Vísir - 12.02.1970, Blaðsíða 10
70
V f SI R . Fimmtudagur 12. febrúar 1970.
I
Gikft
Þing Norðurlandaráðs
Stórar ráðstefnur eins og þing
Norðurlandaráös setja svip sinn
á blööin meö viðtöium og stór-
um fyrirsögnum. Slík þing
þykja merkir viöburöir, ekki
'sízt þegar nánar frændþjóðir
eru á ferðinni, enda er oft sleg-
iö á strengi frændsemi og
bræðraþels. Slik þjóöasamvinna
er vafalaust merk og jafnvel
nauösynieg og getur mörgu
góðu komið til leiðar í einlægri
samvinnu og sameiginlegri af-
stööu til ýmissa mála. En oft
finnst manni, sérstaklega þegar
eitthvaö á móti blæs, lítið hafa
áunnizt, eins og þegar deilur
rísa út af flugmálum eöa því-
umliku. En margt hefur þó unn-
izt vegna samvinnu Norður-
landaþjóöanna, sérstaklega á
sviði menningarmála.
Þó að allflestir muni fylgjast
af miklum áhuga með umræðun
um norrænt tollabandalag, þá
munu ekki færri fylgjast með
árangri af umræðum um nor-
ræna eldfjallastofnun á íslandi,
sem vafalaust yröi stórt mál fyr
ir okkur islendinga. Sameinaðar
geta Norðurlandaþjóðirnar ráð-
izt i ýmis þau verkefni, sem
éinstakar þjóöir geta vart án
erlends stuðnings.
Norrænar ráðstefnur á fjöl-
mörgum sviðum hafa gerzt al-
gengara fyrirbrigði á síöustu ár-
um, og má segja að flest meiri
háttar félagasamtök séu félagar
í viðkomandi norrænu sam-
bandi Slíkri þátttöku fylgir
venjulega samnorrænt þing í
einhverju þátttökurikjanna um
sameiginleg vandamál, með
hæfilegu millibili. Ekki hefur
staðið á því, að við íslendingar
höfum verið félagslyndir að því
leyti að sækja dyggilega allar
hugsanlegar ráðstefnur til að
skerpa þennan norræna samhug
og samvinnu og er það að
mörgu leyti vel. En mörgum
þykir með réttu, sem árangur af
öllum hinum minniháttar ráð-
stefnum hafi ekki alltaf svarað
fyrirhöl'n. Enda hafa margir lit-
ið á ráðstefnuhald fremur sem
sport og afþreyingu frekar en
hagnýta eða mikilsverða hlið i
starfsemi sinni. Þetta er að
nokkru leyti rétt, því margar
ráðstefnur eru hreinlega
„snakk“-fundir og miklu frem-
ur kynningarsamkvæmi. En
hinu _má ekki gleyma, að oft
eru teknar mikilsverðar ákvarð-
anir og gerðar ályktanir sem
alla varða. Einnig hljóta margar
ráðstefnur að víkka sjóndeildar
hring viðkomandi þátttakenda
vegna umræðna um mikilsverð
mál, þótt ekki sé um ákvarðan-
ir eða fullafgreidd mál að ræða.
En Norðurlandaþing er ekki
venjuleg ráðstefna heldur meiri
háttar þing sem hefur mögu-
leika til aö grundvalla stórmál,
sem meira og minna varða dag-
legt líf allra Norðurlandabúa í
framtíðinni. Ýmis framfaramál
munu koma á dagskrá, sem von
andi fá farsællegar lyktir. Vafa-
laust má vel við una, þó að
árangurs af slíkurn þingum gæti
ekki þegar næsta dag.
Þrándur í Götu.
AFGREIÐSLA
AÐAISTRÆIÍ S
5ÍMI 1-16-60
Margar nýskipanir
innan utanrí
þjónustunnar
Allmargar nýskipanir á embætt-
um innan utanrikisþjónustunnar
ganga í gildi á næstunni, eða hafa
nýverið tekið gildi.
