Vísir - 11.07.1969, Blaðsíða 4

Vísir - 11.07.1969, Blaðsíða 4
®!11M!«®S8 PERUTZ ■ . ■' ■■•■' '■■: ■ •v ;:ý fii Aujtsn- »nrf innsnauiftofimíit Ouidftof ontf iflrfoftf . . .... . .. . Sammy Davis harmar ekld aö hann skuli hafa gifzt sænsku leik konunni May Britt, heldur þvert á móti þykir fyrir því að hafa þurft að skilja við hana. — Allir ættu aö giftast þeim, sem þeir elska og það stendur gjörsamlega utan fordóma um hörundslit, sagðr Sammy Davis 1 sjónvarDSviðtali, en þá var hann spurður, hvort hann áliti að hjóna Sammy Davis harmar skilnaðinn við May Britt band þeirra May Britt hefði ver- ið dauöadæmt frá upphafi. Sammy Davis sagði, að með því að giftast Britt, hefði hann feng- ið flesta svertingja í Bandaríkj- unum á móti sér. Hefði þeim fundizt hann svíkja þá með því að giftast hvítri stúlku. Sammy tók það einnig sérstak lega fram, að hjónabandið hefði verið fultt af erjum, því að þau hjónin hefðu mætt alveg óskiljan legu hatri, bæði frá hvítum og svörtum. Luther King og Malcolm X fómuðu lífi sínu fyrir málstað negranna í Bandaríkjunum, en -. o langt vil ég ekki ganga, sagði" Sammy Davis. — Ég vil lifa og berjast fyrir því að sem flestir leikarar, sem eru negrar, komist £ sviösljósið. Því fleiri, sem kom- ast á toppinn, þeim mun sterkari erum við. S : Kennedy yngri í fallhlíf Kennedy-fjölskyldan hefur allt- af haft sérstakt dálæti á þeim íþróttagreinum, sem hættulegast- ar eru, og 16 ára sonur hins látna öldungardeildarþingmanns, Robert Kenrifetiy, er‘%Ágin uridlS> , tekning. Robert F. Kennedy ýogri er hér á myndinni nýlentur eftir fyrsta fallhlífarstökk sitt í Massa chusetts. Þaö er Denms Cicetti, sem er að hjálpa Robert úr öTIum böndum og snúrum failhlífarinn- ar eftir fyrsta óg vel heppnaða stökkið. Spáin gildir fyrir laugardaginn 12. júlí. Hrúturinn, 21. marz til 20. apríl. Það er ekki víst að helg’in verði að öilu leyti eins og þú gerðir þér vonir um, sízt ef þú hygg- ur á ferðalag, en þá skaltu vera vel við ýmsum minni háttar erf iðleikum búinn. Nautið, 21. apríl til 21. mai. Það er talsverð hætta á að þér finnist seint ganga og ýmislegt lenda í handaskolum — hjá þeim, sem þú hefur gert ein- hverja samninga viö £ sambandi við helgina, en ekki hjá sjáif- um.þér. Tviburamir, 22. mai til 21. júni. Þig brestur ekki hugkvæmni, fremur en endranær, en með skipulagsgáfuna er á stundum svona ðg svona. Þú átt góöa helgi framundan, ef þú treystir ekki á að allt heppnist af sjálfu sér. Krabbinn, 22. júni til 23. júlí: ’Taktu ekki um of ráðin af þeim, sem þú umgengst, þótt þér finn ist að þú sjáir betur. Aftur á móti verða ábendingar áreiðan lega vel þegnar, ef þú berð þær fram undir fjögur augu. Ljónið, 24. júlí til 23. ágúst. Góð helgi framundan, ef þú ferð gætilega og lætur ekki smávægi lega erfiðleika hrinda þér úr jafnvægi. Þú hefur í ýmsu að snúast, og útsjónarsemi þín kem ur þér og öðrum að góðu haldi. Meyjan, 24. ágúst til 23. sept. Það lítur út fyrir aö ekki gangi allt sem bezt fram eftir degin- um, og ef til vill sækir þig nokk ur kvíði. En smám saman breyt ist allt til hins betra, og heild- arútkoman verður góö. Vogin, 24. sept. til 23. okt. Seinlæti eða jafnvel þvermóöska kunningja eða náinna vanda- manna viröist gera þér gramt í geöi, en þó rætist aö öllum lík- i..dum betur úr en á horfðist. Gerðu þér samt ekki of miklar vonir. Drekin11, 24. okt. til 22. nóv. Þú átt í einhverjum vanda ef til vill áttu erfitt með að velja um eitthvað, og getur þá komið þar til greina að þú óttist að móðga einhvern — á hvom veg- irin, sem þú velur. Bogmaðurinn, 23. nóv. tM21. des. Sennilega gerirðu helzt til mikl ar kröfur til þeirra, sem bú um gengst, og ef til vfll tekst þér ekki að hafa taumhald á óþolin mæði þinni, en hvort tveggja ættirðu aö varast eftir megnL Steingeitin, 22. des. til 20. jan. Það er ekkí ósennilegt að þaö, sem þú einmitt ert að reyna að varast, verði samt sem áður, ein hverra óviðráðanlegra orsaka vegna. Eöa vegna þess að þig skortir festu þegar á reynir. Vatnsberinn, 21. jan. til 19. febr. Varastu allar vangaveltur, segöu umbúöa- og gremjulaust hvaö þér finnst, hvort sem það kemur sér betur eða verr. Að öðrum kosti er hætt viö að ó- ánægjan kraumi undir niðri. Fiskarnir, 20. febr. til 20. marz. Góð helgi, ef þú gætir hófs í kröfum þínum og áætlunum og ætlast ekki til of margs af sam feröafólki þínu. Taktu þvi með jafnaðargeði, sem kann að ganga úrskeiðis, þá verður aHt i lagi. PERUCHROME SUPER 8 FILMA SUPER s CARTRIDGE ÓDÝRASTA SUPER 8 litfilman á markaðinum l&tfARðÖTU 6B uumts

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.