Vísir - 22.02.1969, Page 9

Vísir - 22.02.1969, Page 9
V í SIR . Laugardagur 22. feUrúar 1969. 9 Hreyfing komin aftur á minkamálið, eftir að Jboð hefur dormað árum saman i sölum Alþingis □ Enn einu sinni er nú komin nokkur hreyfing á minkaeldismálið á Alþingi, en það hefur nú dormað í þingsölunum að meira eða minna leyti undanfarin þrjú ár síðan Jónas Pétursson alþingis- maður lagði fram frumvarp þess efnis snemma árs 1965, að minkaeldi yrði leyft aftur á íslandi. — í þrjú ár hefur þjóðin beðið þess, að þingmenn hristu af sér slenið og tækju endanlega ákvörðun um það, hvaða afgreiðslu þetta mál skuli fá, — hvort íslandi eigi að bætast ný og álitleg atvinnu- grein, sem hefði getað ráðið úrslitum í efnahags- örðugleikum þeim, sem þjóðin á nú við að etja. — Það eru þingmennirnir Guðlaugur Gíslason frá Vestmannaeyjum og Pétur Sigurðsson frá Reykja- vík, sem nú hafa hreyft við málinu að nýju, en frumvarpi þeirra virðist vera ætlað það hlutverk, að bjarga þessu máli úr þeirri sjálfheldu, sem það er í. Minkarnir á Alþlngi hafa þeir stundum verið kallaðir alþingismennirnir. Það er nú þeirra að ákveða, hvort þjóðinni á að bætast veigamikil ný atvinnugrein, en það hefur tekið þá fjölda ára að komast að einhverri niðurstöðu. Kveður Alþingi „minka-drauginn" í kútinn? T frumvarpinu gera þeir ráð fyrir því að minkaeldi verði leyft í Vestmannaeyjum. And- stæðingar minkaeldis hafa hing- að til borið það fyrir sig, að verði minkaeldi leyft að nýju muni það auka stofn villiminka í landinu með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir náttúru lands- ins. Einangrun Vestmannaeyja eyðir þessari röksemd og gæti því verið heppilegt í tilrauna- skyni, aö fá úr því skorið hvort rök andstæðinga minkaeldisins fái staöizt. Þessj leið til að leysa minka- eldisdeiluna og fá skrið á mál- . ið viröist einnig vera heppileg vegna þess, að Vestmannaeying- ar sjálfir hafa eindregið æskt eftir því að fá leyfi til minka- ræktar og stendur einróma sam- þykkt bæjarráðs Vestmanna- eyja að baki frumvarpi þeirra Guðlaugs og Péturs. Ef svo ó- trúlega skyldi fara að minkur- inn slyppi út og næði því aö gerast villtur i eyjunum, hafa Vestmannaeyingar við sig eina aö sakast. Þeir viröast þó ekki vera hræddir við að leggja fuglalíf eyjanna að veöi fyrir sannfæringu sinni, aö rök and- stæðinga minkaeldis fái ekki staðizt. — Tjað getur vel verið að ein- ” hverjir „góöir“ menn viiji „bjarga" okkur frá eigin gerðum, sagði Guðlaugur Gísla son, þegar Vísir ræddi við hann um þetta mál, — en við erum ákveðnir í þessu sjálfir, Vest- mannaeyingar. Ef illa fer, sem ég tel alveg fráleitt, eigum við við okkur eina að sakast. Sleppi minkur frá okkur, sem ég tei nær útilokað ef vel verður geng ið frá búrunum, er útilokað að hann komist til meginlandsins. Sömuleiðis má benda á, að við höfum aldrei séð villimink í Vestmannaeyjum, þó að þrjár minkaeldisstöðvar hafi veriö í Vestmannaeyjum á sínum tíma og vitaa var aö eitthvað slapp út hjá a.m.k. tveimtir þeirra. Það má benda á, að Náttúru- fræðistofnunin lagði það fil á sinum tiroa þegar urosagnar var leitað hjá stofnuninni uro minkarækt, að hún yrði reynd í Vestmannaeyjum. Það var Finn ur Guðmundsson, fuglafræðing- ur, sem iagði þetta til í áliti sínu og virðist hann því ekki óttast mjög um fuglalíf í Eyj- um, þó að minkaeldi verði haf ið þar. /VTestmannaeyjar eru því aö mörgu ieyti heppilegur stað ur til að hefja minkarækt aftur hér á íslandi, en þó hefur áður verið bent á það, að raki í Vest mannaeyjum sé of mikill fyrir minkarækt. — Það getur verið að þetta hafi veriö rétt áður fyrr segir Guðlaugur, en lofts- lagið hefur stórbreytzt á síðari árum. Raki mældist hér áður fyrr einna mestur á landinu í Vestmannaeyjum, en nú er þetta gjörbreytt. Annað, sem Vestmannaeyjar hafa sér til ágætis fyrir minka- rækt er auðveld öflun minka- fóðurs. Minkurinn er aðallega fóðraður á fiskúrgangi, en hið ódýra fóður er éinmitt éin meg in röksemd fyrir minkarækt hér á landi. Talið er að fóðriö fyrir minkarækt sé