Alþýðublaðið - 29.10.1981, Síða 6

Alþýðublaðið - 29.10.1981, Síða 6
6 Fimmtudagur 29. október 1981 ÁLYKTANIR 40. FLOKKSÞINGS: ir og fjölbreyttara atvinnulif kalla á aölögun að breyttum að- stæðum — sifellda endurmennt- un og nýja starfsþjálfun. Leggja verður áherslu á eftirfarandi i sambandi við fullorðinsfræðslu: — Endurmenntun og starfs- þjálfun i tengslum við at- vinnulifið m.a. vegna nýrrar tækniþróunar á ýmsum svið- um atvinnullfsins. — Félagsleg menntun og ráð- gjöf er auki færni einstak- lingsins til þátttöku I at- vinnulifinu og félagslegum störfum t.d. með leiðbein- ingarstöðvum um starfsval við endurkomu i atvinnuli'fið. — Fullorðinsfræðslan taki mið af sérþörfum fatlaðra. Full- orðinsfræðslan verði skipu- lögð eins og kostur er með þeim hætti að hún stefni aö öflun viðurkenndra réttinda i námi og atvinnulifi. Heildarlöggjöf um skipulagöa fullorðinsfræðslu hefur nú verið i undirbúningi á annan áratug. Ekki verður lengur við það unað að Alþingi taki ekki af skarið, þannig að þvi máli verði hrund- ið i framkvæmd. Foreldrafræðsla og fjölskylduráðgjöf Einaf þeim breytingum sem orðið hafa á siðari árum i is- lensku þjóðfélagi er að foreldrar eru yngri en áður, stofna fyrr til fjölskyldu. Allar þessar breyt- ingar kalla á meiri ábyrgð hjá ungu fólki, meiri þekkingu og skilning, meiri tillitssemi, en nokkru sinni fyrr, ef ekki á illa að fara. Þjóðfélagið verður að taka til- lit til þessara staðreynda vegna aukinnar tiðni hjónaskilnaða (hjúskaparslita) á siðustu ár- um. bess vegna leggur flokkurinn áherslu á: — að strax i grunnskólum fái nemendur haldgóða fræðslu um kynlífog getnaðarvarnir. — að i efstu bekkjum grunn- skólans sé lögð áhersla á að kynna þá ábyrgð sem fylgir þvi' að eignast börn og stofna heimili. — þeirri fræðslu sé haldið áfram fyrir unglinga og ungt fólk með námskeiðum, fræðslu i námsflokkum eða kvöldskól- um og með skipulagðri og markvissri fræðslu i' útvarpi og i sjónvarpi. — að i hverju sveitarfélagi sé ávallt fyrir hendi aðgengileg og ódýr foreldrafræðsla fyrir fólk með börn og verðandi foreldrum sérstaklega boðið upp á slika fræðslu og þeir hvattir til að notfæra sér hana. Dagvistarmál Litlar fjölskyldur hafa nú komið i' vaxandi mæli i stað stórra fjölskyldna. Þess vegna er það ákaflega vafasamt að heimilið eittgeti veitt smábarni þá félagslegu örvun sem það á kröfur til og sem er forsenda fyrir eðlilegum félagsþroska þess. Þjóðfélagið verður h'ka að komatiLmóts viö óskir og þarfir foreldra sem þurfa eða óskaeft- ir að vinna utan heimihs. Þess vegna eiga allir foreldr- ar sem þess óska að geta komið börnum sinum i góða dagvistun, sem býður upp á sveigjanlegan dvalarti'ma" i samræmi við vinnutima foreldranna. Jafnframtá það að vera ský- laus réttur hvers barns að eiga kost á dagvistun við sitt hæfi. A meðan riki og sveitarfélög geta ekki fuhnægt þeirri þörf sem er fyrir dagvistun barna verða þessir aðilar að koma til móts við láglaunafjölskyldur með styrk til að mæta kostnaði við einkagæslu. Einnig verður að kanna vel alla möguleika til að þessi þjón- usta verði sem ódýrust bæði fyr- ir foreldra og hið opinbera án þess þó aö slaka á þeim kröfum sem gera verður