Vísir - 27.11.1969, Blaðsíða 7
V
) I I I 1 I 1
V í S IR . Fimmtudagur 27. nóvember 1969.
í MORGUN 1 ITLÖNDÍ MOR GUN IÚTU ÖNÖ XIVI IORGUIM ‘í‘; UTLÖND í MORI GrUN útlönd j
Calley liösforingi — óvinsæll.
17 þús. kr. til
höfuðs Culley í
herdeild huns
Liðsforinginn William Calley
var svo óvinsæll meöal her-
manna sinna, að 17 þúsund krón
ur voru lagðar til höfuðs hon-
um. Skyldi hver sá, er yrði hon-
um aö bana, hljóta 200 dollara
frá félögum sínum í sameiningu.
Bandarískar útvarpsstöövar
skýröu frá þessu í morgun og
höfðu eftir hermönnunum sjálf-
um. Hermennimir hafa einnig
gefið í skyn, að háttsettur mað-
ur í bandaríska hemum í Suð-
ur-Víetnam hafi hindrað, að
fjöldamorðin yrðu upplýst fvrr
en nú. Hafi Calley ekki tekið
þessi manndráp upp hjá sjálfum
sér. Er þetta svipuð ákæra og
þingmaður einn hefur boriö
fram.
Þingmennirnir veiktust af hryllingi
Ljósmyndir frá fj'óldamorðunum sýndar
utanrikisnefnd Bandarikjanna
• Utanríkisnefnd banda
ríska þingsins voru í
gær sýndar ljósmyndir,
sem teknar höfðu verið,
þegar f jöldamorðin voru
framin í þorpinu í Víet-
nam í fyrra hinn 16.
marz í fyrra. Myndirnar
voru svo hryllilegar, að
einn af þingmönnum
varð að ganga af fundi,
þar sem hann varð sjúk-
ur af viðbjóði.
Ein myndin sýndi unga konu,
sem bað um miskunn, liggjandi
á hnjánum frammi fyrir her-
mönnunum. Hópur grátandi
barna var umhverfis hana. —
Nokkruni mínútum síðar voru
bæði konan og börnin látin. —
Önnur mynd, sem mikil áhrif
hafði á þingmenn, sýnir lítinn
dreng, sem lá á maganum á veg-
inum, sundurtættur af kúlum.
Einn hermanna, sem þátt tóku
í manndrápunum, segir, aö þeir
hafi undir stjórn William Callev
liðsforingja, framfylgt skipun-
um um að þurrka út þorpið,
„bæði menn, hænur og grísi“,
eins og hann sagði í sjónvarps-
viðtali.
Stephen Young, öldungadeild-
armaður frá Ohio, kallaði verk
þetta, dæm ium hræðileg fjölda-
morð“. Hann sagði, að engum
gæti nú dulizt, að milli 200 og
700 borgarar hefðu verið drepn-
ir á hinn hroöalegasta hr-tt. Sum
ar myndirnar sýndu, að hleypt
hafði verið af svo nærri sumu
fólkinu, að líkamar þess höfðu
rifnað.
„Ég hélt, að ég væri harönað-
ur gegn slíkum hlutum, en ég
verð að viðurkenna, að ég varð
veikur af að horfa á myndirnar,"
sagöi þingmaðurinn Inouye frá
Hawaii, en hann hlaut mörg
heiðursmerki fyrir vasklega
framgöngu í seinni heimsstyrj-
öldinni.
Bæði Nixon forseti og John
Dennis, formaður hermálanefnd-
ar öldungadeildarinnar, hafa
lýst nauösyn þess, að ýtarleg
rannsókn fari fram á fjöldamorö
unum í Song My. I’ tilkynningu
frá Hvíta húsinu segir, að hinir
seku verði dregnir fyrir rétt fvr-
ir „viöbjóðslegt og ólöglegt"
framferði, sem hvili sem mara á
samvizku bandarísku þjóðarinn-
ar.
Calley liðsforingi fer fyrir her
rétt, og mál 25 annarra her-
manna eru í athugun. Herinn
hefur hingað til yfirheyrt 75
manns í sambandi við málið.
Fréttir hafa borizt þingmönn-
um um önnur meint fjöldamorð.
Margt bendir til þess, að Pink-
ville-málið, eins og það er kall-
að, sé aðeins upphafið aö mörg-
um slikum málsrannsóknum um
fjöldamorð á borgurum I Suöur-
Víetnam, segja fréttamenn. —
Læknir einn, sem áður starfaði
í Víetnam, hefur skýrt frá hem-
aðaraðgerðum í Mekong-óshólm
unum í sumar, þar sem menn,
konur og börn voru höfð að
skotmarki, þegar þau hlupu út
úr kofum sínum, sem Banda-
ríkjamenn hófu skothríð á.
