Vísir - 14.04.1970, Page 4

Vísir - 14.04.1970, Page 4
Ví S I R . Þriðjudagur 14. apríl 1970. Nú vill engiim Denis Law Fyrir um tíu dögum var einn fraegasti knattspyrnumaður á Bretlandseyjum, Denis Law hjá Mandh. Utd., settur á sölulista/ og metinn á 60 þúsund pund, en ennþá hefur ekkert félag gert boð í hann. Law er þrítugur að aldrj og hefur átt við mikil meiðsli að stríða siðasta keppn- istíma'bil, en virðist nú hafa náð sér að fullu. Manoh. Utd. keypti hann frá ítalska liðinu Torinó 1962 fyrir 116 þúsund sterlings- pund, sem þá var metupphæð fyrir brezkan leikmann. Hann hafðj áður leikið með Hudders- field og Manch. City, sem keypti hann 1960 fyrir 55 þúsund pund (einnig metupphæð þá). Þegar hann fór til Torinó — í júnií 1961 — var söluverðið 100 þús. ; pund — og fékk Law 40 þús- j und pund af því. 18 ára gamall var hann valinn í skozka lands- liðið, yngstj leikmaður, sem þann heiður hefur hlotið. I’ mörg ár var Dennis Law talinn frá- bærasti leikmaður í enskri knattspymu, eldfljótur ög leik- inn og mjög marksækinn, en skapmikill og hefur það oft komið honum í koll. Með Manch. Utd. hefur hann tvívegis orðið deildameistari, bikarmeist- ari 1963, og átti mikinn þátt í velgengni félagsins, þegar það sigraðj í Evrópubikarkeppninni 1968, þótt hann gætj ekki leikið I úrslitaleiknum gegn Benfica vegna meiðsla. Samningur hans hjá Manoh. Utd. rennur út í sumar — en hann mun hafa haft 10 þúsund pund f árslaun hjá félaginu eins og Bobby Charlton og Georgie Best — og mun hin óvænta ákvörðun Manch. Utd. að setja Law á sölulista standa í sambandi við endurnýjun á samningnum, þar sem félagið vill ekkj greiða honum þetta kaup áfram. Umsjthi Haöur Simonarson Danskir og sænskir leikir eru á næsta getraunaseðli Úrslit á 14. seðlinum verða kunn annað kvöld Knattspyrnutímabilinu á Englandi er nú að Ijúka og því verða íslenzku getraunirnar að leita annað til að fá leiki á seðil sinn. Á næsta getraunaseðli, hinum 15. — með leikjum 18. og 19. apríl — verða danskir og sænskir leikir, auk tveggja landsleikja frá Bretlands- eyjum. Á seðli 14 hafa enn aðeins fengizt ein úrslit, það er bikarleikurinn milli Leeds og Chelsea, en í kvöld verða nokkrir leikir háðir, sem eru á seðlinum, og af- gangurinn síðan annað kvöld. En við skulum aðeins líta á leik- ina á 15. seðlinum. Þeir eru þessir: I’rland — Skotland Wales — England Hvidovre — Brönshöj Horsens—Frem Álborg — Randers B 1901 — Vejle B 1919 —B 1903 Djurgárden — Elfsborg Göteborg—A.I.K. Malmö FF-GAIS Norrköping—Östers Örebro — Átvidaberg Leikur Irlands og Skotlands verð- ur háður í Belifast á Norður-Irlandi og síðast, þegar löndin mættust þar, sigraði Irland — eða kannskj má segja öllu heldur George Best, en hann er fæddur í Belfast, og hann hefur vfst aldrei sýnt betri leik. Wales og England leika I Cardiff í Wales og síðast vann England þar auðveldan sigur 3 — 0. Á eftir landsleikjunum koma Bezta sundfólkið á * IK-moti í kvold Hið árlega sundmót ÍR verður háð í Sundhöllinni í kvöld og hefst kl. 8.30. Búast má við skemmtilegri keppni, þar sem meðal keppenda er allt bezta sundfólk Reykjavfkur og nágrannabæjanna. Keppnisgreinar á mótinu verða 200 m. bringusund karla, 100 m. skriðsund karla og 100 m. flugsund karla allt greinar. þar sem við eig- um jafna og góða sundmenn. I kvennagreinum verður keppt f 100 m. fjórsúndi, 200 m. bringusundi og 100 m. flugsundi. Þá verður og keppt í nokkrum boðsundum og unglingasundum. Blackpool aftur í 1. deild á Englandi Blackpool, knattspyrnufélagið frá skemmtanaborginni í Lan- cashire á vesturströnd Englands, rétt fyrir norðan Liverpool, vann sig upp í 1. deild í gærkvöldi, þeg- ar félagið vann Preston með 3—0 og leikur því aftur í 1. deild eftir þriggja ára fjarveru úr deildinni. Þetta var mikiil sigur fyrir fram- kvæmdastjórann Les Shannon, sem tók við félaginu sl. haust, og Fred Pickering, hinn gamla miðherja Englands og Everton, sem skoraði öll mörk Blackpool í gærkvöldi, en Billy Casper varð Banda- ríkjameistari í golfi Meistaramót