Vísir - 24.05.1969, Qupperneq 6
V í S I R . Laugardagur 24. maí 1969.
MEÐ ÁVÖtUM
„BANA“
BETRI STÝRISEIGINLEIKAR
BETRI STÖÐUGLEIKI í BEYOJUM
BETRI HEMLUN
BETRI ENDING
Veitið yður meiri þægindi
og öryggi í akstri — notið
GOODYEAR G8,
sem býðuryðurfleiri kosti
fyrirsama verð.
---------
HEKLA HF.
Illilllllilliii
BÍLAR
Rambler
American ‘68.
Beztu bílakaupin
í ár.
Nýir bílar
til afgreiðslu
strax.
Bílaskipti
eða hagstæð
lán.
KOMIÐ —
SKOÐIÐ —
SANNFÆRIZT
Verzlið þar sem |
úrvalið er mest og |
kjörin bezt.
Rambler-
M unr|boðið
LOFTSSON UF.
Hringbraui 121 -• 10600
Ritstjóri Stefán Guðjohnsen
BLÁA LIÐIÐ
HEFUR SAGT SITT
SÍÐASTA ORÐ
Eins og kunnugt er var heims-
meistarakeppnin f bridge að
þessu sinni spiluð í Rio de
Janeiro í Brazilíu. Fimm þjóðir
spiluöu um réttinn til þess aö
spila til úrslita um heimsmeist-
aratitilinn. Undankeppninni lauk
þannig að ítalir fengu 186 stig,
Kína (Formósa) 166 stig, Banda-
ríkin 141 stig, Frakkland 126
stig og Brazilia 116 stig. Með-
talin eru 10 stig fyrir hverja
yfirsétu.
Til úrslita um heimsmeistara-
titilinn spiluðu þvi ítalir og
Kínverjar. í byrjun var leikur-
inn mjög jafn og höfðu ítalir
aðeins 4 st. yfir eftir 32 spil. Þá
tók að síga á ógæfuhliðina hjá
eyjarskeggjum og lauk keppn-
inni með 247 stiga mismun
ítölum f vil. Er þetta einn
glæsilegasti sigur ítölsku sveit-
arinnar, sem um 12 ára skeið
hefur haft algjör yfirráð yfir
heimsmeistaratitlinum i bridge.
Að keppninni lokinni tilkynntu
ítalir, aö Bláa sveitin Garozzo-
Forquet,, D’Alelio-Pábis t Ticci,
Avarelli-Belladonna, hefði sþiláð
sinn síðasta leik saman og
væri hinn glæsilegi ferill sveit-
arinnar kominn aö leiðarlokum.
Þegar menn eru komnir í
slfkan sérklassa, eins og itölsku
heimsmeistararnir eru, þá er
mönnum starsýnna á mistök
þeirra en snilld. Eftirfarandi spil
sýnir Forquet gera eina af sín-
um fáu villum. A-v á hættu,
austur gefur.
4 AG864
4 ekkert
4 AD9543
4 K3
73
4 AKDG
93
4 K 8
4 754
4 K D 9
4 102
♦ G 10 6
4 A 10 8
62
4 1052
4 87654
4 72
4 DG9
í lokaða salnum var D’Alelio
sagnhafi í þremur gröndum í
vestur, og eftir spaðaútspil frá
norðifi fékk hann níu slagi.
Þegar spilið var síðan spilað
á Bridge-Rama, varö Forquet
sagnhafj í fjórum spööum dobl-
uðum, eftir þessar sagnir:
Austur Suður Vestur Norður
P P 14 24
P 24 P 44 ,
D P P P
Huang I vestur, ákvað að
trompa út og valdi trompþrist-
inn. Þessi ákvörðun með þrist-
inn f staö sjöunnar átti eftir að
gefa mikinn arö seinna i spilinu.
Sagnhafi lét lágt úr blindum og
austur drap á drottningu og
spilaði hiartatíu. Bl'ndur tromp-
aði spilaði út laufakóng,
sem austur drap á ás-
inn. Það er erfitt fyrir austur
að gefa laufakónginn, en það
hefði hann samt átt að gera.
Austur spilaði meira hjarta og
blindur trompaði enn. Nú fór
suöur inn á laufadrottningu og
spilaði tígli og svínaði drottn-
ingunni. Siðan tók hann ásinn
og tíu slagir virtust upplagðir
með því að trompa tígul með
spaðatíu og spila siðan trompi.
Öllum til undrunar trompaöi
Forquet hins vegar með fimm-
inu og vestur yfirtrompaði.
Hann spilaði meira hjarta og
suður varö að lokum tvo niður.
ítalir græddu samt 7 stig á spil-
inu, en hefðu getáö grætt 15.
