Vísir - 04.01.1969, Blaðsíða 1
Allt í hers höndum i
Gríndavík vegna ósnekta
— t'iu unglingar handteknir
. ~r '* — *
1111®
i.'.wÁv.v,' - !v..'.‘Xs\---ý-N'*S v . s"..■.i.'./.i" -V -... ......•• .'^.v.'.'.'.'S^'v■ ■■ . . ■.Áv.v.vSNv I ■A-
Myndin er af verksmiðjuþyrpingunni á Gleráreyrum. Eidurinn kom upp, þar sem örin bendir, á et'ri liæð í Iöunni. Gefjun hefur
álmuna næst á myndinni til umráða, svo og nýrri húsin aftar á myndinni. Heklubyggingin sést ekki, en hún er hægra megin við
Gefjunarverksmiðjuna. ,
Tíu unglingar úr Grinda-
vík, á aldrinum 14 ára til
18 ára, voru í gærdag í
yfirheyrslum hjá rann-
sóknarlögreglunni í
Hafnarfirði og fulltrúum
sýslumanns, teknir fyrir
óspektir og hættulegar
sprengingar í Grindavík
á nýárskvöld og í fyrra-
kvöld.
Piltarnir höfðu sprengt heima
tilbúnar sprengjur, hættulega
öflugar, og haft f frammi ýmis
ólæti, meðal annars gert aðsúg
að báðum lögregluþjónum þorps
ins, látið ófriðlega við umsjónar
mann samkomuhússins og einn
ig sjoppueiganda, sem vildi
stugga þeim frá sjoppu sinni.
Svo mikill var þrýstingurinn af
sprengingunum, að nærliggjandi
»->- 10. síða.
Tugmilljónatjón þegar Iðunn brann
Verksmiðjurnar Gefjun og Hekla á Akureyri enn ekki Or hættu á 1. tímanum í nótt, þegar Vísir fór í prentun
■ STÖRBRUNI varð í gærkvöldi á Akureyri,
þegar eldur kom upp í Skinnaverksmiðjunni Iðunni
á Gleráreyrum. Slökkvilið Akureyrar kom á vett-
vang kl. 21.35 og var þá mikill eldur í sútun verk-
smiðjunnar, en þar eru mörg eldfim efni og var
þegar greinilegt, að Iðunni mundi ekki bjargað.
Áföst Iöunni er verksmiðjan
Gefjun, og steinsnar frá verk-
smiðjuþyrpingunni er fataverk-
smiðjan Hekla. Allar eru verk-
smiðjumar eign Sambands ís-
lenzkra samvinnufélaga. Verk-
smiðja Iðunnar er til húsa í
geysistóru steinhúsi, klædd viö-
um að innan. Húsið er á tveim
hæðum og á neðri hæð var mik-
ið af ýmsum kemiskum efnum
í geymslu, límum, þynni og
fleiru slíku, sem verður eldi auð-
veld bráð.
Þegar var séð að ekki mundi
gerlegt að ráða niðurlögum
eldsins í Iðunni. Slökkvilið Ak-
ureyrar, alls 40 manns með
varaslökkviliðinu, einbeitti sér
því þegar að vöm Gefjunar.
Fjöldi fólks þusti á vettvang,
enda lagði reykinn vfir alla
Brekkuna suður af verksmiðjun
um við Glerá. Fréttaritari Vísis
á Akureyri, Níels Hansson kom
fljótt á vettvang og ók sem leiö
lá að verksmiðjunum eftir
gamla veginum. Sagði hann að
ekki hefðu sézt handaskil í
reyknum, sem lagði eftir vegin-
um Eldtungurnar stóöu hátt til
himins frá verksmiöjunni, sagði
Níels.
Slökkviliðsmenn lögöu allt
sitt traust á aö ná vatni úr
Glerá, sem rennur um rétt við
verksmiðjuveggina, en ekki
reyndist það fær leið, bakkar ár-
innar reyndust of háir fyrir
dælur slökkviliðsins, og tafði
þetta enn slökkvistarfið. Ekki
bætti úr skák að vindur var á
noröan og gekk á með éljum og
stóð á Gefjunar-húsið. Var öll
aðstaða því mjög slæm. í nótt
var spáð 15 stiga frosti á Akur-
eyri.
