Vísir


Vísir - 11.04.1970, Qupperneq 2

Vísir - 11.04.1970, Qupperneq 2
ÐA George Best keypti sér frið af Evu Hitler var skattsvikari l'ika — ofan á allt annað Súkkulaðilist með einföldu Salvadore Dali hefur látiö nýtt listaverk frá sér fara, en það er svo gott, að menn gætu vel hugs- að sér að éta það, ef manni leyf- ist að nota slíkt orðalag um menn. Þetta er reyndar sjálfsmynd í fullri stærð og verður gefin út í milljónavís í samvinnu við súkkulaðiverksmiðju, því myndin birtist á heljarstórum súkkulaði- plötum og það er þar, sem löng unin til að éta myndina af Salva dore Dali kemur inn í máiið. Meðfylgjandi ljósmynd er tekin á blaðamannafundi, sem súkku- laöiframleiðandinn efndi til, þeg- ar hann kunngjörði þessa nýju framleiðsluvöru, og þar var við- staddur listamaðurinn sjálfur Verði mönnum svo að góðuf Eí með frummyndina, sem súkkulað- þeir hafa lyst á góðri súkkuíaði- ið er steypt eftir. list. „Ég vil ekki segja, hve miklaj upphæð ég varð að borga henni.J en eitt er þó víst: Hún fékk of« mikið — en í staðinn er lfka þettaj leiðindamál úr sögunni“, sagöij knattspymukappinn, George Best, • í viðtali við blaðamenn, þegar fréttist, að Eva Haraldsted hefði dregið til baka málshöfðun sína á hendur honum. Danska sýningarmærin haföi krafizt 360.000 króna danskra í skaðabætur af fótboltahetjunni, Best, fyrir rofin hjúskaparheit, en þau höfðu fellt hugi saman á ferðalagi hans í Danmörku í fyrra sumar, og hún farið með honum til Englands. Hún sneri aldrei aftur til heimalands sín's, heldur settist um kyrrt 1 Englandi og hefur nú fengið atvinnuleyfi þar. Það hefur ekki fengizt upplýst, hve mikiö George Best hefur orð ið að greiða Evu til þess að fá hana ofan af málsókninni, en kunnugir hvísla á milli sín, að það hafi verið um 20.000 pund. 1 fyrrahaust, þegar allt var í lukkunnar velstandi milli þeirra Best og Evu, var hún spurð um, hvort milljónir kærasta hennar réðu nokkru um tilfinningar henn ar til hans. Þá svaraði hún: „Ég vil helzt vinna fyrir mínum pen- ingum sjálf. Ég hef ekki minnsta áhuga á auðæfum Georges." Það var sem sagt meðan lífiö var dans á rauðum rósum. George Best: „Ég gaf henni mikla peninga — of mikla. Eva Haraldsted: „Hef ekki áhuga á peningunum hans.“ — þó Eva! Og þó! Vestur-þýzka vikublaðið „Spieg el“ hefur fundið þennan svarta blett á Adolf Hitler — ofan á alla hina. Þaö segist hafa gengið úr skugga um það, að Hitler hafi fundizt — ekki að ástæöulausu kannski — að ómögulegt væri að botna 1 þýzka skattakerfinu, og stuttu eftir að hann varð ríkis- kanslari, voru laun hans gerð skattfrjáls á þeirri forsendu, að hann léti þau renna til ekkna og bama látinna SS- og SA-manna. Það voru um 60.000 mörk á ári. Siöan hófst hann handa viö að skjóta öörum tekjum sínum und- an. Salan á bókinni „Mein Kampf“, færði honum gífurlegar tekjur, og einhvem tíma á ríkis- ráðsfundi spurði hann fjérmála- ráðherrann, Lutz Schwerin von Krosigk greifa, hvort honum bæri að greiða skatt af þessum peningum. Að sjálfsögðu sagðist greifinn mundu kippa því í lag. Ríkisritarinn, Fritz Reinhardt, upplýsti, að Hitler hefði sem rit- höfundur fengið aö draga 50% frá tekjum sínum vegna „rekst- urskostnaðar", en svo hefði ver- ið lagt á afganginn, eftir fram- tali hans. En þrátt fyrir að fimm sinnum væri honum sent mkkun arbréf, greiddi hann aldrei svo mikið sem eitt pfennig til skatts. Hvorki af ritlaunum sínum né kanslaralaunum, þótt hann hætti aö láta þau renna til ekknasjóðs SS-manna. Og 1935 ákváðu Reinhardt og skattayfirvöld, að Hitler skyldi vera skattfrjáls, og þann 12. marz var nafn hans strikað af lista skattgreiðenda. Hinn 41 árs gamli dægurlaga- söngvari, Marcel Amont, skemr.it ir um þessar mundir í Olympia í París og helzta aðdráttarnúmerið hans er nýtt lag, sem ber heitið „Marcel Valentino". Það var nafnið, sem gaf hon- um hugmyndina um að líkja eftir hinu fræga kvennagulli, Rudolph Valentino, sem lézt 1926 aðeins 31 árs að aldri til mikillar sorgar fyrir kvenfólk um allan heim. Marcel Amont hefur fengið hinn fræga hárskurðarmeistara, Alexandre, í París til þess að greiða á sér hárið á nákvæmlega sama hátt og Valentino heitinn geröi, og til þess að kóróna eftir- h'kinguna hefur hann leitað ráða hjá hinni 23 ára gömlu Evelyne Valentino, franskri sjónvarps- stjömu, sem er ein af eftirlif- andi ættingjum kvennagullsins. Hún ljóstraði upp, að hinn raunverulegi Valentino hefði veriö svo nærsýnn, að nærri stappaði blindu og hann hefði varla nokk- um hlut séö, nema halda honum svo nærri sér, að hann gæti rek- ið nefið í hann. En Valentino átti frægðarljóma sinn allan undir kvennagullsnafninu, en slíkur galli þótti ekki hæfa vel átrún- aðargoðum kvenna i þá daga, þegar gleraugu þóttu hin verstu lýti, og kvenfólk t. d. lét aldrei sjá sig með slikt. Og menn neyddust til að ha'lda þessari staðreynd vandlega leyndri, svo að grípa varð til alls konar bragða við kvikmyndatök- ur, til þess að ekki kæmist allt upp. Þá sá Marcel Amont fram á, að ekki mundi heppilegt að ganga of langt í fullkomnun eft- irlíkingar af þessari ftKgu, aa nærsýnu fvrirmvnd. Marcel Amont 'a la Valentin*. VALENTINÖ HINN NÆRSfNI

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.