Bandaríkjanna í golfi lauk seint í gærkvöldi í Georgíu- fylki í Bandaríkjunum með sigri Billy Casper og er það í fyrsta skipti, sem þessi frægi golfleikari verður golfmeistari Bandaríkjanná — en 16 sinnum áður hefur hann keppt í mótinu. Casper hlaut í verð- laun rúmlega 2.2 milljónir islenzkra króna. Casper sigraði eftir aukakeppni við Gene Littler, en þeir léku 18 holur til úrslita og fór Casper hring lnn á 69 höggnum gegn 74 hjá Littler. Aðalkeppnin var mjög spennarrdi og voru Casper og Littler beztir með 279 högg, en Gary Player, hinn frábæri golfleik- ari frá Suður-Alfr&u, varð þriðji með 280 högg. Plaýer varð að keppa undár k%Begiu»en*d vegna kynþáttastefnu stjórnar sinnar, en margír Bandaríkjamenn eru nú æf- ir vegna þess, að bezti tennisleikari Bandarfkjanna, svertinginn Arthur Ash fékk ekki að leika í Suður- Afríku. Þegar þrjár holur voru eftir virt- ist Littler sigurstranglegastur — var með tveimur höggum betri ár- angur, en hinir tveir. En honum mistókst og þegar að síðustu hol- unnj kom voru þeir Player, Littler og Casper allir jafnir. Player mis- tókst j>á en Casper var tvo metra ifrá holunni eftir þrjú högg, en Littler um sex metra. Littler „púttaði" og mistókst, og sigur Casper virtist í höfn. Hann undirbjó sig vel og „púttaði", en kúlan stanzaði á holubarminum og auka- keppni var nauðsynleg. — hsítn. hann réðist einnig til félagsins sl. haust. Blackpool hefur verið eitt af litríkustu félögum Englands eftir siðari heimsstyrjöldina og þar léku snillingarnir Stan Matthews og Stan Mortensen — ásamt fleiri kunnum, enskum og skozkum lands liðsmönnum. Félagið varð bikar- meistari 1953, eftir að hafa tvivegis tapað í úrslitum, 1948 og 1951. Nokkrir leikir voru háðir í 1. og 2. deild í gærkvöldi o-g urðu úrslit þessi: 1. deild: Stoke — Ohelsea I—2 Tottenham—Manch. Utd. 2 — 1 2. deild: Aston VHIa — Sheff Utd. 1-0 Preston—Blackpool 0 — 3. Chelsea skoraði tvö mörk í fyrri háífleik gegn Stoke (Hutchinson og sjálfsmark Skeels) og tókst að sigra, þrátt fyrir þreytumörk á leik- mönnum liðsins í s.h. sem skiljan- legt er eftir hinn erfiða úrslitaleik sl. laugardag gegn Leeds. Martin Ohivers og Alan Gilzean skoruðu mörk Tottenham og þar var staðan einnig 2—0 í hálfleik. Huddersfield og Blackpopl færast upp í 1. deild en keppnin á botn- inum í 2. deild er mjög hörð. Aston Villa hefur enn sinávon, en þetta fræga félag hefur lokið leikjum sfn- um. Staða neðstu félaganna er nú þannig: Watford 40 9 12 19 42:53 30 Aston Villa 42 8 13 21 36:62 29 Oharlton 41 6 17 18 33:72 29 Preston 41 8 12 21 42:61 28 Vegna aukaleiksins í bikarkeppn- innj munu landsliðsmenn Leeds og Chelsea sleppa við að leika f lands- leikiunum, sem hefjast um næstu helgi. mi'lli Englands. Skotlands, Wales og Norður-frlands — en það voru ekki færri en nfu leikmrnn Leeds, sem voru unohafleea valdir í hin vmsu landslið, og fjórir frá Ohelsea. Gam'a félagið hans Þórólfs Beck — St. Mirren — trvggði sér sæti á- fram f 1. deild á Skotlandi, þegar félaqið s’graði St. Johnstone 3—2 i gærkvöldi svo danskir leikir og eru Kaup- mannahafnarliðin Hvidovre og Brönshöj efst á blaði. Dönsku leik- irnir eru fimm, og síðan koma fimm sænskir leikir, fyrsta Stokkhólms- félagið Djurgárden gegn Elfsborg. í blaðinu á morgun eða fimmtudag verður staðan í dönsku og sænsku keppninní birt. ítalski knattspyrnumaðurinn Luigi Riva var kjörinn „knatt- spyrnumaður Evrópu“ nýlega og á sunnudaginn bætti hann enn einni skrautfjöður í hatt sinn, en félag hans, Cagiiari frá Sardiníu, varð ítalskur meistari í knattspyrnu í fyrsta sinn f sögu félagsins. Riva var langmarka- hæstur hjá félaginu. IBV vann Selfoss Tveir knattspymuleikir vom háð- ir í Vestmannaeyjum um helgina, en meistaraflokkur Selfoss kom í heimsókn. í fyrrj leiknum á laugar- dag sigraði ÍBV með 6—1 en á sunnudag urðu úrslit 3 — 0. E3cki lék Þórólfur Beck með ÍBV í þessum leikjum. Til sölu kápur, pelsar, dragtir, kjólar, jakkaföt og kvikmyndatökuvél. Uppl. í síma 30584.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.