Verksmiðjur SÍS á Akureyri
eru þær stærstu í bænum, veita
um 500 manns atvinnu, stærst-
ar þeirra eru þessar þrjár verk-
smiðjur á Gleráreyrum, sem
bruninn ógnaði, þegar blaðið
fór í prentun.
Samkvæmt síðustu fregnum
virðist sem eldurinn hafi komið
upp á efri hæö í vesturálmu sút-
unarinnar og hafi breiðzt út meö
miklum hraða í saumastofur og
smíðastofur skógerðarinnar, en
húsið er um 50 metrar á lengd.
Allt útlit var fyrir aö eldurinn
mundi sigraður áöur en hann
breiddist í Gefjunarverksmiðj-
urnar, en eldur logaði I þaki
kyndistöðvar verksmiðjanna og
erfitt að komast að honum.
Milli Heklu, sem er rétt fyrir
sunnan hinar tvær verksmiðj-
urnar, stendur mikill olíutankur
með svartolíu, og var dælt vatni
stanzlaust á hann til að kæla
hann. Var talið að með því tæk-
ist að verja Heklu frá eldinum.
Síðusfu fréttir:
Klukkan 1.15 í nótt
var enn barizt við eld-
inn á Gleráreyrum.
Það háði talsvert
slökkvistarfinu að
mjög frr.us í slöngum,
en slökkviliðinu tókst
enn að halda eldinum
frá húsum Gefjunar,
m. a. miklum lager af
tilbúnum vörum. Sex
vindstig voru og frost
orðið mjög mikið.
AMERÍSK FLUGVÉL TÝND
í GRÆNLANDSÍS
— Lagði af stað frá Reykjavik i gærmorgun
Seint í gærdag var hafin leit
að tveggja hreyfla Highlander-
flugvél, sem týnd er í ísnum
við Grænland. Flugvél þessi
Iagði af stað frá Reykjavík kl.
10 í gærmorgun og flaug henni
einn maður, sem ætlaðj að
„ferja“ flugvélina til Bandaríkj-
anna.
Heyrzt hafði til flugmannsins
í gærkvöldi, og sagðist hann þá
hafa lent á ísnum einhverra
-3>
A tvinnulausum fjölgar gífurlega
— eru
nú 650 i Reykjavik
Um áramótin voru skráðir at-
vinnulausir í Reykjavík um 650
manns, og hafði atvinnuleysingj-
um fjölgað gifurlega síðustu
daga. I þessari tölu eru bílstjór-
ar meðtaldir, 43 talsins, en þeir
eru oft taldir sjálfstæðir atvinnu
rekendur.
Atvinnulausir voru, að frátöld-
um bílstjórum, 495 karlar og 112
konur. Er hér að langmestu leyti
um að ræða verkamenn og sjó-
menn. Um sama leyti í fyrra voru
örfáir á atvinnuleysisskrá, en þeim
fjölgaði þá mikið fram til 1. febr-
úar, og voru 5.‘I9 atvinnulausir í
lok janúar.
Heyrzt hefur, að jafnvel gæti at-
vinnuleysis meðal prentarastéttar-
innar, sem er næsta fátítt. Nokkr-
ar konur í borginni hafa leitað eft-
ir atvinnu úti á landsbyggðinni, svo
sem ráðskonustöðum og öðrum að-
stoðarstöðmn í landbúnaði. Flestar
þeirra hafa fengiö nokkra úrlausn
sinna rnála hingað til.
orsaka vegna, sem ekki er vit-
að um. Hafð; honum gengið erf-
iðlega að finna Narsarssuaq, en
þangað var förinni heitiö f fyrsta
áfanga.
Flugmaðurinn, maður um
fimmtugt, Robert Iba að nafni,
hafði tafizt í Reykjavík frá því
á jólum, en þá kom hann frá
írlandi. Bjó hann á meðan á
hótel Loftleiðum, en í sumar og
í haust hafa margir flugmenn í
svipuðum erindageröum átt við-
komu á Reykjavíkurflugvelli
og gist hér um lengri og
skemmri tíma, meðan þeir hafa
beðið eftir hentugum veðurskil-
yrðum til flugs.
I gærdag heyrðist flugmaö-
urinn hafa orð á því, að flugvél
hans væri héluð mjög og víða
á henni ísing, en allan tímann,
sem hann hefur stanzað hér,
hefur flugvél hans staðið úti.
Þegar blaðið fór í prentun I
gærkvöldi, var flugvélin enn ó-
íundin.