4 V4*
Reykjavíkurmeistaramótinu í
tvímenning er nýlokið og sigr-
uðu Jón Arason og Sigurður
Helgason frá Bridgefélagi
Reykjavíkur. Hlutu þeir 1609
stig, sem er mjög góður árang-
ur. í öðru sæti voru Ása Jó-
hannsdóttir og Lilja Guðnadótt-
ir frá Bridgefélagi kvenna með
1593 stig. Er þetta afbragðs-
árangur hjá,,, þeim,, end,a eru
þær áð rriínu óliti sterkasta
kvéhnapar okkar í dág. Réykja- ni
víkurmeistararnjr frá í fyrra,
Jón Ásbjömsson og Karl Sigur-
hjartarson, urðu aö láta sér
nægja þriðja sætið, með 1589
stig. Þeir em frá Bridgéfélagi
Reykjavíkur. í fjórða sæti voru
Ingólfur Isebarn og Vilhjálmur
Sigurðsson með 1576 og I
fimmta sæti Láms Karlsson og
Gunnlaugur Kristjánsson með
1550 stig. Bæði þessi pör era
einnig frá Bridgefélagi Reykja-
víkur.
í 1. flokki sigmðu með mikl-
um yfirburöum gamlar lands-
liðskempur. Það em Hörður
Þórðarson og Kristinn Berg-
þórsson. Hlutu þeir 1709 stig,
sem mér er næst að halda að sé
algjört met. í öðra sæti voru
Alfreð Alfreðsson og Guðmund-
ur Ingólfsson með 1596 og
þriðju Bragi Erlendsson og
Ríkarður Steinbergsson með
1531. Öll em þessi pör frá
Bridgéfélagi Reykjavíkur.
Þá, sem hafa ekki átt kost
á því að kynna sér skipulag
Reykjavíkurmóta í bridge, rek-
ur sennilega S rogastanz, þegar
þeir sjá gamla meistara éins og
Kristin og Hörð vera að spila
í fyrsta flokki, Kristinn hefur
sennilega oröið oftar tvímenn- (
ingsmeistari en nckkur annar og
hvert mannsbam, sem fylgdist
með bridgekeppnum fyrir 10-
15 árum þekkir nafn Karðar
Þórðarsonar. Það er min skoðun,
áð þessum mönnum fari aldrei
það mikið aftur f bridge, að þeir
eigi ekki aö geta keppt um
Reykjavíkunneistaratitilinn, ef
þeim sýnist svo. Krafan hlýtur
að vera sú, að margfaldir iands-
liðsmenn og meistarar, eiga að
geta tekið þátt f helztu mótum
landsins, án þess að þurfa að
vinna sig upp á milli flokka.
Flokkaskintingar eiga ef t.il vill
rétt á sér innan félaganna, en
umfram allt engar flokkaskipt-
ingar í Reykjavíkur og lands-
mótum.
Snjall skákmeisfari
'C’nginn skákmeistari síðari ára
á ja'fnlitríkan feril og
Michael Tal. Tuttugu og eins
árs að aldri sigraði hann á skák-
þingi Sovétrikjanna 1957 og
lagöi þar að velli skákjöfra svo
sem Keres, Bronstein og Petro-
shan. Þetta var vissulega mikið
afrek og ekki vakti minnj at-
hygli hvemig sigramir voru
unnir. Jafn djarfleg taflmennska
hafði ekki sézt síðan Alechine
og Keres vom upp á sitt bezta.
Sér i lag var Tal ósínkur á
menn sína. Margbreytilegar fóm
ir tættu sundur kóngsstöður
andstæöinganna og þó Tal væri
yfirleitt liðfærri í lokin var
vinningurinn hans.
Ári síðar varði hann titil sinn
á meistaramóti Sovétríkjanna og
tók nú einn sigurinn við af öðr-
um. Á millisvæðamótinu í
Portoros 1958 varð Tal efstur
og var nú kominn í keppni 8
beztu skákmanna heims um á-
skorandaréttinn á sjálfan heims-
meistarann, Botvinnik.
Á áskorendamótinu í Júgó-
slavíu varð keppnin mjög hörö
milli Tals og Keresar um efsta
sætið, en er á leið sagði æska
Tals og úthald til sfn og hlaut
hann 20 vinninga af 28 mögu-
legum, en það er hæsta vinn-
ingshlutfall sem fengizt hefur á
á áskorendamóti. Mikla athygli
á mótinu vöktu viðureignir Tals
og Smyslovs. Heimsmeistarinn
fyrrverandi frægur fyrir vísinda
lega nákvæmni og endatafls-
kunnáttu, hafði ekki mikið álit á
villtum sóknarstíl Tals. Kvað
hann það, skyldu sína sem stór-
meistara að vinna drenginn og
sýnd^fram á misbréfetina f skák-
stíl haps. Kom þetta álit
Smyslovs fram í júgóslavnesku
blöðunum og var viðureignar
þeirra landanna beðið með eftir-
væntingu. Þegar hér var komið
höfðu þeir töflt saman 2 skákir
ir og var staðan jöfn.
