Alþýðublaðið - 25.11.1981, Blaðsíða 2
2
Miðvikudagur 25. nóvember 1981
Bryndis Schram
Fagnaðarfundir
Listdanssýning i Þjóðleikhúsinu
islenzki dansf lokkurinn
Gestir: Auður Bjarnadóttir og Dinko Bogdanic
Eftirminnilegasta sýning
Þjóöleikhússins á siöasta ári
var tvimælalaust jólasýning Is-
lenzka dansflokksins vib tónlist
eftir Jón Ásgeirsson. Þaö er
kannski of snemmt aö fullyröa
nokkuö um nýhafiö leikár, en
sýning sú, sem nú stendur yfir i
þvisa húsi, veröur ógleymanleg
öllum, sem sjá. Þaö er stórkost-
legt aö fylgjast meö þeim öru
framförum, sem Islenzki' dans-
flokkurinn tekur frá einu ári til
annars. Meö ódrepandi þraut-
seigju og dugnaöi hefur hann nú
náö þvl aö vera óaöfinnanlegur
og sambærilegur viö þaö, sem
maöur sér I atvinnuleikhúsum
erlendis.
Islenzki dansflokkurinn virö-
ist hafa tileinkað sér mjög
heillavænleg vinnubrögö, og er
nú aö byrja að uppskera ávöxt
vinnu sinnar. Arum saman hef-
ur framvarðasveitin veriö aö
ryöja brautina, unnið sleitulaust
til þess að tryggja næstu kyn-
slóö starfsgrundvöll og áfram-
haldandi llf. Þessi fyrsti hópur
er kannski ekki búinn öllum höf-
uökostum hins fullkomna
ballettdansara, en hefur svo
margt annaö til aö bera, sem
bætir hitt upp og er llfsnauösyn I
brautryöjendastarfi. Á undan-
förnum árum höfum viö misst
úr landi marga hæfa dansara,
en nú virðist vera aö komast á
fót hópur ungra dansara, sem
getur litiö bjartari augum til
framtlöarinnar hér heima.
Þökk sé þeim, sem fyrstir fóru.
Þó aö þaö hafi verib sárt aö
horfa á eftir okkar beztu döns-
urum út I hinn stóra heim, þá er
stundum gott aö eiga þá aö og fá
aö berast á straumum evrópskr-
ar hámenningar. Aö þessu sinni
sækja okkur heim tvær Islenzk-
ar listakonur, sem báöar eru
búsettar I rótgrónum menning-
arborgum I hjarta Evrópu. Hlif
Svavarsdóttir kemur frá
Amsterdam, þar sem hún hefur
árum saman starfaö sem list-
dansari og nú siöast sem dansa-
höfundur. Auöur Bjarnadóttir
er fastráöinn aöaldansari viö
óperuna I MÚnchen. Báöar eiga
pessar ungu konur stóran þátt I
þvl að gera þessa sýningu dans-
flokksins ógleymanlega, þó aö
meö óllkum hætti sé.
Hlif Svavarsdóttir er aö vlsu
hætt aö dansa sjálf, en hún hefur '
fundiö sér nýtt og áhrifamikiö
tjáningarform I „kóreógrafi-
unni”. Hllf hefur mikiö aö gefa
sem listamaöur, og meö þvl aö
virkja hugmyndir slnar I hreyf-
ingum hópsins færir hún út
valdsviö sitt, nær til miklu fleiri.
Hún hefur mjög sterkan
persónuleika, hefur mjög næmt
auga fyrir formi og litum og
dregur upp dansa sina nánast
eins og myndlistarmaöur. Fin-
legir drættir I svartan flöt. A ég
þá viö fyrra verk Hllfar á um-
ræddri sýningu viö tónlist eftir
Messiaen. Gullfallegt verk, sem
lyftir manni I hæöir. Eins konar
leikur aö formum. Grunnurinn
klassiskur, en samt nýjar leiðir,
persónulegri, einlægari. Bún-
ingar og leikmynd voru Hka ein-
staklega fallegir, og beiting
ljósa frábær.
Dansarar I þessu atriöi voru
sjö talsins, þar af tveir karl-
menn. 1 fyrsta sinn náðist þessi
léttleiki, sem gerir gæfumun- •
inn, auk þess sem höfundi tókst
aö laöa fram það bezta i hverj-
um og einum. Samstilling hóps-
ins var þvl sem næst fullkomin,
mjög svo seðjandi fyrir næmt
auga fagurkerans.
