Vísir - 14.04.1970, Page 7
VÍSIR . Þriðjudagur 14. apríl 1970.
7
AXMINSTER býSor kjör viS ollra hœfi,
SIMI 30676.
GRENSASVEGI 8
Halldór Haraldsson skrifar um tóniist:
Kammertónleikar
Dvorak: Strengjakvintett,
op. 77
Leifur Þórarinsson:
Strengjakvartett 1969
Schubert: Oktett, op. 166
Flytjendur: Kennarar Tón
listarskólans, Björn Ól-
afsson, 1. fiðla, Jón
Sen, 2. fiðla, Ingvar
Jónasson, víóla, Einar
Vigfússon, celló, Einar
B. Waage, kontra-
bassi, Gunnar Egilsson,
klarínetta — ásamt
Herbert H. Ágústssyni,
hom og Hans P. Franz-
syni fagott.
'P'yrsta verk þessara tónleika,
Strengjakvintett op. 77 eft-
ir Dvorak var í góðu samræmi
við góðviðrisdagana hér, með
sínum angurværu stefjum og
náttúrlegu stemningu sunnan úr
Bæheimi. Það var ólík stemn-
ingin í næsta verki, Strengja-
kvartett 1969, eftir Leif Þórar-
insson. Það fer ekki milli mála
við fyrstu áheyrn þessa verks,
að höfundur kann vel að halda
á penna. Verkið er fjölbreyti-
legt, litbrigöaríkt, en býr um
leið yfir hugmyndum, sem
minna hver á aðra eða eru hrein-
lega endurteknar, en ávallt með
nýjum hætti, svo það heldur at-
hyglj manns vakandi allan tím-
ann. Samt er ekkj hægt að var-
ast þá hugsun, hve sum áhrifa-
meðul í nútímatónlist — svo
sem viss notkun glissando,
pizzicato sí og æ, þessar eilífu
tvíundir og sjöundir — eru far-
in að verða margtuggin. Þá ,er
þessj svokallaða „raunsæja“
bölsýni nútímans allsráðandi, á
hana er litið sem sjálfsagcjan
hlut fólk er að veröa henni
samdauna. Raunin er samt lík-
lega sú, að þessi verk, sem end-
urspegla þannig hrylling og von-
leysi nútímamannsins, breyti
þarna litlu um. Eru listamenn
ekki að bæta gráu ofan á svart
með því að endurspegla nútím- -
ann þannig, þótt í göðri mein-
ingu sé? Nógur er nú hryllingur-
inn samt. Er ekki möguleiki á að
snúa dæminu við? Byrja meö
tónlistinnj og láta síðan um-
hverfinu eftir að endurspegla
það, sem tónskáldið tjáir í tón-
list sinni? Það kemur líklega að
því að þaö verður frumlegt að
vera pósitffur.
Að lokum var svo leikinn
hinn fagri, en mjög langi oktett
Schuberts, sem mörgum er vel
kunnur og hefur heyrzt hér
nökkrum sinnum áður. — Allur
fiutningur þessafa verka var
með mestu prýði. Það er því
merkilegra, þar sem því má ekki
gleyma, að allir eru þessir menn
störfum hlaðnir. Minnir það á
væntanlega tónlistarhátíð hér í
vor. Þaö yrði dæmigert fyrir
margt hér á Fróni, ef kvartett
Björns Ólafssonar, sem kynnt
hefur hér margar perlur kamm-
ertónlistarinnar, yrði þá látinn
sitja aðgerðalaus.
Fyrsta sinni á
Reykj a víkur f lugvelli
Ein af Rolls Royce vélum
Loftleiða Ienti á laugardaginn
á Reykjavíkurflugvelli fyrsta
sinni. Þetta var eina vél Loft
leiða, sein ekki hefur veriö
lengd og rnun hún í framtíð-
inni hafa leyfi til þess að nota
Reykjavíkurflugvöll sem vara
flugvöll.
Flugvélin fór síðan til
New York að ferma vörur er
fara áttu til Afríku. —JH
Söluíbúðir i
borgarbyggingum
Samkvæmt ákvörðun borgarráðs varðandi
sölu íbúða í borgarbyggingum, er hér með
augiýst eftir umsóknum þeirra er koma vilja
til greina þegar endurseldar eru íbúðir sem
borgarsjóður kaupir samkvæmt forkaups-
rétti sínum.
Að þessu sinni er um að ræða nokkrar
2ja og 3ja herbergja íbúðir við Álftamýri,
Grensásveg, Hólmgarð og Skálagerði.
Nánari upplýsingar veitir húsnæðisfulltrúi í
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar, Póst
hússtræti 9, 4 hæð, viðtöl kl. 10—12.
Borgarstjórinn í Reykjavík
Frá barnaskólum
Reykjavíkur
Innritun til vornámskeiða fyrir börn, sem
fædd eru á árinu 1963, fer fram í barnaskól-
unum (þpr með talinn æfingaskóli Kenn-
araskólans), á morgun, miðvikudaginn 15.
apríl og fimmtudaginn 16. apríl, kl. 4—6 sd.
báða dagana.
Vornámskeiðin munu standa yfir frá 11.-23.
maí n.k.
Fræðslustjórinn í Reykjavik.
Aðalfundur
Ferðafélags íslands verður í Lindarbæ, uppi,
mánudagskvöld 20. apríl 1970 kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Lagabreytingar. — Reikningar félagsins
liggja frammi á skrifstofunni.
Ferðafélag Istands.