Vísir - 08.12.1970, Síða 3

Vísir - 08.12.1970, Síða 3
VISIR . Þriðjudagur 8. desember 1970, 3 í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Vastri menn vinna á ® Vinsírisinnaði alþýðu- flokkurinn undir forystu Bhutto, leiðtogi vinstrisinna. Zulfikar Ali Buttos, fyrr- um utanríkisráðherra. hafði í morgun fengið 34% atkvæða, sem talin höfðu verið í kosningunum í Pakistan. Hafði flokkurinn fengið 31 af þeim 84 þing- sætum, sem endanlega hafði verið skorið úr um. Önnur þingsæti skiptast á marga flokka. í Austur-Pakistan hafði fiokkur sheiksins Mujibur Rahmans unnið 58 þingsæti, og hafði flokkurinn auk þess forystu í öMum öðrum kjördæmum nema einu. Búast menn við því, aö Mujibur Rahman verði næsti forsætisráð- herra Pakistan. Þetta voru fvrstu kosningar, eft- ir að almennur kosningaréttur 'haifði verið í lög leiddur í Pakistan. Konur kusu nú í fyrsta sinn. Náttúruhamfarirnar í Austur- Pakistan höfðu sín áhrif í kosn- ingabaráttunni, einkum í Austur- Pakistan, en þar búa um 55 af hundraði kjósenda. Mujibur Rah- man, sem virðist munu fara með sigur af hólmi í Austur-Pakistan, hafur gagnrýnt stjórnvö'ld hart fyr- ir dáðleysi í skipuilagningu hjáfp- ars'tarfsins. 1570 frambjóðendur börðust um 299 þingsæti. Flokkamir eru 24 talsins, og era um 80 af hundraöi kjósenda ólæs- ir og kjósa meftn því eftir merkjum á atkvæðaseðlum. Virðist flest benda ti'l 'þess, að hið nýkjöma þing verði Khan for- seta þungt í sfcauti. Khan ákvað að hafa lýðræðislegar kosningar í land inu, en þar hefur ríkt einveldi um langt skeið. Fyrirrennari núverandi forseta hafði á sínum tíma leyst upp þingið. Hann sakaði stjóm- málamenn og flokksforingja um spillingu. Nú munu flokksforingj- arnir aftur taka við stjóm Pakist- ans. Yahya Khan forseti Pakistan varð að þola harða gagnrýni frá Mujibur Rahman, sem virðist munu sigra í flestum kjördæmum í Austur- Pakistan. Forsetanum var. kennt um seinagang stjórnvalda við hjálp arstarfið eftir flóðin. Umsjón: Haukur Helgason. Átján fórust í flugslysi S Átján fórust í gær, þegar rúm- ensk farþegaflugvél hrapaði við Constanza í Rúmeníu. Flugvélin var af gerðinhi BAC 111 og var á leið frá Tel Aviv í ísrael til Bucuresti í Rúmeníu. — Hrapaði vélin, er hún flaug til lend- ingar á alþjóðlega flugvellinum við Constanza um kl. fjögur í gær. Ekki hafði verið unnt að lenda í Bucuresti vegna illviðris, og hafði þess vegna verið flogiö til Cón- stanza. Farið var með slasaða fólkið í sjúkrahús, þegar efltir slysið, og nefnd hóf rannsókn slyssins undir stjóm Mihai Marinescu varafor- sætisráðherra. Palme tapaði Olof Palme forsætisráðherra Svíþjóðar leggur hart að sér í borðtennisnum, sem myndin sýnir. Þetta kom þó að engum notum, enda var andstæðingurinn enginn annar en Kjell Johansson, meistari Svía í borðtennis. Paime tapaði með 21:4 og 21:8. — Leikurinn fór fram í hléi á Norður- landameistaramóti í borðtennis í Haímsted, Svíþjóð. 70 handteknir í Aþenu Að minnsta kosti 70 manns hafa verið hand- teknir í Aþenu, þeirra á meðal tveir fyrrverandi þingmenn. Er fólkinu gefið að sök að hafa staðið á bak við skemmdarverk, sprgng ingar og mótmælaaðgerðir gegn ríkisstjórn herfor- ingja. Stjórnvöld munu að lokinni um- fangsmikilli rannsókn ákveða hvort fólkið skuli koma fyrir herrétt eöa sent til afskekktra. þorpa, þar sem stjórnvöld segja að það gæti lítið illt af sér gert. Meðal handtekinna era tveir af forystumönnum í flokki Giorgios Papandreous. Einnig var nú tekinn hcindum hinn kunni lögfræðingur Evanghekos Janopoulos, sem hefur verið verjandi í réttarhöldum yfir mörgum andstæðingum herforingja stjórnarinnar. • Öryggislögreglan telur, aö hinir handteknu hafi haft samband við pólitíska fanga og aðstoðað þá við að senda bréf og yfirlýsingar úr fangelsi og undirbúa flótta. Vegna fréttar.... Vegna fréítar í Vísi 2. des. sl. er bar yfirskrift ina: LYKILL AÐ NEYÐARÚTGANGI FANNST EKKI Á HÚTELINU viljum vér benda á að þjófabjölluþjónustan VARI hef- ur smíðað sérstaklega út búna kassa þar sem geyma má lykla, sem þurfa að vera til taks í neyðartilfellum. Slíkir kassai eru í notkun til að mynda á Hrafnisfu. Kassarnir eru þann ig útbúnir að fólk getur ekki tekið lyklanr nema aðvönmarbjaHa klingi eða aðvörunar- ljós kvikni. Veitum fúslega allar nánarí imr*iýsingar. Þjófubjölluþfóipiistaii ¥ARI Garðastræti 2. — Sími 26430. — Opið 9—12.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.