Vísir - 24.03.1969, Síða 1
— Konráð Guðmundsson, hótelstjóri hefur
hreyft málinu v/ð SAS, Háskólayfirvöld og fl.
IÞað er nú skammt stórra
högga á milli í ferðamál-
unum og margar miklar
ráðagerðir í bígerð. Hót-
el Saga hefur nú áhuga á
að byggja heila 6 hæða
álmu við núverandi hús-
næði með 200 herbergj-
um, en núverandi her-
bergjakostur hótelsins
er 90 herbergi. — Það er
rétt, að ég hef hafið ó-
formlegar viðræður við
ýmsa aðila um þennan
möguleika, sagði Kon-
ráð Guðmundsson hótel-
stjóri á Sögu í viðtali við
Vísi í morgun, en þetta
mál er á algjöru frum-
stigi ennþá og óvíst
hvernig fer.
Ein aðalforsenda þess, að
þetta geti tekizt, er að hægt
verði að nýta þetta pláss yfir
vetrarmánuðina og því hef ég
rætt við háskólayfirvöld um
möguleika þess að háskólastúd-
entar nýttu álmuna á vetrum
á hóflegu verði aö sjálfsögðu.
Álman yrði alveg sjálfstæð ein-
ing og því yrði stúdentum ekk
ert ónæði af hótelinu eða hótel
inu af stúdentum.
Þá hef ég rætt við fulltrúa
SAS-flugfélagsins um það, hvort
félagið væri fúst til að styrkja
þetta á einn eða annan hátt, en
að sjálfsögöu liggur engin niður
staða fyrir ennþá.
Ef af byggingu álmunnar verð
ur, verður hún reist við norður
enda núverandi húss, og mun
liggja frá vestri til austurs. Inn
gangurinn í Súlnasalinn yrði
tengingin milli húsanna. Herb-
ergin yrðu ekki í sama „lúx-
usklassa" og þau, sem fyrir eru
á hótelinu, heldur yrði fyrst og
fremst miðað við aö hafa þau
mjög þokkaleg en ódýrari, en
þau, sem nú eru fyrir hendi.
10. síða
Ók á Sjálf-
stæðishúsið
— Ekki i pólitiskum
tilgangi
9 Ölvaður maður tók bifreið ó-
frjálsri hendi á Akureyri aðfara-
nótt sunnudags, en ökuferöin end-
aði jafnskjótt og hún hófst. Mað-
urinn ók bifreiðinni beint á vegg
Sjálfstæðishússins, þar sem hann
hafði verið gestur. Bíllinn skemmd-
ist nokkuð, en hvorki sá á húsinu,
né manninum, sem ekki er vitað til
að hafi haft neinar pólitískar ástæö-
ur fyrir verknaðinum. — Hann var
einfaldlega augafullur.
ÍSLENZKT FLUGFÉLAG í
BfAFRAFLUGI
Kvart milljón i mánaðarkaup?
Flugfragt h.f., íslenzkt
flugfélag, sem var stofn-
að í fyrra, hefur nú gert 3ja
niánaða samninga við Rauða
krossinn um Bíafra-flug. Fé-
lagið hefur leigt bandaríska
DC 6b-flugvél og er Loftur
Jóhannesson flugstjóri í Lond
on nú að sækja flugvélina tii
Tókíó í Japan.
Flugvélin verður skráð hér á
íslandi meðan á þessu leigu-
flugi stendur og verða því ís-
lenzkir flugeftirlitsmenn sendir
utan til aö skrá hana og skoða
í Mílano á Ítalíu, en Loftur flýg
ur henni þangaö.
Félagið hefur nú auglýst eft
ir 6 íslenzkum flugmönnum og
bjóða mjög hátt kaup, eins og
stendur í auglýsingunni. Ámi
10. síða.
