Vísir - 02.02.1970, Qupperneq 16
Mánudagur 2. febrúar 1970.
Valt í
hálku á
Reykjanes-
braut
Fólksbíll, sem í voru 4 mann-
eskjur ein hjón og tvö böm, 4 og 5
ára, valt á Reykjanesbraut rétt
sunnan við gjaldskýlið hjá Straumi
í gærdag um þrjúleytið. Bfllinn
lenti utan vegar á hvolfi.
Mikil hálka var á veginum og
olii það miklu um óhappið, en það
var lán i óláninu að fólkið slapp
að mestu ómeitt, nema annað bam
ið, 5 ára drengur, slasaðist, en þó
ekki hættulega.
ISLCNDINCAR 6ÆTU A77
3-4 MEDAL ÁTTA EFSTU
— Mikill slagur um verðlaunin. Guðmundur,
Ghitescu, Amos og Padevski efstir
Baráttan um efstu sætin
á Reykjavíkurskákmót-
inu harðnar nú heldur
betur. Guðmundur Sig-
urjónsson er örugglega
efstur eftir 13 umferðir
með lOVi vinning. Hann
á nú eftir að tefla við þá
Freystein og Vizanti-
adis.
Ghitescu er með 9]/2 vinning,
hefur heldur sótt í sig veðrið síð
ustu umferðirnar, Amos er með
9 vinninga og Padevski með
8 V2. Þessir fjórir koma til með
að kljást um fjögur efstu sætin,
en þeir Friðrik, Hecht og Matu
lovic gætu ef til vill blandazt
eitthvað í þá baráttu.
Aftur á móti verður mun tví-
sýnni barátta um fjögur næstu
sæti, en verðlaun eru veitt átta
efstu mönnum í mótinu. Nokkr
ir íslenzku keppendanna, auk
þeirra Friðriks og Guðmundar,
eiga möguleika á að krækja sér
í verðlaun, einkum þeir Frey-
steinn Þorbergsson og Bjöm
Þorsteinsson.
Orslitin í 13. umferðinni urðu
annars sem hér segir: Guðmund
ur vann Benóný, Friðrik vann
Braga, Hecht vann Björn Sigur-
jónsson, Jón Kristinsson vann
Ólaf, Bjöm Þorsteinsson vann
Freystein, Ghitescu vann
Vizantiadis. Amos og Padevski
gerðu jafntefli og Matulovic á
biðskák við Jón Torfason. Jón
á þrengri stöðu en peð yfir,
svo að hann gæti ef til vill hald
iö skákinni og náð jafntefli.
1 kvöld hefst 14. og næstsíð-
asta umferðin í Hagaskólanum
klukkan 18.30. Þá tefla saman
Padevski og Friðrik, Ghitescu
og Jón Torfason, Hecht og
Matulovis, Bragi og Bjöm S.
Ólafur og Amos, Benóný og Jón
Kr., Vizantiadis og Bjöm Þ,
Vakandi augu 1
Gj aldheimtunni
komu upp um þjóf
MAÐUR NOKKUR var staðinn
að verki með grjót í hendi að
brjótast inn í Hafnarstræti 9 í
fyrrinótt, en það sást til hans úr
Gjaldheimtunni, þegar hann
braut rúðu á bakhlið hússins.
Kom lögreglan að honum, þegar
hann var að basla við að brjótá
upp lás á hurð með steininum, og
var hann þegar í stað tekinn og
færður í vörzlu.
Aðfaranótt laugardags voru tvær
dlraunir til innbrots gerðar í bæn-
um, en til annars þjófsins sást, þar
Munaði litlu
oð illa færi
Naumlega var sloppiö, þegar bif-
reiðinnl hér á meðfylgjandi mynd
var ekið út af veginum í Hvítanes-
brekkunni á Hvalfjarðarströnd (hjá
Staupasteini), því að bifreiðin hefur
nuraii staðar á blábrún 30 metra
hengiflugs, þar sem ekkert er fyrir
neðan nema sjórinn. — ökumaður,
sem ók hjá slysstaönum um miö-
nætti s.l. nótt, tók þessa mynd af
aðstæðum, en bifreiðin var yfirgef-
in af fólki og enginn var til frá-
sagnar um, hvað gerzt hafði.
sem hann reyndi að brjótast inn í
Rúgbrauðsgerðina í Borgartúni.
Hann var þó farinn, þegar lögregl-
an kom á staðinn. Hin tilraunin var
gerð í fornbókaverzlun á Hverfis-
götu 16, og var brotin rúöa í sýn-
ingarglugga og stolið ejnu beizli á
hest, en ekki hreyft við öðru.