Seinna verk Hllfar á sýning-
unni var við tónlist eftir Anton
Webern, flóknara og tormeltara
en þaö fyrra. Aö þessu sinni var
sviöiö alautt, engin leiktjöld
engin hjálpartæki. Búningar
rauöir, hreyfingar kaldar, jafn-
vel ljótar og ógnvekjandi, mjög
i anda tónskáldsins. Hópurinn
stærri og misjafnari. Enn var
hiö klassiska form brotiö upp,
enn var áherzla lögö á persónu-
lega tjáningu. Svipmikið verk,
en ef til vill ekki eins fullkomiö
aö formi tij og hiö fyrra.
Eins og fyrr segir virtust
dansarar I toppformi. Þær
Lára, Helena og Katrln eru
smám saman aö sækja I sig
veöriö, og eru aö verba skær-
ustu stjörnur flokksins. Endur-
nýjun er nauösynleg. ÖBru vlsi
veröur engin framför. ólafia
Bjarnleifsdóttir er enn aö bæta
sig, og er um þessar mundir
einn fjölhæfasti dansarinn. Hef-
ur til aö bera dramatlska hæfi-
leika, auk þess sem hálslina og
axlir gefa henni þokkafullt,
klassiskt yfirbragö. Guömunda
Jóhannesdóttir hefur löng og
mjó bein, sem hæfa fullkomlega
nútlmadansi. Henni hefur farið
mikiö fram, og er einnig oröin
einn af máttarstólpum flokks-
ins. Þaö er líka gaman aö sjá, aö
viö erum aö eignast ágætan
karldansara, þar sem er Jó-
hannes Pálsson. Hlýtur þaö aö
vera uppörvandi fyrir örn Guö-
mundsson, sem hefur staöiö
einn i baráttunni öll þessi ár.
Báöir karldansararnir gera allt
kórrétt, eru öruggir og léttir.
Það bar minna á Helgu Berhard
nú en oft áöur, en þaö fer aldrei
hjá þvl, aö hennar þokkafullu
Útvarp —
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn 7.20 Leikfimi.
7.30 Morgunvaka Umsjón:
Páll Heiðar Jónsson. Sam-
starfsmenn: önundur
Björnsson og Guörún Birg-
isdóttir.* (8.00 Fréttir. Dag-
skrá. Morgunorð : Margrét
Jónsdóttir talar. Forustugr.
dagbl. (útdr.). 8.15 Veður-
fregnir. Forustugr. frh.).
9.00 Fréttir. 9.05 Morgun-
stund barnanna: „Ævintýri
bókstafanna” eftir Astrid
Skaftfells, Marteinn Skaft-
fells þýddi. Guörún Jóns-
dóttir les (8).
9.20 Leikfimi Tilkynningar.
Tónleikar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.30 Sjávardtvegur og sigl-
ingar Umsjón: Ingólfur
Arnarson. Lána- og af-
komumál sjávarútvegsins.
Rætt viö Martein Friöriks-
son, framkvæmdastjóra á
Sauöárkróki.
10.45Tónleikar.Þulur velur og
kynnir.
11.00 tslenskt mál (Endurtek-
inn þáttur frá laugardegin-
um)
11.20 Morguntónleikar a)
„Varsjár-konsertinn” eftir
Addinsell og „Cornish
Rhapsody” eftir Bath. Leo
Litwin og Boston Pops
hljómsveitíh leika: Arthur
Fiedler stj. b) Guiseppe di
Stefano syngur lög frá
Napóli.
12.00 Dagskrá Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Miö-
v ikuda gssyrpa — Asta
Ragnheiður Jóhannesdóttii'.
15.10 „Timamót” eförSimone
de Beauvoir Jórunn Tómas-
dóttir byrjar lestur þýöin-
gar sinnar.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Útvarpssaga barnanna:
„Flöskuskeytiö” eftir
Ragnar ÞorsteinssonDagný
Emma Magnúsdóttir les (3)
16.40 Litli barnatiminn Dóm-
hildur Sigurðardóttir
stjórnar barnatlma frá Ak-
ureyri
17.00 „Jo” Hljómsveitarverk
eftir Leif Þórarinsson. Sin-
fóniuhljómsveit Islands
leikur: Alun Francis stj.
17.15 Djassþáttur Umsjónar-
maöur: Gérard Chinotti.
