Vísir - 06.04.1970, Qupperneq 16
Mánudagur G. apríl 1970.
B3M
-••• ,:í
•,.••••••••.
Ekiö á Ijósastaur
Ekiö var á ljósastaur á Laugarás
vegi aðfaranótt sunnudagsins um
kl. 4, og við áreksturinn bðgnaði
ljósastaurinn niður. Bifreiðin
skemmdist töluvert, en ökumaður
var grunaður um að hafa ekið bif
reiðinni undir áhrifum áfengis. —
Með honum i bílnum var farþegi
stúika, og var hún flutt á slysa-
varðstofu, en meiðsli hennar reynd
ust ekki alvarleg. —GP
Læknar vestra veittu heimfararleyfi en vilja
hana aftur, þegar fram liða timar
Rússar
unnu
Rússar unnu skákkeppnina við
,,heimsliöið“ með 20*4 gegn 19y2.
Friðrik tefldi í síðustu umferð,
þeirri fjórðu, og tapaði fyrir Smysl
ov. Tók Friðrik' við í þeirri um-
ferð af Bandaríkjamanninum Res-
evsky. Væntanlega á 6 borði.
Bent Larsen vann Leonid Stein
í þessari umférð. en Spassky var
veikur og tefldi Stein fyrir hann.
— HH
□ Meðal farþega í flug-
vél Loftleiða, sem
lenti á Keflavíkurflug-
velli á hádegi á laugar-
dag, var hin 15 mánaða
gamla Vilhelmína Guð-
mundsdóttir, sem komin
er heim eftir næstum árs
langa sjúkravist í Los
Angeles í Bandaríkjun-
um.
„Jú, það má nærri geta, hvort
maður er ekki feginn að fá dótt-.
ur sína heim," sagði faðirinn,
Guðmundur Ottósson, bifvéla-!
virki, og horfði, brosandi út að
eyrum, á móðurina Önnu Sígur-
þórsdóttur knúskyssa litlu ferða
manneskjuna, um leið og hún
tók hana úr örmum barnfóstr-
unnar, sem kámið hafði með þá
litlu vestan frá Bandaríkjunum.
Margt skyldmenna, ömmur
og afar, frænkur og frændur,
voru viöstödd á flugvellinum, til
þess að taka á móti litlu frænk-
unni. ,,Sú er oröin stór!“ kall-
aði einhver upp yfir sig. „Eða
framförin, maöur!“ gall við i
öðrum, og um stund gleymdi
fólk, sem þarna var statt til
þess að taka á móti öðrum far-
þegum, að huga aö sínum, en
virti heldur fyrir 1 sér þennan
litla farþega, sem hlaut svipaðar
móttökur, blómvendi o. fL, og
meiriháttar höfðingi væri að
stíga á land.
Seinna, þegar innilegustu
kveðjurnar voru yfirstaðnar,
náði blaðamaöur Vlsis tali af
bamfóstrunni, Ólafiu Ottósdótt-
ur — föðursystur Vilhelmínu
litlu — sem fylgt hafði lithi telp-
unni leiðina yfir hafið.
Hún kvað lækna Orthopedic
Hospital í Los Angeles hafa
leyft flutning á Vilhelmínu til
Islands, þar eð bati hennar væri
kominn langt á veg og engrar
sérstakrar læknisaðgerðar þörf
í bráð. Yfirstigin hefði verið sú
hætta, að telpan lamaðist, eins
og flestum bömum, sem fæöast
með „klofinn hrygg", er hætt
við. Aðgerö, sem gerð. hafði ver
ið við mjaðmarskekkjunni —
barnið var úr mjaðmarlið, þegar
það fæddist — hafði heppnazt
eftir vonum, en þó ætti tíminn
eftir að leiöa frekar í Ijós,
hvort nóg væri að gert. Og
vinstri fóturinn, sem hafði verið
snúinn og virtist ætla að verða
„klumbufótur", hefði verið skor
inn upp. Hann var þó í gipsi
(sem unnt er að losa af með
einu handtaki), sem hún verður
að bera fyrst um sinn.
Læknar spítalans lögðu þó ttl,
að hún yrði send þeim aftur síð
ar meir til framhaldsmeðferðar
— sjúkraþjálfunar og armars
slíks — en næstu mánuðtna
verður hún hjá ættingjum sín-
um hér heima, sem ekki hafa
séð hana, síðan hún fór tfl
Bandaríkjanna aðeins nofckuœa
vikna gömul. — GP
Sjö slösuðust í um-
ferðinni f Reykjavík
• AU margir árekstrar og ó-
höpp urðu í umferðinni um helg
ina 1 Reykjavxk og sjö manneskj
ur hiutu meiðsli vegna þelrra,
en engin þeirra slasaðist þó alv
arlega
• Ungur piltur á skeilinöðru
fótbrotnaði á laugardag í há-
deginu, þegar hann lentj í á-
rekstri við bifreið á gatnamót-
um Sogavegar og Réttarhoits-
vegar. Annav niltur á skeili-
nöðru, 15 ára gamall? slasaðist
um kvöldið, þegar hann lenti í
árekstri við bifreið á Laugavegi
á móts við hús nr. 36.
Þriggja ára gömul telpa varð
fyrir bifreið um kl. 3 á laugar-
dag á Hringbraut á móts við
hús nr. 41. Meiðsli hennar
reyndust þó vera aðeins minni
háttar.
