Vísir - 11.10.1969, Síða 12

Vísir - 11.10.1969, Síða 12
72 V í S IR . Laugardagur 11. október 1969. *«57í«V£ MI £7 ATTÍNTATFORS0C, MOD M16 7AL7B SfflOT - 06 AmNTATMANDÍN, EN AF DOMENÍS’ LAKASEH, Eg I DISSE MINUJTER 4 V PS VEJVL EÆN6SLET f mpvisi Et HER LKRE MBl ? DU VII RI6V6T KUNNE HV66E DI6 HERUDE VUMOB6EN TIDLI6 ! nti’in tonamua „Orörómurinn um samsæristilraunina „Er ekki fagurt hérna? Þú munt vafa- gegn' mér átti við rök að styðjast og laust kunna vel við þig þar til snemma í samsærismaðurinn, einn af handbendum fyrramálið.“ Domenes, er á þessari stundu á lciö í fangelsið.“ EDDIE CONSTANTINE B < 82120 ■ rafvélaverkstædi s.melsteds skeifan 5 AFGREIÐSLA AÐAISTRÆTI S SÍMI T-16-60 Þeir eru allir á leiðinni i einhverja holu. Hvers vegna? Skyldi það slanda í einhverju sambandi Guð minn góöur... V«rtu mér mis- viö mig? kuimsamur. Tökum að okkur: ■ Viðgerðir á rafkerfi dínamóum og störturum. ■ Mótormælingar. ■ Mótorstillingar. B Rakaþéttum raf- kerfið. Varahlutir á staðnum. „Mér er þetta á móti skapi“, mælti hann enn. „Það er kominn tími til að leggja af staö. Annars missi ég af flugvélinni." „Við höfuin nægan tíma“, sagöi ókunni maóurinn á þýzku. „Þegiöu", skipaöi Kurt. „Réttu mér skammbyssuna", sagöi hann siðan viö Parker. En Parker hreyfði sig ekki. „Pró fessorinn hefur á réttu aö standa“, sagöi hann. „Við megum ekki tefja lengur.“ „Við erum aö fara ... Réttu mér byssuna...“ Parker hreyfói sig ekki enn. Foley þóttist skynja, aö meölimir Smára-hreyfingarinnar væru i ein- hverjum vafa, eöa jafnvel ekki á eitt sáttir — og þá aö öllum likind- um i sambandi við það að afhenda Þjóðverjanum pröfessorinn. Þaö leit ót fyrir, að flugvél biði ein- hvers staöar, sennilega á Shannon- flugvellinum. Þeir hrósuðu bersýni lcga happi aö hafa komizt yfír böggulinn, en voru aftur á móti ekki vissír um, hvaö þeir ættu aö gera viö þá, Foley og Oscar. Virtust ekki vera undir þaö búnir aö leysa slíkt vandamál. Þaö var ekki gott að segja, hvaöa hlutverk sá nef- stóri lék þarna, en þeir í Smára- hreyfingunni virtust ekki hafa hug mynd um afskipti hans. Foley var ekki viss í sinni sök, en hann gerði ráö fyrir, að Parker mundi ekki vilja beita marghleyp- unni. Parker var huglítill — og það geröi Kurt sér Ijöst. Kurt var hins vegar hvorki huglítiil né viðkvæm ur fyrir hlutunum. Sá Ijóshæröi fantur var þar í flokki meö Mc Carthy, sem stóö við dyrnar og beið tækifæris til aö fá að beita kröftum sínum, rétt eins og hnefa leikari í þyngsta flokki biður þess úti í homi sínu að. bjallan klingi. Foley hélt riiðri í sér andanum. Hann geröi sér þaö fyllilega ljóst, að hann mundi bera beinin á ír- landi, ef Parker afhenti Kurt byss- una. Þeir Oscar báðir. Foley rauf þögnina. „Hvem fjandann er sá nefstöri að gaufa?“ spuröi hann, án þess ’ að beina spurningunni til nokkurs eins af þeim félögum. „Hann mælti sér mót viö okkur hérna.“ „Hvað sagöi ég ykkur ekki?“ hrópaöi McCarthy úti við dyrnar. „Þögn ...“ hvæsti Kurt, „Það er um seinan nú. Parker ... réttu mér marghleypuna tafarlaust...“ Parker hikaöi — en aðeins and artak. Þegar hann gekk skrefi nær Kurt og hugðist afhenda honum byssukriliö, heyröist kallað ein- hvers staöar úti fyrir. Þeim félög- um brá og lögöu við hlustirnar. „Doktor Foley... doktor Foley?“ Þaö var auðheyrt nú, aö kallað var niðri í vindustiganum. Meðlimir Smára-hreyfingarinnar inni í svefn- herbergi jarlsins stóðu sem stjarfir og hlustuöu. „Doktor Foley ...“ Röddin var nú mun nær, og berg málaði í veggjunum við vindustig- ann. Foley var i þann veginn aö svara kallinu, en Kurt varö fyrri til. „Gæt ið dyranna...