Vísir - 21.06.1969, Síða 3

Vísir - 21.06.1969, Síða 3
VIS IR . Laugardagur 21. júní 1969. 3 7 ÍSlfíND 2. F/N/VtfíND 3 þýz KffLflND 4. r/?nkiNLHND 5T BNOLNND G. DftNMÖKK. 7. svíþjór & SPfíNN 9. Gfikflmd /0 fíUST[/FrTk i //. £ TfíL ÍM /zSviss ^ /3 Bbl GÍn /4. MORBG-ur. /5T ÍSFftEL /GUNGVERJOL. /7 TNRKLftND 78. L ÍBftNON 79. ÍRLftND 20. TORTUGftL 2/. POLLftND 22.HOLLR ND 7 2 3 4 5 C> 72 <7 /0 7/ /213/4 /5!(,/7/8 /4202/22 STiE KÖB FVRÓPUMÓrÍD ÍOSLÓ J9G9. Evrópumótið hefst á mánudag ■ Fjölmennasta Evrópumótið, sem haldið hefur verið til þessa, veröur haldið í Osló dag- ana 23. júní til 6. júlí. Tuttugu og tvær þjóðir hafa boðað þátt- töku f opna flokknum og fjórtán f kvennaflokki. ísland mætir and stæðingum sínum í eftirfarandi röð: Holland — Þýzkaland — England — Sviþjóð — Grikk- land — ftalía — Belgía — fsra- el — Tyrkland — írland — Pól- land — Finnland — Frakkland Danmörk — Spánn — Austur- ríki — Sviss — Noregur — Ung- verjaland — Líbanon — Portú- gal. Ætlð er erfitt að spá um úrSlit slíkra stórmóta en Hklegt má telja að Ítalía, Holland og Frakk land skipti með sér þremur efstu sætunum. England blandar sér sennilega ekki í baráttuna um meistaratitilinn að þessu sinni, enda lið þess skipað fjórum ný- liðum hvað Evrópumót snertir. Þaö vekur ætíð athygli, hvaða lið ftalir senda á Evrópumót og að þessu sinni er það aðeins skip að tveimur af heimsmeisturun- um, þeim Garozzo og Bella- donna. Aðrir I sveitinni eru Messina og Bianchi, og Frendo og Mondolfo. Er þeim tveimur síðastnefndu ætlað að hafa sitt hvorn heimsmeistarann fyrir makker. Holland sendir hina frægu Kreyns og Slavenburg, á- samt van Heusden — Kokkes og Bockhorst—Vissinga. Frakkland teflir fram Stoppa — Rudinesco Ritstj. Stefán Guðjohnsen 'p’invíginu um heimsmeistara- titilinn í skák er lokið, Petroshan, 40 ára að aldri, sem borið heíur titilinn f 6 ár skilar honum nú í hendur hins 32 ára gamla Spasskys eftir 23 skáka harða keppni. Til að öðlast tit- ilinn þurfti Spassky að tefla 49 1 skákir f 4 einvígjum gegn 1 fremstu skáksnillingum heims. t Útkoman varð 30:19, sem sýnir J giöggt hver er sá sterkasti. 1 Þetta er annar heimsmeistara- \ titill Spasskys, en 1955 varð t hann heimsmeistari unglinga og / er eini skákmeistari heims, sem ^ öðlazt hefur báða heimsmeist- í aratitlana. Fyrir einvígið við ; Petroshan var Spassky almennt í spáð sigri, af fremstu meistur- i unum var Larsen sá eini sem í trúði á sigur Petroshans. 7 Keppni þeirra Spasskys og 1 Petroshans var enn ekki lokið 1 þegar bollaleggingar um næsta í áskoranda hófust. Botvinnik ; fyrrum heimsmeistari, vegur og \ métur möguleika nokkurra \ garpa og við skulum hlýða á hvað gamli meistarinn hefur til málanna að leggja. ,,Tal, með sitt mikla sjálfstraust væri lík- 1 legur ef ékki kæmi til sérlega lélegt heilsufar. Stein og Polugaevsky geta varla vænzt æðstu árangra. Kortsnoj, sem teflir sérlega vel þessa dagana er ævintýramaður og óvenju- legur taflmáti hans nýtist bezt gegn veikari skákmönnum; lak- ar gegn skákmanni með styrk- leika Spasskys. Þá er það spurn- ingin með Fischer og Larsen. Til aö verða heimsmeistari i skák þarf aö tefla á réttinda- mótum, en á þeim viröist Fisch- er engan áhuga hafa sem stend- ur. Larsen hefur náð fullum tökum á þeirri list að tefla í mótum, en árangrar hans í ein- vígjum sýna að á þeim vett- vangi á hann margt ólært. Ef Larsen legöi hart að sér við aö ná þeirri tækni sem einvígin krefjast, gæti hann vissulega orðið heimsmeistari." Spassky hefur jafnan verið óhræddur við að taka á sig á- hættu. í eftirfarandi skák velur hann afbrigði sem talið er frem- ur vafasamt, en tekst að rugla andstæðinginn í rlminu og sigra. Skákin var tefld á stórmótinu í Moskvu 1967. Svart: Pachman. Hvítt: Spassky. Slavnesk vörn. 1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 e6 5. Bg5 h6 6. Bh4 dxc 7. e4 g5 8. Bg3 b5 Byrjunarbækur telja þessa stöðu svörtum í hag. En Spassky kemur með nýjung sem hleypir lífi í skákina. 