Vísir - 09.01.1969, Blaðsíða 10

Vísir - 09.01.1969, Blaðsíða 10
to VISIR . Fimmtudagur 9. janúar IÍHifi." Fer Kaitðda úr ffato? • Trjideau forsætisráöherra Kanada sagöi í gær í Lond- on, aö vel gæti verið, aö Kan- ada hefði ckki lengur áhuga á aö vera i Noröur-Atlantshafs- bandalaginu, en sambandsstjórn in heföi enn heilt misseri til unt- hugsunar og ákvaröana. Fiskverð m—> i. síðu sagðí Jónas Haralz, að þetta væri ekki rétt, og mætti jafnvel segja, að það væri þvert á móti. Sjómannasamningamir og fisk- verðið væru samtangd mál, sem leysa yrði meö tilliti hvors til annars. Samningarnír milli sjó mannasambandsins og LÍÚ væru ekki hindraðir vegna þess, að fískverð hefði ekki verið á- kveöiö. Jónas H. Haralz kvaö enn ó- ljóst, hversu fiiótt unnt væri að taka á,kvörðun um verðið, en stöðugt væru fundir í vfirnefnd. í morgun hófst fundur um sjömannadeiluna klukkan hálf tiu, milli sjómanna og LIÚ. Auk þess eru fundir útvegs- manna og Farmarma og fiski- mannasambandsins. Óónægd ?»■■> 19. síðu. ar og fleira. Reiknað er með að félagar veröi ekki fleiri en 250 en nú eru þeir nærri 200. í stjóm Klúbbs 20 eru 5 ung- ir menn, Hallgrimur Guðmunds- son, formaður, Gunnar Dungal, Pétur Jönasson, Jön E. Árnason og Þorsteinn Danielsson. 1 Læknadeila ■*---> I! síðu Húsavík í tvö ár, en nú hafa þeir sagt upp starfi sinu frá 15. febrúar. Er það sannarlega mjög bagalegt, ef þessir menn flytjast brott, þar sem læknaskortur á Norðaustur- landi og Austurlandi er uggvæn- legur. Á næstunni mun veröa haldinn fundur um þetta mál með deilu- aöilum til þess að reyna að finna einhverja viðunandi lausn ágrein- ingsmálanna. Snióklésari — 'M>~> 16. síðu. grafa skurði og ýta. Kaupverö þessa snjóblásara með tækjum var 6,2 níilljónir, og mátti skila honum í vor ef hann reyndist illa. I viðtali við vegamálastjóra i ntorgun sagði hann, að sér heföi fúndist í æði mikið ráðizt, að kaupa tæki fyrir 6,2 milljönir til reynslu þar sem hægt væri að fá snjóblásara til leigu fyrir nokkra tugi þúsunda. Bjarni Einarsson, bæjarstjóri á Akureyri, sagði að töluveröur áhugi væri þar á stærri gerð- inni af snjóblásara en ekki sé stætt á því að fá hann nú sem stæði, nú þegar von væri á minni gerðinni til landsins. — Þeir vantreysta þessum minni blásara i Múlann, sagði Bjarni, sá blásari sein á að vera ör- uggur á að geta tekiö stóra steina sem eru þar og það getur stærri geröin gert, auk þess, sem þessi stóri blásari er af- kastameiri. Við hefðum áhuga á þvi, að tengja þessar ná- grannasveitir okkar við okkur. Öfiugt tæki af þessari gerð get ur valdið byltingu í samgöngu- málum hér. Þ4 sagði bæjar- stjóri, að sér skildist, að minni blásarinn yröi hafður til revnslu en stóri blásarinn feng inn, ef hinn dygði ekki. Stiidsntar —■ —> 16 síðu við námsmenn veröi aó koma úr ríkissjóði i mynd lána og styrkja, og þurfi aö auka þá aðstoð veru- lega, ef stúdentum á að vera kleift að halda áfram námi. Bent er á aö breytinga sé þörf á úthlutunar- reglum Lánasjóðs íslenzkra náms- manna, og stungið upp á, að upp- hæð styrkja verði að mestu miðuð við efnahag foreldra. Bókasýning Sýningartíminn styttist óðum. Kaffistofan opin daglega kl. 10 —22. Um 30 norræn dagblöð liggja frammi. N0RRÆNA HÚSIÐ Framtalsaðstoð — Bókhald BÖKHALD OG UMSÝSLA H/F ÁSGEIR BJARNASON Laugavegi 178 . Sími 84455 Heima: Marbakka, Seltjarnarnesi, sími 11399 Rhodesía 3>—> 7 ?