Vísir - 02.02.1970, Blaðsíða 4

Vísir - 02.02.1970, Blaðsíða 4
að vísu). Nú er í byggingu risaeyra fyrir þýzka stjörnufræðinga og er það svo stórt í sniðum, að það verð- ur hærra heldur en kórbygging- in f Cologne-dómkirkjunni, eins og sjá má á myndinni hér, í dal einum hjá Effelsberg í nágrenni Bonn er verið að byggja stálgrindina, sem halda á uppi þessu risaeyra, og er hún engin smásmíði heldur, enda hefur rad arskermur þessarar stjörnuathug unarstöðvar 100 m þvermál. Risaeyra þessu er ætlað aö veita móttöku merkjasendingum utan úr geimnum og verður það væntanlega tekið í notkun á þessu ári. Þessi stjörnukíkir, rad- arstöð, eða hvað maður skyldi kalla hana, mun starfa í þágu Max Planck-stofnunarinnar í Bonn. Uppsetning tækisins er óskap- leg nákvæmis vinna, því að skakki, 'sem næmi br.oti úr milli- metra, í undírstöðunni og stjórn tækjum radarspegilsins, gæti leitt af sér nokkur hundruð kílómetra misvísun á geislanum á svo löng um fjarlægðum, sem í þessum rannsöknum getur verið um að ræða, eins og t.d. 12 billjónir ljósára (en það eru um 113 trill- jónir kílómetra). Ellefta boðorðið Ellefta boðoröiö hljóðar svo (í prestsjns nafni): Ekki skaltu leggja bílnum þínum hér! svo. .. Hún Mary litla Pekar (4 ár; er að vísu ekki læs sjálf, e blöskrar þó, aö ökumaöurini sem rétt í þessu kom inn í stæ ið við dómkirkjuna í Pittsburj skuli ekki virða þaö, sem á ski inu stendur letrað: EKKISKALTU LEGGJA BÍLNUM ÞÍNUM HÉR 1L. boöorðið Það voru sóknarpresturinn c djákninn, sem settu fram þet( 11. boðorö, en ekki getur saga um það, hvort þeir hafi fundi þaö með sama hætti og Mósí fann hin tíu. Okkur grunar, að þeim ha birzt það í draumi, eftir að hai beöiö þess aö kvöldi, að þe fengju að hafa bílastæöin sínv: kirkjuna í friði. Hljómplötuupptaka v/ð frumstæð skilyrði Við höfðum spurnir af því einn daginn í siöasta mánuði, að Júd- as væru niöri í útvarpssal við upptöku sinnar fyrstu híjómplötu og þótti okkur það góð tiðindi, því Júdas er hljómsveit, sem ætti að geta gert mjög góða hluti á plötu — hefðu meira að segja mátt vera búin að senda frá sér eina fyrir löngu. Blm. Pop-punkta brá sér í skyndi niður í útvarp, þeirra er inda að fá nokkra punkta frá Júdas um þessa plötu þeirra. Það var áliöið dags þegar mig bar að garði, og voru Júdasar- menn að pakka saman hljóðfær- um sínum og búa sig undir að yfirgefa staðinn. Mér tókst að stela Vigni, gítarleikara hljóm- sveitarinnar út úr hópnum og fékk að leggja fyrir hann nokkr- ar spurningar. „Hvernig hefur hljóðritunin gengið?‘‘ var fyrsta spurning mín. „Hún hefur gengiö sæmilega, en ekki meira en það. Við höfum verið tvo daga í upptöku, en að- eins tekizt að koma undirspil- inu fyrir annað lagið á band. ÞaÖ sem aðallega hefur tafið upptök- una og valdiö mestum erfiðleik- um, er það, að við megúm ekki hafa hljóðfæri okkar eins hátt stillt og þörf krefur. Ef okkur veröur þaö á að gefa frá okk- ur of há hljóð er farið að banka í okkur ofan úr þularherberg- inu og skipa okkur að draga niö- ur I hljóðfærunum. Þegar við byrjuðum upptökuna hérna í gær dag gekk allt skínandi vel til að byrja með, enda vorum við þá með hljóðfærin stillt jafn hátt og á dansleikjum okkar