Vísir


Vísir - 10.07.1969, Qupperneq 13

Vísir - 10.07.1969, Qupperneq 13
V í SIR . Fimmtudagur 10. júll 1969. 13 LANDSYERZLUN EÐA FRJÁLS YERZLUN? Við skulum bara fá hvort tveggja — / stabinn fyrir verblagskerfið 1 J&faið&iGötti Þaö er freist&ndi að leiða hugann að þvi hvað fólk mundi álfta um jafnöldru hennar Marion R. Hart hérlendis, sem tæki upp á þvi að læra að fljúga og feröast út um heim á eigin spýtur. Landlæg hnýsni um gerðir náungans og forvitni inn allt og alla gerir það að verkum, að fátt eitt er gert hér, sem fjöldinn ekki fylgist með af áhuga með tilheyrandi bolia- leggingum um sálarástand og heiibrigði. Slikt hugarfar fjöld- ans mundi hreinlega koma í veg fyrir, að svo fullorðin kona taeki upp á þviliku eins og að læra að fljúga. Þó islenzk kona þætti vart heíilbrigð, sem færi ein í flugferð til útlanda, þá þykir okkur það hins vegar hressiiegt og aðdáunarvert í fari útlendna kerlinga að fást við slikt tómstundagaman. Hvemig væri annars ef ein- hver á milli fimmtugs og sjö- tugs prófaði hver viðbrögð al- menningsálitslns yrðu, ef hann eða hún brygði á leik og lærði aö fljúga og brygði sér svo í hnattflug um Ieið og hinum lög- gilda starfsaldri er lokið. Það væri óneitanlega bara hressi- legt. Þrándur i Götu. Hinn sí-ungi andi Margur gestur sækir okkur heim í sumar. Fólk frá öllum heimshomum streymir hingað af ýmsu tiiefni. Sumir koma hér aðeins við vegna legu landsins á milli heimsálfa. Þannig kemur hingað alis konar fólk, sem fæst vekur athygli sérstaklega. Þó kemur fyrir að einstaka persóna af hinum mikla fjölda vekur verðskuldaöa athygli. Ekki var til dæmis hægt annað en dást að henni Marion R. Hart, 77 ára gamaili bandarískri konu, sem kom hingað fljúgandi ein síns liðs í flugvél sinni. Það er aödáunarverður töggur í slíkri konu, sem á fullorðins ár- um bregður sér í þvflíkar ferðir, sem þeir yngri myndu hugsa sig tvisvar um áður en þeir legöu upp í. Flugkonan sagði blaðamönn- um, að hún hefði aöeins verið 53 ára, þegar hún tók flugpróf- iö, enda er hún síöan búín að ferðast geyslmikið og meöal annars farið fimm sinnum yfir Atlantshafið, en auk þess flogið rrtikið um flestar heimsálfumar. Þaö má vera mikil lífsorka f svo fullorðinni konu, sem lætur sig hafa það að gera það sem hana langar til, þó það sé ekki endilega það sem fjöldinn iðkar á hennar aldri. ^fkoma hvers þjóðfélags er mjög komin umflr því hvemig tekst tfl mn skipulag verzlunarmálanna og hvemig verzlunarstéttin rækir sitt hlutverk. Tflgangur verzlunarinnar er tvi- þættur, að útvega landsmömnum vörur og veita þjónustu með sem hagkvæmustum kjörum, og hins vegar að leita markaða og koma í sem bezt verð þeim vörum og þeirri þjónustu sem landsmenn þurfa að selja úr landi. Vegna mjög ein- hliða atvinnu er afkoma íslenzka þjóðfélagsins enn háðari utanlands- viðskiptum en almennt gerist um þjóðir. Það skiptir miklu máli þjóðhags- lega, hvemig við meðhöndlum fram- leiðsluvörur okkar og hvemig hag- að er sölu þeirra á erlendum mark- aði. Það skiptir og miklu máli þjóð- hagslega að verzlunin sé þannig rek in og þannig búið að henni af hálfu ríkisvaldsins, að smásöluverzlun landsmanna sjálfra beinist til ís- lenzkra verzlunarfyrirtækja. Það má ekki eiga sér stað, að lands- menn kaupi stóran hluta neyzlu- vamings síns í erlendum smásölu- verzlunum, því að algengt er, að helmingur af verði því, sem ein- staklingar greiða í erlendri verzlun, sé greiösla fyrir þjónustu, húsnæði og skattgreiðsla til erlendra ríkja og sveitarfélaga, en aðeins helm- ingur kaupverösins er heildsölu- verð. Dæmi: Ef