“ skipaði hann. „Fel- ið prófessorinn þarna á bak viö lokrekkjuna." Og skyndilega voru allir komnir á hreyfingu, rétt eins og á Ieiksviði. Kurt sleppti bögglinum og rétti út höndina eftir marghleypunni. Áöur en hann náði tökum á skot- vopninu,'hafði Oscar stokkið leift- ursnöggt á Parker. Skothvellur kvaö við. Nokkurt brot úr andrá stóöu all- ir grafkyrrir í miöri hreyfingu, likt og þegar kvikmynd stöövast á tjaldi. Svo voru allir komnir í hörkuslagsmál. Þeir Oscar og Park er veitust um á gólfinu. McCarthy og Burke varöstjóri flugust á í dyrunum. Það var eins og svefn- herbergið væri allt i einu oröiö yfir fullt af mönnum, sem slógust. Foley skreiö sem næst veggnum. Skotbyellurinn haföi gersamlega svipt hann allri heyrn i bili, svo að hann fylgdist með þvi, sem gerð ist eins og á þögulli kvikmynd. Hann sá silfurgljáandi byssu- kriiið skotra eftir gólfinu og inn undir lokrekkjuna. Einhvern veginn skreiddist hann á fætur, ætiaöi aö smeygja sér yfir aö lokrekkjunni. Þeir slógust sem harðast allt í kring um hann. Hann kom auga á Sheri- dan lögregluforingja regnkápu- klæddan í miðri þvögunni, og sá ekki betur en að hann væri aö slást við holdskarpa Þýzkarann. Ein hver rak olnbogann harkalega i síðu honum og hann hneig aftur nið ur á gólfið, á bæði hnén. Loks skreiö liann á milli fólanna á ein- hverjum, greip báðum höndum um fótleggina á viökomandi og kippti honum um koll, það var prófessor- inn, sem féll á hann ofan, viðlíka þungur og kjúklingur. Aftur á móti var einkennisklæddi Iögregluþjönn- ínn, sem datt um þá og ofan á bá, öllu þyngri, og var nú svo kom iö fyrir Foley, að hann lá endilang- úr á grúfu á gólfinu undir kösinni, og haföi hendurnar undir andlitinu sér tíí VajFnár. Einhver rak úþp ösk- urkennt vein rétt hjá, þegar Foley Ieit undan þvögunni sá hann hvar Burke varöstjóri hneig niður á gólf ið og hélt báöum höndum um kvið sér. Oscar og Sheridan lögreglufor- ingi börðust við Kurt, og gættu þess ekki aö McCarthy var lagztur á hnén viö lokrekkjustokkinn og þreifaði með höndunum undir hann eins og hann væri að leita að ein- hverju þar á gólfinu. Andartaki síð- ar spratt sá fantur á fætur aftur, augu hans skutu leiftrum og skammbyssan silfurlita glampaöi í hendi hans. Og annar skothvellur kvað við. Foley Iokaöi augunum í skelf- ingu, þegar hann opnaði þau aftur, sá hann í bakiö á Oscari. Hafði Oscar gripið með annarri hendi um úlnlið þeirrar handar McCarthy, sem á byssunni hélt, hina höndina reiddi Oscar hátt meö flatan lóf- ann, þótti Foley sem hvini víð, þeg ar lófajarkinn skall í hnakkagróf McCarthys, sem hneig niðnr eins og ullarpoki, án þess að gefa frá sér hösta eða stunu, og angun brostin eins og i frosnum fiski. „Gætið að Parker..hrópaði Foley. Hann heyröi ekki emu sinni tð sin sjálfur. Hafí einhver annar heyrt hróp hans, veitti sá því ekbi athygli. Parker hafði losnaö ur á- tökunum og laumaðist i átt til dyra. Foley klöngraðist einhvem veg- inn á fætur. Hann bar að dyrunum samtímis Parker og greip um arm honum. Það kom til nokkurra á- taka, en Parker tökst að komast út fyrir þröskuldinn. Parker var ef til vill ekki mesti garpurinn i liði Smára-samtakanna, en hann var þö meiri burðamaður en Foley. Hann greiddi Foley íððrung, sem nægði til þess að gleraugun fuku af honum um Ieið og hann féll flatur neðst á stigaþrepið. Þaö varð þö til þess að Parker lokaðist leið in niður stigann, svo hann átti ekki nema um það tvennt að velja að hverfa aftur inn í hið fræga svefn- herbergi jarlsins, eða halda hærra upp i vmdustigann. RIKUÓRN LAUGAVEGI 178 SfMIT-W^O

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.