í byrjun 3. skákarinnar náöi
Smyslov fljótt betri stöðu vann
síðan mann og virtist ætla að
standa viö orð sín. Og þar eð
Tal var í geigvænlegu tímahraki
virtist fátt til bjargar. En nú
fékk Smyslov að kynnast ein-
stæðum leikfléttuhæfileikum
„töframannsins frá Riga“ eins
og Tal hefur oft veriö nefndur.
Þrátt fyrir tímahrakið hélt
hann áfram að leggja gildrur og
eitt augnablik gætti Smyslov
sín eigi sem skyldi. Leiftursnögg
hróksfóm dundi á kóngsstöðu
Smyslovs og Tal hafði bjargað
y2 vinning á ævintýralegan
hátt. Þetta vom harkaleg úrslit
fyrir Smyslov sem náði sér
aldrei á strik í mótinu og hafn-
aöi f 4. sætinu í lokin.
Enn voru þó margir vantrú-
aðir á skákstíl Tals og að gegn
Botvinnik dygði hann skammt.
En Tal hélt uppteknum hætti og
eftir eitt af skemmtilegustu ein-
vígjum sem teflt hefur veriö um
heimsmeistaratitilinn var nýr
heimsmeistari krýndur. En
Botvinnik naut eldri laga
F.I.D.E. og vann titil sinn aftur
eins og frægt er oröið. Eftir
tapið í síðara einvíginu gegn
Botvinnik virðist Tal aldrei
hafa náð sér fullkomlega á strik.
Skákgleöin var ekki söm á eftir
og fórnirnar frægu ekki jafn
árangursríkar. Upp á síðkastið
hefur Tal breytt nokkuð um
stfl téflt meira upp á rólega
stöðubaráttu en hamslausa
sókn. Þó koma inn á milli ekta
Tal-skákir sem minna á beztu
daga Tals. Þann;g er skákin
Tal : Gurgenidse, tefld á síðasta
skákþingi Sovétríkjanna.
Hvítt: Tal.
Svart: Gurgenidse.
Caro-Can.
1. ed c6 2. d4 d5 3. Rc3 b6f?
Nýstárlegur leikur. Ef hug-
myndin er að leiöa Tal á villi-
götur mistekst hún algjörlega.
4. a3.
Ekki 4. exd b4 og svartur
vinnur peðið aftur.
4. ... dxe 5. Rxe Bf5 6. Bd3
BxR.
Eftir 6 ... Dxd7. Rf3 Dd8
8. De2 hefði hvítur haft góö
sókn„rfæri.
7. BxB Rf6 8. Bd3 e6 9. Rf3
Be7 10. De2 Rbd7 11.0-0 0-0 12.
Hel He8 13. Re5 RxR 14. dxR
Rd5
Riddarinn hrekst frá kóngs-
stööunni og þangað beinir Tal
skeytum sínum.
15. Dg4 a5 16. h4 Bxh?
Þetta peð hefði svartur betur
látið vera. Opin h-línan er ein-
mitt það sem Tal þarfnast og
sókn hvíts verður brátt ó-
stöðvandi.
17. g3 Be7 18. Kg2 g6 19. Hhl
Bf8 20. Bg5!
En ekki 20. Dh3 h5 21. gh h4
20. .. Dc7 21. Hxh! Dxe
Ef 21. ... KxH 22. Hhlt
Kg8 23. Dh4 Bg7 24. Bf6 og
mátið á h8 veröur ekki varið.
22. Hxf! KxH 23. Bxgt!
Nú er Tal farinn að kunna við
sig og í stööum sem þessum
stenzt honum enginn snúning.
Svartur má ekki taka biskup-
inn vegna 23. ... KxB 24.
Bf4t Kf6 25. Dh4t og vinnur.
23. ... Kg8 24. BxH Bg7
Biskupinn var að sjálfsögðu
friðhelgur vegna Bf6t og drottn-
ingin fellur
25. Bd7 Rc7 26. Bxc Hf8.
27. Hdl Dc5 28. Bf3 Dxc 29.
Hd7 Hf7 30. Hd8t Hf8 31. Bf6!
Tal lýkur skákinni með hand-
bragði snillingsins.
31. .. Dh7 32. Be4 Dh6 33.
Bg5 Dh8 34. Hd7 Gefið.
Við drápinu á e6 er engin
vöm til. T. d. 34. ... Hf7
35 HxR HxH 36. Dxet Kf8 37.
Bg6.
Jóhann Sigurjónsson.
VéSabókhseld — Reiknðn^sskáð
BÓKHALD OG UMSÝSLA H/F
ÁSGEIR BJARNASON
Laugavegi 178 • Box 1355 • Símar 84455 og 11399
aa