Vísir - 12.02.1970, Síða 2
CORDOBES slasast
í nautaati
Nautið sigraðist á frægasta nautabana Spánar á leikvangi í Colombia
Frægasti nautabani Spánar,
Manuel Benitez, sem betur er
þekktur undir nafninu, E1 Cord-
obes, særöist alvarlega í viður-
eign við naut á Santa Maria-
leikvanginum í Colombía.
Nautinu tókst að reka í hann
horn um leið og hann rak korða
sinn í bak þess, og hóf hann
hátt á loft upp, áður en það
varpaði honum til jaröar. Rakst
annað homiö undir hægra kjálka-
barðið á nautabananum.
E1 Cordobes var borinn með-
Hinn 33 ára gamli nautabani liggur illa særður undir fótum nautsins, sem bar sigur af hólmi í
viðureign þeirra.
71 árs kona gerist
leynilögregla
oð hætti frægustu sögupersónu Agatha Christie
I hálfan mánuð lagði frú
Máude Annie Patrick, 71 árs göm-
ul ekkja, fyrir sig leynilögreglu-
störf og fyrir kl. 9 að morgni
hvers dags var hún komin á
stjá til þess að rannsaka dular-
fullt hvarf blómsturpotts úr
blómagaröi sínum.
Hún leitaðj í görðum hundraöa
húsa í stórum borgarhluta, og
gaf sér rétt tíma til þess að
snæöa hádegisverð á hlaupum,
en þrammaði í staðinn milli húsa-
garöanna langt fram á kvöldin.
Stundum skipti hún líka um
yfirhöfn og brá sér í aöra kápu
og setti upp nýjan hatt... „ef
einhverjir skyldu fara að gruna
eitthvað, þegar þeir sæju sömu
konuna aftur og aftur á þrammi
eftir götunni þeirra,“ sagði hún
síðar sjálf frá.
Með þessu háttalagi var gamla
frú Patrick að leggja lögreglunni
lið sitt við að upplýsa hvarf stein
steypts blómsturpotts, sem staðið
hafði í blómagarði hennar í Somm
erville Drive í Leeds.
Hún haföi auðvitað tilkynnt
þjófnaðinn, en varð fljótlega
ljöst aö lögreglan ætti fullt í
fangi með rannsóknir stærri
glæpa, heldur en blómapottaþjófn
aða. Að dæmi ungfrú Marple,
öldruðu piparmeyjarinnar úr hin-
um frægu lögreglusögum Agatha
Christie, hóf Maude Patrick sjálf
að rekja slóðina.
Og löng var sú slóö, sem hún
rakti nákvæmlega frá húsi til
húss, heilu hverfin á enda, svo
spannaöi stóran hluta borgarinn-
ar — dag eftir dag í alls konar
veðri, Það var alger saumnálar-
leit, því að tvisvar skoðaði hún
hvern garð, til þess að leita vel af
sér allan grun.
Á fimmtánda degi bar þolin-
mæði hennar og þrautseigja líka
ávöxt.
Þarna í einum garðinum blasti
blómsturpotturinn hennar við
henni, og hún var ekki höndum
seinni að hringja í lögregluna.
Lögreglan tók pottinn og hand-
tók plastiðnaðarmann fyrir þjófn-
aðinn. Seinna játaði sá og var
sektaður um 10 pund.
Frú Patrick ver öllum tóm-
stundum sínum til garðyrkju og
líka gerir hún sér til dundurs að
móta ýmsa muni úr steinsteypu,
eins og t. d. þennan umrædda
blómsturpott.
Eins og gefur að skilja var
þetta afrek hennar matur fyrir
brezku blöðin og 1 viðtali viö
eitt þeirra sagði hún: „Sumt fólk
mun áreiðanlega halda, aö ég sé
i meira lagi skrýtin gömul kerl-
ing, fyrst ég lagði alla þessa fyr-
irhöfn á mig fyrir einn blómstur-
pott. — En garðyrkjan er mér
eitt og allt, síðan ég missti bónda
minn, og ég hef lagt verulega
hart að mér til þess að gera garð-
inn minn fallegan. Það var vegna
allrar þeirrar vinnu, sem ég reidd
ist svona við þjófinn.“
„Auk þess hefur mig í laumi
langað til þess að verða lög-
reglukona, og þessi þjófnaður
veitti mér tækifæri til þess að
spreyta mig við að upplýsa glæp,
Nú veit ég líka að mín aðferð
hrífur.“
Yfirlögregluþjónn rannsóknar-
lögreglunnar í Leeds, Denis Hob-
an, sagði við blöðin: „Það var
athyglisvert leynilögreglustarf,
sem gamla konan leysti af
hendi.“
Bæði fékk hún blómsturpottinn
aftur og kom upp um þjófinn.
vitundarlaus af leikvanginum inn
á sjúkrastofu, en var síðan lagður
inn á sjúkrahús. Læknaskýrslur
sögðu, að horn tuddans hefðu
þó ekki náð að ganga mjög djúpt,
en þau höfðu þó skilið eftir lang-
an skurð frá kjálka og niður á
brjóst. Að auki fékk nautabaninn
snert af taugaáfalli.
E1 Cordobes er frægasti nauta-
bani núlifandi og hæstlaunaður
þeirra allra. Hann hófst úr fátækt,
alinn upp á suðurhluta Spánar,
til auölegðar og heimsfrægðar i
byrjun sjötta tugsaldarinnar.Sagt
er að hann hafi hagnazt um rúm-
ar þrjár milljónir dollara á nauta-
ati eingöngu.
Margt manna var viðstatt á
leikvangi Santa Maria daginn,
sem slysiö varð, en Cordobes átti
að kljást við tvö naut, og auk
hans áttu að koma fram tveir
aðrir frægir nautabanar, Vasques
II frá Colombia og Manolo Mart-
inez frá Mexicó.
Eftir að Cordobes hafði verið
'
EI Cordobes eða Manuel Benit-
ez er frægasti núlifandi nauta-
bani Spánar og tekjuhæstur
þeirra allra.
borinn af leikvanginum gekk
Martinez af nautinu dauðu.
1^,,. ^
Læknar á sjúkrastofu leikvangsins í Santa Maria i Colombíu
veita E1 Cordobes aðhlynningu, meðan hann er borinn meðvit-
undarlaus af leikvanginum.
Fjölgun í Víetnam
Það er stöðugt unnið aö þvi að
fjölga í Víetnam, þrátt fyrir mann
fall strfðsaðilanna, en sá liðsauki
er þó ekki í þágu hernaðarins,
heldur ástarinnar.
Tala amerískra hermanna, sem
kvænast Víetnam-stúlkum, fer
stöðugt hækkandi, og það þrátt
fyrir ýmsar hindranir og steina,
sem yfirvöld hers og lands leggja
i götur væntanlegra hjóna.
1966 kvæntust 246 landgöngu-
liöar í Víetnam. 1967 voru þeir
452. 1968 komust þeir upp í 768
og í fyrra var slegið enn nýtt
met og stofnaö var til 1200 nýrra
hjónabanda.
Herprestum og sveitarforingj-
um er þó lagt á herðar, að brýna
vel fyrir mönnum sínum, sem
ætla að kvænast, annmarka sliks
hjónabands, eins og væntanlega
erfiðleika brúöarinnar við aö verví
ast landssiðum brúögumans o. s.
frv. Heila stafla af skjölum og
leyfum verður að útfylla með ó-
þolandi snigilshraða, og brúð-
ina verður að hreinsa af öllum
grun um tengsl við Víetcong. —
En eftirleikuriruj. er svo hms
vegai; afar Iéttur.