Vísir - 02.02.1970, Page 2
2
V í S I R . Mánudagur 2. febrúar 1970.
íslenzku landsliösmennirnir sáu Peter Oogood leika Sunderland grátt á laugardaginn. Hann skoraði þrennu í leiknum — en geröi þó betur
gegn Chrystal Palace á dögunum, skoraöi fjögur mörk. Hér sést hann á miöri myndinni í leiknum gegn Palace. Til að spara ykkur talningu
, sjást sjö „varnarlausir" leikmenn Palace á myndinni.
Hallur S'imonarson skrifar um ensku knattspyrnuna:
Forsætisráíhemum kampakátur
vegna sigra Huddersfíeld Town
— Huddersfield hefur fjögurra stiga forustu
í 2. deild
F'rát't fyrir byltuna í Washington á dögunum er Harold Wil-
son, forsætisráöherra Breta, kampakátur nú. Það er ekki að-
Viins batnandi efnahagur Breta, sem því veldur, heldur einnig mik-
i iö gengi Huddersfield Town á knattspyrnusviðinu, og eftir þýð-
Jngarmikla sigra undanfarnar vikur hefur Huddersfield tryggt sér
t góða forustu i 2. deild og stendur nú á þröskuldi fyrstu deildar.
Og Yorkshriebúinn í Downing Street setur sig aldrei úr færi
aö sjá knattspyrnulið fæðingarborgar sinnar í leik — og minnist
'þá ávallt æskudaga sinna í Huddersfield, þegar félag þessarar
V30 þúsund manna borgar bar ægishjálm yfir önnur á Englandi
»og sigraði í 1. deild þrjú ár í röð — frá 1924 til 1926 — afrek,
<sem aðeins eitt félag hefur leikið eftir, Arsenal 1932 til 1934.
. Og þá tengdist Wilson knattspyrnunni þeim böndum, sem aldrei
, hafa slitnað síðan. Að hans áliti á Huddersfield hvergi heima nema
, í fyrstu deild, en 1956 féll það niður í 2. deild ásamt ööru York-
(shireliði, Sheffield United, en þau skipa nú tvö efstu sætin í 2.
deild. Ungur maður, Ian Greaves, áður leikmaður hjá Manch. Utd.,
'tók við framkvæmdastjórn hjá Huddersfield fyrir tveimur árum
' og undir stjóm hans er þetta fræga félag nú aftur í sviðsljósinu.
‘fyrri hálfleik, en John O’Rourke
og Neil Martin skölluðu knöttinn
í mark í þeim síðari, og Arsenal
hefur nú ekki unnið leik gegn ensk
um liðum síðan 13. desember. Eini
ljósi punkturinn hjá Arsenal á
keppnistímabilinu er Borgakeppni
Evrópu. Félagið er komiö í „átta
liða úrslit“ og leikur þar gegn
Dynamó Bacau, Rúmeníu.
En við skulum nú líta á úrslitin á
laugardaginn:
1. deild.
Bumley—West Ham 3—2
Chelsea—Sunderland 3 — 1
Coventry—Arsenal 2—0
Everton—Wolves 1—0
Manch. Utd. —Derby 1—0
Newcastle — C. Palace 0—0
Nottm. For.—Liverpool 1—0
Sheff. Wed, —Ipswich 2—2
Stoke—Leeds Utd. 1—1
Tottenham—Southampton 0—1
WBA-Manch. City 3—0
2. deild.
Birmingham—Bristol City 2—2
Cardiff—Blackpool 2—2
Huddersfield — Carlisle 1—0
Hull—Sheff. Utd. 2—3
Middlesbro—QPR 1—0
Millvall—Oxford 0—0
Norwich—Blackburn 0—1
Portsmouth—Charlton 5 — 1
Preston—Aston Villa 1 — 1
Swindon—Boiton 3—2
Watford—Leicester 2 — 1
íslenzku landsliösmennimir voru
á Stamford Bridge leikvelli Chelsea
í London og sáu Peter Osgood
skora þrjú mörk gegn Sunderland.
| Ekki var þetta þó einn af beztu
! leikjum Chelsea, en liðið lék þð
of vel fyrir Sunderland og vörn
norðanmanna gat ekki stöðvað Os-
good. Hann skoraöi tvö mörk með
Þriggja mín. millibili um miðjan
fyrri hálfleik og hið þriðja 10 mín.
fyrir leikslok, þá orðinn haltur.
Joe Baker lagaði stööuna í 2—1
fyrir Sunderland og var öðm sinm
í góðu færi, þegar markvörður
Chelsea, Peter Bonetti, felldi hann,
en ekki var þó dæmd vítaspyrna.
