Vísir - 02.02.1970, Blaðsíða 3
1 Vl SIR . Mánudagur 2. febrúar 1970.
3
verja spymu Charltons, en knöttur
inn straukst viö Roy McFarland
miðvörö Derby, og breytti um
stefnu. Þess má geta að Derby hef
ur boðiö 120 þúsund pund I Terry
Hennessey hjá Nottm. Forest, sem
talinn er einn bezti leikmaðurinn
í ensku knattspymunni og mið-
'Vörður ásamt Mike England Tott-
enham, í landsliði Wales. Ef Derby
fær Hennessey eru dagar Dave Mac
Kay hjá Derby sennilega taldjr,
enda hefur ekkert lið í 1. deild
efni á þeim ,,lúxus“, að hafa leik-
mann, sem varla víkur úr eigin vfta
teig sbr. leik Derby og Sheff. Utd.
í sjónvarpinu sl. laugardag, þótt
»enginn efist hins vegar um hæfi-
, leika MacKay sem stjórnanda á
leikvelli. Og f sambandi við skrif
' mín um ísl. siónvarpið og knatt-
(Spymuþætti BBC í Vísi sl. mánu-
dag hefur mér verið bent á, að
* knattspymuþ. BBC séu einhverj-
, ir eftirsóttustu söluþættir BBC. í
handbók BBC ’66 er skýrt frá því
* aö þættimir séu seldir til yfir 20
^landa og því einkennilegt ef ísl.
f sjónvarpiö getur ekki fengið þá.
Staöa efstu og neðstu liöa í 1.
( deild er nú þannig;
^Leeds
Everton
Chelsea
'lLiverp.
(Wolves
C. Palace 29 3 11 15 25:51 17
‘Sunderl. 31 4 9 18 22:56 17
‘ Sheff. Wed. 29 4 7 18 26:51 15
V Leikmenn Cheff. Wed. geta á-
> sakað sig mjög að missa eitt stig
. gegn Ipswich. Þeir höfðu mikla yf
, irburði í leiknum, höfðu 2 — 0 yfir f
, hálfleik, fengu síðan á sig ldaufa-
mark og svo til að kóróna verkið
iafnaði bakvörðurinn Mills fyrir
Inswich á síðustu sekúndum leiks
ins.
Liverpool var alveg sviplaust án
Peter Thompson í Nottingham.
Poul Richardson skoraði eina mark
ið fyrir Forest í leiknum. Burnley
‘ sigraði West Ham, fyrsti sigur liðs
ins á heimavelli í 15. vikur. Peter
Eustace skoraði sitt fyrsta mark
fyrir WH í leiknum.
Og þá mættust úrslitaliðin f
deildabikarnum í WWest Bromvick
og WBA vann stórsigur gegn
Manch. City, 3—0. City er f mikilli
,,lægð“, en WBA Iék sinn bezta leik
á keppnistfmabilinu. Colin Suggett
sennilega fljótasti leikmaðurinn í
ensku knattspyrnunni, hefur hlaun
ið 100 m á 10.5 sek. — skoraöi
fyrsta mark leiksins, en Jeff Astle
og Asa Hartford hin 2. Hinn síðar
nefndi, 18 ára Skoti, xar skírður
„gælunafni" söngvarans fræga, A1
Jolson sem aldrei var nefndur ann
að en „Asa“ meðal vina sinna. Eng
inn sem heyrt hefur, gleymir
túlkun Jolson á „Mamie“.
í 2. deild er Huddersfield nú í
mjög sterkri stöðu og hefur und-
anfarnar vikur unnið þau lið, sem
næst þeim eru eins og Sheff. Utd.
(2—1), QPR (2—0) og Cardiff
(1—0). Staöan þar er nú þessi:
Huddersf. 29 16 7 5 48:27 41
Sheff. Utd. 30 16 5 9 57:27 37
Blackbum 30 16 5 9 41:34 37
Cardiff 29 14 7 8 47:30 35
QPR 30 14 6 10 49:39 34
Middlesbro 28 14 6 8 37:30 34
Charlton 29 5 13 11 26:52 23
Preston 29 7 8 14 30:40 22
'Watford 29 7 7 15 32:37 21
Aston Villa 27 4 10 13 23:42 18
í 3. deild er Lundúnaliðið Orient
nö efst meö 38 stig. Luton hefur
36 og Brighton og Reading 36. í 4.
deild er Chesterfield með 40 stig,
Brentford hefur 37, Swansea 36 og
Port Vale 35. Á Skotlandi heldur
barátta Celtic og Rangers áfram.