íslenzkir einstaklingar kaupa í smásöluverzlunum eriendis fyrir 300 milljónir króna á ári, þá leiðir það af sér bein aukagjaldeyr- isútgjöld fyrir íslenzka þjóðarbúið um 150 milljónir króna á ári, þ. e. upphæðin. sem þá fer til útlendu smásöluverzlunarinnar og í skatta til erlendra aðila. Ef þetta vöm- magn væri keypt erlendis I heild- sölu eða af framleiðendum og dreift af íslenzkum smásöluverzlunum, yrði heildargjaldeyrisevðslan líklega aðeins um 150 milljónir, þ. e. hið erlenda heildsöluverð eða hið er- lenda framleiðsluverð. Þessi auka- gjaldeyriseyðsla, sem hér er talað um, er „netto“ gjaldeyriseyðsla og svarar þv£ til útflutnings að krónu- tölu 300 millj. króna, ef t.d. um fiskútflutning togara er að ræða, en þar munu netto gjaldeyristekj- urnar vera um helmingur af út- 'lutningsupphæðinni. Það mun láta nærri, að meðal- verðmæti ársafla togara í dag geti verið um 30 milljónir króna. Þessi lítt hugsuðu kaup íslenzkra ein- staklinga £ erlendum smásöluverzl- unum mundu því éta upp allt aö þv£ helmingi af allri netto gjald- eyrisöflun togaraflotans. Finnst ykk ur það þýðingarlitið atriði? Allt þetta gerist vegna lélegrar verzlun- arþjónustu, sem leiðir fyrst og fremst af römgum aðbúnaði verzl- unarinnar, og af skilningsleysi al- mennings á þvf, hve þýðingarmikið er að verzla f eigin búðum i stað þess að verzla við útlenda smá- sala. Þetta litla atriði sýnir bezt, hvað það er mikið atriði fvrir þjóð- ina, að verzlun sé það góð, gefi það aóða þjónustu, að landsfnenn sjálf- ir verzli hér heima i stað þess að verzla erlendis. Ylfinningarlegt gilíK verzlunarinnar List í daglegu lffi Verzlunin hefur ekki aðeins þjóð- hagslega þýðmgu, heldur hefur hún og mikla menningarlega þýðingu, t. d. tel ég það mikinn menningar- auka að verzlanir séu snyrtilegar, fallegar, skreyttar listaverkum og búnar alls kyns þægindum. Miklum tíma einstaklingsins er eytt f verzl- unum og þjónustufyrirtækjum og finnst mér þvf þýðingarmeira að hafa fallega, menningarlega verzlun en ótal listasöfn, sem aðems fá- mennur hópur sækir nokkur skipti á ári hverju. Fáguð og Tipur fram- koma afgreiðslufólks er ekki sfður menningaratriði og sýnishom um líðan og framfarir fólksrns í land- inu en leikhús og rfkisstyrkt hljóm- sveitastarfsemi, að þessum aðflum ólöstuðmn. Einn sterkasti þáttur þjóðarupp- byggmgarinnar er góð og vel rekin innlend verzlim. Hvernig er verzlunar- þjónustan í dag? Þeir sem stóðu fremst f sjálf- stæðisbaráttu lslands, t. d. Skúli fógeti, Jón Sigurðsson og Hannes Hafstein, skildu þýðingu verzlun- arinnar. Sjálfstæðisbarátta okkar beindist fyrst og fremst að því, að við fengjum verzlunina í eigin hend ur. „Frjáls þjóð með verzlun eigin búða“. Það hefur oft skort mjög á, að almenningur og jafnvel ríkis- valdið geri sér grein fyrir þýðingu verzlunarinnar. Þegar þrengt hefur að þjóðarbúskapnum, hefur verið reynt að veita sem mestu af vand- ræðunum yfir á herðar verzlunar- stéttarinnar, með þeim afleiðingum, að verzlunin er nú f algjðru kalda koli, er t. d. ekki almenn verzlun- arþjónusta lélegri í dag í Reykjavík en hún var 1927? Verðlagsákvæði virðast hafa verið lausn hins ís- lenzka rfkisvalds á flestum fjár- hagsvandamálum. Víðar en á Islandi hefur verið gripið til verðlags- ákvæða, þegar sérstök þjóðhags- vandamál hefur borið að höndum, en þá oftast til skamms tíma og f því formi að revnt hefur verið að tryggja neytendum nauðsynjar á sem lægstu verði, án þessi að skerða tekjur verzlunar úr hófi fram. Þaö verður að telja hið rétta sjónarmið ' verðlagsmálum — að vemda neytendur — gæta hags- muna þeirra. Hitt — að beita verðlagsákvæð- um f þeim tilgangi fyrst og fremst að koma f veg fyrir ágóða kaup- sýslumanna, jafnvel þó að ekki sé verið að vernda neina nauðsyniega neytendahagsmuni, virðist alls 6- eðlilegt og úreft. Verðlagsákvæði hafa verið sett af handahófi og oft virðist, að ekki sé verið að vemda neytend- uma, heldur að refsa kaupmannin- um. T. d. eru verðlagsákvæði á skrautvamingi, silfurvörn o. s. frv., en nauðsynjar eins og tannviðgerð- ir, gervitennur og gleraugu undan- þegin ákvæðum. Hvi þá? Jú, það em ekki almennir kaupmenn, sem selja þessar vörur — þess vegna engin ástæða til verðlagsákvæða — vemd un almennings er aukaatriði. Verðlagsákvæði — glötun sjálfstæðis Mín skoðun er sú, að um aldirnar hafi stjórnvöld á lslandi beitt 6- heillaáhrifum óhugsaðra handahófs verðlagsákvæða, og það að við töp- uðum sjálfstæðinu á Sturlungaöld, virðist fyrst og fremst hafa verið afleiðing verðlagsákvæða þess tíma og tímabilsms á undan. Þá urðu kaupmenn svo fátækir, að þeir höfðu ekki efni á að endumýja skipakost sinn — þess vegna sækj- um við á náðir Noregskonungs. — Aðalatriði Gamla sáttmála: afsöl- um frelsi en áskiljum okkur sigl- ingu og verzlun. Er sagan ekki að endurtaka sig? Hvar er fjármagn útgerðarmanna og kaupmanna, sem nauðsynlegt er til þess að fjárvæða verzlun og skipakaup nú? Hvar eru peningar til togarakaupa og eigið fé til flugvélakaupa? Ef fjármagnið vantar. hvað er þá orðið um sjálf- stæðið? Eðlileg skipun verzlunar og verðlagsmála Ríkisverzlun Ég er þeirrar skoðunar, að sam- keppni, frjáls verzlun, sé bezta verðlagseftirKtið. Þetta er þó ekki einhlítt. Sérstaklega getur þetta ver ið mjög varhugavert, þar sem eru mjög fáar verzlanir sömu tegundar, eða jafnvel ein. Á íslandi má þvf setja fram það sjónarmið, að vegna einhæfðra og fárra verzlana komi til greina að gera sérstakar ráð- stafanir, sem ekki eru nauðsvnlegar í stærri löndum. Það var þó enn meiri ástæöa til þessa meöan sam- göngur voru verri og margir lands- menn ofurseldir einnj verzlun eða tveim. Með bættum samgöngum eiga menn almennt aðgang að fleiri verzlunum en áður var. Það má segja að kaupfélöigin séu frjáls og opin samtök fólksins og megi þvf treysta þeim til að gæta hagsmuna almennings í verðlagsmálum á full- nægjandi hátt. Ég tel, að með stofn- un kaupfélaganna hafi veriö stigið mjög mikilvægt sp>or f átt til bætts verzlunarástands í landinu. Því tel ég rétt, að kaupfélög og kaupmanna verzlanir séu reknar hlið við hlið með hliðstæða rekstursaðstöðu og sömu skattaaðstöðu. En vegna fólksfæðarinnar er samt ekki víst að þessi samkeppni sé nóg til að tryggja hagkvæma og eðlilega verð- myndun, t. d. f héruöum þar sem aðeins eru- ein eða tvær verzlanir, hvort sem eru kaupmannsverzlanir eða kaupfélög. Sumir hópar manna, til dæm- is sósíalistaflokkarnir, svo og sumir hagsmunagæzlumenn verka- lýðshreyfingarinnar, telja, að ríkis- rekstur á verzluninni sé eina ör- ugga lausnin á hagsmunaverndun almennings f verzlunarmálum. Tel ég eðlilegt að beita Innkaupastofn- un ríkisins meir en verið hefur, í þeim tilgangi að halda niöri vöru- verði. T. d. með því að hlutast til um innflutning á eða skipuleggja framleiðslu á vissum nauðsynjum, sem eru mjög þýðingarmiklar í und- irstöðukostnaði heimila, og hafa þannig meö verðlagi sínu stór áhrif á vísitölu og verðmyndun. Þá kem- ur til álita að athuga „utility" að- ferð Breta eins og hún var eftir stríðið, þ. e. gera ráðstafanir með skattaívilnunum og á annan hátt, til þess að verzlanir hefðu vissar nauðsynjar, vissar tegundir