9. Dc2 Skákin tekur á sig ékta- gambitblæ. Hvftur kærir sig kollóttan um peðin, hann hefur aðeins áhuga á sókn. 9. ... g4 10. Re5 Dxd 11. Hdl Db6 12. Be2 Rbd7 13. 0-0 Be7 Hér hefði svartur getað gert hvítum erfiðara fyrir með 13. ... h5 14. Rxg RxR 15. BxR Bb7 16. e5 Hótar 17. Bxe fxB 18. Dg6t Kd8 19. Dxe Bc8 20. Dg6 og gegn e5—e6 er svartur varnar- laus. 16. ... Rc5 17. Bh5 Hd8 18. De2 Rd3 19. Df3 0-0 20. Re4 Dd4 21; Hfel Kh8 22. Rd6 RxH 23. HxR HxR I Það hefði veriö fróðlegt að ) sjá hvernig Spassky hefði svar- / að 23. .. BxR. ef t.d. 24. Df6t ) Kg8 25. Bxft HxB 26. DxHdt l Hf8 27. DxB DxD 28. exD Bc8 og mislitir biskupar ættu að tryggja svörtum jafntefli. Spassky hefði því trúlega reynt 24. exB e6 25. Hxe og staðan er mjög tvísýn. Sú leið sem Pachman velur gefur Spassky kost á að Ijúka skákinni fallega, 24. exH Bf6 25. h4 Dxb 26. Bxf! Óvænt og afgerandi fórn. 26 ... HxB 27, Be5 Dc2 Ekki dugðj 27. ... BxB 28. DxH og hótar DxB og d7 28. d7! Kg8 29. DxB! Hxd 30. He3 Svartur gafst upp, þar eö mát veröur ekki umflúið. Jóhann Sigurjónsson. Poubeau — Meillaud — Boul- enger — Szvarc. Enska liðið er skipað fjórum Skotum, Coyle — Silverstone — Leckie — Gold- berg, ásamt Tarlo og Rodrigue. Frændur okkar Danir senda Ped ersen — Möller — Sörensen — Trelde — Marienhof — Nielsen. Svíar eru með Brunzell — Ek- berg — Hall — Norback — Holmgren — Axelsson. Gestgjaf- arnir, Noreguf, hafa ágætt liö, þar sem eru Höie — Ström — Koppang — Larsen — Jensen — Várnás. Lesendum til hægðarauka birt- um við svo keppnistöflu mðtsins og geta menn klippt hana út og fylgzt með mótinu. Úrslit leikja veröa birt daglega f blaðinu á- samt stuttum frásögnum af mót- inu. ♦ íslenzka liðið er að þessu sinni skipað eftirtöldum mönn- um: Ásmundur Pálsson, Hjalti Elíasson, Hallur Símonarson, Þórir Sigurðsson, Þorgeir Sig- urðsson og Stéfán Guðjohnsén. Fyrirliöi ér Þórður H. Jónsson. Auglýsing til rafmagnsnotenda í Reykjavík og nágrenni, Kópavogi, Hafnarfirði og á Suðurnesjum: Vegna tenginga Búrfellslínu við írafoss og spennistöðina við Geitháls verður straumur rofinn á 130 kílóvolta línunni frá Sogi frá há- degi föstudaginn 20. þ. m. fram á mánudags- morgun þann 23. þ. m. og á sama hátt frá há- degi föstudaginn 27. þ. m. fram á mánudags- morgun þann 30. þ. m. Meðan á aðgerðum þessum stendur verður um takmarkað rafmagn að ræða, og eru raf- magnsnotendur hvattir til þess að draga sem mest úr rafmagnsnotkun á framangreindum dögum. Sérstaklega væntum við aðstoðar húsmæðra við að lækka álagstoppa á suðu- tímum með takmörkun á notkun eldavéla og dreifingu á suðutíma. Ef slíkar ráðstafanir nægja ekki, verður að grípa til skömmtunar á rafmagni, þannig að straumur verður rofinn um Vi klst. til skiptis hjá notendum yfir mestu álagstoppa. Reykjavík, 19. júní 1969 Rafmagnsveita Reykjavíkur Rafmagnsveitur ríkisins Rafveita Hafnarfjarðar Landsvirkjun INNIHURÐIR - UTIHURÐIR BYLGJUHURÐIR - SVALAHURÐIR BlMI M27S SKÖLXVðllBUStíc II

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.