Sama dag datt maður af hest
bakj inni í^Blesugróf og hlaut
maðurinn áverka á höfði, en
hann var fluttur á sjúkrahús.
Skömmu eftir hádegi á sunnu
dag varð harður árekstur á
gatnamótum Glaðheima og Álf-
heima, og stúika, sem var far-
þegi í annrri bifreiðinni, skarst
nokkuð á höfði. Nokkrum stund
um síðar varð annar árekstur
við Álfheimana, við gatnamót
Langholtsvegar, þegar bifreið
var ekið aftan á aðra, sem
numið hafði staðar. I fremri
bílnum slasaðist farþegi, 11 ára
gömul stúlka.
Harður árekstur varð,rétt eft-
ir kl. 8 á sunnudagskvöld hjá
umferðarljósunum á gatnamót-
um Hringbrautar og Hofsvalla-
götu. Farþegi í annarri bifreið
inni stúlka. meiddist á höfði
og fótum, og var hún flutt til
lækna á slysadeild Borgar-
spítalans. • — GP
Vilhelmína litla komin heim til föðurhúsanna, og situr hér í skauti fjölskyldunnar — f.v.: Faðir-
inn, Guðmundur Ottósson, föðursystirin, sem kom með Vilhelmínu, Ólafía Ottósdóttir, hetdur á
Vilhelmínu, og móðirin, Anna Sigurþórsdóttir, með stóra bróður, Þormar Grétar.
Ifíj
NYJA LEIÐAKERFIÐ A
LAUGARDAG
■ Nú fer senn að liða að
því að breytingarnar á leiða-
kerfi Strætisvagna Reykja-
víkur komi til framkvæmda,
og um helgina hafa borgar-
búar fengið leiðbeiningabækl
inga inn á heimili sín til að
geta kynnt sér hið nýja leiða-
kerfi. Bæklingum þessum er
dreift í um 30 þúsund eintök-
um og eiga að vera komnir
inn á hvert heimili um miðja
vikuna, en n.k. laugardag
kemur breytingin til fram-
kvæmda.
Eirikur Ásgeirsson forstjóri
Strætisvagna Reykjavíkur tjáði
blaðinu í morgun að engin breyt
ing yrði á vagnakbstinum að
svo stöddu og gjaldið hækk-
aði ekki að sinni. Með hinu nýja
leiðakerfi verða teknir í notkun
srvokaMaðir skiptimiðar sem
nota má í fleiri en einn vagn,
án þess að greitt sé aukagjald
og sagöi Eiríkur að ekki yrði
Ijóst, hvort hækka þurfi gjald-
ið fyrr en í ljós kæmi nýting
skipti miðanna. 1 dag er unnið
af kappi að ýmsum lagfæring-
um á Hlemmtorgi, þar sem mið
stöð vagnanna verður, en í gær
kvöldi óku siðustu leigubflam
ir þaðan frá Hreyfli. Hefur ver
ið komið upp klukku á Hlemm-
torgi og er nú unnið að lagfær
ingum á þeim hluta torgsins,
þar sem biðskýlið verður. —
Hjnar nýju leiðir strætisvagn-
anna eru ýtarlega raktar í leið
beiningarbæklingnum og fylg-
ir honum einnig kort þar sem
hinar nýju endastöðvar eru
merktar inn á og ferðir vagn-
anna. Allt kerfið kemur til fram
kvæmda um næstu helgi.
Listi Alþýðuflokksins í Reykjuvík
Þeir Benedikt Hjartarson og Guðjón Hansson le
hjá sér i seinasta sinn á Hlemmtorginu, en þar
inni og síðan hjá Hreyfli frá 1951. Nú eru aðeins
svo lengi og kveðja þeir nú þennan „vinnustað“,
Myndin í horninu: Það fyrsta, sem gefur vegfar
verða miðstöð fyrir strætisvagna, er þessi mynd
fljótlega verður reist biðskýli á torginu.
igubílstjórar á Hreyfli eru hér að fylla tankana
hafa þeir unnið í 25 ár, fyrst hjá Litlu bílastöð-
4 bílstjórar hjá Hreyfli, sem þarna hafa unnið
sem hér eftir verður miðstöð strætisvagnanna. —
endum um Hlemmtorg til kynna að þar eigi að
arlega klukka, sem sett hefur Iverið þar upp, og
Framboðslisti Aiþýöuflokksins
fyrir borgarstjórnarkosningarnár í
vor var sambvkktur á sameiginleg-
um fundi Alþýðuflokksfélaganna
um heigina. Miklar breytingar eru
á listanum frá síðustu kosningum,
m.a. eru ný nöfn í tveimur efstu
sætum listans, þar sem Óskar Hall-
grímsson og Páll Sigurðsson, lækn
ir, gáfu ekki kost á sér aftur. —
Efstu 10 sæti listans skipa eftir-
taldir menn:
Björgvin Guðmundsson, viðskipta
fræðingur
Árni Gunnarsson, fréttamaður
Elín Guðiónsdóttir, húsntóðir
Ingvar Ásmundsson, skrifstofU'
stjóri
Halidór Steinsen, læknir
Guðríður Þorsteinsdóttir, laganem!
Pétur Sigurðsson, stýrimaður
Jóna Guðjónsdóttir, form. Verka'
kvennafélagsins Framsóknar
Óskar Guðnason, prentari
Jóhanna Sigurðardóttir, flugfreyja
vj—
Listi Framsóknarflokksins
á 10. síöu.