Bæöi unnu auðvelda sigra á laugar
ðaginn, Rangers vann St. Mirren í
Paisley 4—0. Celtic er efst méð
38 stig, Rangers hefur 36 og langt
er í þriðja liðið, Hibernian, sem
hefur 29 stig. — hsím. —
Rúnar lútinn
Þessa mynd tók ljósmyndari Vísis á Reykjavíkurflugvelli af
Rúnari í glaðværum hópi landsliðsmanna, þegar lagt var upp
í hina örlagaríku ferð til Lundúna á föstudagsmorguninn.
Sorgardagur hjá 'islenzkum Ibróttamönnum
■ Rúnar Vilhjálmsson,
hinn efnilegi ungl-
ingalandsliðsmaður í
knattspyrnu, lék aldrei
sinn fyrsta landsleik
með aðallandsliði ís-
lands. Hann lézt á Centr
al-sjúkrahúsinu í Lond-
on árla í gærmorgun og
hafði aldrei komizt til
meðvitundar. Slysið í
London, þegar svalir hót
elherbergis Rúnars
brotnuðu með hann, hef-
ur slegið óhug að þjóð-
inni allri og sannarlega
féll hér í valinn einn
þeirra æskumanna, sem
miklar vonir voru tengd
ar við.
Islenzka landsliðiö gengur þvi
til leiks í kvöld með sorgina
sem fylginaut. Liðiö, sem lagði
upp frá Reykjavík á föstudags
morguninn hefur frá því slysið
gerðist verið harmi lostnir og
sannarlega ekki i skapi til að
ganga til leiks, en leikurinn
verður að fara fram, og eflaust
munu leikmenn reyna eftir
megni að gera sitt bezta og
heiðra með því minningu félaga
síns.
Rúnar Vilhjálmsson muna
margir frá rigningardegi einum
í júlí 1968. Þá var hann einn af
hinum baráttuglööu liðsmönn-
um íslenzka unglingalaridsliðs-
ins, sem komst í úrslit Norður
landsmótsins í Laugardal gegn
Svíum. Liðið vann hug og
hjörtu áhorfendanna, einkum
nokkrir leikmenn úr Fram, Rún
ar og félagar hans. Man ég sér
staklega hversu stór þáttur Rún
ars var gegn hinum snjalla mið
herja Svía. Gustavson, og
töldu blöðin eftir þennan leik
að Rúnar hefði sýnt langbeztan
leik íslendinganna. Þetta var í
fyrsta skipti sem ég sá þennan
glæsilega, unga mann á velli.
»->• 10. sfða
Þér
sem
búið úti á
landi
4L.
Uolli
ry
Sfmi
Þér segið oss hvernig þér viljið greiöa vöruna. Ef þér greiðið gegn póstkröfu fáið þér staðgreiösluafslátt en beztu afborgun-
arkjör okkar eru þessi:
Caup allt að 10.000 — 1000 út'
—----------- 20.000 — 2000 — •
— ------ 30.000 — 3000 — •
----------- 40.000 — 4000 — ■
— ------ 50.000 — 6000 — ■
— ------ 60.000 — 8000 —
1000 á mánuði
1000 - —
1500 - —
2000 - —
2000 - —
2500 - —
KauD þar yfir 20% út afgangur á 20 mánuðum. Þér ákveðið með hvernig afborgunum þér viljið
greiða vöruna Vér útbúum samning og víxla. sem vér sendum yður t.il undirsknftar og þér
endursendið oss Sið->n ...... vér vörurnar oc er bá útborgunin ' pðst.kröfu ef þér hafið
ekki þegar sent hana til vor. Vixlana sendum vér 1 næstu bankastofnun við yóur.
-22900 Laugaveg 26
skrifið eða hringið, segið oss hvaða húsgögn yður vantar
og biöjið um myndalista vom.
Ef þér hafið í huga að kaupa bólstruð húsgögn, svo sem
sófasett, svefnsófa eða borðstofustóla, þá flýtir þaö fyrir,
ef þér segið oss hvaða áklæðalitir koma til greina, t. d. hvort
sófasettið eigi að vera grænt eða gulbrúnt o.s.frv. Vér send-
um yður um hæl mvndalista, verðlista og 5—10 mismuriandi
áklæöi og liti.