ÍÖU. átti fulltrúi Nígeríu viðræður við fulltrúa Zambíu og Tanzaniu, sem hafa viðurkennt Biafra. — Tals- vert mun vera lagt að sambands- stjórn Nigeriu, að hún taki frjáls- legri afstöðu til Biafra. Forsætisráðherra Malasíu, Tunku Ábdul Rahman og Gorton forsæt- isráðherra Ástralíu, ræddu nauö- syn stuðnings við Suðaustur-Asíu og hættuna sem löndum þar stafar af útþensluáformum Kínverja. Einnig hvöttu þeir bæði til aukins efnahagslegs stuðnings viö Su- harto forseta Indonesíu og stjórn hans, þrátt fyrir þaö, að Indónesía er ekki samveldisland, en þeir töldu mikilvægt fyrir framtíð alls þessa hnattsvæðis, að Indónesía fengi nauðsynlegan stuðning. Kvennasíða — M—> 5. síðu. ca. 3 dl. mjólk, salt, hvítur pip- ar, 3 egg. Fiskinum skipt í bita. Smjör- líkið brætt hveitið sett út í jafnað með miólk smám saman þannig að jafningurinn verði fremur þykkur. Bragðbættur með salti og hvítum pipar og látinn sjóða í nokkrar mínút- ur. Eggjarauðurnar hræröar út í ein í einu og hrært vel í. Fiskurinn settur í og þá eggja hvíturnar, sem hafa verið stíf- þeyttar. Deigið sett strax inn í smurt, eldfast fat með lóörétt- um hliðum. Rétturinn bakaður í ca. 45 mín. við 200° hita. Bor- inn fram strax ásamt bræddu smjöri eða smjörlíki, sem rifin piparrót hefur verið sett í og þegar árstiminn levfir með tóm- atsalati og brauði. Tækni — ;6. SÍðU. upp draumatap það, sem hann hafði orðið fyrir. Af þessum niðurstöðum réði dr. Dement, að draumar væru manninum ekki síður lifsnauö- syn en sjálfur svefninn. Rétt- ara sagt liffræðileg nauðsyn sem svaraði einhverjum sálræn- um eða líkamlegum tilgangi. Samkvæmt þessum tilraun- um og ýmsum öðrum athugun- um hafa margir vísindamenn, sem við svefnrannsöknir fást, komizt á þá skoðun, að hin venjulega kenning um að svefn- inn sé hvíld bæði fyrir likama og sál, mundi vera villandi. Enda þótt sofandi maður sé ekki við vökuvitund, heldur hann heilastarfseminni áfram af mikillj ákefð, mörg önnur líf- færi starfa einnig að verulegu leyti — meltingarfærin, öndun- arfærin, æðakerfið og nýrun, til dæmis. Þá eru allar skynjanir stöðugt á verði, þannig að hátt hljóð eða bjart ljós eða önnur sterk utanaðkomandi áhrif, verða til þess að hinn sofandi vaknar samstundis. Af þessu öllu þykjast vísindamenn mega ráða, að svefn og draumar eigi öðrum tilgangi að þjóna en ,,hvildinniíl eingöngu. Ein kenningin er sú, að þreyt- an, sem allir kannast við, stafi af því að skaðleg, efni safnist fyrir í heilanum. SVefninn — ef til vill draumarnir líka — séu þáttur