Vísir - 19.11.1969, Blaðsíða 2
2
VTSIR . Miðvikudagur 19. nóvember 1969.
Erlendir keppendur á ve trar-
íþróttahátið ÍSláAkureyrí
Háfíðin verður unt onánaðumÖfin febrúar-murz
EINS OG ÁÐUR hefur verið
skýrt frá hér í blaðinu hefur
íþróttasamband íslands ákveðið
að efna til íþróttahátíðar 1970 í
tilefni þess, að það ár verður
haldið 50. íþróttaþing ÍSÍ. Há-
tfðin verður í tvennu lagi, sum-
arhátíð í Reykjavík 5.—11. júlí
og vetrarhátíð á Akureyri 28.
febrúar til 8. marz. í tilefni af
vetrarhátíðinni voru blaðamenn
boðaðir á fund undirbúnings-
nefnda þessara hátíða á laugar-
daginn og skýrði Jens Sumarliða
son, Akureyri, frá vetrarhátíð-
inni og undirbúningi hennar.
Þar kom fram, að framkvæmda-
stjóm ÍSÍ skipaði á síðastl. vetri
nefnd á Akureyri, sem sjá skyldi
um Vetrariþróttahátíöina, og eru
eftirtaldir menn í nefndinni: Jens
Sumarliðason, formaður. Hermann
Sigtryggsson, ritari, Ingólfur Ár-
mannsson, gjaldk., Pétur Bjarnason
varaform., Hreinn Óskarsson með-
stjómandi.
Einnig eiga sæti í nefndinni:
Fulltrúi iBA Hermann Stefánsson
Fulltrúi Skíöar. Ak. Óöinn Ámason.
Fulltrúi Skautaráðs Ak. Birgir Á-
gústsson.
Þá skipaði Framkvæmdastjóm
ISÍ trúnaöarmenn:
Siglufjörður: Helgi Sveinsson
Ólafsfjörður: Stefán B. Ólafsson.
Húsavík: Stefán Benediktsson
ísafjörður: Guðmundur Ingólfsson
Reykjavík: Stefán Kristjánsson.
Þá sagði Jens m.a.: — Undir-
búningsnefnd vetraríþrótta hóf
störf þegar á síðastl. vori með því
að kanna möguleika á byggingu
nýrrar stökkbrautar og vélfrysts
skautasvells á Akureyri.
Því miður varð lítill árangur af
þessu starfi nefndarinnar. Sam-
kvæmt mælingum og athugunum
reyndist stökkbraut í Hlíðarfjalli
of kostnaðarsamt og erfitt mann-
virki nú. Var því samþykkt að
fresta því máli og ákveðið að endur
bæta stökkbraut og aðstæður í
Snæhólum. Sl. sumar voru einnig
gerðar mælingar og tillöguupp-
drættir af vélfrystu skautasvelli
við Sundlaug Akureyrar og einn
ig við íþróttaleikvang bæjarins. —
Skipulagsnefnd Akureyrar og bæjar
ráð hafa enn ekkj séð sér fært aö
taka endanlega ákvörðun um stað-
setningu vélfrysts skautasvells og
því fyrirsjáanlegt að verður ekki
byggt fyrir væntanlega Vetrarí-
þróttahátíð.
Af þessu leiðiir að skautaíþrótt-
inni verða ekki gerð þau skii, sem
þyrfti og verður hlutur skauta-
íþ«ótta minni en áætlað var.
Veður (frost) mun ráða þar um
æfingar, einnig um keppni á sjálfri
hátíðinni. Þá er einnig útilokaö að
hægt sé að koma upp sýningum
og öðrum atriðum með þátttöku
útlendra í skautaíþróttum.
Bæjaryfirvöld hafa samþykkt eft
ir tillögu Iþróttaráðs Akureyrar að
fram færu endurbætur á akveginum
upp í Hlíðarfjall og mun þaö verða
mjög til bóta og koma að góðum
notum um Vetraríþróttahátíðina.
keppni, en af áðurgreindum ástæð-
um er óvíst um gesti og nánari
tilhögun í þessum greinum vetrar
íþrótta. Skautaráð Akureyrar ann
ast þessar framkvæmdir.
Sögusýning, þar sem sýndir
verða munir, skíöi, skautar o.fl. frá
gömlum og nýjum tímum, verður
opin meðan á hátíðinni stendur, og
mun fyrir hátíöina verða gefið út
rit, sem greinir frá í stórum drátt
Skrifstofa Vetraríþróttahátíðar-
nefndar er í Hafnarstræti 100, Akur
eyri, sími 12722. Pósthólf 128 og
546. Viðtalstími 5—7 alla virka
daga.
Dagskrá hátfðarinnar verður
þessi:
Laugardagur 28. febr.
Kl. 17,00 Setning hátíðar á iþrótta
leikvangi bæjarins. Vígsla Snjó-
mynda.
Kl. 20,00 Opnun sögusýnlngar.
Sunnudagur 1. marz:
Kl. 14,30 Skfðastökk karla og ungl
inga 17—19 ára.
Kl. 17,30 Skrautsýning f Hlíðar-
fjalli.
Mánudag 2 marz:
Kl. 12,00 Stórsvig, unglingar.
Kl. 14,30 Ganga, unglingar.
K1 17,00 Hraðhlaup á skautum (500
og 3000 m.)