þannig að „powerið“ var það sama og þar. Með því móti gekk allt mjög vel og við vorum komnir langt með að ná því sem til þurfti svo að upptaka undirleiksins gæti far ið fram (þ.e.a.s. bassa- orgel- og trommuleikurinn). En þá var það sem fólkið í útsendingarsal hljóðvarpsins byrjaði að þagga niður í okkur og það gaf sig ekki fyrr en við höfðum dregið það mik ið niður í hljóðfærunum, aö allt „sound“ var rokið út I veður og vind og við sem unnum að upp tökunni komnir í megnustu fýlu. Eftir dágóða stund hafði okk ur þó tekizt að hljóðrita undir- spilið, en þegar því var lokið, var líka komið fram á kvöldmatar- leyti og ekki hægt að vinna meira í stúdíóinu þann daginn. í dag var unnið viö að bæta inn í upptökuna saxafónum, trompet og sólógítarspilinu, og gekk það öllu betur fyrir sig en upptakan [ gær, enda hafði það ekki eins mikinn hávaða í för með sér“. „Hvernig finnast þér upptöku- skilyrðin hjá sjónvarpinu?“ „Það er samskonar tæki til hljóðritunar og hér I útvarpinu, en aftur á móti má maður stilla sín tæki þar, eins og maður er vanastur þeim og það er stór kostur fram yfir aðstöðuna hér. Það er bara yerst, að það er. bannað að taka upp hljómplötur, hjá sjónvarpinu. Það stendur víst til að banna slíkar upptökur hjá útvarpinu líka og þá er endan-' leg abúið aö vísa plötufyrirtækj ’ unum út á götuna með sitt hljóm* listarfólk. Það eru ekki nema, fáar íslenzkar hljómsveitir, sem, eiga þess kost að láta taka upp plöturnar erlendis, þannig að ég veit ekki hvað þá tekur við ís- ‘ lenzkri hljómplötuútgáfu. Ég > hef reyndar heyrt talaö eitthvað, um það, að Pétur Steingrímsson, magnaravörður með fleiru, sé að koma sér upp sínu eigin stúdíói fyrir plötuupptökur — en þú' mátt alls ekki bera mig fyrir - þeirri sögu“. IRætt við Vigni gítor- ];■ leiknrn Júdas ]]' um íslenzk stúdíó ];’ 1. HLUTI 'VWNAAA/VWÍAAAAAAAO „Að hvaða leyti standa fslenzku stúdíóin þeim erlendu aö baki?“( „Að flestu leyti held ég að mér sé óhætt að segja. Fyrir það’ fyrsta er það íslenzka aðeins eins> „trakka“, en þau tæki sem mest eru notuð í útlandinu eru sextán' „trakka“. Ég hef meira að segja’ heyrt aö hljómsveitir eins og, Blood, Sweat & Tears taki sínar plötur upp í 32 „trakka" stúdíói, þannig aö þú 'sérð, aö það er engin smávegis aðstöðumunur milli íslenzkra og útlenzkra hljóm listarmanna við plötuupptökur. Og svo eru menn að reyna að bera íslenzkar hljómplötur saman við framleiðslu útlenzkra — ’a,1 því líkt og annað eins . . .“ dæs-' ir Vignir að lokum og snýr sér- að því aö hjálpa hinum strákun- um við að pakka saman. Hér látum við staðar numið, en i Pop-punktum þeim sem birtast hér á síöunni n.k. fimmtudag verð ur viðtal við Magnús Kjartansson orgelleikara með Júdas um lögin á plötunni og kemur þar margt athyglisvert fram, m.a. það, að Karl Sighvstsson í Trúbrot sé „producer“ plötunnar (þ.e.a.s. hann stjórnar upptökunni og ræð ur jafnvæginu millj hljóðfæranwa annars vegar, og söngs og und’r- leiks hins vegar), en það er ó- hætt að fullyrða það, að þetta sé í fyrsta skipti, sem íslenzk pop- hljómsveit ræöur sérstakan mann til þeirra starfa fyrir hljóm plötuupptöku. Þim

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.