Vísir - 04.07.1970, Page 9

Vísir - 04.07.1970, Page 9
V í SIR . Laugardagur 4. júlí 1970. 9 TfSISSPYB- Saknið þér sjónvarpsins? Guðni Guðmundsson, vegg- fóðrari: — Já, ég verð nú aö segja það. Og þá helzt frétt- anna. Kristín Dagbjartsdóttir: Alls ekki. Bryndís Valgeirsdóttir, menntaskólanemi: — Nei, það geri ég ekki. Ingibjörg Gunnarslóttir, 10 ára: — Já — en bara pínulítið. Svo hef ég alltaf saknað Dýrl- ingsins, síðan hann hætti. Lárus Loftsson, matsveinn: — Nei, ekki beint. Tryggvi PéturSson, 13 ára sjómaður: — Sjönvarpsins? ... Nei. Það er svo leiðinlegt. Laxinn er dyntóttur Hvort sem menn stunda laxveiðar eða ekki, fer ekki hjá því að Reykvíkingar þeir er aldrei kasta fýrir lax fái einhverja nasasjón af þeirri göfugu íþrótt, laxveiðinni. — Naumast verður ekið út úr höfuðborginni að sumarlagi án þess að reka augun í gúmmíklæddar kemþur, stand andi keikar með veiðarfærið skagandi út í loft- ið. Þeir er aldrei hafa smitazt af laxveiðbakter- íunni slá sér gjarnan á lær og hlæja dátt: „hvernig nenna mennirnir að standa þarna og togast á um maðk?“ — En við skulum nú spjalla ögn við örfáa þekkta laxveiðimenn um veiðina í „mestu laxveiðiá veraldar“, og ann- arri lítilli, sem virðist vera að skáka þeirri gömlu. Áhugamenn um lax- veiði hafa haft nokkrar áhyggjur yfir því að lax- veiði væri að minnka í Elliðaánum. Hafa get- ýmsar gátur og kenning ar verið á lofti um ástæð ur þessa, eða hvort yfir- leitt er um einhverja rýmun á laxastofni áría að ræða. Á sama tíma og þetta ber uppá, bregð ur svo við, að mikil laxa gengd er í Úlfarsá, (Korpu) og ha.fa sumir jafnvel haldið því fram að laxinn úr Elliðaán- um væri farinn að ganga í Úlfarsá. Vísir haföi samband við Þór Guöjónsson, veiöimálastjóra, og sagðist hann alls ekki vilja taka undir með þeim miinnum sem héldu að lax væri aö hverfa úr Elliðaánum. Um slíkt væri ekk- ert hægt að segja svo snemma sumars, enda sýndu skýrslur sem gerðar heföu verið yfir veiði í ánum á árunum 1949 til 1963, að veiðamar væru mjög mismunandi, bezta veiðivikan væri stundum 1 júnf, stundum i júlí, eða jafnvel ágúst. Þá kemur það í ljós af þesum skýrslum, sagði veiðimálastjóri, að ef eitthvert eitt ár er gott, þá er hætt við að næsta ár verði lakara hvað veiöisæld snertir og áin nái sér ekki verulega á strik aftur fyrr en eftir þrjú til fjög- ur ár. Úlfarsá, sagði veiðimálastjóri, er hins vegar á, sem öllu verra er að henda reiður á, þvf hún er svo mjög háð duttlungum mann anna. Hún er ekki náttúruleg á af þeim sökum að Áburöarverk smiðjan í Gufunesi tekur mikið vatn úr henni og er laxagengd in að sjálfsögðu mikiö háð vatns rnagni árinnar. Núna vildi svo til að áin væri vatnsmikil í meirá lagi og því eðlilegt aö laxinn ætti greiðari götu í hana fyrr en venjulega, er áin hef ur verið vatnsminni. Laxamerkingar hafa verið stundaðar í Úlfarsá í yfir 20 ár Ungur laxveiðimaöur mundar stöngina. og hefur merktur lax úr ánni komið fram í öðrum ám t.d. í Kollafirði. Úlfarsá stendur sig. Albert Erlingsson í Veiðimann inum hefur mikið vasazt i lax- veiði