Flugmenn skiluðu búningum
sfnum í morgun
Mótmæla oð borga skatta af búningunum
• Flugmenn og flugvélstjórar
Flugfélags íslands og Loftleiða
fylktu liði kiukkan tíu í morgun
úti við skrifstofubyggingu Loft-
leiða með einkennisbúningana
sfna á arminum, en ákveðið
hefði verið að skila búningun-
um til flugfélaganna í mótmæla-
skyni við að þeir þurfa að greiða
skatt af búningunum.
Við hittum stjómarformann Fé-
lags atvinnuflugmanna, Skúla
Steinþórsson fyrir utan skrifstofu
Loftleiða, þegar mennirnir voru að
safnast þar saman, laust fyrir
klukkan tíu og sagði hann að búiö j
væri að tilkynna stjórnum Flugfé-
lags íslands og Loftleiða að búning
unum yrði skilað. Skömmu síðar
fór Skúli ásamt formannj Flugvél- i
stjórafélagsins Lárusi Guðmunds- |
syni á fund Jóns Júlíussonar, starfs
mannastjóra Loftleiða, til að fá að
vita hvar þeir ættu að skilja bún-
ingana við sig, en hann vísaði þeim
á dreifingardeildina. Fengu for-
svarsmenn flugmanna og flugvél-
stjóra heldur kaldar kveðjur hjá
starfsfólkinu á skrifstofunni, er
þeir gengu á fund Jóns, og voru
gerð hróp að þeim.
Skömmu síðar lagði allur hópur
inn af stað með búningana inn í
skrifstofuna og var búningunum
staflað upp á gólfinu í dreifingar
deildinni, en jafnframt var tilkynnt
að búningarnir væru þaina á á-
byrgð flugmanna og vélstjóra, en
ekki Loftleiöa.
Við höfðum tal af nokkrum flug
mannanna og vélstjóranna er þeir
höfðu skilið búningana við sig. —
Hallgrímur Jónsson flugmaður
ságði, að alger samstaða ríkti um
þetta mál meðal hópsins og tóku
þeir sem næst stóöu undir það.
Við höfðum einnig tal af flug-
vélstjóra, Oddi Pálssyni, og sagði
hann að í næsta flugi yrði flogið án
einkennisbúnings. Tók hann einnig
undir orö Hallgríms, að um þetta
mál ríkti alger eining, en samninga
þref hefur staðiö yfir í alllangan
tíma, en búningarnir eru eign flug-
j félaganna, og þvf þykir flugmönn-
um og vélstjórum ekki ástæða til
að borga sjálfir skatt af búningun-
um.
Starfsmenn Flugfélagsins, fylgdu
starfsbræðrum sínum hjá Loftleið-
J um inn í skrifstofuna, en siðan var
ekið í ,,prósessíu“ sem leið liggur
til stöðva Flugfélagsins, þar sem
búningum starfsmanna félagsins
var skilað.
Ekki tókst aö ná í forsvarsmenn
Loftleiða eöa Flugfélagsins í morg-
un til að fá álit þeirra á málinu.
Stjórnarfundur stóð yfir hjá Loft-
leiöum.
Einkennisbúningunum staflað upp í dreifingardeildinni.
Eldur í Höfðaborg
Flugmennirnir og flugvélstjórarnir fjölmenna í anddyri Loftleiða meS búninga sína.
• Eldur kom upp í nótt í
Höfðaborg í risi yfir ibúð, sem
J bjó átta manna fjölskylda. —
Önnur álíka stór fjölskylda bjó
i íbúðinni við hliðina í sama
húsi.
Kviknaö hafði í spórium, sem
risið var einanprað nieð, en slökkvi
liðinu tókst að ráða niðurlögum
eldsins áður en hann næði að breið
ast út.
Höfðgborgin er eingöngu timbur
hús og illt hefði verið við eldinn að
fást, ef hann hefði náð að magn
ast eitthvað að ráði. T.d. er risið
allt spónum lagt, en það liggur
eftir endilöngu húsinu og er hvergi
þiljað í sundur.
Um eldsupptök er ekki kunnugt
en unnið var að rannsókn þess,
þegar blaðið fór í prentun í morg-
UP