líffræðilegrar starfsemi, sem annað hvort geri þessi efni hlutlaus eða eyði þeim. Enn er hins vegar ekki vitað hvers konar efni hér kann að vera um að ræða... ef um þau er áð ræöa á annað borö. Þá er þaö önnur kenning, byggö á þeirri þekktu staðreynd að bæði vöðva- og taugakerfið veikist, en ekki styrkist, fyrir notkunarleysi. Og þar sem átta klukkustunda svefn á sólarhringí mundi þannig hafa neikvæð á- hrif á vöðva- og taugakerfið — er haldið fram þessari kenn ingu — eru draumarnir eitt af snilliráðum náttúrunnar til að halda taugakerfinu virku með skömmu millibili þennan tíma, sem það væri ónotað ella, og koma þannig í veg fyrir hnign- un þess. Vísindamenn eru þö á einu máli um það, að enn hafi þessar rannsóknir á eðli svefns og drauma ekki komið að neinum raunhæfum no-tum, enda þött aukinn skilningur á þeim fyrir bærum geti væntanlega komið að gagni í meðferð andlegra og líkamlegra sjúkdóma. \ Aftur á móti geti raunin orð ið sú, ef takast megi að ákveða nákvæmlega tilgang svefnsins og draumanna, eðli þeirra og áhrif, verði unnt að finna ráð, sem þjóna sama.tilgangi og upp fylla sömu kröfur, en hafi þó minni tímasóun í för með sér en svefninn. Komi það til dæm is óvefengjanlega á daginn, að tilgangur svefnsins sé að eyða óæskilegum eða skaðlegum efna myndunum — því skyldi þá ekki mega eyða þeim með ein- hverju lyfi, þannig að ein tafla eða annar viss skammtur gerði svefninn óþarfan? Það er því ekki fyrir það aö synja, að þeir tímar komi, að draga megi til muna úr þ'eirri lífsnauðsyn, sem. svefn og draumar eru nú hverjum manni, eöa finna ráð til að hann geti verið án hyors tveggja. Það mundi lengja venjulega manns- ævi um einn' þriðja hluta, sem maðurinn gæti þá notað til náms, starfa eða tómstundaiðju, í stað þess að liggja bundinn viðjum svefnsins. HAPPDRÆTTI SlBS 1969 \ Dregið á morgun 10. janúar Umboðsmenn gevrv- eT ■ míða viðskintavina fram yfir dráttardag. Nei, en fínt að þú ert komin i íþróttir -- bá get ég kannski fcng ið aftur nokkrar af matreiðslubók unum, sem bú fékkst að láni frá mér. VEÐRIÐ 1 ÖAG Austangola kaldi, skýjaö og lítilsháttar rign- ing. Hiti 2—4 stig BORGIN VISIR 50.. jyrir cLrum Mjólk er það, sem Samverjinn þarfnast mest, þegar hann byrjar matgjafirnar núna eftir heigina, hvort sem er nýmjólk eða niður soðin. Vísir 9. jan. 1919. MINNINGARSPJÖLD Minningarspiöld Flugbjörgunar sveitarinnar eru afhent á eftu töldum stöðum Bokanúð Brags Brynjólfssonar. njá Sigurði M ir'teinssvm simi 32060. Magri úsi Þórannssvni slnn 37407 Sig urði Waage. sími 34527 Minningarspjöld Minningarsjóðs Maríu Jónsdóttui flugfreyju fást á "tirtöldum stööum: Verzlun- inni Oculus Austurstræti 7, Verzl uninni Lýsing Hverfisgötu 64 og hjá Maríu Ólafsdóttur Dverga- steini Reyðarfirði. TILKYNNING Kvenfélagið Seltjörn, Seltjam- arnesi. — Konur athugið! Leik- fimikennslan byrjar fimmtudag- inn 9. jan. kl. 8.40 í íþróttahús- inu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.