Vísir - 14.04.1970, Qupperneq 8
8
Ví S I R . Þriðjudagur 14. apríl 1970.
Utgafandi: KeyKiapretu u„
Framkvœmdastiori Sveinn R Eyióitsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjón Jón Biririr Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Valdiniar H. Jóliannesson
Áuglýsingar Aöalstræti 8. Stmar 15610, 11660 og 15099
Afgreiðsla: Aðaistræti 8. Sími 11660
Ritstjórn. Laugavegi 178. Sími 11660 (5 llriur)
Askriftargiald kr 165.00 á mánuði Innanlands
I lausasölu kr. 10.00 eintakið
Prentsmiðja Vísis — Edda h.f.
W iif I ii ii i i l imnwwniiniii 'SltMWMWWMMMWWBM—————
Skattamismunun aflétt
tTyrir Alþingi er komiö frumvarp um að breyta skatt-
lagningu fyrirtækja á þann Hátt, að hún veröi ekki
þyngri en í öðrum EFTA-löndum. Er þetta í samræmi
viö loforð, sem ríkisstjórnin gaf í vetur, þegar að-
ildin að EFTA var samþykkt. í frumvarpinu felst
sú hugsun, að íslenzk fyrirtæki verði að hafa hlið-
stæða aðstöðu í sköttum og fyrirtæki hafa í nágranna-
löndunum, ef þau eiga aö geta keppt á alþjóðlegum
markaði. Fram til þessa hafa íslenzk fyrirtæki verið
ofsköttuð, til mikils tjóns fyrir þjóðarbúiö. En sú
mismunun er senn úr sögunni, ef frumvarpið nær
fram aö ganga.
Embættismenn hafa í tæpt ár unnið að gerð frum-
varpsins. Það er flutt á Alþingi af fjárhagsnefnd að
beiðni Magnúsar Jónssonar fjármálaráðherra. Reikna
má með, að umræður um það hefjist fljótlega, enda
er skammur tími til þingslita. Ef til vill mun reynast
ókleift að ræða málið út fyrr en á nýju þingi í haust.
Það ætti út af fyrir sig að nægja, því að meginatriði
frumvarpsins eiga að taka gildi um næstu áramót.
Hins vegar er sjálfsagt að hraða málinu eins og kost-
ur er.
Hið nýja frumvarp hefur í för með sér gagngerðar
breytingar á skattlagningu fyrirtækja. Meginstefna
þess er ekki einungis sú, að gera íslenzk fyrirtæki
samkeppnishæf í EFTA, heldur einnig að stuðla að
myndun eigin fjármagns í fyrirtækjum, auðvelda
samruna þeirra og tryggja, að fjármagn leiti ekki út
úr þeim í öðru formi en hæfilegum arðgreiðslum.
Frumvarpið gerir ráð fyrir auknu svigrúmi í fyrn-
ingu eigna. Meira verði hægt að fyrna, þegar vel
gengur. Fyrstu ár hverrar eignar á þó fyrning að vera
svipuð og áður. Jafnframt verður allur atvinnurekstur
settur jafnt gagnvart fyrningu og sérréttindi falla
brott. Og loks verður heimilt að fyrna eign að fullu.
í öllu þessu felst áhrifamikil stefnubreyting.
Annað meginatriði frumvarpsins er skattfrelsi arðs.
Gert er ráð fyrir, að arðgreiðsla og greiðsla í arð-
jöfnunarsjóð verði skattfrjálsar af hálfu fyrirtækis-
ins upp í 10%. Og hvað snertir viðtakanda arðsins,
þá er hann skattfrjáls upp í 20.000 krónur á ári til
tekjuskatts og hlutabréfaeign skattfrjáls upp í 100.000
krónur til eignaskatts. Jafnframt á að leggja varasjóði
fyrirtækja niður. Með þessum aðgerðum er reynt að
gera hlutafjáreign samkeppnishæfari við sparifjár-
eign en verið hefur.
Þessi meginatriði eiga að gera fyrirtækin fjárhags-
lega öflugri og hvetja menn til fjárfestingar í fyrir-
tækjum. En önnur atriði eru einnig í frumvarpinu,
svo sem að sameignarfélög verði skattlögð eins og
hlutafélög, að auðveldari verði samruni og slit fyrir-
tækja og loks að um fyrninguna gildi bráðabirgða-
ákvæði fyrir árið 1970.
Frumvarpið er mjög þarft og nauðsynlegt. Ástæða
er til að hvetja þingmenn til að styðja það eindregið.
\\
/
□ Rilið milli lífskjara
hvítra og svartra í
Bandaríkjunum er gífur-
legt en fer þó minnk-
andi. Fyrir fimm árum
hafði meðalfjölskylda
svertingja aðeins 54% af
tekjum hvítrar meðalf jöl
skyldu. Þremur árum
síðar höfðu svertingjar
náð 60%. Helmingur
svertingjanna býr enn í
Suðurríkjunum, og þar
er mismunurinn lang
mestur. í öðrum hlutum
Bandaríkjanna hafa
svertingjafjölskyldur
Bilið milli hvítra
og svartra minnkar
Þó hefur meðalfj'ólskylda svertingja aðeins
60°Jo af tekjum hvítrar meðalfjölskyldu
um 75—80% af tekjum
þeirra hvítu að meðal-
tali.
Nærri helmingur svertingja-
fjölskyldna, eöa 48%, hairði árið
1959 minnj tekjur en það mark,
sem stjórnin setti fyrir „fátækra.
tekjur“ Nú er þessi prósenta
um 29%: Á þessu itímabili náðu
hundruö þúsunda svertinija
upp fyrir þetta fátækramark.
