 ára, verða að vera viðbúnir þvi að vera kall- aðirút kæmi til átaka. A vegum fastahersins starfa liðlega fimmti'u þúsundir manna, þar af eru borgaralegir starfsmenn liðlega ellefu þúsund. Foringjar i norska fastahernum eru þrettán þúsund, og tuttugu og fimm þúsundir manna gegna herskyldu að meðaltali á hverj- um tima. Menn gegna tólf til fimmtán mánaða herskyldu. Tuttugu til þrjátiu þúsund manns eru kallaðir til endur- þjálfunar ár hvert og i heima- varnarliðinu eru um áttatiu þúsund menn, sem þýðir, að um eitt hundrað og fimmtiu þúsund manns eru undir vopnum meiri hluta hvers árs. A tiltölulega stuttum tima er hægt að kalla út rúmlega tvöhundruð þúsund manna herlið, sagði hershöfð- inginn, Sverre Hamre. Sverre Hamre fjallaði siðan um landfræðilega legu Noregs og uppbyggingu sovéska hersins við norður-landamæri landsins. Hann benti á, að sameiginleg landamæri Noregs og Sovétrikj- anna væru ca. tvö hundruð km. löng. En einmitt lega landsins gerði það Uklegt að Sovétmenn myndu gera þar innrás, ef til átaka kæmi. Noregur væri á stytztu leið milli USA og Sovét- rikjanna, og floti Sovétmanna yrði að fara suður með Noregs- strönd til að komast á úthöfin. Vopnabúnaður Sovétmanna handan landamæra Noregs og hernaðaruppbygging þeirra á svæðinu væri geigvænleg. A þessum slóðum er að finna sjötiu prósent þeirra sóvéskra kafbáta, sem búnir eru lang- drægum eldflaugum, kjarn- orkueldflaugum. Meiri hluti þessara kafbáta yrði að staö- setja á viöáttumiklum svæðum til að þeir geti komið að fullum notum, en sumir þeirra t.d. svo- kallaðir Delta-kafbátar eru þó Sverre Hamre, hershöfðingi alls herafla Norðmanna. útbúnir þannig, að þeir geta skotið kjarnorkueldflaugum frá Barentshafi á skotmörk i Bandarikjunum. Þá væri einnig að finna árásarkafbáta á Kola- skaganum, sem ætlaðir væru til þess að trufla siglingar og flutn- inga á Atlantshafi, t.d. frá Bandarikjunum til Evrópu. Einmitt þetta gerði Norður- Noreg sérstaklega mikilvægan fyrir varnarkeðju NATO. Flotaæfingar Sovétmanna hafa sýnt það, sagöi Hamre, að þeir stefna aö yfirráðum á svæði þvi sem liggur norðan við linu, dregna frá Grænlandi um tslands til Skotlands. Flugum- ferð sovéskra herflugvéla á norðurslóðum bentu eindregið til hins sama. NATO væri það lifsnauðsynlegt að geta verndað leiðina frá Bandarikjunum til Evrópu, ef til ófriðar kæmi, og þvi mikilvægt að varnarmáttur þessara svæða tæki mið af styrkieika Sovétmanna. Þrátt fyrir vaxandi tækja- búnaðar hefur landher Sovét- manna á Kolaskaga ekki verið aukinn. Hins vegar hafa þeir gertráðstafanir, sem gera þeim kleift að flytja mikinn herafla annars staðar frá i Sovétrikjun- um, á mjög stuttum tima, til svæðisins, en búnaður landhers- ins á Kolaskaga bendir til þess að hann eigi að fara inn i Noreg, komi til átaka. Enda þótt hættan á sovéskri innrás i Norður-Noregi sé alltaf til staðar hefur sú stefna verið tekin, að aðhafast ekkert, sem Sovétmenn gætu talið ögrun við sig. Þannig hafa Norðmenn ætið neitað erlendum þjóðum um hernaðaraðstöðu i landinu og af sömu orsökum hafa Norðmenn ávallt verið andvigir þvi, að þar i landi yrði komiö fyrir kjarn- orkuvopnum. Undir lok erindis sins dró hershöfðinginn Sverre Hamre mál sitt saman i fjóra megin punkta: a) Norðmenn verða að búa sig undir að berjast gegn innrásarliði, e.t.v. án þess að njóta stuðnings annarra NATO rikja til að byrja með, b) Norð- menn verða að skipuleggja varnir sinar þannig, að þjóðin sameinist öll gegn hugsanlegri innrás, c) forsenda fyrir vörn- um Norðmanna er aðild að Atlantshafsbandalaginu. t framtiðinni verður að vinna skipulega að þvi að bæta liðs- flutningaleiðir frá bandamönn- um til Noregs, d) ytri skilyrði, svo semveðurfar og staðhættir eru til nokkurra vandræða við varnir Noregs, en óvinurinn verður að miða sinar áætlanir við þetta lika.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.