Vísir - 11.04.1970, Qupperneq 4
4
VlSIR . Laugardagur 11. apríl 1970.
Ritstjóri: Stefán Guðjohnsen
Nýlega er lokið sveitakeppni
Bridgefélags Reykjavíkur og sigr-
aði sveit Hjalta Elíassonar með 186
stigum. Ásamt honum eru í sveit-
inni Ásmundur Pálsson, Einar Þor-
finnsson, Jakob Ármannsson, Jón
Ásbjömsson og Karl Sigurhjartar-
son. Röð og stig efstu sveitanna
var þann'.g:
1. Sveit Hjalta Elíassonar 186 stig
2. Sveit Jóns Hjaltasonar 167 stig
3. Sveit Bftnedikts Jöhannssonar
144 stig
4. Sveit Stefáns Guðjohnsen 138 st.
5. Sveit Braga Erlendssonar 134 st.
6. Sveit Gísla Hafliðasonar 131 st.
Næsta miðvikudag mun Bridge-
félagið keppa á sex borðum við
Taifl- og bridgeklúbbinn.
Eitt skemmtilegasta spilið í mót-
inu kom fyrir milli sveita Jóns
Hjaltasonar og Gísla Hafliðasonar.
Staðan var allir á hættu og austur
gaf. I lokaða salnum þar sem Birg-
ir og Hilmar sátu a-v og Guðlaug-
ur og Guðmundur n-s gengu sagnir
þannig hjá a-v:
Austur Vestur
2 ♦ 2 G
3 4 4 V
P
Spil a-v voru þannig:
Vestur Austur
4» enginn 4 A-K-D-8-6-5
V A-10-7-6-5-3 V K-D
♦ K-10-8-5-4 + A-G-3
* 4-2 4> G-6
Ósköp eðlilegur lokasamningur,
sem virðist hafa góða vinnings-
möguleika. Norður, Guðlaugur,
spilaði út laufaþristi, Hilmar, vest-
ur, lét sexjð úr blindum, Guðmund
ur í suður lét tíuna, sem átti slag
inn. Nú kom tigultvistur, fjarkinn,
trompátta hjá norðri og lágt frá
blindum. Þá tekur norður laufaás
og spiiar síðan laufaníu. Vestur sér
nú að norður hefur átt 12 spil i
svörtu litunum, því að með annað
tromp, þá hefði hann spilað suðri
aftur inn á lauf, til þess að trompa
aftur tígul. Suður hlýtur því að eiga
gosann fjórða í trompi, og honum
verður ekki náð nema með tromp-
bragöi. Hann gefur því spaða úr
blindum og trompar slaginn heima.
Þar eð suður var með í þriðja
laufið, er noróur sannaöur með tvo
sexliti og spaðinn gefur því aðeins
eitt niðurkast. Vestur spilar sig því
inn á tígulás, tekur spaðaás, kastar
tígli, svinar tigulgosa, inn á tromp
drottningu, lágspaða og trompa til
þess að stytta sig í sömu lengd og
suður og síðan tromp á kónginn.
Þá er spaðakóng spilað úr blind-
um og suður er varnarlaus. Þetta
sá Hilmar náttúrlega allt saman,
og hann spilaði því tígli í fimmta
slag. Norður TROMPAÐI og spiliö
var einn niður. Hvemig mátti þetta
veröa? Jú, noröur spilaði undan
A-K-D-9-5-3 í laufi en spil n-s voru:
Norður
* 10-7-4-3
¥ 9-8-4
* enginn
* A-K-D-9-5-3
Suður
* G-9-2
VG-2
♦ D-9-7-6-2
4> 10-7-4
Hilmari er vorkunn i sinni spila-
mennsku, en hann gat samt verið
örlítið varkárari, þar eð sannað var
að norður hafði spilað undan ein-
hverjum háspilum í laufi. 1 fimmta
slag á hann að fara inn á hjarta
drottningu til þess að sannprófa
skiptingu norðurs.
1 opna salnum vakti spilið litla
athygli. Þar voru spiluð fimm
hjörtu. Norður tók tvo hæstu í
laufi og vestur átti afganginn.
Jgin aif algengustu vörnum
svarts gegn kóngspeðsbyrj-
un er franska vörnin. Þetta var
lengi uppáhaldsbyrjun Botvinn-
iks fyrrurn heimsmeistara og
með henni vann hann margar af
sínum beztu skákum.
Síðustu árin hefur austur-
þýzki stórmeistarinn Uhlmann
verið helzti sérfræðingur i
frönsku tafl; og svarar ával'lt
1. e4 með e6. Slfk sérbæfni get-
ur þó verið nokkuð tvíeggjuð.