Einari Benediktssyni, deildar-
stjóra í utanríkisráðuneytinu, hefur
verið falið að gegna störfum sem
fastafulltrúi íslands hjá Fríverzl-
unarsamtökum Evrópu (EFTA)
með aðsetri í Genf frá 1. marz n.k.,
Hannesi Jónssyni, deildarstjóra
hefur verið faliö að gegna störfum
sem varafastafulltrúi fslands hjá
Sameinuðu þjóðunum og ræðismað
ur viö aðalræðismannsskrifstofuna
í New York frá 1. febrúar s.I.
Hinn 14. janúar skipaði forseti
íslands Sigurð Bjarnason til þess
að vera ambassador í Danmörku.
Hinn 27. janúar skipaði forseti Is-
lands Birgi Möller, Einar Benedikts
son, Eirík Benedikz, Hannes Jóns-
son, I-Iörð Helgason, Inga Ingvars-
son, Pál Ásg. Tryggvason, Sigurö
Hafstaö og Þorleif Thorlacius deild
arstjóra í utanríkisráðuneytinu
frá 1. janúar s.l.
Agnar KI. Jónsson, ambassador
fslands í Noregi var hinn 27. jan-
úar s.I. jafnframt skipaður að vera
ambassador íslands i Póllandi,
Tékkóslóvakíu, Ítalíu og fsrael.
Sama dag var Pétur Eggerz, am-
bassador skipaður til þess að vera
stallari utanríkisráðuneytisins og
til aö gegna jafnframt öðrum sér-
stökum störfum í utanríkisþjónust-
únni frá 1. jan. s.l. að telja.
Lögreglan —
W}—> 1. síðu.
salerninu, karla og kvenna. —
Sem betur fór uppgötvaðist eld-
urinn svo til strax, þegar fólk
kom kl. IÍJ til vinnu úr mat-
málstíma sínum, og var slökkvi-
liðinu þegar gert viðvart.
Slökkviliðið var þegar lagt af
stað til þess að sinna þessu
kalli, þegar eldur uppgötvaðist
í öðru húsi, Hafnarstræti 5, en
þar kóm í ljós, að farið hafði
verið upp í gamlan stigagang,
þar sem geymd voru gömui
bókhaldsgögn heildverzlunar
+
ANDLÁT
Marinós Péturssonar í sama
húsi, og hafði veriö kveikt í
gamalli skjalamöppu í einu
horni og pappakassa fullum af
skjölum í öðru horni. Starfs-
stúlka á saumastofu á sömu
hæó varð eldsins vör, þegar
hún kom úr mat og henni mætti
reykurinn, sem lagði úr geymsl-
unni.
Lítið sem ekkert tjón hlauzt
af þessu, vegna þess hve fljótt
eldanna varð vart og þeir fljót-
lega slökktir, en engum bland-
ast hugur um, að þarna heföi
' géta skapazt h'ættuástand, ’éf
eldurinn hefði náö að magnast
upp, þvi að þótt bæöi húsín
séu steinsteypt og ekki sérlega
eldfim. eru timburhús í næsta
nágrenni, sem erfitt hefði orðiö
að verja.
Mikið kapp hefur veriö íagt á
leitina að gjörningsmanninum,
en lögreglan hefur haft næsta
fátt til þess að styðjast við og
fram til þessa hefur sú leit
engan árangur borið. — GP
Jóhann Valdimarsson, vélstjóri,
Ránargötu 10, andaðist 8. febrúar
síðastliðinn 69 ára að aldri. Hann
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju á morgun kl. 10.30.'
Ingibjörg Bjarnadóttir, Guðrúnar
götu 1, andaðist 6. febrúar síðast
liðinn, 79 ára að aldri. Hún verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju á
morgun kl. 3.00.
Málmiðnaðarmenn
óskast strax
H/F OFNASMIÐJAN. Einholti 10.
Vörulyftari
til sölu er 1 tonns dísil vörulyftari, mjög lipurt tæki.
