Vísir - 12.02.1970, Page 3
VlSIR . Fimmtudagur 12. febrúar 19M.
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN UTLÖND
Umsjón: Haukur Helgason
Flug-
vélar-
ræningi
felldur
Tveir lögregluþjónar í Chile, dul
búnir sem viðgerðarmenn felldu
flugvélarræningja um helgina. —
Tveir ungir menn höfðu hertekið
Caravelle-þotu yfir Chile og hugð
ust fljúga til Kúbu. Þó þurfti að
lenda í Santiago í Chile, til þess
að fylla geymana. Lögregluþjónam
ir laumuðust þá í vélina og hófst
skotbardagi.
Myndin sýnir ræningjann, Pedro
Lenin Valezuela. helsærðan borinn
burt frá flugvélinni.
Herlið Iraks
styöur
skæruliða
í Jórdaníu
■ I morgun fréttist um bar-
daga milli skæruliða og
stjórnarhersins utan höfuð-
borgar Jórdaníu, Amman. — {
Stjórnarherinn leyfir skæru-
liðum ekki að bera vopn inn
í borgina og gengur fram í
því að framfylgja reglunum,
sem settar voru í gær.
Foringjar tíu þúsund manna
herliðs frá írak, sem hefur að-
setur í Jórdaníu, segjast munu
stvðja skæruliöa, ef í odda
skorist.
Egypzka blaðið A1 Ahram seg
ir í gær, að Palestínufólkið muni
kenna stjórn Jórdaníu um, ef
borgarastyrjöld hefst í landinu.
„Allir verða að taka tillit til
Palestínuaraba", segir hiö eg-
ypzka bað. „Ef reynt er aö
tálma starfi þeirra, þá er veriö
að þjóna óvinunum."
Hussein konungur reynir nú
að sýna skæruliðum fram á, að
hann hafi ekkert illt í huga gagn
vart þeim með hinum nýju regl-
um sínum. Ræddi hann i gær í
eina klukkustund við þriggja
manna sendinefnd frá skæruliö-
um.
Óþekktur vírussjúkdómur
berst frú Nígeríu
Óþekktur vírussjúkdómur
hefur borizt til Bandaríkj-
anna frá Nígeríu, og hafa
þrír látizt af þeim fimm,
sem vitað er að hafi tekið
veikina. Sjúkdómurinn hef
ur fengið nafnið Lassahita-
sótt eftir þorpinu Lassa í
Nígeríu. Hann er svo ill-
kynjaður og svo sérkenni-
legur, segir fréttamaður í
New York, að læknar hafa
hætt að rýna í gátur hans
til þess að hrinda ekki af
stað keðjuverkunum, sem
þeir gætu ekki stöðvað.
Vírus tekur sífelldum stökk-
breytingum, og getur hann eftir
stökkbreytingu verið hættulegri en
hann var fyrir.
Bandaríkjamennirnir fimm eru
þrjár nunnur, einn læknir og starfs-
máður á rannsóknarstofu við Yale-
háskólann. Tvær nunnurnar létust,
svo og starfsmaðurinn í rannsókn-
arstofunni.
Nunnurnar smituðust allar í
Dregur til
tíðinda?
• Enginn Sovéthermaður f Mið-
Asíu nálægt landamærum kín-
verska héraðsins Sinkiang fær
nú að fara I leyfl, samkvæmt
fréttum frá Moskvu í morgun.
• Kínverskir hermenn eru nú
aftur komnir til Damansky-eyju
í Ussuri-fljóti, þar- sem kom til
blóðugra bardaga milli Rússa og
Kínverja i marz í fyrra.
haust, þegar þær störfuðu aö banda
rísku trúboði í Lassa. Sú fyrsta lézt
eftir sólarhring og önnur eftir tíu
daga. Sú þriðja var flutt til Banda-
ríkjanna og tókst læknum þar að
bjarga lífi hennar, en þá smituðust
tveir menn, sem unnu viö rannsókn
ir á blóði.
Einkenni þessa sjúkdóms eru mis
munandi: hiti, sár í munni, blæð-
Þrir Bandarikja-
menn látnir
ingar, lungnabólga, kvalir i nýr-
um og vöðvum. Læknarnir i Banda-
ríkjunum fundu fljótt, að þetta var
áður óþekktur vírus. Nunnan var
á sjúkrahúsinu í níu vikur, missti
tólf kíló og mikinn hluta hárs síns.
Það var ekki fyrr en starfsmað-
urinn á rannsóknarstofunni var lát-
inn, að i Ijós kom, aö hann hafði
haft Lassahitasóttina.
ÁSAKANIR UM
FJÖLDAMORÐ
RÚSSINN TVARDOVSKY
HREINSAÐUR
# Þjóðfrelsishreyfingin í Suður-
Víetnam hefur ákært banda-
riskar og suður-víetnamskar her-
sveitir fyrir að hafa drepið 100
óbreytta borgara og sært 1000
aðra í þorpinu Khanh Lam i suður-
hluta Suður-Vietnam. Átti þetta að
hafa gerzt í október i fyrra.
Segja Víetkongmenn, að ráðizt
hafi verið á þorpið með sprengjum
og eiturgasi.
Ásakanirnar koma frá fréttastofu
Víetkong, og hefur fréttastofa N-
Vietnam birt þær. ,
//
Nú er verið að „hreinsa
til“ í ritstjórn sovézka tíma
ritsins Novij Mir, sem tal-
ið hefur verið „frjálslynt“.
Búið er að reka aðstoðar-
ritstjórann og þrjá aðra af
44
ellefu mönnum í ritstjórn-
inni.
Þessi brottrekstur gerðist á
fundi rithöfundasambandsins fyrir
skömmu. Þar var mættur ritstjóri
tímaritsins, Alexander Tvardovsky,
en hann hefur undanfarið sætt mik-
illi gagnrýni fyrir störf sín.
Novij Mir hefur stööugt verið gag-
rýnt af hinum ihaldssamari komm-
únistum fyrir aö hafa ekki boðaö
nógu ákaft „sósíalistískt raunsæi
í listrænum efnum“. Nú er búizt
við, að tímaritið verði þægara vald-
höfunum en áður var.
Tvardovsky sakar nú vestræn
blöð um að hafa birt eitt af ljóð-
um hans án hans leyfis. Nefnir
hann þar til hið vestur-þýzka
Siiddeutsche Zeitung, hið ítalska
Expresso og hið franska blað Fig-
aro Literaire, Hafi ljóðið verið birt
„í ófullkomnu formi og út úr því
snúið“. Segir hann það „glæpsam-
Iegt“, aö vestrænir höfundar hafa
kennt ljóöið við gagnrýni á Stalín.
86 létust á
kjötkveðjuhátíðinni
Samtals 86 létu lífið vegna
morða, sjálfsmorða eða slysa á
fjögurra daga kjötkveöjuhátíð í
Ríó De Janeiró, f Brasilíu, sam-
kvæmt skýrslum lögreglunnar i
morgun.
15 þúsund voru flutt í sjúkra-
hús vegna meiðsla, er fólkið
hafði hlotið á hátiðinni. 17.732
voru handteknir.
Við dansleik í einu af leik-
húsum borgarinnar voru drukkn
ir yfir 600 lítrar af viskf, 500
fjöskur af kampavíni og yfir 12
þúsund lítrar af ýmsum öðrum
tegundum áfengis
Kjötkveðjuhátíð er yfirleitt
„villt" í Suður-Ameríku. Lög-
reglan i Ríó segir, að „hátíða-
höldin hafi nú farið mjög vel
fram“.