Á stórmótinu í Moskvu 1967
fundu sovézku skákmeistaramir
Gipslis. Tal og Steins veikan
blett á vamarkerfi Uhlmanns og
unnu hann hver á fætur öðmm
með hvítu.
En það þarf meira til að Uhl-
mann missi trúna á frönsku
vörnina og hér kemur snotur
vinningsskák frá svæðamótinu i
Austurrfki 1969.
Hvítt: Camilleri.
Svart: Uhlmann.
Frönsk vöm.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. e5 c5 4.
c3 Rc6 5. Rf3 Db6 6. Be2.
Betra er 6. a3 Bd7 7. b4 cxd
8. cxd Rge7 9. Rc3 Rf5. 10. Ra4
DdS 11. Bb2 Rh4 12. RxR DxR
13. Bd3 og hvftur hefur betra
tafl. Þannig tefldu Unzicker og
Gligoric i Stokkhólmj 1962.
Betri leið hefur þó verið fundin
fyrir svartan, 6... c4 7. Be2
Ra5 8. Rbd2 Rge7 9. 0-0 Bd7
með ýmsum mögulei'kum.
6...acd 7. cxd Rh6!
Þar með nær svartur fmm-
kvæðinu. Hvítur má ekki taka
riddarann á h6, því svörtu reit-
imir á drottningarvæng verða
þá mjög veikir.
8. Rc3 Rf5 9. Ra4 Bb4f 10. Kfl
Betra var 10. Bd2 Da5 11.
Bc3 Bd7 12. a3
10... Dd8 11. Bg5 Be7 12.
BxB DxB 13. Dd2 0-0 14. g3
Betra var 14. Bd3 Rfxd 15.
RxR RxR 16. Bxht KxB 17. DxR
14. .... Bd7 15. Rc3 f6!
Riðlar peðafylkingu hvíts. Mis
munurinn á hvítu og svörtu
stöðunni er auðsær. Menn svarts
em búnir til árása, én hvitu
mennimir hafa engin skotmörk.
16. g4?
Slfka veikingu þolir staðan
ekki eftir hina fálmkenndu tafl-
mennsku hvíts. Reynandi var
16. Kg2
16... Rfxd! 17. RxR fxe 18.
RxR BxR
Nú er aðeins eftir að gera sér
mat úr miðborðspeðunum og
Uhlmann Ieysir það verkefni á
skemmtilegan hátt.
19 Rdl
Hvítur hótaði 19.... d4. Ef
19. Hgl Dh4.
19 .. Dh4 20. Hcl
Ef 20. h3 d4 21. Hh2 Dg3 og
vinnur.
20 .. d4 21. HxB Dh3t 22.
Kel bxH 23. Dd3 Dg2 24. Hfl
Dd5 25. Ðc4 e4 26. DxD exD 27.
Hgl d3 28. Bfl d4 29. Hg3 Hf4
30. f3
Flýtir fyrir ó'hjákvæmilegum
úrslitum.
30... H8f8 31. Rf2 Hxf 32.
HxH HxH 33 Bg2 d2f Gefið.
Jóhann Sigurjónsson.
i
Úrval úr dagskrá oæstu viku
SJÚNVARP •
Sunnudagur 12. apríl
17.00 Landsflokkaglíman. (2.
hluti). Þriðji þyngdarflokkur
fuilorðinna.
18.00 Helgistund. Séra Jón Auð-
uns, dómprófastur.
18.15 Stundin okkar.
Fúsi flakkari kemur í heim-
sókn. Sigurður Þorsteinsson
kennari leiðbeinir um frímerkja
söfnun. Teiknimyndasaga eftir
Molly Kennedy. Þulur Kristinn
Jóhannesson. Séra Sveinn Vík-
ingur leggur gátur fyrir börn
í sjónvarpssal og heima.
Kynnir Kristín Ólafsdóttir.
Umsjón: Andrés Indriðason og
Tage Ammendrup.
19.00 Hlé.
20.00 Fréttir.
20.20 Veður og auglýsingar.
20.25 Sú var tíðin... II. Kvöld-
skemmtun eins og þær gerðust í
Bretlandi á dögum afa og
ömmu. Stjórnandi Leonard
Sachs.
21.15 Við fjallavötnin. Norsk
mynd um vatnafiskveiðar norð-
ur á Finnmörku í forkunnar-
fögru umhverfi, Þýð. og þulur
Höskuldur Þráinsson.
21.40 Milli steins og sleggju.
Corder læknir kemur til hjálp-
ar manni, sem reynir að gera
það upp viö sig, hvort hann eigi
að skilja við eiginkonu sína og
giftast ástkonu sinni, sem geng
ur með bam hans.
