Vísir - 06.04.1970, Blaðsíða 8
*
V í SIR . Mánudagur 6. apríl 1970.
Otgefandi: Keykjaprem ..
Framkvæmdastióri: Sven. EyjóU'sson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóharwesson
Auglýsingar: Aöaistræti 8. Símar 15610. 11660 og 15099
Afgreiösla: Aðalstræti 8. Sími 11660
Ritstjóm: Laugavegi 178. Sirni 11660 (5 línur)
Askriftargjald kr 165.00 á mánuöi innanlands
I lausasölu kr. 10.00 eintakið
Prentsmiöja Visis — Edda h.f.
Framtak í banka
^lþingi hefur nú til meðferðar frumvarp Eyjólfs K.
Jónssonar um Fjárfestingarfélag íslands h.f. Hafa
orðið um það töluverðar deilur, enda er hér um að
ræða nýja og ferska hugmynd, sem snertir mörg und-
irstöðuatriði í hagkerfi okkar.
Verkefni Fjárfestingarfélagsins á aðallega að vera
tvíþætt. Það á í fyrsta lagi að vera frumkvöðull að
stofnun hlutafélaga og sameiningu fyrirtækja, án
þess að ætla sér að vera áfram í rekstrinum, þegar
hann er kominn á réttan kjöl. Félagið tekur þóknun
fyrir störf sín og hverfur síðan að nýjum verkefnum.
í öðru lagi á félagið að vera óbeinn þátttakandi í
hlutafélögum á þann hátt, að það tryggi sölu hluta-
bréfa þeirra. Það kaupir fyrst bréfin sjálft og selur
þau síðan, þegar rekstur viðkomandi fyrirtækis er
kominn á rekspöl.
Til þess að gera þetta, þarf félagið að ráða yfir
miklu fjármagni eða geta aflað sér þess. Og einnig
þarf það að hafa á að skipa mjög hæfum skipuleggj-
endum og stjórnendum. Takist það, má telja fullvíst,
að félagið muni hafa mjög heilbrigð áhrif í atvinnu-
lífi landsins. Það stuðlar að bættum rekstri, aukinni
notkun nýjunga og endurskipulagningu í mörgum
atvinnugreinum. Þannig starfa slík félög erlendis með
góðum árangri, til dæmis á Norðurlöndum.
Slíkt fjárfestingarfélag starfar að ýmsu leyti eins
og góður banki á að gera, enda gerir frumvarpið ráð
fyrir, að um það gildi svipaðar reglur og um banka.
En starfi félagsins er á þann veg háttað, að það hef-
ur meiri hagsmuni en venjulegur banki af því, að
fjárveitingar þess beri árangur. Það er nú sérstakt
einkenni íslenzka bankakerfisins að lána fyrirhyggju-
lítið í allar áttir, dreifa fjármagninu sem víðast, til
þess að flestir fái fyrirgreiðslu. Þetta veldur því, að
allir fá of litla fyrirgreiðslu. Fjárfestingarfélagið
fylgir hins vegar eftir fjárútvegun sinni, unz tryggt
er, að viðkomandi fyrirtæki sé komið á rekspöl.
Gert er ráð fyrir, að stofnanir eins og Félag ís-
lenzkra iðnrekenda, Verzlunarráð íslands, Samband
íslenzkra samvinnufélaga, einkabankarnir og ýmsir
sjóðir vérði kjarninn í hinu fyrirhugaða Fjárfesting-
arfélagi. En einnig er gert ráð fyrir, að allir, sem vilja,
geti verið með. Það á að vera almenningshlutafélag.
Og sömuleiðis á það að vinna að því, að þau fyrir-
tæki, sem það hefur afskipti af, verði almennings-
hlutafélög. Að baki liggur þannig einnig hugmyndin
um að koma á fót auðstjórn almennings.
Ekki er enn ljóst, hvort frumvarpið nær fram að
ganga, þótt margir þingmenn úr þremur stjórnmála-
flokkum hafi lýst fylgi við það. Við ákvörðun Al-
þingis skiptir miklu máli, að þingmenn láti ekki
pólitíska flokkadrætti villa sér sýn. Hugmyndin
um Fjárfestingarfélagið er bæði tímabær og nauð-
synleg.
■ Forskot íhaldsflokks-
ins hefur stöðugt minnk-
að frá áramótum, og
um síðustu mánaðamót
varð það næstum að
engu. Wilson líður því
betur nú en um langt
árabil. í aukakosningum
í South Ayreshire var
fylgisaukning íhalds-
flokksins aðeins 2,9%.
Þetta, segja fréttamenn,
að mundi þýða, að
Verkamannaflokkurinn
ynni kosningar og fengi
tuttugu þingsæta meiri-
hluta, ef það gerðist í öll
um kjördæmum við þing
kosningar.
Þetta voru fyrstu aukakosn-
ingarnar til þings, sem gáfu
Verkamannaflokknum nokkra
von um að halda velli f þing-
kosningum, allt frá upphafi kjör
Hefur Wilson von?