Leeds heldur enn forustu í !•
deild eftir jafnteflisleikinn í Stoke.
en lék ekki eins vel og að undan-
förnu. Leeds var reyndar heppið
að ná jafntefli. Peter Dobing skor-
aði fyrir Stoke, en Johnny Giles
jafnaði fyrir Leeds og þaö beint
úr homspymu. Knötturinn fór efst
í stöngina fjær og hafnaði í mark-
inu. Óvenjulegt mark fyrir enska
iandsliðsmarkvörðinn, ■ Gordon
Banks, enda sagöi hann í BBC eftir
leikinn. „Markið var mér að kenna
ég átti að ná knettinum áður en
hann lenti í stönginni". Einnig
sagði Banks að Stoke-liðið heföi
verið frekar óheppið í leiknum.
Everton hefur sömu stigatölu og
Leeds og sigraði Ulfana 1—0. —
Everton hafði yfirburði í leiknum,
en John Oldfield var frábær i
marki Ulfanna. Eina mark leiks
ins skoraði Joe Royle á 31. mín.,
mark sem vöm Úlfanna hefði auð-
veldlega átt aö komast hjá. Derek
Dougan, miðherji Olfanna, slasað-
ist á höföi, þegar klukkutími var
af leik, og léku Úlfamir eftir það
10, þar sem varamaður þeirra hafði
þá þegar verið settur inn á.
Önnur markatala, sem gefur litla
hugmynd um gang leiksins, er frá
Old Traford, leikvelli Manch. Utd.
Manch. Utd, haföi þar mikla yfir"
burði gegn Derby, svo mikla, að
knötturinn fór varla af vallarhelm
ingi Derby framan af, en Les Green
átti enn einn stórleikinn í marki
Derby. Bobby Charlton skoraði
eina mark leiksins á 27. mín.
Green virtist hafa möguleika á að
i En þó mikill fögnuður sé i her-
.búðum Yorkshirebúa — Leeds er
teinnig úr þeim landshluta — gegn
ir öðru máli í Norður-Londop, þar
lem allt gengur nú á afturfótun
'um hjá tveim af frægustu félögum
deild hjá báðum er slæm, Og ekki
bættu leikmennirnir á laugardag-
inn þar um, heldur ýfðu sárin.
Framkvæmdastjóri Tottenham,
Bill Nicholson, gerði róttækar
! breytingar á liði sínu gegn South-
r pr
Hvar næst ?
íver næst ?
• Englendinga, Arsenal og Totten-; ampton og setti m.a. annars fjóra
,ham, og hefur örvænting gripið j landsliðsmenn út, þá Jimmy Greav
,um sig jafnt meðal forustumann-1 es, Alan Gilzean Cyril Knowles og
anna sem óbreyttra liðsmanna. — j Joe Kinnear en allt kom fyrir ekki.
Bæði liðin féllu úr bikarkeppninni
Asa Hartford
— skírður í höfuðið á Jolson, og
talsvert líkur Ilermanni Gunn-
irssynL
Southampton sigraði með marki
Ron Davies og aðeins 27 þúsund
sáu leikinn — brot af þeim fjölda
sem áður fyllti White Hart Lane,
enda átti Tottenham áður miklu
gengi að fagna, varð m.a. Evrópu-
meistari bikarliða 1963, enskur
bikarmeistari 1962 og 1967, en
árið 1961 var þó einstakt. Totten-
ham sigraði þá bæði í 1. deild og
brkarkeppninni, en það afrek hef-
ur ekkert annað félag unnið á þess
ari öld.
Og hjá Arsenal var fyrirliðinn
Terry Neil settur út gegn Coventry
en í hans stað lék ungur leikmað
ur John Roberts, sem Arsenal
keypti í fyrrasumar frá Northampt
on fyrir 35 þúsund pund. Roberts
hefur leíkið nokkra leiki áður með
Arsenal, en hann gat lítið gert til
að hindra s> Coventry. Tölumar
2 — 0 gefa a».s ekki vel til kynna
hina miklu yfirburði Coventry í
leiknum og Arsenal hefur nú tapað
„tvöfalt“ fyrir Coventry á leiktfma
bilinu. Ekkert mark var skorað í
Dregið fimmtudaginn 5. feb.
Umboðsmenn geyma ekki miða
viðskiptavina fram yfir
dráttardag
Vinningar gera hvorki mannamun né staðarmun.
Gleymið ekki að endurnýja.
Síðustu forvöð fyrir hádegi dráttardags.
Happdrætti SÍBS 1970.