Vísir - 09.01.1969, Qupperneq 2
V1SIR . Fimmtudagur 9. janúar 19to.
v
Knattspyrna
um helgína
Æfingaleikir landsliðanna halda
áfram á sunnudaginn kemur. Þá
mun A-landslið fara til Akraness
og keppa á Skipaskaga við heima-
liðið, sem er nú aftur í tölu 1.
deildarliða.
Unglingaliðið fer í styttri ferð,
keppir í Kópavogi á vellinum við
Vallargerði við Breiðabliksmenn,
sem hafa æft vel að undanförnu
að því frétzt hefur.
skólaæskunnar í Japan og
skyldunámsgren. Þá hefur judo
náð sérstökum vinsældum sem
keppnisíþrótt og enn meir eftir
að farið var að keppa um meist-
aratitla.
Judo hefur breiözt út um
nær allan heiminn. Evrópska
judosambandið var stofnað 1948
og evrópska meistarakeppnin
hefur verið háð ár hvert síðan
1952. Til gamans má geta þess
að Noröurlandamót í judo verð-
ur næst háð f Stokkhólmi árið
1970. Alþjóðajudosambandið er
stofnað árið 1951 tikþess m. a.
að skipuleggja judo-hreyfinguna
um allan heim. Heimsmeistara-
keppni var fyrst háð í Tokyo
árið 1956 og judo var keppnis-
grein á Ólympíuleikunum árið
1964. Judo er því fyrir löngu
viðurkennt sem þjálfunar og
keppnisfþrótt um víða veröld,
og eru judoiðkendur á öllum
aldri eða frá 5 ára upp í átt-
ræðis- og jafnvel níræðisaldur.
Fyrr í vetur var stofnuð á
vegum ISÍ nefnd, er fara skal
með þau mál, er snerta judo-
íþróttina og vera ÍSÍ til ráðu-
neytis. Judonefnd ÍSÍ skipa
Gunnar Torfason formaður,
Hörður Albertsson og Þorkell
Magnússon. Samkvæmt tillögu
nefndarinnar hefur ÍSl nýlega
tilnefnt Kobayashi sem tækni-
legan ráðgjafa f judomálum, og
er ferð hans hingað að þessu
sinni liður í þeirri ráðgjafa-
starfsemi. Er það ÍSÍ vissulega
heiður að fá einn þekktasta
judomann heims og eftirsóttan
milliríkjadómara sér til ráðu-
neytis.
Á vegum ÍSÍ hefur Kobayashi
haldiö 5 daga námskeið, dagana
27. til 31. des. fyrir judoiðkend-
ur, karla og konur á öllum aldri.
Hefur námskeið þetta verið
haldið til skiptis í æfingahús-
næöi Judodeildar Ármanns og
Judofélags Reykjavíkur og kann
ISl félögunum beztu þakkir fyr-
ir veitta aöstoð og mikinn á-
huga, sem m. a. hefur komið
fram í mikilli þátttöku.
Kynningin hefst n. k. þriðju
dagskvöld, 14. þ. m., kl. 7 siðd. og
heldur áfram næsta fimmtudag þar
á eftir á sama tíma. Aðgangur er
ókeypis og allir velkomnir.
Sýndar verða undirbúningsæf-
ingar (Taiso), öryggisæfingar
(Ukemi), hreyfingartækni (Shintai),
frjáls glíma (Randori), keppni
(Shiaji), sjálfsvöm (Kimewaza) og
kerfi fyrir bragðaæfingar (Nage-
waza og Katamewaza).
Námskeið hefst svo þriðjudag-
inn 21. þ. m. og veröa æfingar á
þriðjudögum og fimmtudögum kl.
6—7 og 7—8 síðd. til þess að gefa
sem flestum möguleika á þátttöku.
Hátt gráðaðir judomenn annast
bæði kynninguna og kennslu a
námskeiðinu.
Uppl. eru veittar i síma 22928
á kvöldin.
sinn,.hinn þekkta prófessor K.
Kobayashi, 7. dan er ekki úr vegi
að kynna örlítið judoíþróttina.
Grundvallaratriðj judo eru þau
að tveir menn eigast við og
beita fallbrögðum, lástökum,
kyrkitökum og fastatökum og
fer glíma þeirra fram eftir all
nákvæmum reglum. Sá maöur
sem samdi judokerfið, en það
er þróað u pp úr ju-jitsu, hét
Jigoro Kano. Hann fæddist árið
1860 og tvítugur aö aldri fór
hann að kenna hiö nýja kerfi
sitt, sem er aö ná „hámárks-
árangri með lágmarksfyrirhöfn".
Dr. Kano stófnaði hinn heims-
fræga judoskólá Kodokan. I
byrjun efuðust margir um gildi
hinnar nýju judohreyfingar, þó
aö menn dáðust mjög að hug-
sjónum og siðfræði hennar.
Judoíþróttir, var því I harðri
samkeppni við ju-jitsu. Og þess
vegna var það að árið 1886 var
stofnaö til opinberrar keppni
milli þessara íþrótta. Háðir voru
15 kappleikir og vann Kodokan-
judoið 13 þeirra en tveir voru
taldir jafnir. Þessi keppni mark-
aði tímamót í sögu íþróttarinn-
ar. Upp frá því vann judo stöð-
ugt á, en ju-jitsu hvarf í skugg-
ann. Judo varð brátt aðalíþrótt
■ Rétt fyrir áramótin dvaldi
hér á landi í boði ÍSÍ heims
þekktur japanskur þjálfari og
judoleiðtogi dr. Kiyoshi Kob-
ayashi. Dr. Kobayashi, sem er
læknir að mennt, er starf-
andi sem prófessor við há-
skólann I Lissabon og hefur
verið búsettur í Portúgal um
sjö ára skeið.
Sem sérstakur sendifulltrúi
Kodokanskólans í Tokyo hefur
dr. Kobayashi annazt skipulags-
lega uppbyggingu judoiþróttar-
innar í Portúgal. Þegar hann
kom þangað fyrst í heimsókn
fyrir 10 árum stunduðu milli 10
og 20 manns judo. I dag eru
þeir um 15000 í fjölmörgum fé-
lögum og samtökum.
Auk starfa sinna að judomál-
um í Portúgal hefur dr. Kobay-
ashi heimsótt fjölmörg lönd til
þess að halda námskeið, stjórna
keppni og aðstoða á annan hátt
varðandi judomál. Hann er
tæknilegur ráögjafi margra Evr-
ópulanda og formaður tækniráðs
Alþjóðajudosambandsins.
Dr. Kobayashi er 43 ára gam-
all og hefur stundað judo í um
35 ár. Hann ber gráðuna 7. dan.
og er yngsti maður, sem hlotiö
hefur þá gráðu. Judoiðkendum
er skipt í flokka eftir kunnáttu
og hæfni. Flokkar þessir eru
tvenns konar, þ.e svokallaðir
,,nemendur“ 6. kyu til 1. kyu
og „leiðtogi" 1. dan. til 10. dan.
Þrjú æöstu stigin, þ.e. 8 til 10
dan eru nær eingöngu heiðurs-
stig, og má til gamans geta þess
að aöeins einn maður ber f dag
gráðuna 10. dan.
Um leið og Í.S.Í. kynnir gest
FRÆGUR JAPANSKUR JÚDÓ-
LEIÐTOGI I HEIMSÓKN HÉR