Vísir - 11.10.1969, Page 8

Vísir - 11.10.1969, Page 8
8 Útgefandi: Reykjaprent h.f. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjðri: Jónas Kristjánsson Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingar: Aöalstræti 8. Símar 15610, 11660 og 15099 Afgreiðsla: Aöalstræti 8. Sími 11660 Ritstjórn: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur) Áskriftargjald kr. 165.00 á mánuði innanlands I lausasölu kr. 10.00 eintakiö Prentsmiðja Vísis — Edda h.f. Sýndarplagg Jþað er auðvelt verk að setja saman stjórnmálaálykt- anir, sem líta vel út á pappírnum. Svonefnt „flokks- ráð“ Alþýðubandalagsins fékk eina slíka birta í Þjóð- viljanum núna í vikunni. Sameiginlegt einkenni slíkra ályktana er oftast að flokkarnir, sem sjóða þær sam- an, þykjast kunna ráð við öllum vanda, en láta þess jafnan ógetið, hvernig eigi að framkvæma allt, sem þar er upp talið. Yfirleitt er ekki á það minnzt, hvar laka skuli fjármagnið, sem til þarf. í fyrrnefndri á- lyktun Alþýðubandalagsins er þess t. d. krafizt, að ríkisstjórnin geri þegar samninga um smíði á 15 skut- togurum, en ekki minnzt einu orði á með hverju eigi að greiða skipin. Og ekki mun þeim Alþýðubandalags mönnum heldur hafa komið til hugar, að erfitt geti orðið að manna þennan flota starfshæfum áhöfnum. Ekki virðast þeir óttast það heldur, að erfitt gæti orðið að fá kaupendur að þessum togurum enda ætU- ast þeir eflaust til að ríkið geri þá út, ög kannski sveitarfélögin, þrátt fyrir þá reynslu, sem þegar er fengin af bæjarútgerð. Krafa um stórauknar íbúðabyggingar, „einkum á félagslegum grundvelli“, fer líka vel á pappírnum, en skollinn er bara sá, að fé þarf til að byggja íbúðir eins og togarana. íslendingar hafa varið stærri hluta þjóð- arteknanna til íbúðabygginga á undanförnum áratug- um en flestar aðrar þjóðir, og raunar meira en talið er þjóðhagslega fært víðast annars staðar. Og það er, sem kunnugt er, mörgum útlendingum frá stórum og ríkari þjóðum undrunarefni, hvað við höfum getað gert á því sviði á svo skömmum tíma ásamt t. d. því, að koma upp samgöngukerfi um nálega allt landið. Hin stórkostlega uppbygging, sem framkvæmd hefur verið frá því að viðreisnarstjórnin kom til valda, af- sannar bezt þá fullyrðingu stjórnarandstæðinga, að landinu hafi verið illa stjórnað síðasta áratug. Hlutur stjórnarandstöðu getur stundum verið nokkur í slíkri uppbyggingu, en því hefur ekki verið til að dreifa hér. Þvert á móti hafa andstöðuflokkar ríkisstjórnarinn- ar reynt að torvelda henni störfin og skapa erfiðleika, sem að öðrum kosti hefði mátt komast hjá. Raunhæf- ar tillögur hafa aldrei komið fram frá þeim til lausnar nokkrum vanda. Alþýðubandalagið „bendir á“ að möguleikar séu á aukinni framleiðslu sjávaraflans og betri nýtingu hans og að í iðnaðarframleiðslu bíði úrlausnar mikil verk- efni, eins og þetta séu ný sannindi, sem kommúnistar hafi uppgötvað. Vita þeir ekki að í mörg ár hefur verið unnið að athugunum og rannsóknum á þessum svið- um? Þeir, sem lesa þessa svokölluðu stjórnmálaálykt- un með athygli, hljóta að sjá að hún er ekkert annað en slagorð og tilraun til að eigna kommúnistum hug- myndir og frumkvæði að hiutum, sem lengi hafa verið;-j í undirbúningi og sumpart er verið að framkvæma. il i. 11 V1SIR . Laugardagur 11. október 1969. Bandarikjamenn æ óánægð ari met' Víetnam — Gj'órbreyting á tveimur árum Óánægja