Kynnir Jórunn Tómasdótt-
ir.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 A vettvangi
20.00 Nútlmatónlist Þorkell
Sigurbjörnsson kynnir
20.40 Bolla, bolla Sólveig Hall-
dórsdóttir og Eövarö Ing-
ólfsson stjórna þætti með
léttblönduðu efni fyrir ungt
fólk.
21.15 Einsöngur: Sigríður Ella
Magndsdóttir syngur lög
eftir Þóreyju Sigurðardótt-
ur og Mariu Thorsteinsson
Jónas Ingimundarson leikur
á planó.
21.30 Útvarpssagan: „óp
bjöllunnar” eftir Thor Vil-
hjálmsson Höfundur les (2)
22.00 Smárakvartettinn á Ak-
ureyri syngur nokkur lög
22.15 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orö kvöldsins
22.35 iþróttaþáttur Hermanns
Gunnarssonar
22.55 Kvöldtónleikar Sinfónla
nr. 8 í C-dúr (D944) eftir
Franz Schubert. FUharm-
óníusveit Vínarborgar leik-
ur : Wolfgang Sawallisch
stj. (Hljóöritun frá tónlist-
arhátíöinni i Salzburg I
sumar)
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Sjónvarp
18.00 Barbapabbi. Endur-
sýndur þáttur.
18.05 Bleiki pardusinn. NÝR
FLOKKUR.Fyrsti þáttur af
þrettán teiknimyndaþáttum
um bleika pardusinn.
18.25 Fólk aö leik.Niundi þátt-
ur. Hong Kong. Þýðandi:
Ólöf Pétursdóttir. Þulur:
Guöni Kolbeinsson.
18.50 Hlé.
19.45 Fréttaágrip a taknmáli.
20.00 Fréttir og veöur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Jóhanna Egilsdóttir 100
ára. 1 tilefni af 100 ára
afmæli Jóhönnu Egilsdótt-
ur, verkalýösfrömuðs, i
dag, hefur Sjónvarpið látiö
gera viötalsþátt um hana.
Gylfi Gröndal, ritstjóri,
ræöir viö Jóhönnu um
verkalýösbaráttuna á árum
áöur, jafnlaunabaráttu
kvenna,kvennaréttindinú á
dögum, kvennaframboö og
fleira. Stjórn upptöku:
Marianna Friöjónsdóttir.
21.30 Dallas. Tuttugasti og
þriöji þáttur. Þýöandi er
Kristmann Eiösson.
22.20 Hver er réttur þinn:
Fjóröi og fimmtu þáttur. —
Tveir siöustu þættirnir, sem
Sjónvarpiö hefur látiö gera
um tryggingamál. Báöir
fjallaþeirum llfeyristrygg-
ingar. Hilmar Björg-
vinsson, deildarstjóri hjá
Tryggingastofnun rikisins
segir frá. — Teikningar:
Anna Th. Rögnvaldsdóttir.
Umsjón: Karl Jeppesen.
22.30 Dagskrárlok.
hreyfingar og fallegu linur veki
athygli, hvar sem hún fer.
Birgitta, Ingibjörg og Guörún
viröast hafa svolitla sérstööu
innan hópsins og nutu sin ekki
nú sem oft áöur.
Þrátt fyrir gleöilegt framlag
dansflokksins voru stjörnur
kvöldsins óneitanlega þau Auö-
ur Bjarnadóttir og Dinko Bog-
danic. Þau dönsuöu tvisvar,
fyrst Pas de Deux úr ballettin-
um Le Corsair og siöan Pas de
Deux viö tónlist eftir Rach-
maninoff um stef eftir Paganlni.
Fyrra verkiö er háklassiskt, þar
sem reynir fyrst og fremst á
akróbatiska hæfileika dansara,
jafnvægislist og stökkfimi. Ekki
fannst mér Auður njóta sín full-
komlega I þessu fyrra verki.
Þaö var eins og hún fyndi aldrei
fullkomiö jafnvægi, eins og hún
væri með hugann annars staöar,
gæti ekki einbeitt sér. Þaö er ef-
laust mikiö átak aö koma heim
eftir margra ára fjarveru og
eiga aö vera fullkomin. Mót-
dansari hennar var hins vegar I
essinu sinu og heillaöi alla viö-
stadda meö krafti, léttleika og
töfrandi sviösframkomu.