Tveir svartir sömu
tekjur og einn hvítur
Munurinn er þó mlkill i
tekjuskiptingunni. Sagt er, að
svertingi geti eftir fjögurra ára
menntaskólanám ekki vænzt
meiri tekna en hvítur maður,
sem aðeins hefur barnaskólanám
að baki. Á sama hátt fái svert-
ingi eftir fjögur ár í háskóla
naumast meirj laun en hvítur,
sem aðeins hefur lært í mennta-
skóla f fjögur ár. Af þessu leiðir,
að i fjölskyldum svertingja eru
oft tveir aðilar, sem afla
tekna, en þó ekkj meiri til sam-
ans en ein fyrirvinna í venju-
legrj hvítri fjölskyldu.
Fjórðungur táninga
atvinnulaus
Atvinnuleysi néöi til 7,0%
svertingja í febrúar síðastliðn-
um, en 3,8% hivitra. Meðal tán-
inga var munurinn meiri 25,3%
af svertingjum i þeim aldurs-
flokki gengu atvinnulausir, en
11,7% hvítra. 16% svertingja og
3% hvítra voru á framfærslu
hins opinbera.
í landi bíla og sjönvarpstækja
áttu 38% af svertingjafjölskyld-
um eigið heimi'li en 64% hvítra,
40,3% af fjölskyldum svertingja
áttu bifreið á móti 51,8% hvítra.
Sjónvarpstækj fyrir svart-hvítt
sjónvarp áttu 81,9% svartra
heimfla og 77,5% hvítra, sem
kemur til af því, aö 33,5% hvítra
fjölskyldna og 12,4% svartra
höföu þá stigið skrefiö lengra og
eignazt litsjónvarpstæki.
Meðaltekjur fjölskyldu voru
um 440 þúsund krónur fyrir
svarta og um 800 þúsund fyrir
hvita. Þetta er nokkuð hátt í fs-
lenzkum krónum. en sýnir eng-
an veginn kaupmátt. Tekjur á
mann voru um 90 þúsund fyrir
svertingja og rúm 200 þúsund
fyrir hvítan, það eru tekjurnar
deildar niður á hvem borgara,
að bömum meðtöldum.
Trúa á friðsam-
lega þróun
Svertingjar verða róttækari
í kröfum og styðja í sífellt
ríkara mæli hina byltingarsinn-
llllllllllll
JM) i'O'M
iniBiBaaBraaiin
Umsjón: Haukur Helgason
vera frjáls maður, þegar
svertingjar fara að auglýsa
ilmvötn í sjónvarpi,“ segir
einn.
„Svertingi er það að þurfa
ekki sálfræðing til að segja
þér, hvað að þér amar.“
uðu í sínum röðum. Þó sýna
skoðanakannanir, að flestir trúa
enn á friðsama þróun til aö ná
rétti sínurn. 97 af hundraði svert
ingja telja, að vandinn leysist
með því að auka menntun
svartra, 93% telja það vænlegt,
að svertingjar eignist eigin fyr-
irtæki, og 92% binda vonir við
kosningar fleiri svertingja f
valdastööur. 42 af hundraði
vilja aftur á móti, að svertingjar
„reisi götuvfgi" f baráttu sinni
og beiti haröneskju, en 41%
telja slíkt mjög til hins verra.
41% vflja styöja byltingarsinn-
aða leiðtoga í röðum sínum, en
nærri jafnmargir, eða 39% eru
andvígir byltingarmönnunum,
samkvæmt þessari skoðanakönn
un.
58% hafna ofbeldi
Svertingjar voru spurðir,
hvort nauðsynlegt væri að beita
ofbeldi í baráttunni fyrir jafn-
rétti. Æ fleiri svara þeirri spurn.
ingu játandi, en þó er mikill
meirihluti þeirra andvígur vald-
beitingu og ofbeldi. Meirihlutinn
trúir enn á kenningar Martins
Luther Kings heitins, um frið-
samlega baráttu án valdbeiting-
ar. Nú segja 58 af hundraði nei
við ofbeldinu, en 31% já. Árið
1966 voru þessi hlutföll 59 gegn
21, og árið 1963 63 gegn 22.
Svertingjar í Suöurrfkjunum eru
andvígastir va'ldbeitingu, 64
gegn 23. Valdbeitingin hefur
ekki meirih'luta í neinum aldurs-
flokkj svertingja. Þeir, sem
fram ganga í óeirðum, eru því í
minnihluta og njóta ekki stuðn-
ings alls þorra þess fólks, sem
þeir segjast berjast fyrir. Bylt-
ingarhópum svertingja fer sífellt
fjölgandj og „aktívistamir"
verða fleiri. Að vissu marki
njóta þeir samúðar allra svartra
manna, en tiltölulega fáif þeirra
eru þó reiðubúnir til þátttöku
að minnsta kosti, við núverandi
aðstæður. Svertingjar eru enn
hollir Martin Luther King og eft.
irmönnum hans.
Efling byltingarsinnanna er
lítil síðustu árin, þegar tillit er
tekið til þess, að King var sjálf-
ur myrtur. Þessi formælandi
friðsemdarinnar féll fyrir her '-
ofbeldisins. Þetta var mikið á-
fall fyrir formælendur friösam-
legrar jafnréttisbaráttu, en hef-
ur ekki nægt til að kollvarpa
stafnunni.