til slikra stofn- ana. Tómstundir — menningarstarf 1 stefnuskrá Alþýðuflokksins segir: „Alþýðuflokkurinn telur tómstundir hin mikilvægustu lifsgæði og nýtingu þeirra skipta sköpum um velferð fólks.” Leggja verður rika áherslu á að fólki gefist næg tækifæri til fjölbreyttrar tómstundastarf- semi, og hafi aðstöðu til iþrótta- iðkana, ýmis konar félagsstarfa og til annarrar menningarstarf- semi. Það þarf að stuðla að þvi að fólk á öllum aldri geti verið saman f leik og starfi; börn, for- eldrar, aldraðir. Þannig má i senn vinna gegn einmanaleika einstaklinganna og brúa um leið hið margumtal- aða kynslóðabil i þjóðfélaginu. Opinberir aðilar verða að hafa frumkvæöi i að koma upp féiagsmiðstöðvum sem víðast, á eigin vegum eða i samstarfi við einstaklinga og félagssamtök, þar sem það þykir henta. Skóla landsins á aö nýta sem félags- og menningarmiðstöðv- ar skóiahverfisins, eftir þvi sem við verður komið, án þess að það trufli hið daglega skóla- starf. Vinnutimi, frí o.fl. Forsenda þess að fólk geti bú- ið sér og sinum góð lifsskilyrði og notið tómstunda sinna og annarrar menningarstarfsemi er að fólk geti lifað af 8 stunda vinnudegi. Rikisvaldog atvinnurekendur þurfa þar að auki að taka sér- stakt tillit til fólks með ung börn. Foreldrar ungra barna þurfa að hafa möguleika á að vinna styttri vinnutima, sveigjanlegri vinnutima eða taka sér launa- laust leyfi frá störfum meðan börnin eru ung. Heimila þarf foreldrum að vera heima ákveðin dagafjölda á ári vegna veikinda barna sinna. Almannatryggingar Allt frá þvi að Alþýðuflokkur- inn hóf göngu sina hefur hann barist og beitt sér fyrir hald- góðu og réttlátu tryggingakerfi fyrir alla landsmenn. Alþýðuflokknum hefurallatið verið ljóst að með skynsamlegu og réttsýnu tryggingakerfi má jafna óréttláta tekjuskiptingu og tryggja hlut hinna veiku sem afýmsum ástæðum standa höll- um fæti i lifsbaráttunni. Tryggingakerfið er sifellt i deiglunni og hlýtur og verður að taka mark og mið af breytilegu þjófíélagi og breyttum tímum. Hinsvegar verður að varast að þróun þess verði i þá átt að hvetja til misnotkunar. Vinna þarf að þvi að trygg- ingakerfið verði manneskju- legra, komið verði i auknum mæli til móts við fatlaða svo sem með skattaivilnunum. Lögð verði aukin áhersla á meira jafnrétti i bótaupphæðum alm anna try gginga. Húsnæðis- og skipulagsmál Grundvallarstjónarmið jafn- aðarmanna i' húsnæðismálum er, að allir þegnar samfélagsins eigi fuilan rétt á að búa i vönd- uðu og öruggu húsnæði, hvað sem liður efnahag og ytri að- stæðum. Sveitarfélögverða að sjá fyrir nægu skipulögðu landi undir ibúðabyggð til að ná þessu markmiði. Samþykkt á tillögum Alþýðuflokksins um þjóðareign á landi er forsenda þess að mörg sveitarfélög geti valdið þessu verkefni og þannig mætt þörf- inni fyrir úrlausn i húsnæðis- málum. Með félagslegu átaki verður að mæta húsnæðisþörfum þeirra sem versta aðstöðu hafa til að eignast þak yfir höfuðið. Einfaida þarf og endurbæta gildandi skipulag i þessum efn- um til þess að sniða það betur að þörfum ungs fólks og annarra sem höllum fæti standa. Jafnaðarmenn telja, að i nán- asta umhverfi sérhverrar ibúðabyggöar eigi að vera rúm- góð og