Vísir


Vísir - 02.02.1970, Qupperneq 7

Vísir - 02.02.1970, Qupperneq 7
V í S I R . Mánudagur 2. febrúar 1970. í MORGUN ÚTL.ÖNDÉ MORGUN ÚTLÖND I MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Verkfallið í Svíþjóð að fjara út t Jarðarfararsvipur? — en vaxandi verkf'óll / Danmörku NÁMUMENN í Norður-Svíþjóð samþykktu um helgina með 1620 atkvæðum gegn 1552 að halda áfram verkfalli. Hins veg- ar samþykkti 27 manna viðræðu nefnd verkfallsmanna að mæla með því, að vinna yrði hafin að nýju. Var það samþykkt með 13 atkvæðum gegn 12. Rökin fyrir þeirri ákvörðun voru, hversu margir vilja nú hefja vinnu, þótt þeir séu í minnihluta. Verkfallið virtist vera að fjara út í morgun. í námunum í Kiruna Brotið blað í viðskiptum Rússa og Vestur-Þjóðverja Sovétríkin og Vestur- Þýzkaland hafa gert stærsta viðskiptasamn- ing sinn eftir margra mán- aða samningaþóf. Náttúru gas, 52 milljarðar kúbik- metra, verður leitt frá Síb- eríu til Vestur-Þýzkalands, en Rússar fá í staðinn 1,2 milljarða tonna af stórum stálrörum. 17 vestur-þýzkir bankar hafa veitt lán, samtals um yfir 20 millj- arða íslenzkra króna trl þessara viðskipta. Byrja skal afhendingu gassins árið 1972, og fyrir 1978 á það að verða þrír milljarðar kúbik- metra á ári. Rö.rin á að afherrda á tímabitínu frá júlí 1970 til desember 1972. 'Skal bankalánið endurgreiðast á tíu árum með 6,5% vöxtum á ári. Samningurinn er milli fyrirtækja þeirra, sem í hlut eiga. Var hann undirritaður f viðurvist ráðherra þess, sem fer með utanríkisvið- skipti í Sovétrikjunum, Nikolai Os- sippovs, og Karl Schillers, efnahags málaráðherra Vestur-Þýzkalands. Ossipov sagði, að Rússar hygðust aHs ekki láta Evrópu í té lélegt gas. „Við verðum sjálfir að flytja inn gas frá íran og Afganistan,“ sagði hann. Sovétríkin hyggjast einnig láta Pólland, Austur-Þýzka- land Austurríki, Frakkland og Ítalíu fá slíkt gas. Þessi viðskiptasamningur er eitt fyrsta skrefið í átt til bættrar sam- búðar þjóðanna, sem er efst á blaði Willy Brandts kanslara Vestur- Þýzkalands. Jafnframt halr’- 'fram viðræður um mikilvægar riði. Bahr, sérlegur sendimaður Brandts, ræddi á föstudag í sex klukkustund ir við utanríkisráðherra Sovétríkj- 100 farast í járnbrautarslysi Meira en 100 létu lífið og 400 slösuðust, þegar hrað- lest rakst á farþegalest, „Eins og við jarðarför46 Tizkuvikunni i Paris lauk með einingu Balliö er búiö, og nú leggja ttzkuhneigðar konur upp í lang- ferð sína. Vor síðu tízkunnar er gengiö í garð. Það ríkti spenna á tízkuvik- unni í París til síðustu stundar. Yves Saint-Laurent hafði nefni- lega hlotiö þann heiður að eiga síðasta orðiö, og hann hafði svo oft áður gengið á móti ,,línum“ hinna. Ónei. í þetta sinn náðu hin „stuttu" Laurent-pils niður fyr- ir hné og þau siöu til öklanna. Lítiö kom á óvart. Hann sýndi 27 buxur, þröngar um mjaðmir, en víðar f skálmum. Jafnvel brúðurin var i síðbuxum. Pilsin voru síð bæði til morg- unbrúks og kvölds. ,,Línan“ var öll „long look“. Litirnir voru svo skrúðlausir, að mönnum fannst þeir vera við jarðarför. Samt vantaði ekki lófatakið, og þar með lauk þessari tízkuviku i París. anna, Andreij Gromyko. Hittast þeir aftur á morgun. Hins vegar eiga Vestur-Þjóðverj- ar nú í illdeilum við Rússa vegna fyrirhugaðs fundar vestur-þýzka þingsins í Berlín. Hafa Rússar mót- mælt honum og tafið allar ferðir fólks til Berlínar í mótmælaskjmi. komu 300 til vínnu í dag, en 200 i Malberget. í Svappavaara ha. i ekki verið byrjaö aö aka mönnum til vinnu sinnar í morgun, en 50 komu fótgangandi sex kílómetr; leið. Samtímis var hafin hörð barát; ; fyrir þvi, að verkfallinu yrði haldiö áfram af hinum haröari verkfal! mönnum. Voru skilti sett upp viö vegi, þar sem skoraö var á verka- menn aö hugsa sinn gang, áður þeir færu til vinnu. Formaður i sænska alþýðusam- bandinu, Arne Geijer, lagði áherzlu á það í morgun, að það væri í raun- inni aöeins minnihluti verkamanna, sem halda áfram verkfalli. Hefði þátttaka í atkvæðagreiðslunni verið tiltölulega lftil. Meðan verkfallið £ Svíþjóö virö- ist fjara út, magnast verkföllin Danmörku. Búizt er viö, að um 30' þúsund verkamenn fari í verkfall til viðbótar þeim 17 þúsund skipa-' smiöum, sem nú eru í verkfalli í' Danmörku. sem var kyrrstæð, 50 kító- metrum norðvestur frá Bu- enos Aires, höfuðborg Arg entínu, í morgun. Margir fórust af þeim, sem voru í kyrrstæðu lestinni. Þyrlur föru strax á vettvang, en erfitt er að komast að staðnum. Sumir töldu, að allt að 250 hefðu farizt. Tugir helsærðra manna voru innilokaðir í eyðilögðum vögnun- um. Þetta mun vera versta járnbraut- arslys í sögu Argentínu. ® Notaðir bílar til sölu Höfum kaupendur að Volkswagen og Land-Rover bifreiðum gegn staðgreiðshi. Til sölu í dag: Volkswagen 1200 ’55 ’62 ’63 ’64 ’68 Volkswagen 1300 ’67 ’68 Volkswagen 1600 TL Fastback ’67 Volksvagen sendiferðabifr. ’62 ’65 ’68 Land-Rover bensín ’62 ’63 ’64 ’65 ’66 ’67 ’68 Land-Rover dísil ’62 Toyota Crown De Luxe ’67 Toyota Corona ’67 Volga '65 Singer Vogue ’63 Benz 220 ’59 Skoda Octavia ’65 ’69 Moskvitch ’68 Renault ’65 Við bjóðum seljendum endurgjaldslaust afnot af rúmgóðum og glæsilegum sýningarsal okkar. Slmi 21240 HEKLA hf Minnkandi útgjöld Bandaríkjanna til hermála Nixon Bandarikjaforseti hefur lagt fram hæsta fjárlagafrum- varp í sögu landsins, yfir 1800 milljarðar króna. Útgjöld til landvarna minnka um 550 milljarða króna, en þau eru þó þriöjungur fjárlaga. Minna er varið til gcimferða en verið hefur í átta ár.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.