Vísir - 27.11.1969, Side 1

Vísir - 27.11.1969, Side 1
 ........... „ Smásíldarsöltun hætt og beituþörf bjargað Söltun smásíldar hefur nú ver- ið hætt í bili, þar sem búið er að salta upp í fyrirframsamninga á heilsaltaöri síld til Póllands, en þangað voru seldar 15 þúsund tunnur. Lágmarksstærð á síld til söltunar er nú 800 stykki í tunn- una af hausskorinni og slógdreg- inni sild. Er nú einvörðungu saltað í tveimur stærðarflokkum: 3—500 síldar f tunnu og 5—800, en um þessar mundir er verið að vinna að nýjum samningum, sem kunna að breyta þessum stæðrarflokkum eitthvað, Þessi stöðvun á smásíldarsölt- uninni hefur komið sér mjög vel fyrir beitufrystinguna, þar sem víða hefur verið lögð áherzla á að frysta síld í beitu, en beitu- laust er nú orðið í mörgum ver- stöðum. Að undanförnu hafa til dæmis verið fryst nokkur hundr- uð tonn af smásíld hjá Haraldi Böðvarssyni á Akranesi og hef- ur sú síld verið send vfða um land, þar sem línubátar voru orönir uppiskroppa með beitu. Þetta dugir þó naumast til og hafa útgerðarmenn nú víða á- hyggjur af beituskorti á kom- andi vertíð. Viðtal er við nokkra útvegsmenn um þetta efnj í blaðinu í dag, Sjá bls. 9. Bíræfnir þjófar i Hafnarfirði Minnkandi eftir- og næturvinna virðist hafa haft nokkur áhrif á þjófana f Hafnarfirði, því þeir starfa nú ekkert síður á daginn en nótt- unni. f gær var tilkynnt um þjófnað úr leikifimissal Öldutúnsskóla. Þar hafði verið stoliö úr veskjum tveggja, kvenna, 7 — 8.000 krónum, en töluvert af því var í erlendum g.ialdeyri. Þá var fyrir nokkru stolíð útvarpi og sjónvarpi úr húsi um hábjartan dag. Þjófurinn hafði komizt inn um ólæstar bakdyr, en eitthvað virðist hann hafa verið þurfi fyrir aukna fjölm:ð!un Hafnarstúdentum Fullveldis verður að sjálfsögðu j minnzt veglega í röðum Hafn- ! argtúdenta að þessu sinni. Hafa þeir fengið heila hljómsveit frá ísiandi, Trúbrot. Frá þessu seg- ir nánar 1 þættinum POP-punkt- ar. Sjá bls. 4. j Deyja af mengun Eins og skýrt var trá i aðalfrétt blaðsins í gær er mengunarhætt an í heiminum litin mjög alvar- legum augum af sérfræöingum. í blaðinu í dag er sagt frá þvi að milli 10 og 20 deyi daglega í New York af völdum mengun- arinnar. Sjá bls. 8. Hættuleg leikföng 59. árg. — Fimmtudagur 27. nóvember 1969. — 264v tbl. Kvartanir um glannalega misnotkun loftbyssa berast mjög oft til lög- reglunnar. í gær var kvartað um það á tveimur stöðum í borginni, á Sólvallagötu og innarlega við Suðurlandsbraut, að skotið hefði verið á rúður úr loftbyssum. Eftir nokkurt umstang hafði lögregian upp á tveim- ur piltum og tók af öðrum þeirra loftriffil, en af hinum loftskamiiibyssu. Þessar loftbyssur eru kaliaðar leikföng, en það fer fjarri því, að þær séu hættuiausar. Vegna mikillar misnotkunar þeirra, þurfa unglingar nú stakt leyfi tii að eiga þessi vopn og munu leyfin bundin við 18 ára al „Greiðsla tannlækn- inga væri æskileg — segir stjórn ,vÆskilega telur stjóm S.R. greiðslu tannlækninga einkum að því leyti, að hún myndi stuðla að aukinni heilbrigði tanna yfirleitt, þar sem færri en ella myndu af- rækja viðhaid tanna sinna. Dreifing áhættunnar skiptir minna máli á þessu sviði, þar sem þörfin á við- haldi tanna má teljast nokkuð al- menn og jöfn. Áf þessum sjónar- miðum leiðir, að það ætti einkum að vera almennt viðhald tanna, sem greiti væri, en síður meiri háttar aðgerðir, sem leiða af þvi að viðhald hefir verið vanrækt, svo sem brýr og krónur.