vei skipulög útivistar- svæði þar san borgarar á öllum aldri geti unað sér við útivist, leik og heilsubótariþróttir jafnt vetur sem sumar. Við teljum að slik útivistarsvæði eigi að vera i órofa tengslum við hibýli manna og sem aðgengilegust fyrir alla aldursflokka. Fyrirlestur um Ágúst Strind berg og kvikmyndasýning Norræna húsið og sænska sendiráðið halda upp á Strind- bergsárið með þvi að Jón Viðar Jónsson fjallar um leikritun Strindbergs á fimmtudagskvöldið 29. okt. kl. 20.30 og sýnd verður kvikmynd um Strindberg sem listmálara. Svlar hafa minnst Strindbergs á þessu ári með leiksýningum, fyrirlestrum og annarri dagskrá, t.d. helgaði Dramaten i Stokk- hólmi honum næstum allt vorið 1981 og sýndi leikrit hans. Utan heimalands sins er Agúst Strind- berg lfklega sá rithöfundur sænskur sem mest er lesinn og viðkunnastur hefur orðið, og leik- rit hans eru sviðsett oftar en nokkurs annars landa hans. Sænsk kvikmyndagerð leitar stöðugt fanga ihinum margvis- legu verkum Strindbergs, og sjálfur var hann alla tið hleypi- dómalaus gagnvart kvikmynd- um. „Kvikmyndið leikritin min eins og ykkur lystir”, þannig hljóðaði simskeyti sem hann sendi kvikmyndafélagi einu löngu áður en þessi listgrein hafði slitið barnsskónum. Ef Strindberg væri á meðal okkar i dag hefði hann ef- laust orðið mikilvirtur og hæfur kvikmyndahöfundur, sjálfstæður og sérlundaður og hrist upp i fólki eins og fyrrum. Eftir fyrirlestur Jóns Viðars Jónssonar verður sýnd kvikmynd um Strindberg, sem nefnist Strindberg sem listmálari. Það er sænska útvarpið sem fram- leiddi myndina og Bengt Lager- kvist stjórnaði töku hennar. 1 þessari kvikmynd er reynt að kynna Strindberg sem málara og ljósmyndara. Jafnframt er brugðið upp myndum úr lifi hans, eins og það endurspeglast i' mál- verkum hans, frá hinum leitandi myndum æskunnar til rtjáningar- rikra verka ellinnar. A iaugardaginn 31. okt. og sunnudaginn 1. nóv. kl. 13.00 verða sýndar tvær kvikmyndir i Regnboganum, sem gerðar hafa verið eftir leikriti og sögu eftir Strindberg. FAÐIRINN, gerð 1969 undir stjóm Alfs Sjöbergs eftir samnefndu leikriti og GIFT- AS, sem gerð var 1926 undir stjóm Olofs Molanders og byggir á smásögunni Mot betalning, sem birtisti' Giftas II. Kvikmyndirnar verða sýndar i B og D sal, og er aðgangur ókeypis. Ný reglugerð um síldarmat Að ósk Sildarútvegsnefndar og sildarsaltenda, gaf sjávar- útvegsráðuneytið úts.l. sumar reglugerö um mat á ferskri sild. t framkvæmd hefur reglu- gerð þessi sætt gagnrýni vegna þess aö hausskemmd sild hefur verið dæmd óvinnsluhæf, þótt hún hafi ver- iö nýtt til söltunar. Ráðuneytið hefur með nýrri reglugerð, sem gefin var út i dag, fellt niður þau ákvæði, sem deilum olli, og ætti þvi að vera tryggt að öll sild, sem hæf er til söltunar, þótt haus- skemmd sé, verði greidd fullu verði. Hljóðar reglugerðin nú svo: Si'ld skal flokkuð I 1. gæða- flokk til manneldis. 