Vísir - 11.10.1969, Qupperneq 3
VISIR . Laugardagur 11. OKtóber 1969.
Vindlingar á dagskrá? Jón Kjartansson, forstjóri Áfengis- og
tóbakseinkasölunnar, ræðir við forsætisráðherra. Jón Kjart-
ansson tekur nú sæti Skúla heitins Guðmundssonar á þingi.
Blómi þjóðarinnar, kjörnir
fulltrúar fólksins, hittust i gær
viö setningu 90. löggjafarþings
okkar, heilsuðust, hlýddu á guðs
orö og forseta íslands.
Með það andlcga vega-
nesti munu þeir nú leggja
á brattann enn einu sinni
og ráða til lykta málefnum
þjóöarinnar eftir því sem orka
og vit leyfir. Illdeilurnar í vet-
ur voru faldar í vinarhótum
þingmanna á þessum degi, sem
einkanlega er til þeirra hluta
ætlaður. Svo hervæðast þeir, og
blöðin fyllast af frásögnum,
meira og minna réttum en oft
brengluðum í útlistunum orða
og athafna. Það er fátítt, að
menn fhugi í alvöru, hvort þess-
ir menn vilji ekki allir vel þjóð
sinni, fleiri frýja þeim velvild
ar, sumum hverjum eða öllum
upp til hópa.
Það er haft eftir þingmanni
stjórnarandstööunnar, að nú
verði ekki um „kollsiglingu" aö
ræöa eins og í fyrra og hitteð
fyrra. Taldi andstaðan það 6-
nýtt, sem stjómarsinnar ætluðu
til farsældar. Illar væru gengis
lækkanir með verðhækkunum
og kjaraskerðingu, sem þar kom
fram en hafði áður skapazt í
raun vegna aflaleysis og verð-
hruns á erlendum mörkuðum.
Af nógu er þó að taka, og ekki
mun skorta stóryrðin í vetur.
„Alþingi götunnar“ mun ef til
vill koma til skjalanna til stuðn
ings minnihlutamönnunum, sem
ekki ríða feitu hrossi frá um-
ræöum ella að eigin áliti.
Mikill vilji er fyrir breyting-
um á hinu staðnaðan þingkerfi.
Ómerkilegustu mál þings eru
jafnan mest rædd í sölum þess.
Fyrirspumir urðu í fyrra al-
ger „farsi“, tóku óratfma, sjón-
leikur með klappliði. Eru menn
úr öllum fiokkum einróma um
þörf breytinga til þess að tími
manna nýtist betur til afgreiöslu
þarfra mála frá mönnum allra
flokka. Hitt er óvíst, hvort ein-
hverjar úrbætur verða gerðar.
Loks munu væntaniegar
sveitarstjómarkosningar setja
svip sinn á störf þingsins undir
lokin. Þar mun verða vettvang-
ur átaka, til stuðnings frambjóð
endum um land allt.
Þingmenn heiisuöust í gær og
spáðu fremur heiðskfm með
skúram.
Hlý handdök. Forsetahjónin og kirkjunnar menn, séra Pétur Sigurgeirsson og Sigurbjöm
Einarsson biskup.
Fremur heiðskfrt
með skúrum
Alþingi sett i gær
Hannibal Valdimarsson heilsar biskupi Islands og forseta Islands.
KVENFÉLAG BÚSTAÐASÓKNAR
heldur skemmtun
að Hótel Sögu
sunnudaginn 12o okt.
F J ÖLSKYLDU SKEMMTUN
■ Tízkusýning barna
■ Pétur og Birgir úr Ásgarði syngja
■ Danssýningar. Börn úr dansskóla H. R.
■ Tvísöngur: Sigurveig Hjaltested og Guðmund-
ur Guöjónsson.
VEIZLUBORÐ
Aðgangseyrir: Böm kr. 50, fullorðnir kr. 150. Húsið opnar
KVÖLDSKEMMTUN
■ Gamanvísur, Jón Gunnlaugsson
■ Tízkusýning Modelsamtakanna
■ Danssýning. Henný Hermannsdóttir og Örn
Guðmundsson.
■ Einsöngur Guðmundur Jónsson
Áðgangseyrir: Kr. 100. — Húsið opnar kl. 7 eftir hádegi.
klukkan 3 eftir hádegi.
Kynnir Hermann Ragnar
Aðgöngumiðasala að Hótel Sögu laugardaginn 11. október frákl. 2 til 5 eftir hádegi og við innganginn.