Vísir


Vísir - 10.07.1969, Qupperneq 4

Vísir - 10.07.1969, Qupperneq 4
HVER ERFIR BRIAN IONESP AtrúnaðaraoSiö Brian Jones fannst eins og kunnugt er drukkn aður á suncHaugarbotni í Susex í London. Hann var áöur meðlimur Brian Jones í hippíaklæðnaði ásamt fyrrum vinkonu sinni, Suki Portier. í „RoWing Stones“ og mjög fræg stjama í pop-heiminum. En það sannaðist á honum ems og svo mörgum að hamingjan verður ekki með peningum keypt. Hann lenti í ýmiss konar sukki og ólifn aöi og neytti oft eiturlyfja, (ópí- um, LSÐ o. fl.). Brian Jones var mjög umdeild ur og sögðu margir, að hann væri tvær ólíkar manngerðir. Aðr ir álitu að í honum byggju allar persónur veraidar. Brian blandaði ekki mjög geði við aðra meðlimi „Rolling Ston- es.“ Aftur á móti var hann í tölu verðum kunningskap við bílstjóra sinn, Brian Plastanga, sem reyndi á allan hátt aö hjáipa honum. Plastanga bjargaði Brian tvívegis frá sjálfsmorði, sem hann ætlaði að fremja í eiturlyfjavímu. í fyrra skiptið ætlaði Brian að kasta sér út um glugga á hótel herbergi og seinna varð Thames fyrir valmu. I báðum tilfellum tókst bfistjóra hans að ná til hans. Tvær stúlkur krefjast nú arfs eftir Brian Jones, en þær eiga báðar böm með honum, Það voru 36 milljónir ísl. kr. sem hann skildi eftir og verða nú lögin að skera úr um hver skuli njóta. Önnur bamsmóðir hans er Pat Andrews, 24 ára gömul. Henni kynntist Brian fyrir níu árum og er sonur þeirra nú þriggja ára. Hin stúlkan er Linda Lawrence, einnig 24 ára. Brian lét hana hafa 1000 pund í eitt skipti fyrir öll, en nú þegar von er í stærri bita, lætur hún aftur til sín heyra. Þessi frægi pop-söngvari verð- ur 'að öllur líkindum jarðaður í Hartfield, en þar keypti hann eitt sinn land fyrrr tæplega 8,5 milljónir ísl. kr. Bifreiðaverkstæði umm Ljósastillingar SKEIFAN 5 SÍMI 34362 SUPER 8 FILMA SUPER 8 CARTRIDGE ÓDÝRASTA SUPER 8 litfilman á markaðinum MKMgg'öfv 7* /Jl^/t V Vlörgæs með staurfót Þessi mörgæs var svo óhepp- in að detta og fótbrotna. Má hún því héðan í frá ganga með staur fót. Þetta er ekki ein af mörgæs unum sem fyrir stuttu komu í Sæ dýrasafnið. Þær eru allar við beztu heilsu, en þeim er vissast að fara varlega, því að ótrúleg- ustu atvik geta komið fyrir. Spáin gildir fyrir föstudaginn 11. júlí. Hrúturinn, 21. marz—20. apríl. Rólegur dagur, sem þú. ættir að nota til aö ganga frá ýmsu, sem safnazt hefur saman og orð ið útundan vegna stærri viö- fangsefna. Ef þér býðst aðstoö, skaltu þiggja hana. Nautið, 21. apríl—21. maí. Farðu gætilega f viðskiptum við þá, sem setja alls konar skil- yrði, eða tefja fyrir með vafn- ingum. Þá getur reynzt heppi- legast að setja hnefann í borðiö og láta hart mæta hörðu. Tvíburarnir, 22. maí—21. júní. Þú mátt gera ráð fyrir nokkrum erfiðleikum á vinnustað, eða heima fyrir, sem þú þarft að beita lagni og þolinmæði við að leysa. Farðu að minnsta kosti hægt og gætilega að öllu. Krabbinn, 22. júní—23. júlf. Gættu þess, aö einhver loforð, sem þú hefur gefið kunningja þínum, gleymist ekki. Það mundi valda honum meiri von- brigðum en þú reiknar með, vissra aðstæöna vegna. Ljóniö, 24. júlí — 23. ágúst. Eitthvert ferðalag, sem þú hef- ur í huga, fer aö öllum líkind- um út um þúfur af óviöráöan- legum orsökum. Hætt er við að peningamálin þurfi algerrar end urskoðunar viö af sömu ástæð- um. Meyjan, 24. ágúst—23. sept. Ekki er ósennilegt, að þú komist óvænt að raun um það í dag, að þú eigir keppinaut, sem ekki hefur legið á liði sínu að undan förnu, þótt þú hefðir ekki grun um neitt þess háttar. Vogin, 24. sept.—23. okt. Einhverjar ráðagerðir þínar mæta mótspymu, og að öllum líkindum af hálfu þeirra, sem þú gerðir sízt ráð fyrir. Senni- lega er bezt fyrir þig aö hafast ekki að í bili og bíða átekta, Drekinn, 24. okt.—22. nóv.: Þaö er ekki ólíklegt að eitthvað komi harla flatt upp á þig í dag, og að þér veitist erfitt fyrst að átta þig á þeim hlutum. Kannski þarftu að endurskoða allar áætlanir þínar. Bogmaðurinn, 23. nóv.—21. des. Vertu við því búinn, ef þú hef ur eitthvert ferðalag í hpga, að verða að taka skjótar ákvarðan ir í því sambandi, og breyta á- ætlunum þínum ef með þarf vegna ófyrirsjáanlegra atburða. Steingeitin, 22. des til 20. jan. í dag skaltu láta hendur standa fram úr ermum, byrja snemma og linna ekki á fyrr en þeim við fangsefnum er lokið sem þú átt við að glíma. Þá kemurðu miklu í verk. Vatnsberinn, 21. jan til 15. febr. Það lítur út fyrir að þú sért f einhverjum vafa gagnvart nán um vini, sem þér finnst hafa komið undarlega fram við þig að undanförnu. Taktu ekki nein ar ákvarðanir að svo stöddu. Fiskarnir, 20. febr. til 20. marz. Þér liggur mikið á að vísu, en flest mundi þó sækjast betur, ef þú færir þér rólega og athug aðir þinn gang. Láttu þér í léttu rúmi liggja, þótt rekið sé á eft ir þér í bili.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.