Vísir - 06.09.1969, Blaðsíða 3

Vísir - 06.09.1969, Blaðsíða 3
útlönd útlönd í raorgun dtlönd í raorgun í morgun VlSIR . Laugardagur 6 september 1969. Konur dæmdar / Aþenu L ■ Þrjár konur í Aþenu hafa nú verið dæmdar i 8 til 11 í mánaöa fangelsisvist fyrir að aðstoða Grikkjann Pana- ? ' goulis við að flýja úr fangelsi fyrir u. þ. b. þremur mán- J 1 uðum. Hann var sem kunnugt er dæmdur ti! dauða fyrir I ) tilraun til að ráða forsætisráðherra herforingjastjórnar- i i innar af dögum, en fullnægingu dómsins frestað um ótil- l í tekinn tíma. Panagoulis var handtekinn á ný Allar kon- í í urnar eru skyldar honum. / Samúðarkveðja frá norskum kommúnistum Kommúnistaflokkur Noregs hef ur sent stjörnvöldum í Hanoi sain- úðarskeyti vegna fráfalls Ho Chi Minh forseta Norður-Víetnam. í skeytinu er farið mörgum fögrum orðum um lífsstarf hins látna for seta og ráðamenn í Hanoi hvattir til að fylgja stefnu hans fast eft- ir. Sendinefnd frá Egyptalandi kom í gær flugleiðis til Lýbíu þeirra er inda að afhenda hinum nýju vald höfum boðskap frá Nasser, forseta Egyptalands. Nöfn sendinefndar- manna hafa ekki verið látin uppi. Þá kom og með sömu flugvél til I skeytinu segir m.a, „Ho Chi Minh var í margra ára ötulli bar- úttu sinni gegn heimsveldissinnum og fyrir frelsi lands síns og sósial- isma einingartákn kommúnista um allan heim, sem berjast fyrir því að losna undan oki kapítalismans.“ Lýbíu Mohamed Abdel Halim, mar- skálkur, en hann er meðlimur hinn ar súdönsku sendinefndar í Kairó, höfuðborg Egyptalands. Hann flutti Lýbíustjórn boð frá forseta súd- anska byltingarráðsins; Möhamed El-Nimeiry. Uppsteytur við sendirúd USA í Tel Aviv Rúmlega 100 stúdentar frá Banda ríkjunum söfnuðust í gær saman fyrir framan bandaríska sendiráð ið i Tel Aviv og höfðu í frammi nokkurn uppsteyt. Þeir kröfðust þess, að Bandaríkjastjóm beitti sér fyrir því, að tveir ísraelskir ríkis- borgarar yrðu látnir lausir, en þeir sitia nú í fangeisi í Damaskus eftir að hafa náðst f átökum þar. Fjárhagsáætlun WHO 67 itiillj- ánir dollara 22. þing Alþjcöaheilbrigðis- málastofnunarinnar (WHO) var haldið f Boston í júlí s.l. Var þar gefið yfirlit yfir starfsemi stofnunarinnar árið 1968 og samþykkt fjárhagsáætlun fyrir árið 1970 sem nemur 67.650.000 } dollurum. Miðað við 1969 er um j að ræða 5.528.300 doilara hækk- un. Um 450 fulltrúar frá meira en 120 aöildarríkjum WHO sátu ráðstefnuna sem stóð í þrjár vikur. Forseti stofnunarinnar var kjörinn dr. William H. Stew- art frá heilbrigðismálastjórn Bandaríkjanna. . Uppreisnarstjórnin fær boðskap frá Nasser „Viljum við bjarga lífi fugla — eða manna?“ írska valkyrjan Bernadette Devlin er nú sem kunnugt er komin heim til írlands úr skyndiheimsókn sinni til New York, þar sem hún iagði áherzlu á réttindabaráttu kaþólskra á Norð- ur-írlandi. í ráði var, að ungfrú Devlin færi í vikuferð um Bandaríkin, en hún hvarf skyndilega heim með mikilli leynd. Hér sést hún ásamt borgarstjóra New York-borgar, John Lindsay, á tröppum ráðhússins, þar sem hún hafði áður átt viðræður við borgarstjórann. Frá Samvinnuskólanum Bifröst Á ráðstefnu í Bandaríkjunum, þar sem til umræðu voru vanda- mál tengd skordýraeitri, sagði dr. Ernst W. Nagelstein, sem er vfs- indalegur og tæknilegur ráðgjafi Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóð anna (UNDP), að algert bann við skordýraeitri á borö við DDT mundi leiða til mikilla hörmunga í mörgum löndum, og þá einkan lega í hitabeltislöndum. Við hina alþjóðlegu sérfræðinga sem sátu ráðstefnuna, lýsti hann ástandinu í stuttu máli á þessa leið: „Viljum við bjarga lífi fugla eða manna? Margir fuglar munu aldrei framar syngja, sé notkun skordýraeiturs ekki háö strangari takmörkunum. Á hinn bóginn verð ég að lýsa því yfir umbúðalaust, að algert bann við notkun skordýraeit urs mun hafa í för með sér, að milljónir manna munu aldrei fram ar heyra fuglasöng." „Það er í hæsta máta furöu- legt“ sagði dr. Nagelstein ennfrem ur, ,,að blað nokkurt í New York birti „minningarorð um DDT“ sama dag og fréttir bárust frá Puerto Rico þess efnis að sjúkdómur, sem berst með mýflugum hefði snögg lega gripið um sig á tilteknum svæð um. Þessi sami sjúkdómur heriaði fyrir nokkrum árum á rúma millj- ón eyjarskeggja og olli feikilegu tjóni. Ég hefði gaman af að leggja þá spurningu fyrir höfund ,nvnn ingarorðanna um DDT“, hvaða ráði hann mæli með til að losna við mýflugur...“ Samvinnuskólinn Bifröst byrjat starfsemi sína 25. september. Nemendur eiga að mæta í skólanum þann dag. — Að venju mur Norð- urleið h/f tryggja sérstaka ferð frá Reykja- vík. Verður lagt af stað frá Umrerðarmið- stöðinni kl. 14,00. kl. 2 e. h. S k ó 1 a s t j ó r í MYNDASYNING: í DAG KL. 2 0PNAR SÝNING Á EFTIRPRENTUNUM EFTIR: KÁRA, VETURLIÐA, EGGERT, HALLDÓR PÉTURSSON, SIGURÐ MÁLARA OG BENEDIKT GRÖNDAL SKÁLD SYNINGIN ER I BANKASTRÆTI 6, OG OPBN DAGLEGA FRÁ KL. 2-7 EH.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.