Vísir - 27.11.1969, Blaðsíða 2
Fæst hjá umboðsmönnum víða um land
og í sérverzlunum
/
unnai <Sq&§eáóóon h.f
Suðurlandsbraut 16. - Laugavegj 33. - Simj 35200.
Plötuspilari
er svissnesk
gæðavara
Axel Axels bjargaði Fram úr
brúðrí bættu gegn Víkingi
— Fram vann á reynslunni — en Vikingur
fékk rétt oð „lykta" af sigrinum
■ Hinn ungi og upprenn-
andi leikmaður Fram,
Axel Axelsson, átti sann-
arlega sinn stóra hlut í því
að Fram fór með sigurinn
í viðureigninni í 1. deild í
handknattleik í gærkvöldi
í Laugardal. Sigur toppliðs
ins gegn öðru botnliðanna
í deildinni var sannarlega
ekki stór og var dýru verði
keyptur.
?/✓
//'
Geggjaður persónuleiki'
í hálfleik í Laugardalshöll
Það verður „kátt í höllinni“
um helgina, þegar Valsstúlkur
og pólskar stúlkur leika í Evr-
ópukeppnlnni, — reyndar ekki
nokkurt dautt augnablik.
í hálfleik hefur nefnilega ver-
ið ákveðið að hljómsveitin
Ævintýri með Björgvini Hall-
dórssvni. beim ..eeeeiaða ner-
sónuleika“, mun halda uppi
fjörinu meöan stúikurnar hvíla
sig fyrir átök síöari hálfleiksins.
Forsala aðgöngumiða er hafin
og eru þeir seldir í bókabúð
Lárusar Blöndals í Vesturveri
og kosta miðar 100 krónur fyrir
fullorðna, en 35 fyrir börn.
Fram náði forystu eftir 5 mín-
útna leik með marki frá Ingólfi en
Víkingar jafna. Héizt þannig að
Fram var yfir þar til að Víkingur
náð; forystu í 5:4 með marki Páls
Björgvinssonar og eftir það var
Víkingur forystuaðilinn í þessari
viðureign, hafði yfir 10:8 í hálfleik,
en í seinni hálfleik snemma var
Víkingur með 3 mörk yfir, 12:9 og
sannarlega virtist hamingjusóiin
skína við liðinu þá stundina.
En veður eru fljót að skipast í
iofti Fram jafnar í 14:14 á 18. mín-
útu, Axel skorar þá 13:14 og 14:14
og loks gefur Axel stórkostlega
sendingu inn á línu til Björgvins
sem skorar 15:14 fyrir Fram.
Þetta nægði hinum leikvönu
mönnum Fram, sem ríghéldu „risa“
Víkinganna, Einari Magnússyni,
niðri, Víkingur jafnaði að vísu í
16:16, en úrslitum réðu tvö vítaköst
Guðjóns Jónssonar, hann skoraði
örugglega úr báðum, eins og vera
ber, — sigurinn var 18:16 fyrir
Framara.
Leikurinn var að mörgu leyti
góður og varnirnar sýndu einkum
góðan leik Harka var talsverð, en
þó ekki eins og sú, sem Hafnar-
fjarðariiðin buðu upp á. Axel Axels-
son var langbezti maður Fram,
Guðjón ágætur og Þorsteinn sæmi-
legur, en ekki í sfnu „landsliðs-
skapi“ — Einar Magnússon fékk
ekki að njóta sín, virtist feiminn
gagnvart varnarmönnum Fram, sem
voru alltaf á varðbergi. Helgi, mark-
vörður var hins vegar ágætur, Páll
Björgvinsson og Guðjón, ungir
menn, lofa góðu í Víkingsliðinu.
— P. í-
Harka úr Hafnarfirði í
Laugardal / gærkvöldi
— FH vann Hauka 14:11
FH og HAUKAR, —slíkur leik-
ur virðist vera að verða að eins
konar hnefaleikakeppni. Harkan
gengur út í öfgar oft og tíðum
finnst manni, og er það leitt, að
liðin tvö úr „handknattleiks-
borginni“ skuli ekki geta sýnt
eitthvað skaplegra hér í Reykja-
vík, en sást til þeirra í gær.
Haukar voru annars óheppnir, eöa
voru þeir klaufskir? Sérstaklega
var þetta áberandi í upphafi leiks,
þegar Viðar „brenndi af“ vítakasti,
og skaut framhjá af línu í upplögðu
tækifæri. Stefán tók líka vfti, sem
dæmt var ógilt, hann steig á línuna.
Einstakur klaufaskapur eða óheppni
það! Hins vegar eyðilagði Geir eitt
vítakast fyrir FH, lét verja. Virðast
vítaköstin ekki hans sterkasta hlið
eftir öllu aö dæma.
FH náði forystu f sterkum vam-
arleik, og undir hálfieik var staðan
6:3, en f hléj var hún 6:4. Fyrstu
tvö mörk seinni hálfleiks skomðu
FH-ingar, Árni og Geir (úr vfti).
Staðan var því orðin heldur óefnileg
fyrir Hauka, 8:4.
Haukar reyndu eftir megni að
hamla á móti og nú var eins og
þeir vöknuðu. Þrjú næstu mörk
skoruðu þeir og staðan var 8:7. Þá
skora FH-ingar tvö mörk, 10:7, og
aftur voru FH-ingar yfir með þrjú
mörk í 12:9. Undir lokin sóttu
Haukar sig talsvert, en ógnunin í
leik þeirra var óvemleg enda þótt
þeir næðu að komast í 12:11. Síð-
ustu tilraunir þeirra vom nánast út
í bláinn og Auðunn Óskarsson bar
auðnu til að skora tvö síðustu mörk-
in fyrir FH, sigurinn var því 14:11.
Af FH-liösmönnum varði Hjalti,
vel, Geir var góöur og Öm virðist
vera aö ná sér á strik. Haukaliðið'
er jafnt, en Viðar ber nokkuð af.
Þá var Þórarinn Ragnarsson óvenju'
mikið með í spilinu. — p. j.
Stnðan í 1. deild
í handknattleik
• Fram—Víkingur 18:16
• FH—Haukar 14:11.
Fram 3 3 0 0 49:44 6
FH 4 3 0 1 70:64 6
Valur 3 2 1 0 56:41 5
Haukar 4 1 1 2 68:57 3
Víkingur 3 0 0 3 47:56 0
KR 3 Næstu leikir: 0 0 3 47:75 0
KR—Víkingur og Fram—Val-
ur sunnudaginn 14. desember.
Lenco