Bandaríkja- manna með styrjöld sína í Víetnam fer óðum vax andi. Sex af hverjum tíu eru nú sannfærðir, að Bandaríkjamönnum hafi orðið á mistök, að þeir skyldu nokkru sinni flækjast í stríð þetta í fjarlægu landi. Þessi við- horf eru gjörbreyting á því, sem var fyrir einum tveimur árum. Það gerðist á dögum Kóreu- stríðsins, að árið 1952 í apríl lýstu 52 af hundraði sig andvíga styrjöldinni þar eða töldu að minnsta kosti, að hún væri „mis tök“. Nú er andstaðan gegn Víet namstríðinu orðin meiri en þetta. Johnson forseti settist að völd um með stuðning 79 af hundr- aði.Bandaríkjamanna I skoöana- könnunum, en hann hrapaöi nið ur í 35% I ágúst 1968, mest vegna óánægju með þráteflið og mannfallið f Víetnam. Nokkur meirihluti fólks eða 52% telur sig enn ánægt meö hvernig Nixon haldi á málum í Vletnam, en þetta hlutfall hef- ur enn fallið frá 15. september. — Fólk var spurt: „Haldið þér, að Banda- ríkjunum hafi orðið á mistök, þegar þau sendu hermenn til Víetnam?“ 1 lok síöasta mánaðar: Já 58% Nei 32% Óvissir 10% — en I -stríðið í Víetnam ægir saman hem- aðartækjum og fátækum bændalýð landsins. marz síðastliðnum sðgðu 52% já , við þeirri spumingu og 39% nei. Skoðanakannanir f fyrra sýndu allt áriö, að meirihlutinn var andvígur stríðinu, og um- skiptin höfðu orðið um áramótin 1967—1968. Þannig höfðu fleiri veriö ánægðir I desember 1967, 45% lýstu þá óánægju sinni, en 46% töldu, aö ekki væri um mis tök að ræöa. Næsta ár á undan, 1966, var jafnan meirihluti fylgj andi styrjöldinni, en um þriðj- ungur óánægður með hana. Hins vegar telja menn Nixon ekki halda illa á spilunum, úr því sem komiö er, og mun þaö að nokkru byggjast á þeirri skoö un, að hann hyggist nú smám saman draga úr afskiptum Bandaríkjanna og kalla heim her menn þeirra þar. 52% Bandaríkjamanna voru ánægöir með stefnu Nixons i Víetnam og 32% óánægðir I lok síðasta mánaðar. Mikill áróður er nú hafður í frammi af andstæðingum Víet- nam-stríðsins í Bandaríkjunum. Ópíum- og mannaþef- arar? „Þefarana", sem notaðir eru í Víetnam til að komast aö því hvar herflokkar halda sig, má að laga og breyta svo að með þeim má uppgötva ólöglega ópíum- akra. Bandaríkjamönnum er það þyrnir I augum að ópíum er rækt að I nágrannalandinu Mexíkó og hafa þeir boöið Mexíkönum flugvélar til að finna sökutíófg- ana og úða akrana með eitur- efni. I Víetnam eiga „þefararnir“ i erfiðleikum með að greina menn frá öpum. Það væri sorglegt, ef þeim reyndist jafnerfitt að skilja á milli ópíums og kart- aflna.“ The Guardian (London). Of háu verði keypt? „Menn hafa þaö á tilfinning- unni, aö hátíðahöldin á 20 ára afmæli stofnunar kínverska al- þýðulýöveldisins hafi veriö með minna sniði og meiri sáttfýsi hafi ríkt en verið hefur um slíka atburði fyrr. Líti Mao og aðrir leiðtogar Kínverja yfir farinn veg, geta þeir ekki aö öllu leyti verið ánægöir með sjálfa sig. Ef til vill væri bað rangt aö seass að Kínverjar hafi keypt pess: byltingarár „of háu verði“. Þeir greiddu en meira fyrir þau 25 ár borgarastyrjaldar, sem á und an fór, ár borgarastyrjaldar, er- lendra yfirráða og auðmýking- ar. Engu siöur verður þessi þjóð að brauðfæða fjóröung af íbúum heimsins á aöeins átta af hundr aði af ræktanlegu landi. Þetta er gífurlegt vandamál. Neue Ziircher Zeitung. (Zúrich). eaaaisuaaKaBrt.'''--.... m.-g: sæi.i'.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.