Vísir


Vísir - 24.05.1969, Qupperneq 1

Vísir - 24.05.1969, Qupperneq 1
r ... Búin að hnekkja 4 metum Kar'ibahafs- leiðangur Heyerdahls hafinn ? Thor Heyerdahl gat ekki lagt af staö frá Safi í Marokko í papyrus bátnum, sem hann ætlar að sigla til Karíbahafs, í gærmorgun, veð urskilyrða vegna, og burtförinni frestað þar til í morgun. Papyrusbáturinn, „Ra“, er 15 metra langur og líkist risastórri körfu. Vegalengdin til Karíbahafs er 6400 km. Þar meö er yfirvinnubann flugvirkja úr sögunni, og vefður flugið því með eðlilegum hætti um hvítasunnuna. Flugmenn höföu gert kröfur um, að ekki yrði lagður á þá skattur vegna dagpeningaupp- bóta þeirra, er þeir fengju í utan landsflugi. Sagði Skúli, að flug menn hefðu fengið þessu fram- gengt. Hins vegar væru eftir heildarsamningar við flugmenn og flugvélstjóra, þótt samið hefði verið í kjaradeilu flug- virkja. Flugmenn og vélstjórar hafa ekki lagt fram almennar kaupkröfur, enp sem komið er. Þess vegna hafa nú tekizt samn ingar í þeim atriöum, sem um var deilt í þessum viðræöum. Aðrar viðræður eru væntanlega eftir, þó ekki næstu daga. Margir munu varpa öndinni léttar og hugsa til hreyfings um hvítasunnuhelgina, en uggur var í mönnum vegna yfirvinnubanns flugvirkja, sem hefði stöðvað flugið hvíta-sunnudag og annan í hvítasunnu. Auk þess voru boð- uð verkföll á þriðjudag, miðviku dag og fimmtudag, þannig að fluftið hefði stöðvazt í fimm sói arhringa samfleytt. Til þess kem ur nú ekki............. Síðasti sáttafundurinn f deil- unni hafði staðið í þrjátíu klukkustundir samfleytt, þegar loksins samdist. Humarveiðimenn óftast örtröð á miðunum — Margir að búast á humartroll Fjórar körfur þykja varla mikill afli í nærri tvö hundruð lesta skip eins og humarbátarnir gerast nú stærstir, en það þykir þó frábær humarafli í einu hali. Og Suður- nesjabátar, sem byrjaöir eru á hum arveiðum fengu þetta mest í fyrra- dag. Tveir Keflavíkurbáta komu í fyrradag með á níunda hundrað kg. af humri og verðmæti þess afla er hvorki meira né minna en hundr að þúsund krónur, ef humarinn lendir allur í fyrsta stærðarflokki, j Hvernig á j vordrngtin j oð líto útf !• í VISI I VIKULOKIN, sem fylgir blaðinu í dag til áskrif- enda má benda á nytsamar upp- lýsingar um vordragtina fyrir þjóðhátíðina 17. júnf, en auk þess efnis er að finna síldarrétti ! sem húsmæður notfæra sér á- reiðanlega, þegar síldin fer að berast og myndagrein, sem nefn ist heimiliö og stjömumar. ' sem raunar er hæpið. — Verð á humri f þeim flokki er 120 krónur fyrir kg., en helmingi minna fyrir annan flokk og ekki nema 25 kr. fyrir þriðja flokk.' Er hér um aö ræða svonefnt skiptaverð. Þaö er verðið, sem há- setaskiptin eru reiknuð út frá, en síðan bætast 37% þar ofan á, sem útgerðin fær í viðbót. Fjöldamargir bátar eru að búast til humar- og annarra trollveiða hér suð-vestanlands. Óttazt hum- arveiðimenn að örtröð verði á mið unum, þegar svo margir veröa komnir á jötuna. - Margir stærri vertíðarbátanna, sem hingað til hafa stundað síldveiðar, fara á hum •arveiðar í sumar eða troll, allt upþ í tvö-hundruð tonna fleytur, sem fyrr segir. Beið bana i 6 vikna hung- urverkfalli Portúgalskur fangi, sem verið haföi 6 vikur í hungurverkfalli Iézt í sjúkrahúsi í Luxembourg í vik- unni sem leið. Hann hóf verkfallið til þess að mótmæla réttarfarslegum seina- gangi. Var hann fluttur meðvitund- arlaus í sjúkrahús — og þar var sprautað í hann nærandi efni og var það í annað sinn sem það var gert frá því að hann hóf hungur- verkfalliö 10. apríl. - nú eru 6 eftir" sagði flugkonan Sheila Scott við