Vísir - 20.10.1970, Blaðsíða 2

Vísir - 20.10.1970, Blaðsíða 2
Næringarsérfræðingar og meltingartruflanir „Ameríkanar eru svo kærulaus ir um maga sinn og meltingu að j'afnvel meltingarsérfræðingar at- huga ekki að borða almennilega" sagði prófessor einn i næringar- fræöi á ráðstefnu sem fjallaði um heilsufar almennings í USA. f>að var dr. Emmanuel Cher- askin sem gaf skýrslu þann 22. júní s.l. og var skýrsla sú unn- in upp úr athugunum sem hann hafði gert. Þær athuganir leiddu £ ljós, að hans sögn, að 43% Bandaríkjamanrfa liðu beinlínis af næringarskorti, fengju ekki nóg af A-vítamínum úr mat sín- um. 65% fá ekki nægt járn, sagði doktorinn. „Eins og ástandið er £ þessu menningarríki okkar, þá er næst- um ómögulegt fyrir borgaria þessa lands að boröa mat sem inniheldur nægilegt magn nauð- synlegra næringarefna. Og ef jafnvel þeir sem sérmenntaöir eru í næringarmálum fá ekki næg vit'amfn £ mat sínum, hvaö þá með almenna borgara?" Maó og Símon. Ekki vitum við um andlegan skyldleika þeirra, þó svo vilji til að þeim geðjast að sömu bílategund. Símon var hér áður ákafur stuðningsmaður Maós og vissi fátt fyrirlitlegra en peningajöfra. Nú er öldin önnur. MAÓ ER VEL AKANDI - EINS VEL OG SIMON SPIES Sú mynd sem liðlega 700 millj- ónir Kinverja hafa fengið af Maó formanni — þ. e. að hann sé hálf- gerður guð, landsfaðir sem af al- hug taki þátt i hversdagslegu striti almúgans, virðist ekki alveg potbþétt — a. m. k. ekki hvað snertir smekk h'ans fyrir bílum. Maó fonmaður tiiheyrir nefni- lega þeim fámenna, en einkar viröulega hópi manna í verö'ld- inni, sjem. eiga,,Jý[þi:cedes, 600. Vestur-þýzka timaritið, Stern, hefur útbúið kort yfir þá sem eiga glæsibifreiðir, hverjir það eru og hvar þeir bú'a. Kemur í ljós, að Mercedes 600 hefur viða tekið við af þeim brezka Rolls Royce sem farartæki þjóðhöfð- ingja og ríkisbubba. Sennilega myndi einn Mercedes 600 kosta hér á íslandi eitthvað í kringum 6 milljónir, en farkost- urinn er búinn sjónVarpstæki, út- varpi, síma, innanbílssíma (til að gefa biilistjóranum fyrirskipanir • um, en hann situr bak við hljóð- einangraða rúðu) barskáp, segul- bgndstæki og bakvél, Mercedesinn hans Maós er að sögn ekki búinn öllum þessum tcökjum, en samt sem áður er þaö vísit, að bíllinin hans hdfiur ekki verið sérlega ódýr, kominn alla leið til Kína — Hann á reyndar tvo. Og iVTaó er ekki eini kommún- istaforinginn sem er vel akandi og í hinum virðulega hópi sem Stern hefur bent á. Þeir eru þarna líka kunningjar okkar, Tódor Zhivkov £ Búlgaríu, Ceaus esou í Rúmenu og Tító f Júgó- slavíu. Aðrir sem eiga Mercedes 600 eru páfinn, keisarinn í Persíu, Bhumibol kóngur í T'ailandi, Bongo, forseti Gabons og fjöld- inn allur af kollegum Bongós í Afríku. Ekki munum við íslendingar geta státað af þvi aö eiga félaga í hinum virðulega Mercedes 600 félagi. Og í Danmörku mun sá bú'a sem næstur okkur er. Það er ferðaskrifstofumilljónungurinn Simon Spies. Mercedes 600. Farkostur þjóðhöfðingja — og Símons Spies. Ævmtýri Paolu prinsessu Paola og „de Mun“ á Sardiníu. Hneyksli! Hneyksli! æpa viku- og dagblöð út um alla Evrópu þessa dag'ana, Og enda ekki að undra. Paóla prinsessa, eiginkona Alberts prins bróður Baldvins Belgíuikóngs hafur átt ástar- ævintýri með óþekktum manni. Prinsessan og hinn dularfulli maður sem hún er með á með- fylgjandi mynd, tóku sömu flug- vél frá Brussel til Niss'a. Þar fóru þau um borð í flugvél sem flutti þau til Sardiníu. Hún not- aöi i ferðinni nafniö Madame Legrand. Sá dularfulli, sem eng- inn ber kennsl á, ferðaöist hins vegar undir nafninu Monsieur de Mun og kvaðst verla franskur diplómat. Enginn diplómat með því nafni er á skrá í Frakklandi. Þau Paóla og de Mun voru saman í 14 daga á Sardiníu. Sam band þeirra varð heyrum kunn- ugt er þau aö þeim tíma liðn- um gengu eftir ströndinni og hafði maðurinn handlegginn um mitti prinsessunnar. Ljósmyndari frá ítölsku vikuriti vhr nær og festi hvert spor þeirra á filmu. Þegar í stað voru fréttamenn komnir á slóð þeirra skötuhjúa og segja mörg evrópsku blöðúi fjálglega frá, hversu hamingju- söm þau hafi virzt saman. Við þennan átburð hefur hjóna band hennar og Alberts prins verið tekiö undir smásjá blaðanna og allt dregið fram í dagsljósið sem bendir til að Paóla sé ó- ánægð i því hjónabandi. Þ’au eiga saman 3 böm og er líklegt að eitthvert þeirra setjist i framtíðinni í hásæti Belga, því Baldvin kóngur á ekki erfingja og er því Albert bróöir hans erfðaprins. Paóla er 32 ára.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.