um dagana og er helzti sölumaður veiðileyfa hér í Reykjavík. Hann kvað það skiljanlegt að veiði minnkaði núna í Elliðaán- um því án efa hefði mikið drep- izt af seiðum í flóðunum sem urðu í ánni í hittiðfyrra. Við slíkar hamfarir náttúrunnar hljóti laxastofninn að vera f mik illi hættu og afturkippur að koma í ræktun laxins í ánni. Úlfarás er hins vegar í góöri ræktun og drepur ekkí af sér seiði — sagði Albert, en þótt núna sé þar ótrúlega mikil ganga, er ekki þar með sa-gt að ekki geti bráðlega úr henni dregið, og þá jafnvel að laxinn taki aö ganga meira í Eliiðaárn ar. Og hvernig sem allt veltur sagði Albert, þá er það öruggt að nóg er um laxinn, trillukarl- amir segja að sjórinn sé krökk ur af honum hér úti á vogunum og sundunum. Þá haföi Vísir samband við Axel Aspelund, formann Stanga veiðifélagsins. Axel vildi ekki koma með neinar kenningar um háttalag iaxins f Elliðaánum og Úifarsá. Sagði hann að þó ýmsir héldu veiðina vera að rýrna, þá væri ekkert um þaö mál að segja fyrr en kæmi fram á sum ar. v Nægur lax — segir Ásgeir Einn er sá veiðimaöur er einna bezt þekkir Elliðaámar og framferði laxins í þeim, en þaö er Ásgeir Ingólfsson, fréttamað ur. Ásgeir var kampakátur er við spjölluðum við hann, sagði að engip ástæða væri að vera svartsýnn. Þvert á móti áliti .bapn aj5,laxveiðin yrði gðð f sum ar. Hann sagði að flóðin f hittið fyrra ættu ekki að hafa neitt að segja varðandi veiðina, því næg ar ráðstafanir hefðu verið gerð- ar til aö tryggja viðhald laxa- stofnsins: 20.000 gönguseiðum var sleppt i ána. Ekki vildi Ásgeir frekar en aðrir, setja fram neinar ákveðn ar skoðanir eða kenningar um veiðina í sumar, engin reynsla kæmi á veiöisæld ánna fyrr en eftir fyrsta stórstraumsflóð, þá fyrst færi laxinn að ganga að marki í árnar. Næst verður stór streymi þann 6. júlí. Ásgeir sagði að brúarsmíðin vfir árnar truflaði eðlilega eitt hvað veiðiskap, en þó væri varla orð á því gerandi, engin reynsla kæmi á þessar brýr — hvaö veiðiskapinn varðar — fyrr en eftir að umferð færi að fara um þær. Þá lagði Ásgeir áherzlu á aö hjá verkfræðingum við brúar- gerðina heföi rikt mikill skilning ur á hagsmunum veiöimanna, brúarsmiðir hefðu vendilega gætt fyllsta hreinlætis og ekki misst nein skaðvænleg efni f árnar. Laxinn leikur á teljar- ann Svartsýni varðandi laxveið- ina hefir aðallega grundvallast á því, að miklu færri laxar en áður hafa farið í gegnum teljar- ann. Hins vegar er sjórinn og áin neðan við teljarann krgkk af laxi, þar sjá veiðimenn „ugga við ugga“ eftir því sem einn veiðiglaður sagði okkur í morg- un. Á fimmtudagskvöldið höföu veiðzt 80 iaxar og voru þá liðn ir 10 dagar frá þvf veiöin hófst og verða slík aflabrögð að telj- ast góð. Úlfarsá er víðast hvar svo , grunn að vaða má I hana miðja á lágstígvélum, enda þykir mörgum furðu sæta, að svo mikill lax skuli ganga í ána. Að vanda kastaði borgar- stjóri vor í Elliðaámar fyrsta dag „vertíðarinnar“ og feng- ur hans lofaði góðu um á- framhaldið: 5 vænir laxar.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.