Vísir


Vísir - 19.11.1969, Qupperneq 3

Vísir - 19.11.1969, Qupperneq 3
V í SIR . Miðvikudagur 19. nóvember 1969. 3 Kaupum hreinar léreftstuskur Prentsmiðja VISIS Laugavegi 178 Margfaldar skilar 11 stafa út- komu á strimil. TEC er létt og liraðvirk, framleidd með sömu <röfum og vélar í hærri verðfl. 0 Fullkomin viðgerðaþjónusta. VÉLRITINN Kirkjustræti 10. Reykjavík. — Sími 13971. ILa aÆaMi juiomi SsfL ÍJÍ^ lítt ahur í landsfíðmu TECAM-601 — Landsleikir við Noreg 4. des. og Austurriki 7. og 8. des. Þetta kom fram f gær, þegar landsliðsnefnd Handknattleikssam- bandsins valdi leikmenn gegn Norð mönnum og Austurríkismönnum, en síðari leikurinn í undankeppni heimsmeistarakeppninnar við Aust urríki verður háöur í Vínarborg hinn 7. desember. Daginn eftir mun íslenzka landsliðiö leika annan landsleik við Austurríki og verður sá leikur háður í Graz, Tólf leikmentt* voru valdir í för- ina og Jón Hjaltalín kemur svo á móts við liðið í Osló. Fararstjórar verða Jón Ásgeirsson, Jón Erlends son og Hilmar Björnsson, lands- liðsþjálfari. Leikmennimir em þessir. Þorsteinn Björnsson, Fram Hjalti Einarsson, FH Sigurbergur Sigsteinsson, Fram Siguröur Einarsson, Fram Ingólfur Óskarsson, Fram Björgvin Björgvinsson, Fram Bjarni Jónsson, Val Ólafur H. Jónsson, Val Geir Hallsteinsson, FH Stefán Jónsson, Haukum Viðar Símonarson, Haukum Einar Magnússon, Víking Jón Hjaltalín, Víking. Fyrirliði liðsins á leikvelli eins og áður verður Ingólfur Óskarsson. íslenzka liðiö fer fyrst til Noregs og leikur þar 4. desember, en síðan verður haldið til Austurríkis fljúg andi með viðkomu í Kaupm.höfn. Frá Austurríki verður fyrst flogið til London og síðan heim. íslenzk; Víkingurinn í Svíþjóö, Jón Hjaltalin Magnússon, sem leik ur með sænska félaginu Lugi, mun leika með íslenzka landsliðinu i handknattleik gegn Norðmönnum i Osló hinn 4- des. nk. — en að öðru Ieyti verður íslenzka liðið ó- breytt frá fyrri landsleikjum við Austurríkismenn — nema hvað Hjalti Einarsson verður markvörö ur ásamt Þorsteini Björnssyni, en Birgir Finnbogason hverfur nú úr landsliöinu að minnsta kosti i bili. íslandsmófið heldur ófram í kvöld íslandsmótiö í handknattleik heldur áfram i kvöld og verða þá leiknir tveir leikir i 1. deild Reykjavíkurmeistarar Vals leika gegn KR og íslandsmeist- arar FH gegn Víking. Þessi lið hafa öll leikið einn leik fvrr í mótinu og aðeins Valur unnið. Valsmenn ættu í kvöld að geta bætt vlð sig öðrum sigri á kostn að KR — og að öllu jöfnu ætti FH að vinna Víking. En Geir Hallsteinsson leikur ekki með FH og nú er að sjá hvað FH er án Geirs. Jón Hjaltalín. AUGLÝSINGAR AÐAismcn s SÍMAR 1-16-60 1-56-10 ofl 1-50-99 LÁTIÐ EFTIR YÐUR mssm Piiii ■ , ; I.: ,i að eignast svona svefnherbergissett Leitun er að jafn fallegri og vandaðri vöru Allir vita að við bjóðum yður beztu greiðsluskilmálana iL Ut i irp ft i Simi-22900 Laugaveg 26

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.