22.30 Dagskrárlok.
Mánudagur 13. aprfl
20.30 Lúðrasveit Hafnarfjarðar
Stjómandi Hans Ploder.
21.20 Fyrirheitna landið. Lýst er
tildrögum aö stofnun Israels-
ríkis og hlut stórveldanna að
því máli, afdrifum fölksins. sem
áður byggði landið og deilu-
málum ísraels og Arabaríkj-
anna.
22.00 Rósastríðin. Framhalds-
myndaflokkur, gerður af BBC
eftir leikritum Shakespeares
og fluttur af leikurum Kon-
unglega Shakespeareleikhúss-
ins. Játvarður IV. — 3. kafli.
Leikstjórar John Barton og
Peter Hall.
Þriðjudagur 14. apríl
20.30 Myndhöggvarinn Henry
Moore. Mynd um listaverk og
vinnubrögð hins kunna, brezka
myndhöggvara.
21.00 Á öndverðum meiði. Um-
sjónarmaöur Gunnar G.
Schram.
21.35 Skál. Sjönvarpsleikrit eftir
Ari Koskinen, gert af finnska
sjónvarpinu. Leikstjóri Tuija
Maija Niskanen.
Miðvikudagur 15. aprfl
18.00 Tobbi. Tobbi og hreindýrin.
18.00 Chaplin. Húsvörður.
18.20 Hrói höttur. Flóttinn frá
Frakklandi.
20.30 Gripdýrið. Dönsk teikni-
mynd í gamansömum dúr um
gripdýrið í skreytingalist vík-
ingaaldar. Þýðandi og þulur
Þór Magnússon þjóðminja-
vörður.
20.45 Á doppóttum vængjum.
Kanadísk mynd um mann,
konu og hund með doppótta
vængi.
20.55 Miðvjkudagsmyndin, Himin
hvolfið heillar. Leikstjóri Luci-
en Lippens. Aðalhlutverk:
Madeleine Renaud og Charles
Vanel.
Myndin gerist á árunum fyrir
síðari heimsstyrjöldina.
Maöur nokkur fær mikinn á-
huga á flugi, og ekki líður á
löngu þar til kona hans heillast
af fluglistinni og líf þeirra
beggja er helgað henni.
Föstudagur 17. aprfl
20.30 „Fögur er hlíðin." Mynd
gerð af Edda-Film árið 1952.
Stjómandi Rune Lindström.
Leiðsögumaður Sigurður Þór-
arinsson. Auk hans koma fram
Haraldur Adolfsson og Gunnar
Rósinkranz.
20.50 Undirheimur leikbrúðunn-
ar. Mynd, gerö á vegum
UNESCO, um leikbrúðulistina,
sem á sér langa hefð víða um
heim.
21.20 Ofurhugar. Játningin.
22.10 Erlend málefni. Umsjónar-
maður Ásgeir Ingólfsson.
Laugardagur 18. apríl
15.50 Söngvakeppni sjónvarps-
stöðva í Evrópu. Keppnin fór
fram í Amsterdam í Hollandi
að viðstöddum fjölda áhorf-
enda, og er henni sjónvarpað
víða am lönd.
17.00 Þýzka £ sjónvarpi.
17.45 íþróttir. M.a. úrslitaleikur
bikarkeppni enska knattspymu
sambandsins milli Chelsea og
Leeds United. Umsjónarmaður
Sigurður Sigurðsson.
20.25 Smart spæjari. í austur-
landahraðlestinni.
20.50 Soffía Loren. Mynd um líf
og starf ítölsku leikkonunnar
og fegurðardísarinnar Soffíu
Loren.
21.45 Áfram hjúkrunarkona.
(Carry on, Nurse). Brezk gam-
anmynd, gerð áriö 1958. Leik-
stjóri Gerald Thomas.
ÚTVARP #
Sunnudagur 12. apríl
10.25 Rannsóknir og fræði. Jón
Hnefill Aðalsteinsson fil. lic.
ræðir viö Hallfreð Öm Eiríks-
son cand. mag.
11.00 Guðsþjónusta í kapellu
Háskólans. Haukur Ágústsson
cand. theol. prédikar, séra
Grímur Grímsson þjónar fyrir
altari. Guðfræðinemar syngja
undir stjórn dr. Róberts A.
Ottóssonar söngmálastjóra.
13.15 Er Atlantisgátan að leysast?
Dr. Sigurður Þórarinsson pró-
fessor flytur lokaerindi sitt.
19.30 Náttúruvemd og mengun.
Stefán Jónsson ræðir við sér-
fróða menn.
20.00 Píanósónata i C-dúr (K545)
eftir Mozart. Arthur Balsam
leikur.