1. flokkur. Vinnslusild sem er fersk með eölilega lykt, út- lit og blæ og laus við átu- skemmdir. úrgangssild. Sild, sem er með greinilega súr-, ýldu- eða slagvatnslykt, er slegin, ram- in, marin, blóðsprungin og með greinilegum átuskem md- um. Sjávarútyegsráðuneytið, 16. október 1981. SKYTTURNAR eftir Alexandre Dumas eldri 134. — D’Artagnan nefndi hvorki sárið né konu bókhaldarans við Porthos. Þaö er aldrei góðum vinskap til framdráttar, aö þekkja þesskonar leyndarmál. Hann var leiður og sorgmæddur, en hann héit áfram. Hann hugsaði um hina ungu og fögru fró Bonacieux og velti þvi fyrir sér, hvaöa ógæfa heföi nú hent hana. Hún var fórnardýr I hefnd kardináians, og hefnd hans var hræöileg. D’Artagnan sökkti sér ofani hugrenningar sinar, og rankaðiekki við sér aftur, fyrr en hann kom til Crévecoeur. Hann fann veitingaháuiö, þar sem Aramis hafði orðið eftir. Konan sem rak veitinga- húsiö sagði d’Artagnan, að Aramis væri þar enn, en að hann myndi tæpiega vilja taka á móti gestum. — Hvers vegna ekki? Er kona iheimsókn hjá honum? spurðid’Artagnan. — Hvernig getið þér iátið yöur detta slikt I hug um þennan aumingja unga mann, sagði veitingakonan. Nei, það er sóknarpresturinn I Montdidier og prldrinn frá jesúita- klaustrinu i Amiens, sem eru i heimsókn hjá honum! — Fjandinn fjarri mér, hrópaðid’Artagnan, er hann svo langt leiddur? — Nei, alls ekki, en eftir að hann náði sér af sárum sínum, hefur hann fundið guð, sagði veitingakonan, og nú ætlar hann að taka prestvígslu. D’Artagnanfór út Iforgaröinnog fannþar tröppur sem lágu upp að herbergi Aramis. Hann hljóp upp, en Bazin stóð I ganginum og vildi ekki hleypa honum framhjá. Þjónninn eygði nú loks möguleika á þvl að ná sinu helsta markmiði, að veröa þjónn prests. Hann lét þvl heldur óvinsamlega, þegar hann sá d’Artagnan koma upp tröppurnar. En d’Artagnan ýttihonum til hliðar og gekk inn. 135. — Aramis var svartklæddur og sat við borð, á milli sóknarprestsins og jesúitapriórsins. Hann leit upp, þegar d’Artagnan gekk inn, en virtist ekki bregða hið minnsta. Hann hugsaðiekki lengur um þessa heims gæði. — Góðan daginn, d’Artagnan, sagði hann. Það gleður mig mjög að sjá þig. — Sömuleiðis, sagöid’Artagnan. En er ég að trufla þig við skriftir? Aramis roðnaði. — Þessi herramaður er vinur minn, sagði hann við prenstana, og hann er rétt nýsloppinn úr mikilli hættuför. — Þú kemur einmitt á réttum tíma, kæri d’Artagnan, sagði Aramis. Þessir virðulegu herrar, priorinn i Amiens og sóknarpresturinn I Montdidier hafa lagt fyrir mig nokkur guðfræðileg vandamálogég vildi gjarna heyra álit þitt á þeim. — Alit hermanns á slikum vandamálum getur ekki verið mikils virði, sagði d’Artagnan, sem skildi hvorki upp né niöur iþvf sem var aðgerast. — Sjáðu til, sagði Aramis. Hinn virðulegi priór segir að ritgeröin min eigi að vera bæði fræöileg og fræðandi. — Ætlar þú að skrifa ritgerð? stundi d’Artagnan. — Auðvitað, sagði jesúitinn. Enginn stenst próf eða hlýtur vigslu, nema hann skrifi fyrst ritgerð. — Hlýtur vigslu? spurði d’Artagnan, og trúði ekki eigin eyrum. — Já, sagði Aamis, en sjálfur vildi ég frekar skrifa ritgerð sem væri meira fræðileg, en fræðandi, ég vildi frekar halda mig viðhinar flóknari kennisetningar. Aramis og prestarnir héidu áfram rökræðum slnum, sem voru > tyrfnar og torskiljan- legar, og þar aö auki á latlnu að hluta til. D’Artagnan geispaði svo að brakaði I kjálkum hans.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.