og gæðaflokka á ótrúlega lágu verði. Þá kæmi til greina, eins og mér skilst, að sé í vissum Austur-Evr- ópulöndum, að almenningur eigi Rost á nauðsynjum, t. d. matfrör- um, sem væru sérstaklega pakkað- ar og seldar mjög ódýrt, en allt þetta væri miðað við að tryggja fólki brýnustu nauðsynjar á sem lægstu verði og á sem hagkvæm- astan hátt, en allar aðrar vörur væru frjálsar. Þannig væru nauð- þurftir á miklu lægra verði en nú er, en síðar gætu menn fengið allt annað á frjálsum markaði og væru sjálfráðir um álagningu og verzlun- arform, svo og hvernig þeir verðu fjármunum sínum, og allt gert til að auka vöruframboð og úrval í landinu og væri sá þáttur fyrst og fremst f höndum almennra verzl- ana, og auk þess væri þeim gert mögulegt að keppa við Innkaupa- stofnunina um útvegun nauðþurft- anna, og verkuðu þannig sem æski- legt aðhald að beirri stofnun, en hún tryggði aftur, að ætíð væru á boöstólum umræddar nauðþurftir á þann hátt og í því formi, sem talið yrði heillavænlegast, t. d. kæmi til greina, að flestum smá- söluverzlunum, eða öllum, væri gert að selja umræddar vörur eftir nánar ákveðnum reglum. Þá tel ég og rétt, svo öillu réttlæti sé full- nægt, að stofnuð yrði Landsverzlun — smásöluverzlun —, rekin af rík- isstjórninni f samkeppni við kaup- menn og kaupfélög. Þessi verzlun hefði fyrst og fremst eina stóra verzlun í Reykja- vfk og eina á Akureyri, sem seldu þær vörur, er stjómendur verzlun- arinnar teldu sérstaklega ástæðu til að halda niðri verði á, og svo auð- vitað aðrar vörur, sem þeir teldu hagkvæmt að selja vegna rekstrar- afkomunnar. Þessi verzlun fengi ríflegt rekstursfé, en yrði að borga skatta og önnur gjöld á hliðstæðan hátt og önnur fyrirtæki. Hún yrði að borga bankavexti af öllu rekst ursfé sínu Einnig er eðlilegt að þessi verzlun yrði að haga rekstri sfn- um þannig, að hún skilaði eðlileg- um nettoágóða, þ. e. eins og talið er eðlilegt í nágrannalöndum. Að mínu áliti gæti þetta verzlunarform komið í stað núverandi verðlags- eftirlits. Ég teldi eðlilegt, að verkalýðs- hrevfingin ætti stóran hlut í stjórn þessa fyrirtækis. Þá ætti það að vera tengt Innkaupastofnun ríkis- ins. Með þessu móti yrði takmörkun á verzlunarfrelsi kaupmanna og kaupfélaga óþörf eða eins lftil og núverandi neyðarástand þjóðfélags- ins leyfir. Á þennan hátt kæmi og í Ijós, hvort sósfalistar hafa rétt fyrir sér, að verzlun rekin af rík- inu eigi meiri rétt á sér, væri hag- kvæmari í rekstri en einkaverzlan- ir. Eða hitt, sem kaupmenn halda fram, að slfk verzlun væri ekki samkeppnisfær. Þetta virðist sanngjörn lausn, sem tryggði raunhæft, lágt verð á mark- aðinum, myndaði þannig gmndvöll f baráttu við dýrtfðina og drægi þannig úr þörf síhækkandi kaup- gjalds, stuðlað þannig að traustum fjárhagsgrundvelli þjóðfélagsins. Núverandi ástand er óviöunandi og stofnar fjárhagslegu sjálfstæði þjóðarinnar í voða. Að lokum vil ég endurtaka þá viðvörun núna, að við eigum ekki að láta söguna frá Sturlungaöld endurtaka sig. Við eigum ekki að beita fráleitum verðlagsákvæðum, sem gera kaupmönnum og ýmsum öðrum þjónustumönnum þjóðarinn- ar ókleift að rækja starf sitt með árangri. Slíkt stefnir ekki til þjóö- arheillar, heldur í beinan voða. Ragnar Þóröarson. Útboð — Málun Tilboð óskast í utanhúsmálun á fjölbýlishús- inu Fellsmúla 6. Tilboð er tilgreini efni og vinnu sendist fyrir 15. þ. m. Níelsi Gíslasyni Fellsmúla 6, en hann veitir jafnframt allar uppl. um verkið. 3 Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. ú ' |.ti

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.