20.10 Kvöldvaka.
Mánudagur 13. apríl
19.30 Um daginn og veginn, *
Þorvarður Júlíusson bóndi á
Söndum í Miðfirði talar.
19.50 Mánudagslögin.
20.20 Karl Marx og jafnaðarstefn
an. Jón R. Hjálmarsson skóla-
stjóri flytur erindi.
20.40 Einleikur á selló: Pablo
Casals leikur.
21.00 „Víxill, köttur, gömul
kona", smásaga eftir Bjöm
Bjarman. Höfundur flytur.
Þriðjudagur 14. aprfl
19.30 Víðsjá. Haraldur Ólafsson
og Ólafur Jónsson sjá um þátt-
inn.
20.00 Lög unga fólksins. Geröur
Guðmundsdóttir Bjarklind
kynnir.
20.50 Lundúnapistill. Páll Heiðar
Jónsson segir frá.
23.00 Á hljóðbergi. Hundrað og
tuttugu dagar Sódómu: Austur-
ríski leikarinn Walter Kohut
les á þýzku kafla úr skáldsögu-
handriti markgreifans de Sade.
Miðvikudagur 15. apríl
16.15 Veöurfregnir. Gleð þig ungi
maður. Sæmundur G. Jóhannes
son ritstjóri á Akureyri flytur
erindi.
19.35 Á vettvangi dómsmálanha.
Sigurður Líndal hæstaréttar-
ritari skýrir frá.
20.30 Lífið er dásamlegt. Ragn-
heiður Hafstein les kafla úr
minningabók Jónasar Sveins-
sonar læknis.
21.00 Samleikur í útvarpssal:
Denis Zsigmondy og Anneliese
Nilsen leika á fiðlu og píanó.
21.35 Kjör aldraðs fólks í Hafnar-
firði. Jóhann Þorsteinsson
flytur erindi.
Fimmtudagur 16. apríl
19.45 Leikrit: „Ef til vill" eftir
Finn Methling. Þýðandi: Torf-
ey Steinsdóttir. Leikstjóri:
Erlingur Gislason.
21.00 Sinfóníuhljómsveit Islands
heldur tónleika í Háskólabíói.
Stjórnandi: Bohdan Wodiczko.
Einsöngvari: Guðmundur Jóns-
son.
21.45 Sænsk ljóð. Guðjón Ingi
Sigurðsson les ljóðaþýðingar
eftir Magnús Ásgeirsson.
22.15 Veðurfregnir. Spurt og
svarað. Ágúst Guðmundsson
leitar svara við spumingum
hlustenda.
Föstudagur 17. april
19.35 Efst á baugi. Tómas Karls-
son og Björn Jóhannsson fjalla
um erlend málefni.
20.05 Einsöngur í útvarpssal:
Guðmunda Eliasdóttir syngur
íslenzk lög við undirleik Magn-
úsar Bl. Jóhannssonar.
20.20 Á rökstólum. Björgvin Guð i
mundsson viðskiptafræöingur í
fær fulltrúa úr öllum framboðs j
flokkum í Reykjavík til þess i
að ræða um borgarstjórnarkosn ’
ingamar í vor. ,
22.35 Kvöldhljómleikar: Frá tón- |
leikum Sinfóníuhljómsveitar !
íslands í Háskólabíói kvöldið j
áður.
• •
Laugardagur 18. aprfl
13.00 Þetta vil ég heyra. Jón 1
Stefánsson sinnir skrtfiegum j
óskum tónlistarunnenda.
14.30 Á líðandi stund. Helgi Sse-
mundsson ritstjóri rabbar við
hlustendur.
15.15 Laugardagssyrpa í umsjá
Jóns Ásbergssonar og Jöns
Braga Bjarnasonar.
17.30 Frá svertingjum f Banda- 1
rikjunum. Ævar R. Kvaran
flytur erindi.
19.30 Daglegt líf. Ámi Gunnars- ,
son og Valdimar Jóhannesson !
sjá um þáttinn.
20.00 Hljómplöturabb. Þorsteam
Hannesson bregður plötum á
fóninn.
20.40 „Þegar ég fór á grímudans-
leik“, smásaga eftir Einar Loga
Einarsson. Höfundur flytur.
21.00 Norski fiðlusnillingurmn
Ole Bull. Sveinn Ásgeirsson
hagfræðingur tekur saman þátt
inní og flytur hið mælta mál.
22.15 Veðurfregnir. Danslagafónn
útvarpsins. Pétur Steingrims-
son og Ása Beck vrð fóninn og
símann i eina klukkustund.
Síðan önnur danslög af hljóm-
plötum.