Ný uppgerður. — Símar 50803 og 50994.
j j DAG H í KVÖLD |
BELLA
„Okkur veitti svo sannarlega ekki
af að komast burt frá okkar
hræðilegu f járhagsvandamálum.
Hvað finnst þér um þriggja vikna
afslöppunarferð um Miðjarðar-
hafið?"
Tapað — fundið.
Barna-normalföt hafa fundist.
Vitjist á Lindargötu 36 niðri.
Vfsir 12 febrúar 1920.
- - > ■ «■<:,>' ■ -'l .ilif ;S
mm
Suóaustan stinn-
ingskaldi eða all-
hvasst með snjó-
komu og siðar
slyddu. Léttir til
með norðaustan
átt i nótt og
frystir þá aftur.
FÖNDIR I KVÖLD •
Heimatrúboðið. Almenn sam-
koma í kvöld Óðinsgötu 6a, kl.
20.30. Sungnir verða Passíusálm-
ar.
Fíladelfía í Reykjavik. Almenn
samkoma í kvöld kl. 8.30. Æsku-
fólk syngur og talar
Bræðraborgarstígur 34. Kristi-
leg samkoma í kvöld kl. 8.30. —
Kristilega starfið.
Gideonfélagið í Reykjavik. Fé-
lagar munið að vitja miðanna aö
árshátíðinni í síðasta lagi í kvöld.
Nefndin.
Kristniboðs og æskulýðsvikan
í Hafnarfiröi. Samkoma í húsi
KFUM og K við Hverfisgötu í
kvöld kl. 8.30. Litmyndir frá ís-
lenzka kristniboðinu í Eþiópíu.
Gísli Sigurðsson verzlunarmaður
og Guðni Gunnarsson skrifstofu-
maöur tala. Einsöngur.
KFUM — AD. Aðaldeildarfund
ur í húsi félagsins við Amtmanns
stíg í kvöld kl. 8.30. Bjarni
Eyjólfsson talar.
Hjálpræðisherinn. í kvöfd ki.
20.30 almenn samkoma. Foringjar
og hermenn taka þátt með söng
og vitnisburðum.
SKEMMTISTAÐIR •
Þórscafé. Gömlu dansamir i
kvöld. Hljómsveit Ásgeirs Sverr-
issonar söngkona Sigga Maggý.
Röðull. Hljómsveit Magnúsar
Ingimarssonar söngvarar Þuríður
Siguröardóttir, Pálmi Gunnarsson
og Einar Hólm. Skemmtikraftur-
inn Franka Jiménes.
Sigtún. Náttúra og Uthijóð
leika ffá 9 — 1.
Glaumbær. Diskótek.
Teniplarahöllin. Bingó i kvöld
kl. 9.
Hótel Loftleiðir. Hljómsveit
Karls Lilliendahl, söngkona Hjör-
dís Geirsdóttir. Joe Dawkins
skemmtir.
Tónabær. Opið hús kl. 8—11.
Diskótek — leiktæki —- spil —
kvikmyndasýning.
ÚTBOÐ
Póst- og símamálastjórnin óskar eftir tilboðum í smíði
10 30 metra stálmastra. Útboðsgagna má vitja á skrif-
sto/u Radíótæknideildar á 4. hæð Landssímahússins
gegn 1000 kr. skilatryggingu.
Sö/uslcaífur
Dráttarvextir falla á söluskatt fyrir 4. Srsfjóröung
1969, svo og nýálágðar hækkanir á söluskatti eldri
tímabiia, hafi gjöld þessi ekki verið greidd í síðasta
lagi fyrir 16. þ.m.
Dráttarvextirnir eru 1V2 % fyrir hvern byrjaðan mánuö
frá gjalddaga, sem var 15. jan. sl. Eru því lægstu vextir
3% og verða innheimtir frá og með 16. þ.m. Sama dag
hefst án frekari fyrirvara stöðvun atvinnurekstrar
þeirra, sem eigi hafa gert full skil.
Hafnarfirði, 11. febr. 1970.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Sýsliimaðurinn í Gullbringu- og
Kjósarsýsli?