Vestur-Þjóðverjar undirrita samninginn
um bann við útbreiðslu kjarnavopna
Vestur-Þjóðverjar munu væntan-
lega undirrlta samninginn um bann
við útbreiðslu kjarnavopna á morg-
un, að sögn Conrad Ahlers, tals-
manns rikisstjórnarinnar i gær-
kvöldi.
Ahlers sagði, að ríkisstjórnin
byggist við umræðum um málið í
dag, en hann hefði ekki ástæðu til
að ætla, að frjálsir demókratar
Þrír Arabar og einn
ísraelsmaður fyrir rétt
í Sviss sakaðir um morð
ÞRÍR arabískir skæruliðar og einn
israelskur öryggisvörður, sem háðu
skotbardaga á flugvellinum í Ziir-
ich í Sviss í febrúar, koma í dag
fyrir rétt í Sviss. Palestínuarabam-
ir þrír eru ákærðir fyrir morð
að yfirlögðu ráði, en þeir skutu
182 skotum á Boeing-fluvél ísra-
elska flugfélagsins El AI og urðu
manni að bana.
fsraelsmaöurinn, Mordechai Rah-
camim, er ákærður fyrir morð, en
aðstæður eru taldar honum í vil,
þar sem hann drap fjórða skæru-
liðann, sem árásina gerði. Hann
stökk út úr Boeing-vélinni hinn 18.
febrúar og banaði Arabanum.
Skothelt gler mun vernda ákærðu
fyrir morðtilraunum, sem kynnu að
Síamstvíburar
skildir í sundur
J Síamskar tvíburasystur voru í
gær skildar í sundur, eftir tíu
klukkustunda skurðaðgerð í
Boston í Bandaríkjunum. Þær
fæddust á sunnudag í Danvers í
Massachusetts-ríki og voru sam
vaxnar á maga og þvagfærum
og höfðu sömu lifur. Þarmarnir
voru flæktir saman.
A Talsmaður sjúkrahússins sagði,
að stúlkunum liði ágætlega eftir
aðgcröina. Þetta væri í fyrsta
sinn, að síamstviburar, sem sam
grónir væru á maga og þvagfær-
um, væru skildir í sundur.
verða gerðar á þeim við réttar-
höldin. Þeir munu sitja í sama klefa
ásamt lögregluþjóni/sem hefur það
verkefni að stía þeim í sundur.
Arabísku skæruliðarnir geta hlot-
ið allt að lífstíðarfangelsi, en ísra-
elsmaðurinn milli eins og tíu ára
fangelsi.
mundu hindra undirritun samnings
ins.
Lengi höfðu menn austan tjalds
þær hugmyndir, að Þjóðyerjar hygð
ust búa sig kjarnavopnum í' náinni
framtíð og hefja „hefndarstríð" í hendur.
gegn Austur-Evrópu. Undirritíin
Bonn-stjórnarinnar felur að sjálf-
sögöu í sér, að Vestur-Þjóðverjar
hafna kjarnavopnum, en í samn-
ingnum.,Xelst, að ríki, sem nú hafi
ekki slik vopn, skuli ekki fá þau
Jólaskeið
1969
Brandt kanslari brýtur heilann mikið þessa dagana og endurskoð-
ar stefnu ríkis síns í ýmsu. Hér sést hann, djúpt hugsi, ásamt
utanríkisráðherra sínum, Scheel.
TILKYNNING FRÁ
LANDSBANKA ÍSLANDS
í sambandi við bókhald í rafreikni mun Landsbankinn taka í notkun
frá 1. desember nýja tegund víxileyðublaða með breyttum fylgiseðlum,
svuntum. Eftir þann tíma er nauðsynlegt, að einstaklingar, er selja
bankanum víxla, færi á svuntur þeirra nafnnúmer seljenda, samþykkj-
enda og ábyrgðarmanna. Sama mun gilda um verzlunar- og iðnaðar-
víxla, eftir að Hagstofa íslands hefur gengið frá nafnnúmerum fyrir-
tækja, sem væntanlega verður um næstu áramót. Þetta eru viðskipta-
menn bankans vinsamlega beðnir að athuga-
Landsbanki íslands
úr silfurpletti
’Hönnuð af Jens.Guð-
[jónssyni. Verð kr- 385. i
lEinnig spaðar' í sama'
Imunstri. Verð kr. 485.«
! Póstsendum
Jens Guðjónsson
| Laugavegi 60 og Suður-k
’veri. — Sími 12392. >
<
i
WWWWVAAAAAAAA/WN