1 seinna verkinu náöi Auöur
hins vegar svo sterkum tökum á
áhorfendum, að þeir ætluöu
aldrei aö sleppa af henni hend-
inni. Nú var hún I fullkomnu
jafnvægi og tókst meö ótrúlegri
limamýkt aö túlka trega-
blandna tónlist Rachmaninoffs,
svo að áhorfendur stóöu á önd
inni. Youri Vamos hefur samið
þennan yndislega dans, sem er
bæöi frumlegur og tjáningarrlk-
ur. Hreyfingar eru mjög frjáls-
legar, en þó stílfastar, og viröist
þetta dansform hæfa Auði full-
komlega. Hún hefur einstaklega
fallegar handahreyfingar og ber
höfuöiö tigulega. Bogdanic er
glæsilegur dansari meö fjöl-
breytilega hæfileika.
Tónlist þetta kvöld var aö
mestu flutt af bandi, en þó var
brugðiö út af þvl I siöasta verk-
inu eftir Anton Webern. Var
mjög ánægjulegt aö hlusta á lif-
andi tónlist, sem var auk þess
flutt af miklu listfengi af nokkr-
um ungum listamönnum. Væri
óskandi, aö dansarar okkar
fengju oftar slík tækifæri.
Bryndls Schram
Karvel 1
þetta samkomulag hefur fengiö
meöal launþega, sýni best
hvaða húg verkafólk ber til
þess. Ég man ekki eftir annarri
eins andstöðu viö samkomulag
sem heildarsamtökin hafa stutt
eða flestir forystumenn þeirra.
Samkomulagiö hefur viöa verið
samþykkt meö naumum meiri-
hluta, jafnvel allt niöur i nokkur
atkvæöi. Þaö sem fólk er
náttiírlega dcki ánægt með, er
aö svo lltil kauphækkun fæst
fram á svo löngum tlma, aö
minu mati. Eg tel, aö þetta
samkomulag geti I reynd verið
til eins árs, þvi að varla eru
miklar liTcur á hörðum átökum á
vordægrum, þegar háannatim-
inn stendur fyrir dyrum.
Svo veröur aö minna á, aö I
samkomulaginu er enn vegiö i
sama knérunn, fólkiö I fisk-
vinnslunni á erfitt með aö sætta
sig viö, aö enn einu sinni sé
gengiö á hlut þess. Þaö er þvi
vel skiljanlegt, sagöi Karvel
Pálmason aö lokum, aö verka-
fólk skuli ekki vera hrifið af
þessu samkomulagi og mótat-
kvæöin ein segja ekki alla sögu.
A mörgum fundum er nokkur
fjöldi manna sem situr hjá og
þvl má segja að óánægjan sé
miklu meiri en I raun kemur
fram.
Þ.
Byggðastefna 1
er mjög mikilvægt að menn
’ greini milli almennrar stefnu I
tilteknum málaflokki og byggða-
stefnu. Fjárfesting i útvegi i
sjávarplássum Vestfjarða, þar
sem sjávarútvegur er með
blóma, kann að vera skynsamleg
stefna i sjávarútvegsmálum, en
það þarf ekki að vera byggða-
stefna. Stuðningur við þjónustu
og nýiðnað á slikum stöðum gæti
verið raunhæfari byggðastefna.
Alþýðublaðið mun á næstunni
gera þessu stórmáli Itarlegri
skil. —JBH
SÖLUSKATTUR
Viðurlög falla á söluskatt fyrir
októbermánuð 1981, hafi hann ekki verið
greiddur i siðasta lagi 25. þ.m..
Viðurlög eru 4% af vangreiddum sölu-
skatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eft-
ir eindaga uns þau eru orðin 20%, en siðan
eru viðurlögin 4,5% til viðbótar fyrir
hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með
16. desember.
Fjármálaráðuneytið,
20. nóvember 1981.
LOKKSSTARFIÐ
Alþýðuflokksfélag ísafjarðar boðar allt Al-
þýðuf lokksfólk á fsafirði og stuðningsfólk Al-
þýðuflokksins jafnt óflokksbundið sem
flokksbundið til fundar n.k. laugardag 28.
nóvember kl. 16 í f undarsalnum að Vinnuveri.
Þingmenn Alþýðuf lokksins í kjördæminu, Sig-
hvatur Björgvinsson og Karvel Pálmason,
mæta á fundinum til viðræðna um kjaramál,
kjördæmismál og stjórnmálaviðhorfið.
Alþýðuflokksfélag Isafjarðar.