“ Þannig segir m. a. í bréfi frá Sjúkrasamlági. Reykjavíkur til borgarstjóra nýlega, en þar stendur einnig' að frá árinu 1943 hafi ein- stök samlög haft heimild til að á- kveða greiðslu tannlækninga fyrir samlagsmenn, Þessi heimild hafi lftið verið notuð, trúlega m a. vegna skorts á tannlæknum. Þá tel- ur stjórn S.R. að eðlilegra virðist að ákvörðun um greiðslu tannlækn- inga sé tekin með lagasetningu þar sem ríkissjóður beri 57.5% af kostn aðinum við sjúkrasamlögin, en sveitasjóðir 19.5%. sjúkrasamlagsins Einnig segir í bréfinu: Ekki er auðvelt að gera sér grein fyrir því, hve mikill sá kostnaður er, sem samlög kæmu til með aö tryggja eða taka þátt í, en ef miðað er við fjölda starfandi tannlækna í landinu og þá takmörkun á greiðslum sem nefnd var, væri t. d. hægt að gizka á 35 — 50 millj. króna Páll Eiríksson, lögregluvarðstjóri, með eitt hinna hættulegu vopna. Fær þotan lendingarleyfíð? — Reykjav'ikurflugvöllur reyndur með þotunni í MORGUN var verið að gera burðarmælingar með þotu Flug- félags Islands á Reykjavíkurflug velli, en í bígerð mun vera að rýmka eitthvað lendingarheim- ild þotunnar á flugvellinum. Eins og kunnugt er hefur það lengi verið kappsmál Flugfélags- ins að fá að reka þotuna frá Reykjavíkurflugvelli og hefur að undanförnu verið rýmkað nokk- uð um lendingarrétt hennar þar. Þannig fékkst leyfi til þess fyr- ir skömmu, að þotan lenti hér, þeg ar skýlisrými vantaði á Keflavíkur flugvelli, en hún mun hafa þurft að standa úti í misjöfnu veðri þar suður frá hingað til. Fiugfélagið hefur talið vélina liggja undir skemmdum vegna þessa. Þegar skýlisrými vantar á Kefla víkurflugvelli, má þotan lenda hér með farþega og má sömuleiðis taka farþega hér, þegar hún fer héðan, Heyrzt hefur aö þessi rétt ur verði rýmkaður nokkuð á næst unni, ef mælingar, sem fram fóru í morgun sýna jákvæðar niðurstöð ur, en þotunni var ekið fram og aftur fullfermdri til að kanna veik ustu blettina. Dauðsfall i Straumsvík # Rúmlega fimmtugur maður fannst meðvitundarlaus á skurð barmi á athafnasvæði ISAL í Straumsvík um klukkan hálf fjögur í gær. Hann var þegar fluttur í slysavarðstofuna, en var Iátinn, þegar þangað kom. Ekki er talið, að um vinnuslys hafi verið að ræða, heldur að maðurinn hafi orð- ið bráðkvaddur Málið er í rann- sókn. Þotan var dregin um fullhlaðin, en mælingamenn athuguðu burðarþolið. Þetta er í fyrsta skiptið, sem þotan er notuð í burðar- þolsmælingum á flugvellinum. Felldu fyrst KR — og síðan MILAN! í gærkvöldi var spenningur víða í Evrópu í Evrópubikarkeppn- inni í knattspyrnu. Mótherjar KR í haust, Feyenoord settu sjálfa Evrópubikarmeistarana úr leik í Mílanó, en að öðru leyti var þetta kvöld „stjörnuhraps" í knattspyrnu — sjá bls. 3. Trúbrot skemmfir

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.