allt að 50% dýr- ara á Norðurlöndum en hér, en engu að síður stendur minka- rækt í miklum blóma í þessum löndum. Önnur megin jöksemd fyrir minkarækt hér, er lofts- iagið, se.m er talið afar heppi- legt til að rækta minkaskinn í háum gæöaflokki. Þetta litla dýr, minkurinn, gæti lagt grundvöllinn að veiga- miklum útflutningsiðnaði. Oöksemdir fyrir minkarækt nú eru þær sömu enn og þær hafa ávallt verið, síöan minka- ræktarmálin voru tekin upp að nýju. Minkarækt er höfuðat- vinnuvegur á Norðurlöndum, þó aö aðstæður þar sé ekkj eins góöar og hér- á landi. Aöeins Norömenn og Danir flytja árlega út minkaskinn fyrir um 4 millj- arða íslenzkra króna, en auk þess er töluvert notað af loö- skinnum í löndunum sjálfum. Þessi útflutningur frændþjóða okkar tveggja er hátt i eins mik- ill og heildarútflutningur okkar var sl. ár, sem að vísu var ein- staklega erfitt ár í útflutnings- verzluninni. Samkvæmt tölum, sem Úlfur Sigmundsson hjá Félagi Isl. iön rekenda gaf blaðinu, var verðið á minkaskinnum á síðasta upp- boöinu í Ósló, 7. og 8. febrúar mjög hátt, hærra en það hefur veriö undanfarin ár. Meðalverð á karlskinnum var 134 kr. norsk ar, fyrir safirmink kr. 139, fyrir pastelmink og 160 kr. norskar fyrir dökka minkinn. Virðist sem meðalverð á hinum þremur ár- legu uppboðum í Osló, sem eru haldin í nóvember, desember og janúar ár hvert, hafi farið nokk uð hækkandi frá fyrra ári, en toppverðið á síðasta uppboðinu var 280 norskar krónur fyrir hvert skinn eða um 3.400 kr. íslenzkar. T þessu sambandi má geta þess ' að árið 1949—50 fengust hæstu meðalverð fyrir íslenzka minkinn á uppboðum í London, en á þessi uppboð komu skinn hvaðanæva að úr heiminum. Is- lenzki minkastofninn var þá orö- inn mjög góður, en minkaeldis stöðvarnar höfðu fram að þeim tíma verið að þreifa sig áfram með ræktun gæðaminks. — Upp úr þessu var farið aö tala um bann á minkaeldi vegna þess skaða, sem villiminkurinn var talinn valda náttúru landsins. Minkurinn varö hitamál, blöðin voru full af frásögnum um hænsnadrán minksins og hans grimmu náttúru, og hið háa Á1 þingi felldi þann úrskurð á þingi 1954 — 55, að minkaeldi skyldi bannað, — vegna þess m.a. að ekki lá annaö fyrir, en minka- búrin væru rekin með tapi. Taprekstur minkabúranna var hins vegar mikill misskilningur að því er þeir halda fram, sem til þekktu. í þá tíð voru skatt svik miklu meira böl, en þau eru nú. Vegna skattsvika mun ekki hafa verið hægt að sjá ann- aö út úr bókhaldi minkaeldis- stöövanna, en að bullandi tap væri á fyrirtækjunum og því sjálfsagt að hafa vit fyrir at- vinnurekendum I þessari vinnu- grein og stöðva tapreksturinn meö banninu. TTannið var því að jöfnu sprott ið af misskilningl og fyrir- hyggjuleysi. Meira að segja veiði stjóri, Sveinn Einarsson, sem hefur það hlutverk m.a. að stjóma eyðingu villiminks, hef- ur ekki getað komizt að ann- arri niðurstöðu, en minkaeldi ætti aö leyfa. Hann hefur ekki barizt fyrir því að minkaeldi yrði leyft aftur, enda samræmd- ist það varla störfum hans. Ég er á sömu skoðun og ég hef alltaf verið frá 1962, þegar Einar Sigurðsson byrjaði fyrst aö ræða um, að minkarækt yrði leyfð aftur. Auðvitaö á að leyfa minkarækt, sagði Sveinn í við- tali við Visi. Við höfum villi- minkinn, viö höfum skaðann af honum. Skaðinn er tvímælalaus, en við höfum ekkj ávinninginn. Hann lifir á vatnafiski og fugli og veldur því skaöa á hvoru tveggja þar sem hann er og ekkert þýðir því annað en að hreinsa til á stöðum eins og Mý vatni og í varplöndum tid. eyj- unum í Breiðafirði áriega. Ég álít að minkarækt nú myndi ekki gera neitt annað en að létta undir með eyðingu villi minksins. Villiminkurinn mundi •dragast aö búrunum og því auð veldara að granda honum. Hægt væri að skattleggja minkaeldis- stöðvarnar og afla þar með auk ins.fiár til minkaeyðingar M myndu frekar rækta yrðlingana unp sem fyndust i grenmnum og löga þeim, þegar eitthvað er hægt að fá fyrir þá, ef minka- rækt væri í landinu. 7. slða. i

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.