Vísir - 21.06.1969, Side 4

Vísir - 21.06.1969, Side 4
Sænskur nasisti til Grikkla I dagblöðum í Grikklandi er þessa dagana rætt mikiö um sænskan flóttamann, sem blöðin segja, „að segi sannleikann.“ Þessi maður er 33 ára og heitir Björn Lundahl, og hann er eigin- lega á mot. ''-'u í Svíþjóð, bæöi þjóðfélags- og réttarskipulagi. Hann lýsir því yfir, að hann sé / í Aþenu til að leita skjólshúss, og hann muni gera allt, sem í hans valdi stendur til að afstýra þeim stjórnmálalega harmleik, sem hægt en örugglega stefni Sví þjóð \ -oeínan vooa. Þetta segist hann gera sem baráttumaður þjóðernisstefnunnar, en hann er mikill aðdáandi núverandi vald- hafa í Grikklandi. Lundahl komst í kast við yfir- völdin í Svíþjóð árið 1965, þegar hann var kallaður fyrir rétt sem foringi nasistahreyfingar þar í landi. Málið komst upp vegna þess aö dreift hafði veriö pésa, sem „upp á gamla mátann" mælti ein- dregiö með því, að sænskir Gyö- ingar væru aflífaðir hið bráðasta. Máliö vakti töluverða athygli í Svíþjóð, og endalok þess urðu þau. að Björn Lundahl var dæmd- ur í 300 kr. sekt eöa 30 daga fangelsi fyrir að hafa með hönd- um ólögleg vopn, en nýnasista- flokkur hans var búinn að koma sér upp álitlegu vopnasafni; enda er Björn hér á meöfylgjandi mynd hinn vígalegasti með vél- byssu og stálhjálm á höfði, þar sem hann stendur undir mynd af lærimeistara sínum Adolf Hitler. Bardot of hrukkótt til að fá kvikmyndahlutverk! Aldurinn er loksins byrjaöur að íþyngja Brigitte Bardot. Hin 34 ára gamla leikkona fór með mestu leynd á stúfana og fékk sér andlitslyftingu til að geta leikið hlutverk tvítugrar stúlku í kvik- mynd. Þaö er mikið magn af andlits- faröa og næstum tuttugu ára þátttaka. í hinu ljúfa lífi, sem hefur svipt Brigitte Bardot „hinni eilífu æsku“. Andlitslyftingin var gerð á einkakiinikkinni Belvedere í Boul- ogne, og nauðsynlegt var að fram kvæma hana til að fjarlægja hrukkur , sem voru farnar aö myndast kringum augu Bardot. Hrukkurnar komu fyrst til tals við upptöku á myndinni „Kon- urnar“, sem Jacques Laurents stjórnar, en í þeirri mynd leikur Bardot kynsósa einkaritara. Kvik- myndatökumaðurinn reyndi fyrst að komast hjá því að sýna hrukk- urnar með því að nota svonefndar „mjúkar linsur", en ekkert slíkt dugði. Brigitte Bardot varð undrandi og öskureið, þegar kvikmyndatak an var stöðvuð, og hún fékk þær upplýsingar, að andlit hennar væri of gamallegt og hrukkótt fyrir hlutverkið. Eftir heiftarlegt rifrildi yfirgaf hún kvikmyndaver- ið og tilkynnti ■ veikindaforföir í marga daga á ’eftir. Veikindadagana notaði Bardot til að fara í þessa leynilegu and- litslyftingu. Aðgerðin sjálf tók að- eins fáeina klukkutíma, en menn komust að þvi að hún haföi veriö gerð, vegna þess að lítið rautt ör sást við aðra augnabrúnina. Örið er nú horfið, eða falið und- ir sólbruna og andlitspúðri. Og nú getur Bardot aftur tekið til við að leika tvítuga stúlku og leikstjórinn Jacques Laurents er sannfærður um, pða segist vera sannfærður um, að hún muni svo sannarlega siá í gegn í því hlutverki í kvikmyndinni „Kon- urnar'*. hefur BEZT á islenzku veguniinú Fullkomin þjónusta miösvæðis i borginni. LAUGAVEG1171. HJfiLBARÐAVERKSTBI Sigurjðns Gislasonar Spáin gildir fyrir sunnudaginn 22. júní, Hrúturinn, 21. marz—20. apríl. Góður dagur til ferðalaga, einn- ig til að leggja upp i langferð,. og mun þá betra að leggja af stað upp úr hádeginu, heldur en fyrri hluta dagsins, einkum ef á landi er farið. Nautið, 21. apríl—21. mai, Getur orðiö mjög skemmtileg helgi, bæöi heima og á ferðalagi. En þér er vissara að gæta vel aö þér í peningamálum, og máttu gera ráö fyrir meiri kostnaði, en upphaflega stöð til. Tvíburarnir, 22. mai til 21. júni. Stutt ferðalag getur orðið mjög ánægjulegt, en ekki er ráðlegt aö leggja upp í langferðir í dag. Þó verður dagurinn að öllum líkindum skemmtilegastur heima við í ró og næði. Krabbinn, 22. júní til 23. júlí. Það lítur út fyrir að þú komist ekki eins langt og þú hefur hugsað þér í dag, og mun þó ekki veröa um neinar alvarleg- ar tálmanir að ræða, heldur ein- hverjar tafir og vafstur. Ljónið, 24. júlí til 23. ágúst. Að vissu leyti skemmtileg helgi, en samt munu einhver von- brigði varpa á hana nokkrum skugga. Eitthvað munu þau bundin ferðaiagi, eða samferða- fólki, þótt fleira geti komið við sögu. Meyjan, 24. ágúst til 23. sept. Taktu vel leiöbeiningum og ráð um þeirra, sem þú sérð að betur vita. Ef þú ert á ferðalagi er hætt við aö einhver samferöa- manna þinna dragi úr ánægj- unni meö uppsteit og aðfinnsl- uni. Vogin, 24. sept til 23. okt. Ánægjuleg helgi, og því skemmtilegri, sem skemmra er farið. Það er ekki ólíklegt að þú fréttir af góðu tækifæri, sern þú ættir að notfæra þér, eða kynnist einhverjum, sem gagn er að. Drekinn, 24. okt. til 22. nóv. Mjög sómasaqileg helgi, en þó ér mjög líklegt að ekki gangi allt samkvæmt áætlun. Einhver nákominn aðili kemur þar við sögu; ekki ólíklegt að hann vilji taka forustuna af þér, og takist það. iáogmaðurinn, 23. nóv. til 21. des Allt virðist ganga aö óskum fram eftir deginum, en undir kvöldið kann eitthvert babb að koma í bátinn. Vertu þá fljótur að hugsa og taka ákvarðanir og fylgdu þeim fast eftir. Steingeitin, 22. des. til 20. jan. Allt bendir til að þú fáir að koma á ókunna staði og kynn- ast fólki, sem þú hefur ekkert þekkt áður. Heigin mun einkenn ast af tilbreytingu og jafnvel óvæntum, skemmtilegum at- burðum. Vattsi' rinn, 21. jan. til 19. febr. Taktu ekki mark á öllu, sem þú heyrir skrafað í kring um þig. Eitthvað getut orðið til þess að gera þér gramt í geði, en varla mun orsökin alvarleg, þegar þú athugar betur. Fiskarnir, 20. febr. til 20. marz. Gættu þess að ofgera þér ekki, og yfirleitt skaltu forðast allar öfgar, og stilla skap þitt á hverju sem gengur. Gættu og vandlega, að þú verðir ekki hlunnfarinn í peningamálum. i

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.