Þriöjudagur 3. marz:
Kl. 11,00 Svig, unglingar (stúlkur)
Kl. 13,00 Svig unglingar (drengir)
x 2 - 1 x 2
Vinningar í getraunum
(16. leikvika — leikir 15. nóvember.)
Úrslitaröðin: xxl—111—12x—111
Fram komu 23 seðlar með 11 réttum:
Vinningur kr.: 10.700.00
1046 Akureyri 19307 Reykjavík
4031 ísafjöfður 19530 Garöahreppur
6352 Ólafsfjörður 19639x Reykjavík
8174 Eskifjörður 20661 Reykjavík
12644 Reykjavík 20826x Reykjavík
14468 Reykjavík 21620 Reykjavík
15130 Reykjavík .24254x Reykjavik
15701 Reykjavík 26345 Reykjavík
17192 Reykjavík 26837 Reykjavík
18566 Reykjavík 27549 Ytri-Njarðvík
18698 Seltjarnarnes 28773 Reykjavík
19060 Reykjavík
x Nafnlaus
Kærufrestur er til 8. des. Vinningsupphæðir geta lækk
að ef kærur reynast á rökum reistar.
Vinningar fyrir 16. leikviku verða greiddir út 9. des.
GETRAUNIR
Iþróttamiðstöðinni, Reykjavík.
Járnsmiður — vélsmiður
Okkur vantar vanan smið til að sjá um smíði á fram-
leiðslu vöru okkar.
STÁLVIRKINN
Borgartúni 24. — Sími 25260.
Frá Hlíðarfjalli við Akureyri
Af ofangreindum ástæðum hefur
undirbúningUr hátíðarinnar tafizt
verulega en nefndin vonar að hér
eftir gangi undirbúningur samkv. á-
aétlun miðað við þær aðstæður, er
fyrir hendi eru.
Nú eru 30 — 40 manns í starfi
og verður reynt að hafa Vetrar-
iþróttahátíð ÍSf sem fjölbreyttasta.
Setning hátíðarinnar mun fara
fram 28. febr. á íþróttaleikvangi
bæjarins og er þess vænzt að allir
keppendur og hátíðargestir verði
þá komnir til Akureyrar. Veröur
vandaö til setningarhátíðarinnar
svo sem unnt er m.a. munu íþrótta
fólk, gestir og starfsfólk fara í
skrúðgöngu inn á leikvanginn, sem
veröur í hátíðarbúningi.
Skfðaíþróttir, sem fram fara (
Hlíðarfjalli, verða stór hluti á hátíö
mni. Keppt verður í alpa- og nor-
rænum greinum í karla, kvenna og
unglingaflokkum, þá munu koma
5 — 6 keppendur f þessum greinum
frá Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. —
Skíðaráð Akureyrar sér um þessa
hl:ð hátíðarinnar.
Á íþróttaleikvanginum mun fara
fram skautahlaup og ísknattleiks-
en þar veröa alpagreinar íþróttahátíðarinnar.
um sögu vetraríþrótta á íslandi.
Útgáfu ritsins og sögulýsingu hefur
Haraldur Sigurðsson, bankagjald-
keri, forgöngu um.
Yfir hátíðina verður gefiö út
dagblað, sem inniheldur m.a. við-
töl við forystumenn fþróttamála
o.fl. fréttir af hátíðinni og úrslit
frá mótum. Haraldur M. Sigurðs-
son fþróttakennari og Svavar Otte
sen prentári hafa þar útgáfustjóm
á hendi.
Hátíðargestir eiga kost á marg
víslegri skemmtan, alla daga vetr-
arhátíðarinnar.
Skíðaferðir Hlíðarfjall, skauta-
iðkun. Efnt til keppni og ferðjí-
laga fyrir gesti. Samkomur og mót
verða í kvöldskrá. Skákmót, bridge
mót, leiksýningar, kabarett, dans-
leikir fyrir unglinga og fullorðna,
kvikmyndasýningar o.m.fl. Yfirum
sjón með þessum lið hátíðarhald-
anna hafa þeir Ólafur Stefánsson
og Þórarinn B. Jónsson.
Geta má þess að í undirbúningi
og á sjálfrj Vetraríþróttahátíðmni
munu starfa um 150 manna að lang
mestu leyti í sjálfboðavinnu.
Kl. 17,00 Hraðhlaup á skautum
(1500 og 5000 m)
Miðvikudagur 4. marz:
Skíða og kynnisferðir í Hlíöarfjalli
keppni gesta og feröafólks í ýms-
um atriðum.
Fimmtudagur 5 marz:
Kl, 14,30 Skíðastökk, norræn tví-
keppni.
Kl. 16,00 Sleðakeppni.
Föstudagur 6. marz:
KI. 13,30 Stórsvig kvenna
Kl. 14,00 Stórsvig karla
Kl. 15,30 15 km ganga
Kl. 20.30 Isknattleikskeppni.
Laugardag 7 marz:
K1 13,30 Svig kvenna
Kl. 14.00 Svig karla
Sunnudag 8 marz:
Kl. 14,00 Boðganga
Kl. 17,30 Lokaathöfn á iþróttaleik-
vángi bæjarins.
Allan tímann: Skákmót, bridgemot
leiksýningar, kabarett, dansleikir,
kvikmyndir ofl.
Hátíðarnefnd áskilur sér rétt.til
breytinga á dagskránni ef þörf kref
ur.