— Kosningar koma til greina i júni
Kosningar með
tveggja mánaða
fyrirvara
tímabilsins. Hins vegar væri
rangt að taka of hátíðlega úr-
slit í einu kjördæmi í aukakosn
ingum. Margt kemur þar tii,
sem væri á annan veg í öðrum
kjördæmum. Samt er nú rætt
um þann möguleika að Wilson
boöi til kosninga innan skamms
jafnvel strax í júní næstkom-
andi. v
Stjómarflokkur
vinnur á
rétt fyrir kosningar
Samkvæmt skoðanakönnun-
um ýmissa aðila f Bretlandi hef
ur forskot Ihaldsmanna stór
lega minnkað. Forskotið er nú
svo lítið, aö við venjulegar að-
stæður ætti stjórnarflokkurinn ^
að hafa mikla möguleika að
vinna það upp f kosningabar-
áttu. Stjómarflokkurinn í Bret
land; stendur venjulegast vel að
vígi síðustu dagana fyrir kosn
ingar, þegar margir „vafamenn“
snúast á sveif með honum, og
gildir það raunar um stjórnar
flokka víðast hvar. Oft eru
menn fullir gagnrýni á ríkis-
stjómir, þótt þeir kjósi þær
oft að lokum, stundum sem hið
skárra af tvennu illu.
Verkamannaflokkurinn bíður
nú úrslita sveitarstjórnarkosn
inga, sem fram fara í þessum
mánuði. Þau úrslit munu
flokksleiðtogarnir meta á hverj
um stað og á sinn hátt.
... og Heath veröur órólegri.
Kosturinn við það að vera
forsætisráðherra í Bretlandi er
sá að stjómarflokkurinn getur
boðaö til kosninga hvenær sem
imiiiBim
M) IÍMZÍ
Umsjón: Haukur Helgason
er á kjörtímabilinu. Þannig get
ur forsætisráðherra með 2ja
mánaða fyrirvara stappað stál-
inu í sig og menn sína og gengið
til kosninga. Auðvitað veröa
kosningar að vera áöur en kjör
tímabilið er liðiö, svo að minni
hlutaflokkur getur aöeins set-
ið út sitt tímabil. Telji ráð-
herra hins vegar aðstæður hgg
stæðar er æskilegt aö hafa
kosningar hið fyrsta, þar sem
á hann gæti hallazt síðar á tima
bilinu. Þetta hafa forsætisráö-
herrar í Bretlandi ávallt í huga.
Þarf 9% aukningu
í sveitarstjórnum
Fréttamenn telja, að Verka-
mannaflokkurinn yrði að bæta
við sig að minnsta kosti 9%
í sveitarstjórnarkosningunum
nú, til þess að Wilson mætti
heita öruggur um meirihluta i
þingkosningum. Megináherzlan
er lögð á borgarstjómarkosn-
ingar f London. Veröi úrslitin
þar hagstæð Wilson, er hann
líklegur til að láta til skarar
‘ skríða.
Forskot íhaldsmanna í land-
inu öllu hefur minnkað í 5,5%,
en var öll síðustu ár um 20%.
Wilson verður að hafa kosning-
ar innan 14 mánaða. Meö skyn
semi má benda á þrjá hugs-
anlega kosningamánuði: júní,
október í haust, eða þá ekki
fyrr en næsta vor, að ári liðnu.
Menn höfðu til skamms tíma
alls ekkj talið júní koma til
greina. þrátt fyrir batann í efna
hagsmálunum. Var því veðjað
á október í haust.
Verðhækkanir
í sumar
Þeir, sem nú veðja á júní-
kosningar, segja, að þess sé að
vænta, að greiðsljöfnuðurinn
við útlönd veröi ekki jafn hag
stæður f haust og hann er nú.
Nú séu líka tilhneigingar til
launahækkana, og muni þær
valda verðhækkunum þegar líð-
ur á árið. Auk þess benda menn
á afstöðu almennings til Efna-
hagsbandalags Evrópu. Skoðana
kannanir sýna að fólk sýni
ekki sérstaka hrifningu yifir þvi
að Bretar gangi í EBE. Væri þvi
æskilegt fyrir stjóm Wilsons að
hafa kosningar, áður en samn-
ingaviðræður við EBE hefjast í
alvöru.
Góðgæti
á fiárlögum
Á mótj júníkosningunum mæl
ir hins vegar að ekki er að
vænta áhrifa frá sætindum ýms
um í fjárlögum sem brátt munu
lögð fram fyrr en með haust-
inu. Búizt er við, að Jenkins,
fjármálaráðherra, leggi fram
„kosningafrumvarp", sem geri
menn ánægðari með ríkisstjóm
ina. Auk þess er atvinnuleysi
yfirleitt ekki ýkja mikið f októ
ber.
Brezk blöð eru mjög skiptra
skoðana um. hvenær Wilson
muni iáta til skarar skríða. —
Hægra blaðið Daily Express seg
ir. að júnf verði hagstæðari —
Wilson en hið friálslynda Guard
ian t.elur októberkosningar lfk-
legri.
Örter á brosi
Mest veltur á þvf, hvað verð
ur uppi á teningnum í sveitar
stjórnarkosnineunum, sem hefj
ast eftir fáa daga.
Þessar bollaleggingar um
kosningar strax eru í sjálfu sér
merkileg breyting á pólitíkinni
í Bretlandi. Það örlar á brosi
á andliti Wilsons, forsætisráð-
herra.