Á sunnudagskvöld sást til stráka
í Kleppsholti, sem virtust reyna að
stela dráttarvél, er stóð hjá Drátt-
arvélum h.f. við Kleppsveg. Lög-
reglan kom að þeim, en einn úr
hópi strákanna hafði gangsett drátt
arvélina í fikti, en hreyfði hana
ekki úr stað.
UTILEGUBATAR MEÐ 60
TONN I 5 LÖGNUM
Góður linuafli vestra
DÁGÓÐ veiöi hefur verið hjá
línubátum frá Breiðafjarðarhöfn
um að undanförnu, einkum hjá
þeim, sem komizt hafa út í Jök-
uldjúp með línu sína. Þeir hafa
komizt upp f 16 tonn í lögn.
Þrír bátar frá Ólafsvik voru með
um 16 tonn á laugardaginn. Afla
hæstu bátarnir í Ólafsvík f janúar
eru Sveinbjörn Jakobsson með 130
tonn og Halldór Jónsson með 126
tonn — f 14 róðrum, sem verður
að teljast góður afli, en veður hef
ur hins vegar hamlað velðum mjög
í janúar og í dag er enginn bátur
á sjó vestra, nánast stormur á mið-
unum.
Suðurnesjabátar hafa fengið
minna á línuna og raunar hefur afl
inn hjá þeim verið tregur aö und-
anförnu, allra mest komizt upp í
Brúðkaup Fígarós
í síðasta sinn
í kvöld
Brúðkaup Figarós hefur orðið
mönnum mikil dægrastytting í
skammdeginu, ef menn hafa ekki
séö það hafa þeir þó að minnsta
kosti lesið og rabbað um það --
Síðasta sýningin á óperunni verð
ur í kvöld. Aðsóknin hefur verið
góð að flestum sýningunum. Sýning
arnar verða nú að hætta þar sem
sænska söngkonan Kan'n I.angeho
hefur ráðið sig annað nú um mán-
aðamótin.
tíu og hálft tonn. Örfáir bátar eru
byrjaöir með net, til dæmis munu
5 vera komnir með net í Kefla-
vík, en þeir hafa hreint ekkert
fiskað.
Aftur á móti hefur Keflvikingur
sem er á útilegu komið með mjög
góðan afla. Hann kom úr síðasta
túmum núna fyrir helgina með um
60 tonn eftir 5 lagnir að þvi er
sagt var. Áður hafði hann farið þrjá
túra og i túmum á undan fékk
hann 50 tonn. — Keflvíklngur mun
mest hafa haldiö sig á slóðum Breið
firðinga og Vestfirðinga, þar sem
línufiskiríið hefur verið bezt i vet-
ur.
Febrúarsnjór eftir
miidan janúar
Reykjavíkurbörnum hlotnað-
ist óvænt ánægjuefni, sem var
snjórinn i gær, enda flýttu þau
sér að velta stóra snjóbolta í
snjókarla. í morgun var svo
snjórinn horfinn og litil um-
merki eftir þetta vetrarhret.
Góða veðrið komið aftur, sem
hefur staðið yfir ailt frá 11. jan-
úar.
Það má búast við að seinni
hluti janúar sé með hlýjasta jan-
úarkaflanum, sem komið hefur
um árabil. Frostið sem var
fyrstu 10 dagana af janúar mun
þó vega upp á móti hitakaflan-
um í tölulegum útreikningum
Veðurstofunnar á meðalhita
mánaöarins. Það kom fyrir i jan
úar að sólarhringshitinn komst
yfir fimm stig, en á móti vegur
að einnig mældist 12 stiga frost
sem sólarhrings hiti, einn sólar-
hring í fyrri hluta mánaðarins.
Horfa á Islenzkt
sjónvarp í Noregi
íslenzka sjónvarpið hefur öðru
hvoru sézt mjög skýrt og greinilega
í Noregi. Segir nýlega frá þessu
I í Tönsberg blad. 1 Slagen sá fjöl-
! skylda ein islenzka sjónvarpið eft
I ir að dagskrá norska sjónvarpsins
1 lauk. Var útsendingin frá íslandi
I ekki lakari en sú norska og fjöl-
skyldan ákaflega ánægö með þenn
an sjónvarpsauka.
Þess skal getið að norska siórr
varpið hefur oft sézt hér á landi
og auk þess ýmsar stöðvar aðrar,
en mjög er þetta undir heppm
komiö og þurfa skilyrði öll
vera nokkuð einstök.