komuna til Reykjavikur Klukkan hálfsex í gær lenti flugkonan Sheila Scott á Reykjavíkurflugvelli í ein- hreyfilsvél sinni af Piper Comanche 260 gerð. Sheila Scott kom hér við á leiðinni frá New York til Kaupmanna hafnar, en hún er að reyna að hnekkja ýmsum \flugmetum sem leikkonan Susan Oliver hefur sett á þessari leið. „Ég er búin að hnekkja fjór- um þeirra nú þegar,“ sagði hún við blaðamann Vísis, ,,og þá eru sex eftir. Nú þegar er ég komin tuttugu klukkustundum á undan Susan Oliver." Það voru margir samankomnir á Jflugvellinum . þegar Sheila Scott lenti til að sjá þessa frægu konu, sem á samtals 71 heims- met í flugi á ýmsum leiðum. Um leið og vélin var lent var hafizt handa við að fylla tanka hennar af bensíni, og flugkonan neitaöi að svara nokkrum spurn- ingum fyrr en því væri lokið. Hún fylgdist nákvæmlega meö því hvernig bensínið var sett í tanka vélarinnar, og heimtaöi meira að segja tommustokk til að athuga, hvort bensínmælar vallarstarfsmannanna væru rétt- ir. Þegar öllu þessu umstangi var lokið hélt hún til Loftleiða- hótelsins, þar sem örstutt stund gafst til að ræða við hana, en hún ætlaði að hraða sér í hátt- inn og leggja upp klukkan 3:30 í nótt. „Ég er ekki að brjóta heilann um neitt sérstakt, meðan ég er á flugi alein yfir heimshöfin,“ sagði hún. „Það er ekki timi til neinna hugleiðinga — ekki tími til neins nema njóta útsýn- isins og einverunnar.“ Hún sagði að erfitt væri að afla fjár til þessara flugferða, en það gerir hún einkum með því aö flytja fyrirlestra og skrifa greinar og bækur og koma fram í útvarpi og sjónvarpi. „Það var fyrir hendingu, að ég læröi að fljúga. f einhverju samkvæmi tók ég upp kvenna- blað, þar sem var auglýsing 'um flugkennslu, og ég hrópaði upp I hálfkæringi, að þetta yrði ég að læra sem fyrst. Vinir mínir, sem tók.u mig á orðinu, sögðu að það gæti ég aldrei, það væri mcð naumindum, að ég gæti ekið bíl. Síðan lærði ég að fljúga og eignaðist mína fyrstu vél, og tók þátt í flugkeppni, sigraði, og þar með var ég komin með bakt- eríuna. Mér finnst dásamlegt að fljúga. og vegna flugsins hef ég eignazt fjölda vina í öllum löndum. Ég veit.ekkert dásam- lega.‘‘ Það var ekki að sjá nein þreytumerki á flugmönn um, þegar ljósm. Vísis hitti þá í fundarhléi í gær. flugið næstu dagana. Flugkonanj yfir Atlantshafiö. Eðlilegt fíug um hvítasunnuna vill vera viss i sinni sök, að alt sé í fullkomnu lagi, þegar hún flýgur ein bundnir væru í stéttarfélögum, mundu neita að fljúga í þessum tilfellum, væru þeir þess beðn- ir. Hins vegar gætu ófélags- bundnir flugmenn á leiguflug- vélum flogið óhindraðir. Þannig hefur tekizt að leysa enn eina kjaradeiluna á nokkr- um dögum, og fer nú fækkandi óleystum vinnudeilum að þessu sinni. — Samningar við flugvirkja og flugmenn ■ Ekkert verður úr boðuðu verkfalli flu^manna, því að samið hefur verið um þau atriði, sem deilt var um, sagði Skúli Steindórsson, formaður flug- mannafélagsins í gærkvöldi. ■ Samningar við flugvirkjana eru endanlegir, en flugmenn munu væntanlega síðar leggja fram al- mennar kaupkröfur, án þess að það hafi áhrif á / gærkvöldi Milljónir voru i húfi fyrir flugfélögin, þar sem bæði milli landaflug og innanlandsflug hefði gjörsamlega stöðvazt. Hug •myndir voru á döfinni, að er- Iendu flugfélögin Pan Am og SAS ykju ferðir sínar til ís- lands, meðan verkfallið stæði. Talsmenn flugmanna sögðu, að erlendir flugmenn, sem félags- Stafsetningarpróf á mæltu máli Sjá landspróf bls. 3 59. árg. — Laugardagur 24. maí 1969. — 114. tbl.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.